Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 20.08.1910, Blaðsíða 2

Reykjavík - 20.08.1910, Blaðsíða 2
138 REYKJAVÍK 14 daga útsala í Sápnhúsiim í Austurstr. 17 og i Siípubúðiimi Laugáveg 40. Frá laugardeginum 20. ágúst til laugardags 3. september, verður mikil útsala. Þessa daga verða allar vörubirgðirnar seld- ar langt undir venjulegu verði. Alt verður selt. Prima grænsápa 13 og 14 aura pd. Prima brún krystalssápa 18 a. pd. Prima Marseille-sápa 23 a. pd. Prima Salmiak-sápa 27 a. pd. Prima Stangasápa 14 og 17 a. 3 pd. af soda fyrir 13 a. 3 Stk. ágæt Violsápa á . . 26 a. 3 St. „Vera“ Violsápa á . . 14 a. 3 — — Zeroform sápa á 26 — 3 St. grænir kranzar (ilm- 3 — — Mandelsápa á . 26 — andi) á 14 — 3 Dósir Juno Créme (til 1 St. Tannpúlver „Sana". . 25 — Box Calf) á 27 -- Væfl hárgreiða að eins á 25 — Egta lessive Lútarduft pd. á 18 — stór 50 aura höfuðkambur 35 — Egta sápuspænir pr. pd. á. 33 — vænn höfuðkambur á . . 25 — Prima Blegsoda pundið á . 7 — 25 a. höfuðkambur á . . 18 — góðir fægiburstar st. á . . 17 — góður fatabursti að eins á 30 — Stígvélareimar á ... 6 —7 — góður hárbusti að eins á 48 — góðar gólískrúbbur á . . . 10 — 3 Flórians búðingsduft á . . 27 — stórir kambar á 10 — 10 aura nýtt krydd á . . . 8 -- 3 St. egta 25 a. Zeroform 100 þvottaklemmur á . . . 38 — sápa á 50 — 25 Patentklemmur á . . . . 33 — 3 St. egta 25 a. Carbol- 3 góðir naglaburstar á . . . 26 — sápa á 60 — 1 St. egta rakarasápa á . . 14 — 3 Champoningduft á ... . 26 — 1 St. egta gallsápa á . . . 14 — Flaska Viol-ilmvatn á . . 23 — 1 St. egta silfursápa á . . . 14 — Flaska’ franskt ilmvatn . . 10 — Flaska egta „Brillantine" 23 — 3 St. egta jurtasápa á ... . 27 — Flaska „Florida" vatn á 23 — 3 öskjur fægiduft á . . . . 15 — Flaska Eau de Quinine (í 3 Dósir ofnsverta á . . . • . 21 — höfuðböð) á 45 — stórir gólfklútar á ... . 18 — 3 St. egta 25 a. Viol sápa á 60 — stórar þurkur á 8 — 1. St. egta „Kinosol" sápa á 22 — sterkir svampar á ... . 18 •— 1 St. egta Eggjasápa á . . 26 — Hárspennur (með steini) á 08 — Cocos rykkústur á ... . 52 — Fl. „eull“ fægi-crem . á . 22 — 3 St. úrgangs sápur á . . . 27 — V2 pd. „Remy“ Stivelse 3 St. sama á 14 — (ásætt) á 1 4 — 3 Dósir hlá.mi á 91 Miklar birgðir af ilmvötnum seljast með afar lágu verði. Stór jurtasápa (vegur V» pd.) 13 a. stk.; stór Viol-sápa (ilmandi) 23 a. stk. Elefant Creme (25 a.) á Box Calf á 18 a.; Cacao, Vanille, Sucat selt langt undir verði. Alt verður selt. Hárburstar, fataburstar, höfuðkambar og spennur. Óheyrilega ódýrt. Svampar, kúrstar, fiskiburstar,gólfskrúbbur, alt verður selt fyrir sama sem ekki neitt. Komið í tæka tíð! SfPUHÚSIÐ SÁPUBÚÐIN Austurstræti 17. Telefon 155. Laugaveg 40. Telefon 151. Reykjavíkurfrjettir. — Hin aðferðin væri sú, að taka nokkur fá atriði fyrir í einu, helzt þau er stæði í eðlilegu sambandi sín á milli. Ég skal benda á, að spurningin um fjölgun ráðgjafa, og hin um árlegt þinghald, fast þingfararkaup o. s. frv. standa í sambandi. Öll þau atriði er snerta fjarveitingarvaldið, svo sem á- kvæði gegn bráðabirgða-fjárlögum, á- kvæði um frumkvæði að fjárveitingum, og um yfirskoðunarmenn landsreikn- inga, standa í sambandi sín á meðal. Afnám konungkjörinna þingmanna stendur í sambandi við óskift þing eða tvískift. Það er full ástæða til að íhuga, hvort eigi mundi fullt eins affara-drjúgt að endurskoða þannig stjórnarskrána í köflum, taka fyrir í senn þau atriði, er fyrst og fremst riði á að laga. Með því móti mundi mest trygging fyrir, að bæturnar gengju fram í þá átt, sem sannarlegur meiri hluti væri fyrir hjá þjóð og þingi. Eru þá líkindi til að úrslitin yrðu staðbetri, þ. e. a. s. gætu staðið óhögguð um lengri tíma, svo að menn væru ánægðir með. Þá yrði og með því móti miklu meiri líkur fyrir, að hvert atriði yrði síður að flokksmáli milli stjórnflokks og stjórnar- andstæðinga, heldur skiftu þingmenn sér með og móti hverju atriði eftir eiginni sannfæringu. Eftir að ég hefi nú kastað þessu fram til íhugunar góðum mönnum af öllum flokkum, skal ég nú fara nokkrum orðum um nokkrar einstakar breyt- ingar. [Meira]. Spyr sá sem ekki yeit. VII. Meðan ráðherrann eða blað hans skýrir ekki frá öðru réttara, hefl ég það fyrir satt, að Jarðabókasjóður hafi 31. Júlí þ. á. átt í sjóði: 1. hjá stjórnarráðinu kr. 96,000, 00 2. „ Landsbankanum —320,000, 00 3. „ íslandsbanka . . — 63,381, 00 kr. 479,381, 00 4. „ Gj.kera landssjóðs kr. 138,722, 90 -í- lagt út fyrir prestlaunasjóð . . (skuld hans) 57,035, 00 „ 81,687, 90 Alls kr. 561,068, 90 S. d. (31/7—’IO) búið að kaupa bankavaxtábréf af Landsbankanum, samkv. lántökulögunum, kr. 1,010,000,- 00. Þessi upphæð bankavaxtabréfa (nafnverð 1 milíón og 10 þúsund kr.) geymd („depóneruð") í íslandsbanka. Eftir eru þá af lánsupphæðinni (alls 1,500,000 kr.1) um 490,000 kr. Hvar éru þær? Enginn efar, að þær sé einhverstaðar, sjálfsagt vel geymdar á vísum stað. En það væri eitthvað skemtiiegra og fróðlegra að fá að vita hvar, og það getur ekki verið neitt launþurfamál; svo að ég vonast til að stjórnar- málgagnið leiði mig og aðra forvitna í allan sanDleika. Skuld jarðabókasjóðs við ríkissjóð var 31. Júní þ. á. talin um 700,000 króna. Jón Olafsson. 1) Lánið var vitaskuld greitt með ofur- litlum afföllum, en er talið hér fullu nafn- verði; en bankavaxtabréfin eru líka seld með ofurlitlum aff'illum, en talin hér ainnig með nafnverði; þetta er hér látið jafna sig upp. Munar svo litlu. íslendingasundlð var háð síðast- liðinn sunnudag eins og til stóð. Veður var hið ákjósanlegasta, logn og sólskinshiti. Flotpalli hafði verið lagt úti á Skerjafirði, 250 metra undan landi, og áttu sundmenn- irnir að synda þann spöl fram og aptur, eða alls 500 metra hvíldarlaust. 7 menn tóku þátt í kappsundinu, og syntu þeir í þremur deildum. í fyrstu deild voru þeir Einar tíuðjóns- son og Guðmundur Kr. Guðmundsson. Synti sá fyrnefndi spölinn fram og aptur á 11 mínútum og 45 sekúndum, en sá síðar- nefndi á 11 mín. 374/<; sek. í annari deild voru þeir Sigurður Sig- urðsson og Sigurjón Sigurðsson. Var sá fyr taldi 11 mín. 54 sek.. en hinn síðar taldi 11 mín. 512/í sek. á sundinu. í þriðju deild voru þeir Guðm. Kr. Sicj- urðsson, Siglryggur Eiríksson og Slefan Olafsson. Synti Guðmundur spölinn fram og aptur á 11 ínfnútum og 212/<s sekúndu, Siglrgggur á 10 mínúlum og 5 sekúndum, en Stefan á 9 minútum og 54"/.- sekúndu. Að því loknu lýsti formaður dómnefndar- innar, Þorkell Þ. Clementz, því yfir, að Stefán Ólafssoit vœri sundkonung- ur íslands, og bað Sigurjón Pjetursson, glímukonung íslands, að afhenda honum verðlaunagrip- inn, Sundbikar íslands. Að kappsundinu loknu steyptu 15 ungling- ar sjer í sjóinn, og syntu stundarkorn fram og aptur um víkina. Seks þeirra syntu alla leið út að flotpallinum og til lands aptur, en hvildu sig á pallinum. Af þeim 7 mönnum, sem tóku þáttíkapp- sundinu. synti enginn jafn fallega, eins og Einar Guðjónsson. Hann leið áfram jafn stillt og rólega alla leið, eins og fugl á sundi, og sundtök hans voru yndisleg. Allir aðrir hossuðu sjer meira eða minna á sjónum, og þykir það ljótur ávani. Það er Ungmennafjelag Reykjavikur, sem hefir gengizt fyrir því, að koma á pessusvo nefnda nistcndingasund/«. Er ákveðið, að það verði framvegis liáð einu sinni á ári, að jafnaði um mánaðamótin júlí og ágúst, ann- að hvort í Reykjavík, ísafirði, Akureyri eða Seyðisfirði, og skal það auglýst með tveggja mánaða fyrirvara í dagblöðum á öllum þess- um stöðum. íslendingasundið er 600 metrar, og fer fram í sjó. íslendingar einir hafa rjett til að taka þátt í því, en sama, hvar á landinu þeir eiga heima. íslendingar eru þeir taldir, sem eiga heima á Islandi, þegar lslendingasund fer fram, og hafa átt þar heima þrjú ár samfleytt fyr eða síðar. Sundbikar íalands er silfurbikar mikill og vandaður, og skal hann ætíð vera „verð- launagripur og heiðursmerki1* þess manns, er sigur ber úr býtum í íslendingasundi. Ungmennafjelagið keypti bikarinn í Lund- únum, og er sagt, að hann muni hafa kost að um 300 krónur, Hálfleiðinlegt er það, að UngmeDualélagið skyldi ekki heldur láta Nýprentað : St. G. Stephánsson: And- vökur III. Ljóðmæli. Jón Trausti: Heiðarbýlið III. Fylgsnið. Fæst hjá bóksölum. Aðalumboðssala í bókaverzlun Arinbjarnar Sveinbjarnarsonar, Laugaveg 41. smiða hann hjer, svo að keppt væri um ís- lenzkan grip, á íslendingasundi. Enginn efi á því, að hann hefði getað orðið fullt eins vandaður og smekklegur. Magnús Er- lendsson gullsmiður hefir sagt, að hann skyldi hafa smíðað fullt svo fallegan bikar, og auk þess efnismeiri, fyrir sama verð og þessi hefði kostað; ef það hefði að eins ver- ið nefnt við sig, og er honum vel trúandi til þess. Hjúskapur. í fyrradag voru gefin saman í hjónaband austur á Þingvöllum Arni Eiríksson, verzlunarstjóri hjeðan úr hænum og ungfrú Vilborg Runólfsdóttir frá Vík. 13. þ. m. gaf bæjarfógeti saman í hjóna- band ritsjóra Ivar Vennerström (frá Sví- þjóð) og ungfrú Ólafiu Giiðmiuidsdóttur frá ISfesi (á Seltj.nesi). Þau fóru með „Flora“ norður um land og út til heimkynna brúð- gumans Um ísland og Danmörku ætl- ar dr. Norman-Hansen að halda fyrirlest- ur í kvöld í Bárubúð. Aðgangur kostar 50 au. Dr. Norman-Haii8en hefir verið að ferð- ast hjer um land i sumar. Hjelt hann ný- skeð fyrirlestur um þetta sama efni á Ak- ureyri, og var gerður að honum góður rómur. „FylgsniO", saga Jóns Trausta, er komið út og fæst hjá bóksölum. Verð 2 kr. Þess verður getið nánar hjer í blaðinu innan skamms. í’i ngh úsgarOu riun er opinn frá kl. 1—3’/:> á morgun (20. ágúst). Bíó. Að sögn kunnugra verða sýnd- ar óvenjulegar góðar myndir I Bíó um þessa helgi. Meðal peirra er einkarfög- ur og tilkomumikil landslagsmynd frá Astralíu, er gefur mönnum ágæta hug- mynd um landbúnað og kvikfjárrækt Ástralíubúa, og endar á dýrasýningu í höfuðborginni Sydney. »Saga skipstjór- ans« heitir önnur mynd, sem sýnd verð- ur. Hún er í ellefu deildum, og að sögn mjög álirifamikil. »Skyrtuleysinginn« er þriðja myndin, sjerlega skopleg mynd. Heilsiuhælisfj el agsíleild Reylíj avíkur. Eins og menn munu hafa tekið eftir í auglýsingu í siðasta blaði, kallaði yfirstjórn Heiisuhælisfjelagsins saman fund í Reykjavíkurdeildinni 15. þ. m„ með því að formaður deildarinnar, Þórður læknir Thóroddsen hafði ekki boðaö til fundar í liðug tvö ár, þrátt fyrir áskorun. Töluvert ólag hafði verið á stjórn deildarinnar síðustu árin, eins og sjá má á eftirfarandi útdrætti úr fundargerðinni: ))Eftir reikningum þeim, sem fengist höfðu, voru 1211 meðl. með 1766V2 tillagi árið 1908, en inn höfðu borg- ast 1591 kr. í tillögum og 491 kr. í gjöfum. 1909 voru 918 meðl. með 13021/* tillags. Á árinu 1909 höfðu eftir bréfi formanns deildarinnar einnig greiðst eldri gjöld, sem hann kvaðst mundi gera grein fyrir í reikning fyrir 190S, en sá reikningur hefur eigi enn komið frá formanni, heldur að eins stutt skýrsla; en reikningur fyrir 1909 var þá í reikningsformi, en fylgiskjala- laus, og höfðu eigi fengist frekari reikningsskil, þrátt fyrir margítrekað- ar tilraunir til þess. Ágúst Bjarnason kennari bar fram svohljóðandi tillögu: „Fuadurinn felur yfirstjórn Heilsu- hælisfélagsins að sjá um á þann hátt, er hún telur tiltækilegastan, að full reikningsskil deildarinnar fáist". Tillagan var samþ. í einu hljóði. Samþykkt var að fresta kosning nýrrar stjórnar, þar til búið væri að kippa reikn- ingum deildarinnar í lag. Að siðustu bar Ólafur Björnsson upp svohljóðandi tillögu, er var samþ. í einu hljóði: „Fundurinn lýsir óánægju , sinni yfir starfsemi formanns Reykjavíkur- deildar Heilsuhælisfélagsins tvö síð- ustu árin og felur því yfirstjórn fé- lagsins að taka að sér forstöðu deildarinnar fyrst um sinn, þangað til ný stjórn verður kosin, og annast innheimtu alla“.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.