Reykjavík - 09.06.1906, Side 3
R E Y K J A V I K
99
OLIVER TWIST,
In heimsfrœ«a sliíildsa.«>:a eflir Oharles
Oickens, kemur nú út í vandaðri islenzkri
þvðingu. Saga þessi lieíir verið gefin út á flest-
um öðrum tungumálum og hvervetna veríð vel
tekið. Oliver Twist er jafn vel fallin til lest-
urs fyrir fullorðna sem börn. Það mun óliætt
að fullyrða, að þeir, er lesið liafa sögu þessa, telja
hana ágæta. Ilún er þannig skrifuð, að hún
hlýtur að glæða alt gott og göfugt hjá hverjum
manni — unguin og gömlum — en vekja við-
bjóð á öllum smásálarskap og varmensku í hverri
mynd sem er. Hofundurinn, Charles Dickens,
er lieimsfrægur og inesta uppáhald allra ment-
aðra manna, sem hann þekkja.
Hver sem vill eignast góða og spennandi skáld-
sögu til að lesa, ætti að kaupa OLIVER
TWIST.
Lítið á!
Lítið á!
G.Clir.Jemesen
aðist nýlega, og þótti öllum, er hana þektu,
in mesta eftirsjá að henni.
f Þorlákur Guðmundsson, fyrv.
alþingismaður, andaðist aðfaranótt 7. þ.m.
að heimili sínu Hlíð (undir Öskjuhlið).
Hann var fæddur 1834; bjó lengi að Mið-
felli i Árnessýslu, síðar í Hvammkoti (Fífu-
hvammi). Hann var þingmaður Árnesinga
24 ár samileytt (1875—99). Þorlákur var
einhver með allra-greindustu mönnum, en
mentunarlítill; hafði enga fræðslu fengið
í uppvexti, nema að læra lestur og „kverið“.
Hann var djúphygginn maður, ljós í hugsun
og vel máli farinn. Frjálslyndur maður
og framsýnn, vandaður maður í hvívetna;
tryggur og vinfastur. Hann var mesti
þarfamaður á þingi, og hefði hann haft
mentun, sem náttúrugáfum hans hæfði,
hefði hann vafalaust, orðið einn af |helztu
sköi’ungum þingsins. Samvizkusemin var
frábær. Hann lætur eftir sig ekkju og
tvær dætur, Ásbjörgu og Hallbjörgu, báðar
giftar.
Veðurathuganir
í fteykjavík, eftir Sigríbi Björnsdóttcr.
Júní 1906 Loftvog ! millim. 1 Hiti (C.) | Átt *o æ •8 4 > g) a a rHÍ m Úrkoma millim.
Fö 1.8 763,9 9,5 0 1
2 762,0 12,6 N 1 0
9 761,5 10,0 SE 1 10
Ld 2.8 763,9 9,5 W 1 10 1,9
2 763,6 10,5 sw 1 3
9 764,1 7,9 sw 1 9 0,7
Sd 3.8 764,6 8,0 s 1 10
2 767.1 9.0 sw l 10
9 768,5 8,2 sw 1 10
Má 4.8 769,2 9,2 sw I 10
2 770,2 12,4 s 1 8
9 768,2 9,3 E 1 10
Þr 5.8 763,7 9,4 ESE 1 10 7,9
2 764,1 9,8 SE 1 10
9 762,9 8,6 SE 1 10
Mi 6.8 761,3 9,7 0 10 8,5
2 762,8 8,6 w 1 10
9 763,6 7,5 sw 1 5
Fi 7.8 766,2 7,6 0 4
2 763,4 9,2 NW 1 2
9 762,5 9,5 NW 1 4
Bakarar. V OO—Bakarar.
Nú höfum viö opnað okkar stóru, nýju búð ú Lauga-
vegi 7 og mælum með okkar ýmislegu l>i*anÖtegund-
um og kökum við heiðraðan almenning hér í bænum.
Við liöfum o<»- stærst drval hér í
bæ, sem bezt má sjá á þeim tjölda viðskiftavina, sem
við höfum aílað okkur þá stuttu stund, sem við höfum
haft bakstur hér.. — Góð og vönduð afgreiðsla, snyrti-
legar umbúðir. — Brauð og kökur sent um allan hæinn.
Beztu nýjar tvíbökur 30 au. pd., og um 30 tegundir
af ýmsum kökum. — Pantið brauð og kökur í Telefóninum.
Óútgengin brauð seld hvert Laugardagskvöld kl. 9—
10 fyrir bálft verð.
Telefón 123. Laugavegi 7.
Komið, rcynið, ðæmið!
Fatasaum með ísl. sniði og
aðgerðir, á börn og fullorðna,
tekur að sér Dagbjört Guðjóns-
dóttir, Skólavörðustíg [25.
Döinur!
Lærið að hjóla (cycla); ódýrust
kennsla á
Laugaveg I.
Tímaritin.
lÓðinn1, 11, 1. — Mynd af konungi
vorum og drottningu. — Til Guðmundar
Guðmundssonar skálds. Kvæði eftir j. —
Sigurjón Friðjónsson: 4 smákvæði. —
G. M.: Norðri (kvæði). — Fjórir merkis-
bændur (Run. Jónsson dbrm. í Holti;
Ingim. Eiríksson í Rofabæ; Halldór um-
boðsm. JónssoníVik; Jón Árnason dbrm.
í Þorlákshöfn) með myndum. — Dr. Björn
Bjarnason: Sæmundar-Edda.— Baga eftir
Sæmund Holm.
II, 2. G. B.: Þórh. Bjarnaison lektor,
með mynd. — Guðm. Friðjónsson: Mergur
málsins. — Sigurður hreppstj. Sigurfinns-
son. ðleð mynd. — Verzlunin Edinborg.
Með mynd. — Símon Dalaskáld. Meðmynd.
— Sig. Kr. Pétursson: Nokkur kvæði. —
Gamlar visur.
lÆgir1, II, 1. — Eiskiflotinn á Reykja-
vikurhöfn. Með mynd. — H. A. Solling:
Ný aðferð með geymslu á fiski í ís. —
„tsl. Fa)k“. — Skýrsla yfir fisk útakipaðan
frá suðurhluta Faxaflóa 1880—1899, og verð
á fiski á því tímabili. — O. M. Olsen:
Veðurspár, leiðarvísir fyrir fiskimenn. —
Ymislegt.
Raddir almennings.
TollliækKuii og vörnverö.
Fiestir muna vist enn, hvilíkt, Rama-
hróp varð út úr tollhækkun þings-
ins í fyrra, og hvernig óvandaðir
72 pds., 1 og 2 pda selur
Jón Ólafsson.
N ý k o m i ð;
Appelsínur og Bananas
á Aintmannsstíg 5
Kvoninaiinsiir týndist ann-
an dag Hvítasunnu á Laugavegi.
Finnandi er beðinn að skila þvi
gegn fundarlaunum i Hafnar-
stræti 22.
Kjebenhavns
* 'argarine
Fineste
L Kvafitet
ÍK
tit al Hustioldningsörug
99
f'æ s t í venlunim
GODTHAAB
Svencl'boi'g’ ofnar og elclavélai'.
Viðurkent að vera bezta vara á markaðinum, fást með einföldum frá-
gangi og upp til ins skrautlegasta. — Magasín-ofnar, Oirkulations-ofnar og Reyk-
brenslu-ofnar. — Eldavélar, til að múra upp eða fritt standandi sparnaðarvélar. —
Vinna og efni ið allra-vandaðasta, verð ið ódýrasta.
Biðjið um sýnisbók. Hún er send ókeypis.
Einkaútsaia í Kaupmannahöfn : m—*'/n
J. A. Hoeck, Raadhusplads 35.
æsingamenn notuðu hana til þess að
spenja bændur upp á móti þingi og
stjórn. Það var þá látið í veðri valca,
að tollhækkunin væri eitthvert ið
versta gerræði og að hún kæmi harð-
ast niður á þeim sem fátækastir
væru, á bændum og þurrabúðarmönn-
um. Og margir muna víst enn eftir
orðum eins bændafundarmannsins,
sem spurði að því, hvort það v^ri
satt, að það ætti að hækka kaffi og
sykurpundið um 30 aura?!
Hver er nú raun á orðin?
Kaffipundið hér í höfuðstaðnum er
nú, þrátt fyrir tollhækkunina, 3 au.
á pd., í sama verði og í fyrra. Og
sykurpundið er nú, þrátt fyrir H/2
eyr. tollhækkun á pundinu, 2 aurum
ódýrara en í fyrra, eða 23 au. pd.
nú í smásölu, í stað 25 au. í fyrra!
Þett.a gerir með fram in frjálsa sam-
keppni að verkum.
En ætli mönnum flnnist nú ekki,
að þeir æsingamennirnir, er hrópuðu
hæst í fyrra og notuðu tollhækkun-
ina sem svipu á þing vort og stjórn,
megi fara að blygðast sín.
Merkúr.
Ósvimia.
Herra ritstjóri! Mikið þætti mér
gaman að því að fá að vita, hvaðan
sá fagri siður stafar, að hleypa heldri-
manna dætrum, búðarstúlkum o. s.
frv. að eftir átveizlur hér í bæ og
nota þær tii þess að dansa við eftir
matinn. Mér vitanlega tíðkast ekki
siður sá annarstaðar en hjá villiþjóð-
um. ,
Ég er hlessa á, að feður og mæð-
ur stúlknanna skuli leyfa þetta. Og
þó furðar mig enn meir á ungfrú
num, að þær skuli þiggja annað eins
og það fegins hendi. En langmest
gengur það þó fram af mér, ef hefð
arfrúr, sem eiga að þekkja manna-
siðu annarstaðar að, gangast fyrir því
að smala st.úlkunum saman.
Útlendingar, sem þetta virðist gert
fyrir aðallega, gera' skop að okkur
fyrir það. Og þeir bera heldur ekki
ýkja mikla virðingu fyrir „frökenum"
þeim, heyrist mér, sem láta fara svona
með sig. En hvnnær fara stúlkur
vorar að sjá betur sóma sinn og hve
nær hætta „sprauturnar“ að srnala?
Hrefna.
Pciiliigabudclu heflr einhver
skilið eftir í Landsbankanum;
eigandi getur vitjað hennar í
Hafnarstræti 22.
Herbergi nieð Iiiisbúnadi
til leigu hjá amtrn. J. Havsteen.
Síróp
fæst í verzlun
Jóns Þórðarsonar,
Linglioltsstr. 1.
Dömu-úr með festi fundið á götunum.
Ritstj. ávísar finnanda.
Til leigu nú þegar 2 herbergi með
húsgögnum. Skálholtsstíg 7.
Hér með færum við okkar innilegt
þakklæti öllum þeim mörgu, sem heiðr-
uðu útför Guðríðar sáh, okkar elsku-
legrar dóttur, með nærveru sinni 5. þ.
m., og á ýmsan hátt sýndu okkur sér-
staka hluttekningu við þá sorgarathöfn.
Engey, 6. Júni 1906.
Pórunn Jónsdóltir. Brynj. Bjarnarson.
ÞakKarávarp.
Öllum þeim sem af mannúð og dreng-
lyndi auðsýndu okkar eiskuðu dóttur hjálp
og umönnun í veikindum hennar, sem svo
drógu til dauða fjarri heimili og vanda-
mönnum, biðjum við algóðan föður á liæð-
um að launa af ríkdómi sinnar náðar. Bezt
og innilegast þalcklæti flytjum við herra
Hallgr. bókaverði Melsteð i Rvík og öðrum
í húsi hans, sem stunduðu þetta okkar
elskaða barn í banalegunni og létu sér svo
annt um að hjúkra því á allan hátt. Þá
einnig vini og frænda okkar herra Bjarn-
héðni Þorsteinssyni í Rvík, sem iagði sitt
ið ýtrasta fram í félagi við hr. Hallgrím
^ð gera útförina sem heiðarlegasta. Þvi
fremur er okkur alt þetta veglyndi ó-
gleymanlegt og mikilsvert, að á þessum
sama tima hömluðu hættuleg veikindi okk-
ur frá að taka hlutdeild i því þungbæra
skylduverki, að annast um útförina,. þar
sem ég — faðir hennar — lagðist, á lieim-
leið úr langferð á Ægissíðu í Holtum i
hastarlegri lungnabólgu og varðþar að njóta
allra krafta konu minnar að stunda mig í
veikindunum. Og í tilefni af því viljum við
síðast en ekki sízt votta þeim heiðurshjón-
um Jóni Guðmundssyni og Guðrúnu Páls-
dóttur á Ægissíðu hjartáns þakklæti fyrir
alla hjálp og nákvæmni frá fyrsta til síð-
asta í veikindunum. Þau laun, sem himna-
faðirinn sér þessum og öðrum okkar vel-
gerðamönnum hentust, biðjum við hrærð
í hjarta að þeir uppskeri á hentastri tið.
Eystri-Tungu i Landeyjum í Apríl 1906.
Ingibjörg Vigfúsd. Gnðni Porsteinsson.