Reykjavík

Útgáva

Reykjavík - 25.02.1908, Síða 1

Reykjavík - 25.02.1908, Síða 1
Spyrjið «ftir ensku-kenrara á afgr*iðalu „Reykjavíkur". 1R ey> k ] a \> t k. IX, 8 / Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Þriðjudag 25. Febrúar 1908 Áskrifendur í b æ n u m yfir IOOO. IX, 8 II i ii blöðin. ALT FÆST 1 THOMSEWS MAGASlNI. ~ai Oília cldayélar selur Kristján Þorgrimsson. „REYKJAYÍK“ Árg. [minnst 60 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlondi* kr. 8,00—3 sh.— 1 áoll. Borgist fyrir 1. Júlí. Ella 3 kr. Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,60; S. og 4. bls. 1,26 — Útl. augl. 33m/»°/o h»rra. - Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“. Ritstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri Magnúg B. Blöndal Lækjargötu 4. Talsimi 61. Ritstj. er áreiðanl. að hitta heima kl. 12—1 og 5—6 síöd. Verzlunarmannaskólinn. Verzlunarmannaskólinn hér í Rvík hefir nú starfað á þriðja ár, veitt mörg- um nemendum fræðslu í ýmsum grein- im, notið nokkurs styrks af almannafé i. s. frv., en þó sézt hans varla nokkru sinni getið í blöðum vorum. Skólinn byrjaði 12. október 1905. ifyi'sta árið sóttu skólann 54 nemend- ur, annað árið voru nemendurnir 66 og nú þriðja árið eru þeir 70. Hefir aðsóknin að skólanum þannig farið stöðugt vaxandi, og sýnir það meðal annars, að full nauðsyn hefir verið á skólastofnun þessari. Kennarar eru 9 við skólann. Ailir ei’u þeir tímakennarar. Skólastjóri einn fær sérstaka þóknun fyrir umsjón með skólanum, en að öðru loyti fær hann borgun fyrir hvern tíma er hann kennir, eins og hinir kennararnir. Ólafur G. Eyjólfsson verzlunarfræðingur hefir ver- ið skólastjóri síðan skólinn hófst, auk hans eru þessir kennarar nú við skólann: Ag. Bjarnason cand. mag., Árni -Þor- valdsson cand. mag., dr. Bj. Bjarnar- son, Helgi Jónsson cand. mag., Jón Ól- afsson ritstj., Kaaber verzlunarumb.m., Matth. Sept. Þórðarson cand. phil. og frú Sigríður Bjarnason. A skólanum eru þessar námsgreinar kendar: íslenzka, Danska, Enska, Þýzka, reikningur, bókfærsla, verzlunar-landa- fræði, þjóðmegunarfræði og íslenzk verzlunarlöggjöf. Fyrirlestra hefir skóla- stjóri og haldið nokkrum sinnum á vetri fyrir nemendurna, um ýms efni er snerta verzlun og viðskiftalíf. — Aukakenslu veitir skólinn og þeim nemendum er þess óska, og fá þeir til þess ókeypis húsnæði, Ijós og hita. Skólinn er í þremur deildum. Kenslu- stundir í deildunum eru í hverri viku þessar, í efri deild 26 stundir, í neðri deild 20 stundir og í undirbúningsdeild 12 stundir. Þessi skóli á ekkert sérstakt hús. Hefir hann þvi orðið að leigja sér hús- uæði til þessa. Nú fær hann hús hjá konsúl D. Thomsen og kostar það um 800 kr. á ári, en aðgætandi er, að það varð að gera á því mikia breytingu vegna skólahaldsins. Skólagjald nemenda er 25 kr. á ári. En þeir sem taka próf fá 5 kr. af því aftur endurgoldið. Eins og drepið er á í upphafi þess- arar greinar, hefir skólinn dálítinn opin- beran styrk. Veitti þingið honum fyrst 1500 kr. á ári, en nú síðast 3000 kr. (sótt var um 5000 kr.). Auk þess fær skólinn lítilfjörlegan styrk frá verzlunar- mannafél. og kaupmannafél. Rvíkur. Þá gaf og konsúll D. Thomsen skól- anum 500 kr. í peningum síðastliðið sumar, á 70 ára afmæli verzlunar hans, og 5% vöxtu af öðrum 500 kr. meðan verzlun hans stendur. Þá hafa og nokkrir menn gefið verðlaun til nem- enda á skólanum, svo sem þeir kaup- menn Ásg. Sigurðsson og B. H. Bjarna- son og bankastjóri E. Schou. Bóka- gjafir nokkrar til verðlauna hefir skólinn og fengið. Því má nærri geta, að styrkur sá sem skólinn fær er langt um of lítill. Það virðist þó svo, að verzlunarstéttin borgi svo mikið í landssjóð og í sveita- og bæjasjóði, að hún eigi fyllztu sann- gírniskröfu til þess, að sérskóli hennar sé nægilega styrktur. Skólinn þarf að eignast hús, bækur, ýms áhöld og söfn, það verður, að minsta kosti fyrst um sinn, að vera hægt að hjálpa mönn- um, sem heima eiga langt frá Reykja- vík, með styrkveitingum, til þess að þeir geti notað skólann, því allr vita hve afardýrt og erfitt það er fyrir fá- tæka menn í fjarlægum héruðum, að sækja skóla til Reykjavíkur. Það er víst alstaðar viðurkent, að verzlunarstéttin er ein af þýðingarmestu lífæðum þjóðlíkamans, ein af aðal afl- taugunum, sem mikið er undir komið, að sé heilbrigð og í góðu lagi. En til þess að hún geti verið það, þarf hún að geta átt kost á að afla sér, án altof mikilla erfiðleika, þeirrar sérfræðslu í staríi sínu, sem henni er jafn lífs- nauðsynleg eins og öðrum stéttum landsins. Reynsla annara þjóða sýnir það, hve afarmikla þýðingu það hefir, að eiga vel mentaða verzlunarstétt, og að því fé er ekki á glæ kastað, sem varið er til sérfræðslu hennar. Það er því von vor, að hin íslenzka verzlunarstétt sjálf, Alþingi og lands- stjórn sjái sóma sinn og skyldu í því, að styrkja sérfræðslu verzlunarmanna svo ríflega eftirleiðis, að veruleg not geti orðið að því. sNorðri‘ flytur í 5. tölubl. þessa árg. fáeina kafla úr bréfi, sem Guð- mundur læknir Hannesson hefir skrif- að til kjósendaí Eyjafjarðarsýslu. Lækn- irinn kvað ætla að bjóða sig þar fram til þingmensku við næstu kosningar. Eins og flest það, er þessi Landvarnar- postuli á síðari tímum lætur frá sér fara, mun bréf þetta vera svo fult af öfgum og ósannindum um, stjórnina og Heimastjórnarflokkinn, eftir þeim köflum bréfsins að dæma, sem ,Norðri‘ flytur, að full þörf er á, að taka það til rækilegrar meðferðar. Greinin í ,Norðra‘ gerir að vísu góð skil þeim köflum, sem þar eru fluttir, en það væri sjálfsagt réttara að birta bréfið í heild sinni. — „Reykjavík" mun því reyna, þó síðar verði, að komast yfir það, og mun þá láta því fylgja þær athugasemdir, sem hæfilegar þykja. Til þess að gefa lesendum vorum ofurlitla hugmynd um það, hvers konar „agitation" hinn háttvirti höfundur telur sér sæmilegt að beita, viljum vér að eins geta þess, að hann reynir að telja mönnum trú um, að á árum þeim, sem liðin eru síðan þessi stjórn tók við völdum, sé búið að eyða öllum viðlagasjóðnum. Og þó má honum vera fullkunnugt nm, að samkvæmt síðustu reikningum, sem til eru yfir fjárhag landsins, var viðlagasjóðurinn hærri, en nokkurn tima áður, sem sé um 1200000 krónur. Ætli Eytirðingar girnist að fá svona sannsögulan full- trúa á þing? Yér efumst um það, eftir þekking vorri á þeirn, Ritstj. „Ingólfs“ og helztu þjóð- málagörpum hinna „sameinuðu" var boðið á fund sem heimastjórnarfélagið „Fram“ hélt 19. f. m. Sýslumaður L. H. Bjarnason hóf umræður um stjórnmálastefnu Þjóðræðisliðsins (Land- varnarliðsins). Yar það einróma. skoð- un fundarmanna, að málshefjanda hefði sagst að sama skapi vel og Landvarnarm. sem tóku til máls þar á fundinum hefði vafist tunga um tönn. Gengu þeir bezt fram í því, að afneita „ísafold" og stjórnmálastefnu hennar, en báru svo slælega fram Landvarnarmerkið, að Heimastjórnarmenn urðu jafn ófróð- ir eins og áður, hver væri stefnuskrá þeirra. „Reykjavik" kemur það því ekki á óvart, að bróður hennar „Ingólfi" hefir orðið óglatt af þessu erindi Lárusar sýslumanns, né heldur að hann hefir borið harm sinn í hljóði, þangað til hann var viss um, að Lárus sýslum. var kominn í annað land, og ætti því ekki kost á að bera hönd fyrir höfuð sér, nema á 4—6 vikna íresti. Þessi „drengskapur" blaðsins sver sig í ætt við aðrar „drengilegar" aðfarir þeirra liða, svo sem „bakdyramakk Landvarnarmanna", sem „Norðri" talar um í 5. tbl. sínu, og vikið er að hér að framan. Vera má, að alþýðu manna gefist síðar kostur á, að lesa erindi Lárusar sýslumanns, og hefir „Ingólfur" þá eitthvað fyrir snúð sinn — en spá vor er, að ekki muni vegur hans né Landvarnarmanna vaxa mikið við það í augum skynbærra manna. Aðdróttununum um launritstjórnar- mensku Lárusar sýslumanns vísum vér aftur heim til föðurhúsa „Ingólfs“ sem alls kostar óheimilum. Sjómenn! Þið sem þurfið að fá ykkur sjó- stígvól ættuð að koma á Laugaveg1 27, hvergi betri sjóstígvél til, og hvergi eins ódýr. Sömuleiðis með alt sem að skósmíði lítur frjáls og óbundin viðskifti. Árni Árnason. Frægur landi. „Rvík“ hefir áður getið um Mr. Hjört Þórðarson, rafmagnsfræðing í Chicago, bróður Þórðar læknis Þórðarsonar í Minneota, Minn., ritstjóra „Yínlands". „Reykjavík" gat um nýja uppfundning hans, er mikla athygli vakti á alheims- sýningunni í St. Louis um árið. Hjörtur á nú stóra verksmiðju í Chi- cago. í þeirri milíónaborg var í vetur mikíl sýning haldin á alls konar raf- magnsáhöldum og var hin skrautleg- asta og mikilfenglegasta. í bréfi frá Dr. Ó. J. Ó. í Chicago segir svo, að þar hafi sýnismunir Hjartar Þórðar- sonar vakið einna mesta athygli. Þar á ísland son, sem því er sómi að. „Fram“ heldur fund Fimtudag 27. þ. m. Jón Þorláksson talar um stefnuskrá Landvarnarmanna. ynheims-íþráttamit. Olympiskir leiliar*. íjóðlireysti — Jjóðfrægð. Mikilsverð tímamót. XJ. M. F. f. Stjórn vor og þjóð. [Niðurlag]. Hvern veg íslenzka þjóðin lítur á mál þetta, og hve mikils hún metur sóma sinn, mun bezt sjást á því, hve mikið hún vill styrkja 4 unga og efnilega íþróttamenn til fararinnar. Því það gefur að skilja, að styrk- laust geta þeir eigi farið í þvílíka för. Þurfa þeir að búa sig rækilega undir hana í allan vetur, og síðustu 4—6 vikurnar verða þeir að æfa sig saman daglega. Mun því eigi falla minni kostnaður á hvern en alt að 1000 kr. Dvöl í Lundúnum um þær mundir, er íþróttamótið stendur, verður eflaust geisidýr, því þangað streymir þá múg- ur og margmenni úr öllum heimi. — íþróttir og íþróttamót eru alstaðar höfð í hávegum hjá menningarþjóðunum, og eru talin sannur „spegill" þjóðanna, er sýni bezt þroska þeirra og menning. Nú má þann veg ætla, að 4000 kr. sé engin stórupphæð, er um mikilsvert þjóðfrægðaratriði er að ræða. Mundi margur auðmaðurinn keppast við að verða nógu fljótur til að veita aðra eins upphæð einn saman. En því láni er auðvitað eigi að fagna á íslandi, þótt ýmsir auðmenn hafi stundum veitt ríflegan styrk til fyrirtækja, er stefna að sama takmarki.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.