Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 02.08.1907, Blaðsíða 5

Reykjavík - 02.08.1907, Blaðsíða 5
REYKJAVÍ K 189 Sunlight Blautasápa og aðrar vanalegar sápur skemma fötin, þessvegna nota allar hag- sýnar húsmæður „Sunlight” sápu, sem bætir þvottinn og gerir hann drifhvítann. Fylgið fyrirsögninni sem er a öllum Sunlight sápu umbúðum. Sápa Þá var sungið konungsminni eftir Stgr. Th.: „Hvað þýða mundu þéttsett hvítu tjöldin?" (sjá hér að framan). Séra Ól. Ólafsson talaði ákaflega langt mál um ísland, en endaði það loks á „Lengi lifl. Danmörk!" Steffen- sen herdómari, varaforseti Landsþings- ins, svaraði með ræðu fyrir Alþingi. Vóru svo sungin ættjarðarkvæði, og því næst brott haldið. , Fólkið var talið, þá er það fór aftur yfir brúna, og töldust full 4900 manns; en margir vóru í tjöldunum, sakir vætunnar, og á völlunum handan ár, svo að fullyrða má, að verið hafi alls um hálft sjötta þúsund manna þennan dag á Þingvöllum. Stundu af nóni hófust ghmur; glímdu 8 menn, og lauk svo að 1. verðlaun (100 kr.) hlaut Hállqr. Benedihtsson (Jónssonar frá Reykjahlíð); 2. verðlaun (50 kr.) hlaut Guðmundur Stefánsson, en 3. verðlaun (25 kr.) Jöhannes Jó- sefsson, glimukappi Akureyringa. Konungi þótti sýnilega in bezta skemtun að glímunum og fylgdi þeim með miklum áhuga. Gekk á eftir til glímumanna og heilsaði þeim hverjum um sig. Verðlaunin vóru veitt eftir byltum, en mörgum mun hafa þótt Jóhannes glima lipurlegar en Guðmundur. — En sá bar þó af öllum, er engin verð- laun fekk: unglingur Snorri að nafni Einarsson (bróðir Matthíasar læknis); hann er burðalítill og náði því ekki að fella kappana, en svo þvengmjúkur er hann, að enginn köttur er fótfimari. Hallgrími var rétt íslenzk skógviðar- grein til sigurmerkis og borinn „á gull- stóii" burt af leiksviðinu. Um miðaftan var konungi haldin veizla í skálanum; vóru þar auk þing- manna danskra og íslenzkra ýmsir aðrir boðsgestir. Vóru þai' margar tölur haldnar fjörugar. Fyrir Islands minni var þar sungið „Vort fagra land“ (sjá hér að framan) eftir Jón Ólafsson ritstjóra. Um kvöldið var dansað og dansaði konungur þar góða stund. Flugeldar vóru miklir og fagrir um kvöldið. (Meira). I.O.&.T. Gyðjal34Jf.8.Ág. kl.8 Síðd: Inn. e. €ggert Claessen, yfirréttarmálaflutnlngsinaftur. Lækjarg. 19 1S. Talsími 10. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. O Klukkur, úr og úrfestar, 8 sömuleiðis gull og silfurskraut' O gripi borgar sig bezt að kaupa á O Laugavegi nr. 12. g Jóbann A. Jónasson. OOOOOO OOOOOOOOOOOOOO OOOO Dagbók. t Benedikt Gröndal skáldaöldung- ur íslands, andaðist 2. þ. m. Verður nánara minst. f Oscar Köliler múrmeistari og etazráð, einn af ferðamönnunum dönsku með „La Cour“, ofkældist á Þingvöll- um, fékk lungnabólgu og var fluttur hingað á spítala; andaðist að morgni 7. þ. m. Útlendir blaftamenn eru hér margir. Frá helztu blöðunum í Khöfn eru þessir: Rosenberg frá Dannebrog (frændi Rosenberg heit- ins norrænufræðings); Kr. Dahl frá Politiken, Gundtzmann frá National- tidende, Svend Poulsen frá Berlingske Tidende (sonur Emils Poulsens leikara). Frú Rose Brun-Jensen er fyrir ýms jótsk blöð. Ferðamenn frá útlöndnm, sem komnir eru hingað vegna konungs- komunnar, eru margir. Meðal þeirra eru stórkaupmennirnir Tulinius frá Khöfn og Zöllner frá Skotlandi. Inniendir ferðamenn hafa og verið hjer fjöldamargir við konungs- fagnaðinn, þar á meðal sýslumenn- irnir Björgvin Vigfússon, Guðm. Egg- erz, Páll V. Bjarnason og Sigurður Ólafsson; prestar margir: Kjartan próf. Einarsson í Holti, Stefán M. Jónsson á Auðkúlu, Eyjólfur Eyjólfs- son á Melstað, Ólafur Ólafsson í Hjarð- arholti, Árni Þóvarinsson á Rauða- mel, Stefán Jónsson á Staðarhrauni, Kristinn Daníelsson á Útskálum, Arni Þorsteinsson á Kálfatjörn, Halldór Bjarnarson í Presthólum, Jónmundur Haldórsson á Barði, Magnús Þorsteins- son á Mosfelli, Gísli Jónsson á Mos- felli o. m. fl.; læknarnir: Júlíus Hal- dórsson, Sigurður Pálsson, Stefán Gíslason og Þórður Pálsson ; Jón Stef- ánsson ritstj. „Norðra", Kr. H. Jóns- son ritstj. „Vestra“, nokkrir bændur úr Norðurlandi, þar á meðal: Brynj- ólfur Bjarnason í Þverárdal, Ingi- mundur Magnússon á Bæ í Króks- firði, Jónas Sveinsson á Sauðárkróki, Jósef Björnsson á Vatnsleysu, Sigurð- ur Sigurðsson á Húnstöðum, Guðm. Guðmundsson á Þúfnavöllum, Einar Sigfússon á Stokkahlöðum, Sigurjón Benjamínsson á Ingveldarstöðum, Finnur Jónsson á Kjörseyri, Björn Jónsson á Veðramóti, Stefán Björns- son á Skíðastöðum og margir úr nær- sýslunum, einkum úr Kjósar og Gull- bringusýslu, Borgarfirði og af Mýrum, auk hinna kosnu manna, er sýslurn- ar hafa valið til að sjá um hesta þá, er sýslufjelögin hafa sent í konungs- förina. Fundur í st. Ársól á Sunnud. 11. þ. m. kl. 4. Fréttir frá stórstúkuþingi. Embættis- mannakosning. Áriðandi að allir mæti. Kjólasaum tek ég undirrituð að mér nú þegar. Vandað verk. Saumalaun lægst í bænum. Ragnh. Clausen Jónsson, Vesturg. 22. [ah Veðurathuganir eftir Knud Zimsen. Júli 1907 Loftvog 1 millim. Hiti (C.) -4^ *o 8 u 0 *o o > Cð 'Cð *o © > Fö. Í9. 7 761.3 12.4 A 2 Alsk. 1 761.2 13.5 SA 3 Alsk. 4 760.0 15.0 SA 2 Regn 10 760.6 12.0 A 3 Alsk. Ld. 20. 7 759.2 14.0 A 5 Alsk. 1 758.6 15.2 A 6 Regn 4 758.9 13.6 ASA 6 Regn 10 758.4 12.0 A 5 Alsk. Sd. 21. 7 760.4 8.9 SSV 3 Regn 1 763.4 14.9 SV 2 Alsk. 4 764.4 14.7 sv 2 Alsk. 10 765.3 10.0 Logn 0 Regn Má. 22. 7 766.4 12.4 A 3 Alsk. 1 766.3 14.5 SA 4 Alsk. 4 766.3 12.2 SA 2 Regn 10 765.8 8.7 ASA 1 Alsk. Þd. 23. 7 764.7 11.2 ASA 3 Alsk. 1 764.0 15.7 A 3 Skýjað 4 763.8 16.2 ASA 2 Skýjað 10 763.8 10.2 A i Skýjað Mi. 24. 7 763.7 12.5 A i Hálfsk. 1 7G4.3 14.6 NV 3 Hálfsk. 4 764.2 14.1 NV 3 Skýjað 10 764 2 10.6 V 1 Alsk. Fi. 26. 1 763 8 11.3 sv 1 Alsk. 7 763.2 14.6 VNV 4 Smásk. 4 762.7 14.5 V 4 Sklaust 10 762.3 9.8 SSV 2 Smásk. Þakkir kann ég þeim sem hafa blómskreytt leiði mannsins míns sál. Páls Olafssonar í sumar, og væri mér sérlega kært að fá að vita, hverjir þeir eru. Bagnhildur Bjarnardóttir. Gripin af handahófi úr þúsundum vottorða eru ummæli þau §ein liór fara á eftir: Ég undirritaður hefi þjáðst í mörg ár af matarlystarleysi og magakvefi, en við það að neyta stöðugt Kína- Lífs-Elexír hr. Valdemar Petersens er ég orðinn allæknaður, Hliðarhúsum, 20 Ágúst 1096. Halldór Jónsson. Meltingarörðugleikar. Þó að eg hafi ávalt verið sérstaklega ánægður með yðar alkunna Elexír, verð ég samt að kunngera yður, að ég tek ið bætta seyði fram yfir, með því að það hefir miklu fljótari ahrif við meltingarörð- ugleika og virðist langtum nytsamara. Ég heíi reynt margs konar bittera og lyf við magaveiki, en þekki ekkert meðal, sem hefir jafn mikil áhrif og þægileg, og kann því þeim sem hefir fundið það upp mínar beztu þakkir. Fodbyskóla. Virðingarfylst. kennari J. Jensen. Hýruatæriug;. Ég undirskrifuð, sem hefi þrjá um fertugt, hefi í 14 ár þjáðst af nýrna- tæringu með þar af leiðandi óreglu í þvaggangigum, vatnssýki og harðlífi, höfuðverk og almennri veiklun. Ég hefi látið skera mig upp og oft legið rúmföst. Af og til hefi ég verið föt- um fylgjandi, og við að neyta Kína- Lífs-Elexírs Waldemar Petersens hefi ég fundið að ég styrktist, svo að ég hefi fundið tilefni til að neyta þess reglulega. Með þessu hefir mér tekist síðustu árin að sefa sjúkdóminn; en hann hefir ágerst aftur hvenær sem ég hætti að neyta elexírsins; þó hefir verkun þess enzt lengur og lengur í hvert sinn, svo að það er full sann- færing mín, að elexírið muni að lok- um geta allæknað sjúknað minn. Lambakoti, Eyrarbakka 17. Maí 1905. Jóhanna Sveinsdóttir. Biðjið skýrlega um Waldemar Pet- ersens ósvikna Kína-lífs-Elexír. Fæst hvervetna á 2 kr. glasið. Varist eftiritællngar! [3 „T estri44 er eina blaðið sem kemur út á Vestur- landi og teljandi er eða nokkur tekur mark á. Hann er heimastjórnarblað Vestfirðingafjórðungs. „Vestri" kemur út með um 60 4-dálkuðum tölubl. um árið og kostar 3 kr. 50 au. árg. „Austri44 er eina blaðið, sem kemur út á Austur- landi og segir því allar austfirzkar fréttir fljótast, ítarlegast og áreiðanleg- ast. — Enginn Austfirðingur getur verið án „Austrau. „Austri" er einlægt heimastjórnar- Uað. — „ Austri “ hefir ágæt símrita-sambönd utan lands og innan. — Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.)._________________ Ráöskona óskast í kaupstað úti á landi. Gott kaup. Ritst ávísar. Skeiðahnífur týndist frá Laufásveg 2 upp á Bergstaðastíg. Skilist á Laufásveg 2. Fundið karlmanns-úr. Vitja á Laufásv. 16. Ég undirritaður borga ekki þau blöð, tímarit eða bækur, sem mér eru send án þess ég hafi beðið um þau. Reynivöllum, 26. Júli 1907. Halld. Jónsson. Stofa og svefnherbergi til leigu frá 10. þ. m., að nokkru leyti með húsgögnum, Laufásveg 15. Úr hefir tapast frá Uppsölum, Aðalstræti, að Bjarnaborg, Hverfisgötu. Skilist ritstj. gegn fundarlaunum. Ég undirskrifaður banna hérmeð stranglega að menn ái hestum eða fénaði á minni landareign án míns leyfis. Möðruvöllum, 29. Júlí 1907. Guflmundur Sigurðsson. Tapast Hefir á leið frá Djúpadal tii Þingvalla hlaup af Salonsrifli. Finnandi er vinsamlega beðinn að skila því til Bergþórs Vigfússonar, Bókhlöðustíg 10. Fundist hefir dömubelti á danspalli Þingvalla. Réttur eigandi getur vitjað þess til Bergþórs Vigfússonar, Bókhlöðustíg 10. Peningabudda tapaðist að Geithálsi á leiðinni frá Þingvöllum. Skilvís finnandi er beðinn að skila í Gutenbergsprentsmiðju gegn fundarlaunum. Mí.Religlonen oi Menneskeslægtens stor- lænd1' tapaðist úr fulltrúatjaldi Ungm.félaga íslands á Þing- völlum 2. ág. — Skilist til Jóns Helgasonar, Gutenberg. 6rammophonar! Grammophonslög! Grammophonsnálar! og Grammophonsfjaðrir! er nýkomið á Laugaveg 63. Jóli. Ögin. Oddsson. Þessi alþekta, ágæta steinolía verður flutt hingað til Reykjavíkur seinast í Ágúst með gufuskipinu „Fridtjof* beint frá stórsölustað félagsins í New- castle, og seld frá bryggju hér fyrir mjög' lágt verð. Þeir, er vilja sæta þessum kostakaupum, gefi sig fram við alþingism. Jón Jakobsson fyrir 10. Ágúst. „Gamalnopsk Ordbog með nynorsk tydning. Ved Marius Hceg- s/ad og Alf. Totp“. 1.—5. hefti er komið Út og hér til sýnis Bókin verður alls 8 hefti, hvert á 80 au. Verðið hækkar, þá er hún er öll út komin. Við áskriftum tekur á íslandi Jón ÓlaÍKSOii. Hvert hefti borgist við móttöku.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.