Reykjavík - 05.01.1907, Qupperneq 3
R E Y K J A V í K
3
Einar Hjörleifsson er að öllu sam-
töldu bezta söguskáldið, sem vér ís-
lendingar höfum enn eignast, og það
hefir verið honum sjálfum og þjóð
vorri mein, að hann hefir ekki getað
gefið sig allan og óskiftan að þvi
starfi, sem lætur honum bezt og
hiýtur að vera honum kærast.
Raunalegasta aðalógæfa lífs hans
var það, að hann lenti í blaðamensku,
einkum fyrir það, að hann varð, til
að halda lífinu, að ganga í þjónustu
annara vestan hafs, og varð að láta
aðra ráða að mestu stefnu sinni og
starfl.
Hann hafði til brunns að bera sem
ritstjóri frá öndverðu óvenju-lipran
rithátt, en mikinn skort á þekking
almennra máia og gersamlega van-
þekking á stjórnfræði og mannfélags-
fræði — og heflr jafnan eimt nokkuð
eftir af því.
En það sem einkum heflr einkent
blöð þau er hann hefir verið við rið-
inn, er skortur á virðing fyrir sann-
leikanum, þar sem flokksfylgi hefir
riðið í bág annars vegar, og ótrúleg
oftrú á hugsunarieysi alþýðu, sem
hann hefir álitið ait bjóðandi.
Þe.tta heflr hefnt sin svo, að „Fjall-
konan“ var orðin áhrifalaust blað, og
það sem verra var og verst liggur
eftir Einar á blaðamensku-ferli hans,
var það, h'versu hann sýkti frá sér
útgefanda ísafoldar, sem var nýtur
blaðamaður ait þangað til Einar varð
aðstoðarmaður hans, svo að ísafold
er nú eigi að eins orðin minst metna
blað höfuðstaðarins, heldur og lang-
skaðvænasta blað þeim flokki, sem
hún fylgir, svo að það er að orðtaki
orðið um alt land, að þjóðræðisflokk-
urinn og iandvarnarflokkurinn hafl
ekki nú um nokkur ár átt neinn
mótstöðumann eða mótstöðublað, er
jafnmikið hafl stuðlað að ósigri flokks-
ins eins og þetta flokksblað.
Bezta blaðamenskuskeið Einars var
óefað fyrst eftir að hann byrjaði
„Norðurland", meðan Páll Briem var
aðal-húsbóndi hans.
En nú er E. H. úr sögunni að
sinni sem blaðamaður, og „sofr hann
nú hér í friði“ sem lengst.
Það er það bezta, sem auðið er að
óska honum og þjóðinni.
Að hann fari að gefa út andatrúar-
tímarit viljum vér ekki trúa að ó-
reyndu. Það væri sjálfum honum
fyrir verstu. Þjóðin er væntanlega
nokkurnveginn „bólusett" gegn því
fai'gani.
En hins viljum vér einlæglega óska,
að auðið verði á einhvern hátt að
gera honum lífvænlegt að fást við
sagnaskáldskap.
Með því móti gæti hann enn látið
þjóð sína njóta þess sem honum er
bezt gefið, og friðþægt á efri árum
fyrir 19 ára blaðamensku syndaferil
sinn.
Væri kostur að stuðla að því á
einhvern hátt, teljum vér víst að
margur pólitiskur mótstöðumaður
vildi til þess styðja eins vel og vinir
hans.
Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins
(„Dagbiaðið," „Frækorn," ,Reykjavík().
Eftirprentun bönnud.
Kaiipmannahöfn 31. Des., 8,24 árd.
(Meðt. í Rvík kl. 6,25 síðd. 1. Jan.).
— Heilbrigðisráðið („Sundhedskolle-
giet“) hefir kært Alberti ráðgjafa fyrir
konungi fyrir einræði hans í embætta-
veitingum.
Gamall betrunarhússlimur heflr
skotið með marghleypu á Koch
dómstjóra og særðist hann, en er þó
eigi í neinni iífshættu.
Stormar og snjókyngi megn á Bret-
landi; hafa eimlestir víða tepst á járn-
brautum og símar bilað mjög víða.
r
Islands-banki
ávaxtar fé með innlánskjörum og gefur fyrst um sinn,
frá 1. Janúar 1907 að reikna, allt að 4L/2°/o (fjórar krón-
ur fimmtíu aura af hundraði) í ársvexti.
Dagbók.
ORGEL.
31. Des.
(flcðilegt Nýjár! Þökk fyrir gamla
árið öllum vorum skiftavinum og öll-
um, sem gagn hafa unnið landi og lýð
á iiðnu ári!
Verði 'þetta frambúðarríkt farsceld-
arár fyrir þjóð vora!
„Vesta“ fer kl. 9 í fyrramálið til
útlanda.
Frá Sauðárkrókl kom símskeyti
sem oss heflr góðfúslega verið leyfður
birtingarréttur á, og skýrði frá, að
séra Björn Bl'óndal (Lárusson) hefði
orðið bráðkvaddur á 2. Jóladag við
annexíu sína.
Víða er pottur brotinn — viðar
en á íslandi. Nú í fyrra kvöld kom
talsvert af skeytum frá útlöndum
hingað, er seinkað hafði, daglangt eða
meir, í Englandi eða Skotlandi, sakir
landsímaslita þar, svo að um tíma
tók fyrir alt símasamband milli New-
castle (yfir Aberdeen) til Hjaltlands.
3. Jan.
Ráðherranum fagnað. Á gaml-
árskvöld komu um 2 þúsundir manna
saman úti fyrir bústað ráðherrans,
þá er klukkan sló tólf um miðnætti
og nýja árið gekk í garð.
Var þar sungin þessi vísa (eftir ó-
nefndan höfund):
„Þér hefir þjóðin falið
. og þingið íslands mál;
þig hefir vísir valið
að vera landsins sál.
Drag hátt vort helga, merki,
í hraustum arm það ber!
í góðu’ og göfgu verki
vér gjarnan fylgjum þérl“
Þar næst flutti Jbn ritstjóri Ólafs-
son ráðherranum nýársheillaósk í fám
orðurn í nafni mannfjöldans; en með
því að hann stóð mitt í mannþröng-
inni og aðþrýstingur á allar hliðar,
heyrðu' fáir til hans, nema þeir sem
allranæst stöðu, enda byrjaði „Vesta“
að blása og skjóta í sömu andránni.
Ráðherrann kom út á gluggsval-
irnar rétt áður en byrjað var að
syngja, a og glumdu þá við húrra-
hrópin undir eins.
J. Ó. endaði á: „Lengi lifi ráð-
herra Hannes Hafstein! “ og tók ailur
mannfjöldinn undir með margföldu
húrra.
Ráðhérrann talaði þá fyrir fóstur-
jörðinni, og vonum vér að flytja inn-
tak þeirrar ræðu á Laugardaginn. —
Var nífalt húrra hrópað á eftir.
Þá var sungið „Eldgamla ísafold!‘.
Loks bað ráðherrann menn hrópa
húrra fyrir höfuðstað landsins ogvar
það gert. Síðan var sungið: „Ó,
fögur er vor fósturjöpð" og skildust
menn við það og fóru heim.
Víða kváðu við samþykkisóp meðan
ráðherrann talaði, og var auðheyrt
að öllum fanst mikið til um ræðu
hans.
»Sæsímiim slitinn!« kvað við á
gamlárskvöld, því að menn vóru
hræddir urn að svo væri, þar sem
samband náðist ekki milli Hjaltlands
og Færeyja frá þvi laust eftir hádegi
þann dag og fram til kl. 4 síðd. á
Nýársdag. En þá kom í Ijós, sem
betur fór, að víst var
sicsíminn helll. En landsíminn
í Hjaltlandi var bilaður þennan tírna.
Fjórar klukkustundir streymdu útl.
skeytin svo að hér, kl. 4—8 á Ný-
ársdag.
Símaslit á Skotlandi eru mikil um
þessar mundir. I gær náðist ekkert
samband lengra en tii Hjaltlands. —
Snjókyngin og stormarnir, sem sím-
Ef menn geta fengið sér bet.ri, vandaðri og ódýrari OrgeMIar*
tiioiiium annarstaðar en hjá Kiuari Brynjólfíssyni við Þjórsár-
brú, ættu menn að kaupa þau þar. [ah.—10.
skeyti vort getur um (31. f. m.),
virðast því halda þar áfram enn.
Víðar biæs en hér á íslandi.
Veður hér í Rvík hefir verið ið
ljúfasta síðustu daga.
Einkaskeyti til „Ragblaðsins".
Seyðisflrði, 3. Jan. Trésmíðaverkstofa
Ingvars ísdals brann í gærkvöldi til kaldra
kola á tæpum kl.tíma. Tjónið 13 pús. kr.
Vátrygging að eins 8 þús. kr.
4. Jan.
Leikfélagið hélt hr. konsúi Krist-
jáni Þorgrímssyni fagnað, þá er hann
hafði leikið í síðasta sinn í fólaginu,
eftir 25 ára leikstarf.
í því samsæti afhenti formaður
félagsins honum í félagsins nafni
menjagrip dýran, gullhring, „þann er
stóð mörk“ mundu söguritarar hafa
sagt. Var það in virðulegasta gjöf
og inn bezti gripur.
5. Jan.
Ólafui’ Þórðarson í Hlíðarhúsum,
verzlunarmaður, sonur Þórðar í
Vigfúsarkoti, en bróðir Þorgríms
læknis, andaðist hér í fyrra kvöld
úr botnlangahólgu. Hafði legið
síðan á Jóladag. Hann mun liafa
verið á íimtugs-aldri.
E/s »Perwie« kom í gærmorgun til
Akureyrar með farþegana af »Kong
Inge«. »Kong Inge« er gersamlega
ónýtur.
E/s »Vesta« kom í gærmorgun
til Seyðisfjarðar og fór aftur þaðan
kl. 3,20 síðd.
»i Sll láSlBí
b
Bæjarbúar, sem liafa í liyggju
að gerast meðlimir félagsins, en
eigi hafa skrifað niifn sín á lista
þá, sem sendir liafa verið út um
bæinn, geta gefið sig fram við
oss undirritaða stjórnarmenn í
Reykjavíkurdeild félagsins.
Steingrímur Matthíasson,
Miðstræti 8.
Hannes Haíliðason, Einar Árnason,
Smiðjustíg 6. Vesturgötu 45
eða Aðalstræti 14.
Frá 14. Maí, eða lielzt frá míðj-
um Marz, óskast til leigu
4-5 herbergja hnsnxði;
má vel vera utarlega í bænum.
O. Forberg.
Kennslu veitir í ýmsum
nýjum hannyrðum, og hóklegu,
og selur áteiknað
Margrét itefáiisdóttir,
—2] Þinglioltsstræti 17.
Annaðhvort
fínasta
rjómabússmjör
eða
ÁLFA
Margarine’.
kaupir til sumarsins 60 vandaða
hnakka, albúna til nota, með 2
gjörðum, alíslenzka að smíði.
Sýnishorns verður krafist af
þeim er semst við, og því haldið
til samanburðai'.
Tilboð söðlasmiða séu komin
fyrir 15. Jan. til Pórhalls lektors
Bjarnarsonar.
Whater white steinolía er
viðurkond bezt.
Whater vvliite steinolía
fæst í
Thomsens Magaslni.
S k i p s t j i r a
vantar mig á' mjög gott skip.
Þorsteinn Þorsteinsson
í Rakkabúð.
Hitamikil, sótlítil, brenna vel
út og mynda litla ösku. Þetta eru
skilyrðin fyrir þvi, að kol séu
góð, en hvaða kol eru betur þess-
um kosturn búin, en kolin í
Thomsens jáagasíni?
Jörðin Hnausar
í Húnavatnssýslu fæst til ábúðar í
næstu fardögum, með tilheyrandi hús-
um og hálfum Sauðadal. Jörðin er
ein af beztu jörðum í sýslunni, túnið
fóðrar um 20 kýr, slægjur mjög miklar
og hagaganga góð; silungsveiði tals-
verð skamt frá túninu. Skilmálar
mjög aðgengileglr. Semja má við
sýslumann Gísla Isleifsson, Blönduósi.
Stærsta framtíðareign nálægt Reyk-
javík er Eiigey og fást 2/s partar
hennar til kaups og ábúðar 14. Maí
1907. Öllum hefir liðið vel sem þar
hafa búið.
Semja ber um kaupin við Bjarna
snikkara Jónsson, Laugaveg nr. 18,
fyrir Febrúar 1907, því um það leyti
hefi ég hugsað mér að ferðast til út-
landa. Allar nauðsynlegar upplýsing-
ar gef ég lysthafendum um jörðina
og lýsingu dómkvaddra virðingar-
manna. [—2.
Tveir sérlega fallegir grínui*
daiisliúiiiii£>'ar fást keyptir mjög
góðu verði. Ritstj. vísar á seljanda.