Reykjavík - 13.04.1907, Blaðsíða 1
Ið
1R e ^ kj a vtk.
blað til stj órnarvalda-birtinga á Islandi.
VIII, 27
Útbreiddasta blað landsins.
Upplag yfir 3000.
L'augaVdag 13. Apríl 1907.
Áskrifendur í b æ n u m
yfir 1000.
27
ygT ALT FÆST í THOMSENS MAGASÍNI. ^
Ofna Og e 1(1 * 1"V cla 1 * selur Kristján Þorgrímsson.
Oiiiai' og eldavélar c,,“"
„REYKJÁVlK"
Árg. [60—70 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlendis
^r. 3,00—3 sb.— 1 áoll. Borgist fyrir 1. Júlí.
Auglgsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,60;
3. og 4. bla. 1,25 — Útl. augl. SS1/*0/** hœrra. —
Afsláttur að mun, ef mikið er auglyBt.
Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“.
Ritstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri
Jón Ólafsson.
Afgreiðela Laufáevegi 5, kjallaranum.
Ritetjórn: ---n stofunni.
Telefónar:
29 ritstjóri og afgreiðela.
71 prent8miðjan.
„yimerisk ljerpmót“.
Ný, ónolud amerísk herpi-
nót með nýfustu gerd, sér-
staklega tilbúin fyrir íslands-
veiðar, og 150 x 20 fadma
stór, fúavarin („inpregneret“)
til sölu ódýrt.
Aalesund, Sorge.
r—28
j'lýir kaupenður
a5 ,Reykjavík“ verða að gefa sig fram
sem fyrst, ef þeir vilja fá blaðið frá
Nýári, því að upplagið er að þrotum
komið.
Frá 1. April til ársloka kostar bl.
1 kr. 50 au.
En þeir sem hér eftir vilja fá blaðið
frá Nýári, verða úr þessu að borga
það með 3 kr.
Allir kaupendur, sem borga til þessa
árs loka, fá sögusafnið, ef þeir hafa
ekki fengið það áður.
Kaupid i tíma I
Peir sem skulda „Rvik“ frá síð- •
asta ári eða fyrri árum, eru beðnir að
greiða skuld sína sem fyrst.
Ríkisráðssetan og
heimastjórnarflokkurinn.
Séra Sigurður Stefánsson ritar um
þetta efni í siðasta „Þjóðvilja“ (10. Apr.)
grein, sem hann nefnir: „Enn um
aðalatriðið".
Hann heldur því þar fram, að svo
Rti út sem heimastjórnarflokknum sé
Það „töluvert kappsmál, að halda sér-
toálum vorum í ríkisráðinu, ef taka
skal mark á blöðum þeirra nú upp á
síðkastið “.
Vér sjáum og lesum öll heimastjórn-
arblöðin („Rvík“, „Norðra“, „Austra“,
„Vestra“ og „Lögréttu“) og vér viljum
fullyrða, að í engu þeirra hafi verið
látin í ljós minsta ósk um, að íslands
mál sé borin upp í ríkisráði, hvað þá
heldur að það hafi verið gert að
„kappsmáli“.
Fullyrðing prestsins þessi er svo til-
hæfulaus og sannleikanum gagnstœð,
sem framast er hugsanlegt.
En það þarf dálítið meira en að
vilja, til þess að einhverju verði fram
gengt, það þarf líka mátt til að geta.
Hvað verður nefnilega, þótt vér ís-
lendingar heimtum breyting á uppburði
mála vorra í viðurvist ríkisráðsins, ef*
hinn málsaðilinn setur þar þvert nei
fyrir ?
Þá situr alt við það sama, sem nú er.
Það sem milli ber flokksblöðum#m
hér nú í þessu máli, er alls ekki það,
að annar flokkurinn vilji halda upp-
burðinum í viðurvist ríkisráðs, en hinn
vilji ekki halda honum.
Nei, munurinn er allur annar. Hann
er sá, að annar flokkurinn segir:
Vér viljum skuldbinda fyrirfram alla,
þá sem valdir verða í samkomulags-
nefndina, til að hafna öllu samkomu-
lagi um öll atriði, ef eigi fæst fram-
gengt þeirri breytingu, að mál vor verði
ekki borin upp í viðurvist ríkisráðsins.
Hinn ílokkurinn segir: Vér viljum
fá því breytt, að sérmálin sé borin upp
fyrir konungi í viðurvist ríkisráðsins,
svo framarlega sem þess er nokkur
kostur án þess að annað komi í stað-
inn, sem er heettulegra fidlu sjálfsfor-
rœði voru í sérmálunum.
En sé þess enginn kostur, þá viljum
vér þó ekki láta það varna samkomu-
lagi um ónnur atriði, sem landi voru
eru í hag.
Þetta, og ekkert annað, ber á milli
um þet.ta málsatriði.
petta veit séra Sig. Stefánsson ofur-
vel. En því er hann þá að segja fólki
skakt frá? Það er auðvitað ýmgftokks-
maðurinn Sig. Stef., sem telur sér leyfi-
legt, að reyna að blekkja þannig þá
menn, sem kynnu að lesa þessi orð
hans, en sjá ekki heimastjórnarblöðin,
að minsta kosti ekki öll, svo að ein-
hverjir kynnu að verða til að trúa
þessum ósannindum. En oss virðist
að maðurinn og presturinn séra Sig.
Stef. ætti að telja sig of góðan til þess.
Séra Sigurður hefir á svo miklu að
OCOOCOOOOOOOOQOOOOOOQOQOOOOOOOOOOOOOOOC
Verzlunin
Edinborg
As
Hafið þið nokkurn tíma borðað
Grape nuts?
Ef ekki, kaupið eins punds pakka til reynslu af
okkur fyrir 65 aura.
Einnig höfum við fengið nýja tegund af Brauðkexi,
er heitir
„T r i s c u i t“
60 au. pr. pd.
En sizt má gleyma:
„EiíTel Tower“ kjötseyðinu, sá heilnæm-
asti morgundrykkur, sem fæst. 10 au. pr. pk.
O
8
O
8
ÞOOOOOO
8
taka, að því er til vitsmunanna kem-
ur, að enginn getur ætlast til, að vér
eða aðrir eignum það skilningsskorti,
er hann segir um þetta mál.
Vér og aðrir höfum fyrir löngu spurt
þá herra af andstæðingsflokknum (sem
vilja sprengja alt samkomulag um önn-
ur atriði á þessu eina), hvað eigi að
koma í siaðinn. Hvaða fyrirkomulag
þeir hugsi sér á uppburði mála vorra
fyrir konungi, ef bannað sé að eiga tal
við hann um þau í viðurvist ríkis-
ráðsins.
Enginn þeirra hefir gert neina til-
raun til að svara því, nema hr. sýslu-
maður Einar Benediktsson í Politiken
í vetur. Hann taldi sig þá fyrirliða
eða flokkshöfðingja Landvarnarmanna,
og vildi láta það koma í staðinn, að
konungur setti hér danskan landsstjóra,
ábyrgðarlausan gagnvart oss, helzt
danskan prins, sem staðfesti hér lög
og önnur mál, er til konungs kasta
eiga að koma, í nafni og umboði kon-
ungs. Auðvitað mun flestum öðrum
virðast þetta viðsjálla að mun fyrir
oss, heldur en uppburður málanna,
sá er nú á sér stað.
Þetta virðast andstæðingablöðin og
hafa séð, því að þau flýttu sér öll að
keppast hvert við annað að þurka
Einar Benediktsson af sér sem vand-
legast eins og aðra saurklessu.
En þau vöruðust að koma með nokkra
bending sjálf um það, hvað þau hugs-
uðu sér að ætti að koma í staðinn.
Því að enginn getur talið það neitt
svar, þó að þau segi, að í staðinn eigi
að korna, að bera málin eklci upp i
ríkisráðinu. Þau vita það svo ofur-vel,
að engin minsta von er um, að fá
samþykki á það, að málin verði annar-
staðar upp borin, nema önnur trygging
komi í staðinn, er alrikið telji sér jafn-
mikla trygging í.
Því að frá þeirri hlið er því sífelt
fram haldið, að af alríkisins hálfu verði
eitthvert eftirlit að vera með því, að
vór förum ekki út fyrir sérmálasviðið.
Um sérmál vor hefir alrikið annars
afsalað sér öllum íhlutunarrétti.
Séra Sig. Stef. segir:
„In íslenzka sérmálastjórn ber málin upp
fyrir konungi, án þess að alríkisstjórnin
komi þar nokkuð nærri, alveg eins og al-
rikisstjórnin flytur dönsk mál fyrir hann
[=honum] án allrar íhlutunar og afskifta
íslenzku sérmálastj órnarinnar“.
En óneitanlega er hér sá munur á,
að verksvið vort eru in íslenzku sér-
mál og ekki annað; en verksvið alríkis-
valdsins eru eigi að eins dönsku sér-
málin, heldur og sameiginlegu málin.
Þennan mun telur alríkið ekki þýð-
ingarlausan.
Vér ákulum fúslega játa, að vér get-
um vel liugsað oss fyrirkomulag eins
og séra Sig. Stef. fer fram á, svo lengi
sem vér og alríkið höfum sameiginn
æðsta dómstól, er dæmt gæti ógild lög,
er vér samþyktum, ef þau færi út yfir
valdsvið eða verkahring löggjafarvalds
vors. Þannig er þetta í Bandaríkjum
Norður-Ameríku.
En þó að vér gætum verið samdóma
um þetta, þá kemur hin spurningin