Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 18.05.1907, Blaðsíða 1

Reykjavík - 18.05.1907, Blaðsíða 1
Ið 1R e y> kí a vík. blað til stj órnarvalda-birtinga á Islandi. VIII., 37 Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Laugardag 18. Maí 1907. Áskrifendur í b æ n u m yfir 1000. VIII, 37 ggT ALT FÆST í THOMSEWS MAGASÍNI. Ofna Og eldayélar selur Kristján Þorgrímsson. V erzlunin Edinborg í Reyhjavík heíir alt er menn þarfnast til Hvítasunnunnar í ríkulegum mæli, bæði til fæðis og skýlis, skrauts og ánægju. Einkum má nefna mikið úrval af ferming’argjöfum alls konar svo sem: Skrifpúlt og saumakassar ótal tegundir. [Skrifmöppur og Veski ýmis konar. “Album (mynda og korta). Stólar. Blaðasliður. Sandowsböndin frægu. JSauma- vélar. Myndir og rammar og ótal m. fl., sem allir þurfa og vilja og eiga. Þeir sem skoða munina og kymia sér yerdið kanpa. „REYKJAYÍZ" Árg. [60—70 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlendis kr. 3,00—3 sh.— 1 ioll. Borgist fyrir 1. Júli. Auglýsingar innlendar: & 1. bls. kr. 1,60; 3. og 4. bls. 1,26 — Útl. augl. 33*/»•/• hœrra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Keykjavík“. Bitstjöri, afgreiðslumaður og gjaldkeri Jón Ólafsson. Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranum. Kitstjórn: ---„ stofunni. Telefónar: 29 ritstjóri og afgreiðsla. 71 prentsmiðjan. Kaupendur i bænum, sem haja jlntt sig nú, verða að segja til heimilis- breytingar á afgreiðslu blaðsins, eða í telefón. Þeir sem senda tilkynning, nefni líka gamla heim- ilisfangið. Það þýðir ekkert að tilkynna þetta drengjunum, sem bera blað- ið út. Þeir sem ekki tilkynna oss flut- ninginn, mega sjálfum sér um kenna vanskil á bl. „Y erzlunar-blaðið“IÍÍ Hér á árunum setti „Fjósakonan" (alias: „Fjallkonan“) nýtt snið á titil sinn, svo að hann varð þannig: „ Fjattlconan Bændablað. Verzlunarblað*. Þá stóð um þetta svolítil smásaga í öðru blaði hér. Hún var svo: Danskur kaupmaður, sem var hér á ferð og sá blaðið með nýja titlinum, en kannaðist ekki við blað þetta sem „verzlunarblað" í venjulegum skilningi, spurði Reykvíking kunnugan, hvað þetta „bændablað — verzlunarblað* þýddi. — Hinn lagði það svo út fyrir honum: „Bondefangerorgan — Tilfals for hoist- bydende". Það var nú þá. En svo kom sú tíð, að engum þótti þess vert að bjóða neitt í málgagn þetta. Blaðið var orðið svo útbreiðslulítið, að enginn vildi einu sinni birta auglýsing í því, jafnvel ekki ó- keypis eða því sem næst. Þá snerist blaðið öðruvís við kaup- mannastétt landsins. 3. þ. m. reit það svo um hana: jf „ Skyldi nokkurstaðar á guðs grœnni jörð vera jafn fáfróð, greindarlaus, áhugálaus og ]>rœllynd kaupmannastétt sem á íslandi?“ Blaðið gleymdi þó að taka ofan titilinn »verzlunarblað* — eða hefir það haldið honum til aðj vekja athygli á, að það væri enn „til kaups“, væri enn verzl- unarvara? Það var þó óþarfi, því að enginn gefur eyrisvirði fyrir það lengur. Hver veit þó? Ef nokkur maður læsi blaðið, þá gæti þó verið álitsmál, hvort ekki borg- aði sig að sletta í það einhverri sleikju fyrir að fá það til að skamma sig. Það er það eina gagn eða sómi, sem það getur unnið nokkrum manni. Kaupmannastétt vor er þó skipuð of mörgum þjóðlyndum og drenglynd- um sæmdarmönnum og atorkumönn- um, sem þjóðkunnir eru, til þess að hún þurfi að halda á skömmum og svívirðingum „Fj.konunnar" sér til hróss. Svo að varla er trúleg sú saga, að neinir kaupmenn hafi borgað henni neitt fyrir að skrifa þetta um sig. Þeir þurfa þess ekki með. ólriilog’ saga er það sem flogið hefir hér fyrir, að hr. Guðmundur læknir Hannesson vilji helzt ekki suður hingað koma; hafi sagt manni hér það í talsíma, að hann hafi aldrei ætlað hingað, .að eins sótt um héraðslæknisembættið í Reykjavík í þeirri vísu von, að stjórnin hér sýndi þá hlutdrægni eða ranglæti af sér, að veita sér það ékki, og hefði svo mátt hafa það fyrir brigzl á stjórnina og æsingarefni gegn henni. Auðvitað sýnist þetta styrkjast nokk- uð við það, að „ísafold“ fann tilefni til að skamma stjórnina fýrir það, að hún veitti hr. G. H. embættið. Bar henni á brýn, að hún hefði óefað sýnt þá hlutdrægui að veita hr. G. H. ekki embættið, ef hún hefði að eins þorað(l) það. Alt um það trúum vér ekki þessari sögu um hr. G. H., og ráðum öðrum til að leggja heldur ekki trúnað á hana að óreyndu. A. T. Meller og Tulinius, Vér höfum meðtekið frá hr. Thor E. Tulinius svolátandi „Leiðréttingu“ : „Háttvirti herra ritstjóri. — Vegna þess að ég hefl frótt, að símskeyti hafl verið sent íslenzkum blöðum þess efnis, að verzlunarhúsið A. T. Meller & Co. hafi höfðað mál gegn mór („injurie- proces“), leyfi ég mér, hr. ritstjóri, að senda yður eintak af blaðinu „Dan- nebrog“ með yfirlýsing minni dags. 13. Apríl, og verð að bæta því við, að ekkert mál er enn þá höfðað af nefndu verzlunarhúsi gegn mér, og að það mun hugsa sig vel um áður en það höfðar málið. Kaupm.höfn, 3. Maí 1907. Virðingarfylst. Thor E. Tidinius“. Vér skulum geta þess, að símskeyti það sem hér er verið að leiðrétta, var sent Landvarnar og Lögréttumanna blöðunum og tekið upp í þau, en „Reykjavík" og þau blöð, sem með henni eru í Blaðskeytasamlaginu, fengu það ekki sent frá fregnrita sínum og vér höfum ekki hirt um fyrri að geta þessa. En úr því að málið nú er nefnt í blaði voru, er eins rétt að skýra frá því. Þess er þá fyrst að geta, að svo kallaðir umboðsmenn („kommissio- nærer“) íslenzkra kaupmanna í Kaup- mannahöfn, hafa langflestir (ekki allir) þann sið, að stela af kaupmönnum, sem þeir eru umboðsmenn fyrir — meira og minna, eftir því sem þeir eru bíræfnir til. Það er t. d. altízka, að verksmiðjur senda út prentaða verðlista, en tíðka að gefa meiri og minni afslátt frá því verði, sem prentað er í verðlistanum, ef borgað er út í hönd. — Hins vegar er það siður umboðsmannanna, að reikna sér umboðslaun fyrir að kaupa og selja vörur kaupmanna; þar reikna fiestir sér 21/2°/0, nokkrir 5°/0 eða jafn- vel hærra. Fer það oft saman, að þeir eru þjófóttastir, sem lægst reikna sér umboðslaunin. Nú er það altízka þjófóttra umboðs- manna að draga sér afslátt þann re þeir fá fyrir borgun út í hönd. Ef kaupmaðurinn hér skuldar umboðs- manninum, sem oft er títt, þá reiknar umboðsmaður honum engu að síður vöxtu af þeirri upphæð. Ef t. d. kaup- maður hér lætur umboðsmann sinn í K.höfn kaupa fyrir sig 50® af sjúkó- láti, þá fær umboðsmaðurinn 15°/o af- slátt frá verðlista-verði, og tekur 5% í umboðslaun. Þessum 15°/0 stélur umboðsmaður af kaupmanni og stingur í sinn vasa. Selji umboðsmaður fyrir kaupmann- inn síld t. d. og fái 28 kr. fyrir tunn- una, er hann vís til að senda kaup- manni reikning, er sýni, að síldin hafi að eins selst á 20 kr., og auk þess gæti umboðsmaður vel fundið upp á, þótt hann hefði selt síldina þegar í stað, er hann fékk hana, að telja haua selda 5—8 mánuðum síðar, og hafa svo af kaupmanni vöxtu fyrir þann tíma, og ef til vill reikna honum svo og svo mikið í geymsluhúsleigu fyrir þessa mánuði. Þessu og því um líku eru kaupmenn alvanir af umboðsmönnum sínum í Höfn. Og tízkan er orðin svo rík, að ná- lega öll stéttin virðist stökkva upp á nef sér, ef einhver kaupmaður vill á- telja slíkt að lögum. Færeyskur kaupmaður Petersen að nafni þóttist hafa einhverja reynslu í þessa átt af verzlunarhúsinu A. T. Moller, og kærði hann því Meller fyrir lögreglurétti fyrir sviksemi. Allmargir af dönskum kaupmönnum, einkum þeir sem sjálfir fást við umboðsmensku,

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.