Reykjavík - 14.04.1910, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK
63
Hreinar verksmiðjur og hrein
og ómenguð sápa standa i
nónu sambandi við hrein löt.
Það stafar engin hætta af
Hún er óreiðanlega hrein og
omenguð.
1684
margur muni verða til þess, að láta
minningargjöf koma i staðinn fgrir
krans— gefa Heilsnhœlinn það, sem
krans mgndi hafa kostað.
Artiðaskrá Heilsuhœlisins verður
geymd fyrst um sinn í skrifstofu
minni, Amtmannsstíg 1. Þar verður
hún til sýnis á hverjum virkum degi
kl. 5—7, og mun ritari minn, Jón
læknir Rósenkranz, taka á móti
minningargjöfum.
Herra A. J. Johnson hefur einnig
gefið Holdsveikraspitalanum og Geð-
veikrahœlinu ártiðaskrár, og verða
þær afhentar læknum þessara
sjúkrahúsa.
Bækurnar eru nýkomnar.**) Jeg
kann honum bestu þakkir fyrir
gjöfina.
Heilsuhælinu hafa þegar hlotnast
tvær minningargjafir, önnur frá
Johnson sjálfum, til minningar um
móður hans (50 kr.), hin frá Bjarna
prófasti Símonarsyni á Brjánslæk;
hann kom tii mín, sá bókina og
gaf minningargjöf (5 kr.) til minn-
ingar um barn, sem ljest fyrir
tveim árum í sókn hans.
Menn út um land eru beðnir að
senda minningargjafir handa Heilsu-
hœlinu til Jóns lœknis Rosenkranz,
sem er fulltrúi Heilsuhælisstjórn-
arinnar.
Hverjum þeim, er gjöf gefur,
verður fengið eða sent viðtöku-
skírteini. Þau verða vönduð að
útliti; bœjarbúar geta sent þau i
stað kransa, og á þann hátt látið
í ljósi samhrygð sínaþegar jarðað er.
Hvað sem öðrum líður — þegar
kemur að mjer, vildi jeg mælast til
þess, að »kransarnir«, ef nokkrir
yrðu, væru látnir fara í Heilsu-
hælið en ekki í gröfina mína.
G. Björnsson.
Úr riki ráðherrans.
Hvað hefir þingmaður Barðstrendinga gert
fyrir kjördæmi sitt? Fyrir hvað á hann
þakkir skilið ?
Á kjörfundi hjer veotra sagðist hann vera
mótfallinn þvi, að sýslufjelög yrðu krafin um
styrk til landsíma. Og hann taldi það sjálf-
sagt, að styrkur sá, sem Barðastrandarsýsla
hefir lofað til landsímans, yrði gefinn eftir
á næsta eða næstu þingum.
Og lieyrt hefi jeg, að hann hafi lofað því
— eftir að hann gerðist ráðherra — að hann
skyldi sjá svo um, að Vestur-Barðastrandar-
*’) Pappírinn sendi gefandinn mjer,
en jeg hef annast prentun og band
fyrir hann, á hans kostnað.
Af inum mikils metnu neyzluföngum með malt-
efnum, sem DE FORENEDE BRYGGERIER framleiða,
mælum vér með:
er framúrskar-
andi hvað
snertir mjúk-
an og þægileg-
an smekk.
Hefir hæfilega
mikið af ,ex-
trakt1 fyrir
meltinguna.
Hefir fengið
meðmæli frá
mörgum mik-
ilsmetnum
læknum.
Bezta meðal við
hósta, haesi og öðrum kælingarsjúkðómum.
Mjöltirlíil í Böftjaiít
setur væntanlega útibú á Laugaveg 46 eftir næstu mánaða-
mót. — Hin auglýsta mjólkursala á Laugaveg 24 á elilcei-t
skylt við Mjólkurbóið á Laugaveg 13.
&tjórn cMjóIRurSt’isins á JSaugavog 12.
sýsla yrði ekki krafin um styrk til landsim-
ans fyrst um sinn — að minsta kosti ekki
nema að einhverju litlu leyti.
Vegasjóðslán, sem á sýslunni hvíla, voru
í upphafi vega sinna 6000 kr. Mikið af þv
er borgað, en mikið enn ógoldið, og lofaði
þingmaðurinn því, að sjá svo um, að eftir-
gjöf fengist á upphæð þeirri, sem ógoldin
ír, og nema mun um 2,000 kr.
En slíkum smámunum er gleymt, þrátt
fyrir það, þótt þingmaðurinn væri minntur
á það eftir að þing kom saman siðastliðinn
vetur.
Þá eru það vegirnir hjer vestra. Á kjör-
fundinum hjer fórust honum orð á þessa
leið :
„Jeg sje, að ykkur vantar vegi, og jeg
hefi sjálfur orðið var við það á ferð minni.
Og verði jeg þingmaður ykkar, þá skal jeg
sjá um, að hjer verði vegabætur gerðar sem
allra fyrst“.
En það hefir víst ekki unnizt tími til þess,
fremur heldur en hins, að halda þingmáia-
fundi hjer í sjslu. Þeir hafa, sem kunnugt
er, engir verið, og virðist slíkt engin fyrir-
myndar-framkoma gagnvart kjósendum sín-
um.
Eitt loforðið hans var það, að hann skyldi
sjá um, að viti yrði byggður á Bjargtöngum.
En það hygg jeg, að fæstir sjófarendur hafi
fengið glýju í augun af því Ijósi, enn sem
komið er.
Þarna eru loforðin.
Manni verður á, að spyrja um efndirnar.
Niðurstaðan er og verður sú, að þing-
maðurinn hefir ekki gert neitt fyrir Barða-
strandarsýslu, enn sem komið er.
Og þó hafa nokkrir menn bjerí„ríki ráð-
herrans11 látið hafa sig til þess, að skera upp
herör og safna undirskriftum undir trausts-
yfirlýsingu til þingmannsins — og ber þess
að geta, sem gert er.
Nokkrum dögum eftir það, að sýslu-
nefndarmaður Patrekshrepps hafði á sýslu-
fundi samþykkt áskorun til þingmannsins
um að efna það loforð sitt, að fá vegasjóðs-
ánið eftirgefið, efnir hann til undirskrifta,
til þess að fá kjósendur til að þakka þing-
manninum fyrir þingmennskuna, og lýsa vel-
þóknun sinni á honum, enda þótt allir vissu
og sæi, að hann hafði ekkert gert — ekki
einu sinni efnt neitt af loforðum sínum.
En um árangur undirskrifta-skjalsins þarf
varla að efast, og hygg jeg, að þar megi
mörg nöfn sjá, því að þeir, sem hafa sent
það út, hafa bolmagn mikið, og minnti sumt,
er jeg sá í þessu fyrirmyndar-skjali, mig á
þessi orð skáldsins;
„Jeg veit, hvað svöngum vetur er —
þú veizt það kannske líka“.
En það eitt veit jeg fyrir víst, að ekki
eru öll þau nöfn, sem þar standa nú, rituð
þar af einskærri sannfæringu, heldur af hinu,
að gera það fyrir menn, „að vera með, til
þess að fylla flokkinn“, og veit jeg þá með
vissu, að jeg segi ekki of mikið.
Patrekur.
Reykjavíkurfrjettir.
Málverkasýning ný verður opnuð í
Góðtemplarahúsinu (uppi) mánudaginn 18.
þ. m., kl. 11 árd. — Það er Einar Jónsson
málari, sem þar sýnir myndir sínar í fyrsta
skifti. Menn ættu að fjölmenna á sýningu
þessa, því að þar verður sjálfsagt mörg lit-
fögur málverk að sjá. Til dæmis má nefna
stóra mynd af hinum forna sögustað Illíð-
arenda i Fljólshlíð, nieð útsýni alla leið
til Eyjafjallajökuls og Vestmanneyja. Á
sýningu þessari verður sjálfsagt tækifæri til
þess, að eignast fallega sumargjöf.
Norðanveður með nál. 7 stiga frosti
gerði hjer síðastl. sunnudag, og hefir það
haldizt síðan, vægara þó síðustu dagana.
Slysfarir. Þilskipið „Seagull“ kom inn
í fyrra dag, og hafði það misst út mann.
Hann hjet Sœmundur Jóetsson, unglings-
maður hjeðan úr bænum. Tveir skipverjar
aðrir höfðu slasazt t sama skifti, annar svo
mjög, að hann var þegar fluttur á sjúkra-
hús.
Um bjargráð íslands flutti hr. Stefán
B. Jónsson á Keykjum í Mosfellssveit fyrir-
lestur hjer í bænum laugardagskvöldið 2.
þ. m. AðaÞáherzluna lagði hann á það. að
rækta landið, og verður það aldrei of oft
brýnt fyrir mönnum. Fyrirlesturinn var
langur og rækilegur, og bar vott um mik-
inn og lofsverðan áhuga á málefninu.
Hvað er að gerast?
Franski bankinn.
Það er sagt, að Landsbankinn haíi
ákveðið, að taka 2 milj. króna af hinu
svo kallaða franska láni handa sjálf-
um sér, og að ábyrgjast 1 milj. króna
handa fjármálamönnunum Páli Torfa-
syni, Ara assistent o. fl.
Það er sagt, að þessar 3 milj. eigi
að endurborgast innan 18 mánaða, eí
þingið fáist ekki til að ábyrgjast þær.
Það er sagt, að vegna þessarar á-
hættu ætli Landsbankinn ekki að brúka
sinar 2 milj., heldur ætli að leggja
þær í hlaupareikning í Landmands-
bankanum, til að hafa þær til taks,
enda þó að hann fái með því móti
lœgri vexti, en hann verður að borga
af franska láninu. I
Manni er ekki kunnugt um, að nein
bráð hætta vofi yfir landinu, sem leysa
þurfi það úr með nýju láni, enda fer
nú óðum að styttast til þings, og
margir búast við aukaþingi.
Það er sagt, að forgóngumenn þessa
franska brasks ætli sér 90 þús. kr.
af milíóninni, sem þeir eiga að ávaxta,
svo sem ómakslaun. Og þá yrði ekki
nema 900 þús. kr. til útlána. En til
að koma þeim út, er þó sagt, að ekki
nægi færri en 3 bankastjórar, þar á
meðal þeir Páll T. og Ari assistent.
Hver er nú tilgangurinn með því,
að taka lánið nií þegar, og með því,
að hafa lánstímann svona stuttan!
Er með því verið að setja snarvöl
á alþingi? Lánið verði vitanlega ekki
borgað á tilsettum tíma, að minsta
kosti ekki milíónin, sem nefndir fjár-
málamenn eiga að ávaxta, og því
neyðist Alþingi vegna ábyrgðar Lands-
bankans til þess, að ábyrgjast alt saman.
Alþingi mundi aldrei óneytt ábyrgjast
stórt lán fyrir prívat-menn, ekki einu
sinni fyrir þessi nýupprunnu finans-
geni.
En sé nú tilgangurinn ekki þessi,
hver er hann þá? Og hvers vegna
er farið með þetta franska brask, sem
varðar almenning stór-miklu vegna
ábyrgðar Landsbankans, sem manns-
morð væri?
Og hvernig getur sérstaklega Lands-
bankinn forsvarað það, fyrir öðrum
húsbónda en B. J., að ábyrgjast 1 milj.
fyrir alls óbankafróða og eignalausa
eða eignalitla menn?
Hvar er heimild til slíkrar ábyrgðar
í lögum bankans?
Og hvernig getur Landsbankinn enn
fremur forsvarað það, fyrir öðrum en
B. J., að skapa sér keppinaut með
jafn hœthcsamri ábyrgð?
Vill ekki einhver úr Landsbanka-
stjórninni svara þessu, annað hvort
annar hvor hinna löglegu bankastjóra
eða annar hvor hinna ólöglegu gæzlu-
stjóra?
Spurull.
Til leigu I stofa með eigin inngangi
14. maí. Óðinsgötu 7.
Herbergi til leigu í Þingholtsstræti 22.