Reykjavík - 30.11.1907, Blaðsíða 3
REYKJAVlK
269
\ SunlightSápa l
Þeir sem nota blaut-
asápu til þvotta kvíða
einlægt fyrir þvotta-
deginum.
Notið Sunlight sápu
og hún mun flýta
þvottinum um helming.
Preföld hagsýni—
tími, vinna og penin-
gar.
Rarið eftir fyriraðgninni, sem
er á Ullum Sunlight sápu
umbúðum.
lagið firnin öll að gera; en svo fór
alt í einu starfsefnið að þverra, og
síðustu dagana, sem menn hafa
fregnir um hér frá útlöndum, var
orðið tiltölulega lítið, sem félagið
Iiafði að gera, og þó var verðlag
þess meira en helmingi minna heldur
en sæsímanna.
Þetta kom af því, að skeytin þóttu
vera svo lengi á leiðinni frá því, er
þau fóru frá sendanda, og þar til,
er þau komu í hönd viðtakanda.
Hvorug stöðin, hvorki sú á írlandi
né í Kanada, liggur nálægt nokkurri
stórhorg, en skeytin eru auðvitað
langmest á milli stórborganna, Lun-
dúna að austan, en New-York eða
Montx-eal að vestan. Þessar stórborgir
eru hver um sig eins konar xniðstöð-
var alh-a símasambanda í tveimur
álfum. Milli írsku stöðvarinnar og
Lundúna er þó sambandið nú til-
tölulega þolanlegt, en frá Vestur-
heimsstöðinni til Monti’eal eða New-
York hefir það komið fyrir, að skeytin
hafa verið 5, 7 eða alt að 9 stundir
á leiðinni. Félagið kvartaði um þessa
þjónustu, en fékk það svar, að ann-
ríkið á landlínum þessum væri svo
mikið. Þegar félagið kvartaði enn á
ný og taldi þetta ekki fullnægjandi
ástæðu, fékk það enn þau svör, að
þetta stafaði með fram af vei’kfalli
símamannanna á þessum svæðum,
sem ylli því, að bæði væri helmingi
fæi'ra fólk á stöðvunum en vant væri,
og það fólk ekki nærri vel vinnu
vant. Félagið segir sjálft, að í þess-
ari síðarnefndu viðbáru kunni eitl-
livað að vera liæft, en heldur því
þó fram, að sýnilegt sé, að land-
símafélögin liafi gert samband við
sæsímafélögin til að gera sér tálina
með öllu móti. Það hefur gefið út um-
burðarbréf tll viðskiftamanna sinna
og biður þá að hafa þolinmæði nokk-
urn tíma, en segist þegar vera við
því búið, að sigra þessa mótspyrnu
með því að leggja sjálft á sinn kost-
nað landsíma frá stöðvum sínum
beina leið til stóx-borgaixna.
OOOOQO oooooooooocooo OOOOOQ
q Klukkur. úr og úrfestar, 8
O sömuloiðis gull og silfurskraut- Q
O gripi borgar sig bezt að kaupa á o
§ Laugavegi nr. 12. q
Jóhann Á. Jónnsson. Q
OOOOOC 00000000000000-000000
Eins og menn sjá og við var að
búast liggja sæsímafélögin, þau sem
beinast eru keppinautar Marconi-fé-
lagsins ylir Atlanzhaf, ekki á liði
sínu að gera inum nýja keppinaut
alt til óþægðar. Enda er fyrirsjáan-
legt, ef Marconi-félagið endist eins
vel og nú horfist á, að þá hljóta
símafélögin að færa niður gjöld sín
um fullan helming. Mai’coni-félagið
tekur 5 d. (þ. e. 37 V* eyx'i) fyrir
orðið yfir Atlanzhaf, í almennum
loftskeytum; en helming þess gjalds
að eins fyrir blaðskeyti. Sæsímafé-
lögin taka 1 sli. (== 92 au.) fyrir
orðið í ahn. símskeytum og helm.
þess gjalds í blaðskeytum.
Að Marconi-félagið þykist býsna
öriigt um sig úr þcssu má marka á
því, að það býður hiklaust að gera
við menn árssamninga, er það skuld-
bindur sig til að koma slindrulaust
til skila á hverjum sólai’hring árs-
ins, nótt sem dag, og bendir það þó
sjálft á, að fyrir geti komið bilanir
á áhöldum hjá því alveg eins og
fyrir kemur hjá símafélögunum. En
þeir segjast þá verða að senda skeytin
með sæsímanum og borga þá helm-
ingi hærra gjald. Benda þeir á, að
sæsimafélögin standi milclu betur að
vígi í slíkum efnum, því að bili eitt-
livað á einum sæsíma, þá sé hvort-
tveggja, að sum þeirra hafi tvöfaldan
síma, og þó að þeir þurfi að leita
til annara símfélaga (en þau eru nú
mörg orðin, sem eiga síma um At-
lanzhaf), þá sé borgunin, sem eitt
sæsimafélagið þarf að gi’eiða öðru,
alveg sú sama sem þau taki öll af
viðskiftamönnum sínum. Auðvitað
sé tiltölulega fljótlegt að gera við
tólin á landi á loftskeytastöðvunuin,
þar sem hitt geti tekið langan tíma
að gera við sæsíma, er bilar langt
úti í hafi. Full-örugt þykist Marconi-
félagið þó ekki vera fyrri en það
hafi tvöfalt samband yfir haíið.
Skyldi enginn vegur vera fyrir fé-
lagið til að geta notað ísland sem
millistöð mili írlands og Ameríku og
yrði þá samband þeirra tvöfalt og
því miklu öruggara?
Horbergi til ieigu með vönduðum
húsgögnum á bezta stað i bænum. Ritstjóri
ávísar.
Lítið á
SlíófatiiaOiim, sem ég fékk með »Sterling«, hann er
sannarlega þess verður, því að í fæstum orðum sagt, er hann
skínandi f a 11 e g u r, v a n d a ð u r og ó d ý r.
Eg vil leyfa mér að benda á:
Kven-boxcalfstígvélin, sem kosta 8 kr., en eru eins góð og áður kostuðu
9 kr. — Kven-Chevreauxstígvél af ekki færri en 6 tegundum. — Kven
flóka og leður- hús-skór af óteljandi teg., margar nýjungar. — Karlmanna
Chevreaux og Boxcalfstígvél, margar nýjar teg. Svo og sterkir erviðis-
skór. — Barna-vatnsstígvél. — Boxealf- og liestaloðursskór og stígvél
að ógleymdum Skóla-stígvélunum góðu og smábarna-skófatnaðinum.
SkóKlífarnap mínar cru óviðjafnanlcgar, kaupbætir með
hverju pari meðan endist Virðingarfylst.
Lárus G. Lúðvígsson,
Ingólfsstræti 3.
Dagbók.
30. Nóvbr,
E/s „Sterling“ kom frá útlöndum
snemma morguns 26. þ. m. og með
honum þessir farþegar:
Sigurður Magnússon læknir frá Kaup-
mannahöfn, ungfr. Aldís Böðvarsdóttir
(Þorvaldssonar á Akranesi), ungfr. Jór-
un Þórðardóttir, Steindór Björnsson
(frá Gröf í Mosf.sv.), Vilhj. Hákonarson
(frá Stafnesi) og margir útlendingar.
Iijörgunarskipið „Svava“,sem hér
hefir verið, fór austur að Hörgslands-
fjöru til að reyna lxvort ekki mundi
hægt að bjarga botnvörpungi þeim,
sem þar strandaði nýlega og getið var
um í síðasta blaði.
„Svava“ kom aftur að vörmu spori
og sagði að ómöguiegt mundi að bjarga
skipinu nú, þar eð sjóinn braut á 350
feta svæði fyrir utan skipið, en hugs-
ast gæti að skipið mundi geta legið
þarna óskemt þangað til að sumri, og
mundi þá eflaust hægt að bjarga því.
„Isl. Falk“ fór í fyrrakvöld beina
leið til Kaupmannahafnar.
E/s „Sterling" fór til Vestfjarða í
gærkvöldi.
Öll lög frá síðasta Alþingi vóru
staðfest af konungi 16. og 21. þ. m.
Hjúskapur. Á Laugardagskvöldið
var, vóru gefln saman í hjónaband:
ungfreyja Halldóra Guðmundsdóttir
(Guðmundssonar bóksala á Eyrarbakka)
og verzlunarmaður Hans Andersen.
Símskeyti til „Reykjavíkur“.
frá Ritzaus Buréau.
Kaupm.hö/n 36. Nóv. kl. íl6. síðd.
Látinn
er norskur leikari, Henrik Klausen (63
ára gamall).
Frá Pýzkalandi.
Þýzka stjórnin hefir lagt fyrir ríkisþing-
ið lagafrumvarp um félög og samkomur,
en samkvæmt þeim á þýzk tunga að tal-
ast við allar almennar samkomur. Yfir-
völdin geta þó veitt undanþágu frá
þessu. [Hér er að líkindum átt við for-
réttindi þýzkunnar í hinum pólskti lönd-
um Prússa].
Asiandið í Portúgal
heldur áfram að vera athugavert. Lýð-
veldissinnaflokkurinn eykst verulega.
Karatag-slysið.
Við jarðskjálptann í Karatag (( Buch-
ara) (sbr. símskeyti 1 Reykjavík 2. nóv.)
fórust 4000 manna, en 200 varð bjargað.
Járnbrantarslys.
Hraðlest milli Barcelóna og Valenzía
(á Spáni) féll í gær niður af brú yfir
CanesAjótið. Fundist hafa 20 lfk og 80
særðra manna.
28. Nóv. kt. 525.
Samsœti fyrir ráðherra.
Ríkisþingsmennirnir, er tóku þátt í Is-
landsförinni, halda Hafstein ráðherra veizlu
í kvöld.
Landeignanám.
Prússneska stjórnin hefir lagt fyrir þing-
ið (landdaginn) frumvarp, er heimilar
stjórninni að taka pólskar landeignir eign-
arnámi í þarfir þjóðarinnar.
Víxilfölsiui.
Paulsen kaupmaður 1 Sandved á Sjá-
landi hefir verið tekinn fastur fyrir víxil-
falsanir að upphæð 400,000 krónur.
f
kmi THORSTEINSSON
fyrrum laxidfógeti,
andaöist hér í bænum í gær-
morgun, á 80. aldursári.
Veðurskeyti.
Samkv. athugunum kl. 1 árd.
Nóv. 1907 Loftvog millim. c+- c+- <1 CD O* 8 0* Veðrátta Hiti (C.)
(Rv. 734.1 Logn 0 Léttsk. 3.9
BI. 735.2 A 8 Snjók. = 0.7
Fö. 22. < Ak. 732.5 NNV 7 Snjók. 4-5 5
Gr. 693.0 NA 8 Snjók. -r- 5.0
(Sf. 721.9 A 1 Snjók. 4- 0.2
(Rv. 757.4 Logn 0 Heiðskýr 4- 7.9
Bb 761.2 NA 4 Léttsk. 4- 9.8
Ld. 23. < Ak. 759.4 NNA 3 Alskýjað 4-10.2
Gr. 722,0 N 3 Alskýjað 4-11.0
Isf. 757.3 NY 5 Skýjað 4- 7.0
(Rv. 767.1 NA 2 Heiðskýr 4- 6.0
Bl. 757.9 S 1 Létisk. 4- 8.5
Sd. 24. < Ak. 760.2 S 1 Hálfheið 4-11.3
|Gr. 724.5 SA 1 Skýjað 4-17.9
(Sf. 760.8 SSV 1 Skýjað 4- 6.4
(Rv. 755.6 ASA 5 Léttsk. 4- 1.1
Bl. 754.8 SSV 3 Léttsk. 4- 48
Má. 25. <Ak. 757,6 SSV 1 Heiðskýr 4- 3.0
IGr. 723,0 SSA 1 Heiðskýr 4- 2.0
(Sf. 759.4 N 3 Léttsk. -4- 7.6
(Rv. 757.7 Logn 0 Léttsk. 4- 5.7
Bl. 758.5 SSA 1 Alskýjað -4- 4.9
Þd. 26. {Ak. 758,3 Logn 0 Snjór. -4- 6.0
Gr. 723.0 S 1 Hálflieið -4-11.0
(Sf. 758.4 Logn 0 Skýjað -4- 3.0
(Rv. 758.8 NNA 5 Heiðsk. = 2.0
Bl. 761.0 S 1 Léttsk. 4-12.1
Mi. 27. <| Ak. 760.4 Logn 0 Alskýjað -4- 6.5
Gr. 724,4 Logn 0 Alskýjað 4-11.6
Isí. 759.4 N 3 Skýjað -4- 4.7
(Rv. 760.6 Logn 0 Hálfheið 4- 0.8
B). 760.0 S 2 Hálfheið 0.0
Fi. [28. < Ak. 758.5 Logn 0 Ský.jað 4- 2.5
Gr. 722.5 SSA 1 Hálfheið 4-13.0
N W l Isf. 759.6 ssv 1 Heiðsk. 4- 4.4
rr •' irv. 764.0 Logn 0 Regn 2.1
Bl. 762.4 ssv 2 Alskýjað 2.2
Fö. 29. < Ak. 761.0 Logn 0 Alskýjað —í— i.5
Gr. 726.0 Logn 0 Alskýjað 4- 2.0
(Sf. 764.1 Logn 0 Alskýjað 4- 3.5
Aths. Yeðurhæðin er reiknuð í stig-
um frá 0—12 : 0 = Logn. 1 = Andvari.
2 = Kul. 3 = Gola. 4 = Kaldi. 5 — Stinn-
ingsgola. 6. = Stinnings lcaldi. 7 = Snarp-
ur vindur. 8 = Hvassviðri. 9. Stormur. 10.
= Rokstormur. 11. Ofsaveður. 12. Párviðri.
Rv. = Reykjavík.
Bl. = Blönduós.
Ak. = Akureyri.
Gr. = Grímsstaðir.
Sf. = Seyðisfjörður.