Reykjavík - 22.12.1910, Page 2
224
REYKJAVÍK
Kaupið Jólagjaíir
DAGSBRUN
Afsláttur af öl frá 10§ til 25§.
ýmsum sýslu- og bæjarfélögum til
stórfyrirtækja — flest afborgunarlaus
fyrstu 5 árin, og vextir 4 eða jafnvel
3 af hundraði. — Hjer liggur auð-
sæilega sú hugsun á bak við, að
menn eigi erfiðast með að borga mik-
ið fyrstu árin, enda er það æfinlega
svo.
Og því er nákvæmlega eins farið
með einstaklingana, eins og sýslu- eða
bæjarfélögin, og þess vegna eru sams-
konar lánskjör engu síður nauðsynleg
þeim; því að auk þess, að flest fyrir-
tæki eru þannig vaxin, að þau gefa
lítinn eða jafnvel alls engan arð á
fyrsta ári, þótt annars sjeu vel arð-
vænleg, og auk þess sem þekkingin er
oft lítil, svo að menn verða að feta
sig áfram hægt og variega fyrst í stað,
þá hafa þeir oft og einatt lagt alla
sína vinnu í 6—12 mánuði i fyrir-
tækið, og hijóta þá allir að geta sjeð,
að þeim er flestum með öllu ókleift,
að borga þar á ofan þegar á fyrsta
ári samtals alt að 10. eða 12. hluta
alls lánsins í vexti og afborgun. Enda
hefir svo farið fyrir nokkrum — þótt
furðu fáir sjeu — að þeir hafi orðið
að gefast upp, hætta á fyrsta ári eða
svo — þótzt góðir, ef þeir hafa
sloppið með tvær hendur tómar, þó
að fyrirtækið væri annars gott og
bæri sig vel, þegar fram liðu stundir
og allt var komið í gott lag.
* * *
*
í 47. tölubl. „Reykjavíkur" þ. á.
sýndi jeg fram á það, að geymslufje
landsmanna hefði árið 1909 verið 486
þúsund krónum meira, heldur en allar
þinglesnar veðskuldir á landinu voru
1908. Og jeg kallaði þetta góða af-
komu — góðan búskap. Eða mundi
ekki sá maður þykjast standa sig vel,
sem ætti jafn mikla peninga íyrir-
liggjandi, eins og hann skuldaði alls,
eða meira þó.
En jeg geri ráð fyrir, að einhverjir
muni segja sem svo: „Þetta, að lands-
menn standa sig svoaa vel eitt ár, er
engan veginn full sönnun fyrir því, að
þeir hafi haft hag af því, að fá pen-
inga inn í landið, með öðrum orðum,
hag af því, að geta fengið lán“.
En ef jeg gæti nú sannáð það, að
því meiri peninga sem landið hefir
haft til umráða, til þess að lána út,
því meir hafi geymslufje landsmanna
aukizt, og því hægara hafi þeir átt
með að borga allar þinglýstar veð-
skuldir, með geymslufje sínu — þá
finnst mjer sönnunin komin. Og með
yfirliti því, sem hjer fer á eftir, tel jeg
sönnunina fengna. Það nær yfir full
30 ár, og er tekið eftir þeim beztu
sönnunar-heimildum, sem þil eru :
Ár Upphæð banka- reikninga með veðdeild í þús. Virðingar verð húsa í þús. Þinglesn- ar voð- skuldir í þús. Sparisj* in lánsfje verðbrj ef inneign á hlaupar. í þús.
1879 n 1665 253 175
1880 1796 267 206
1881 n 1967 383 240
1882 n 2549 436 3)6
1883 n 2750 504 357
1884 n 3178 422 419
1885 n 3476 469 447
1886 418 3628 499 437
1887 906 3863 808 425
1888 777 4023 896 454
1889 1033 4062 953 482
1890 1190 4143 1004 636
1891 1257 4252 1016 780
1892 1301 4354 1091 964
1893 1381 4517 1135 926
1894 1601 4781 1152 1051
1895 1797 4979 1267 1310
1896 1909 5269 1309 1500
1897 2175 5816 1499 1774
1898 2111 6460 1592 1937
1899 2046 7213 1911 1976
1900 2858 7643 2156 2186
1901 3571 8099 2340 2323
1902 4518 8539 2758 2738
1903 5653 10169 3240 3561
1904 6586 11737 3942 4027
1905 13169 12657 4671 4909
1906 15659 14025 6526 6506
1907 18831 16514 8058 7112
1908 20686 18708 10038 9447
1909 21603 20008 11850 11751
Aths.: 1. 1886 er Landsbankinn stofnaður.
— 2. 1888 er farið eftir jaínaðarreikn-
ingi bankans.
— 3. 1902 er útbú Landsbankans á
Akureyri stofnað.
— 4. 1904 er stofnað útbú Lands-
bankans á ísafirði
— 5. 1905 er íslands banki stofnaður.
— 6. Síðasta árið (1909) er yirðing-
arverð húsa og þingl. veðskuldir
áætlaðar upphæðir.
í yfirliti þessu hefi jeg, að því er
geymslufjeð snertir, stuðst við Spari-
sjóðsyfirlitið eftir Þorstein Þorsteinsson
í Landshagsskýrslunum 1908.
Til 1890 miða jeg geymslufjeð að
eins við Sparisjóðs-upphæðirnar á
hverju ári. Það verður ekki sjeð, að
annað geymslufje hafi verið til. Og
þótt auðvitað megí ganga að því vísu,
að á því tímabili hafi nokkuð margir
átt marga krónuna í kistuhandraðan-
um, þá þori jeg að fullyrða, að þær
hafi ekki verið fleiri þá, en að öllum
jafnaði síðan. Þá voru það að eins
nokkrir menn, sem nokkur peningaráð
höfðu, en nú hefir allur almenningur
eitthvað af peningum milli handa, þótt
peningaráðin sjeu enn lítil hjá mörg-
um.
Árið 1886, sama árið, sem Lands-
bankinn var stofnaður, voru þinglesnar
veðskuldir..............kr. 499 þús.
en geymslufje ... — 437 —
Mismunur kr. 62 þús.
Árið eftir breytist þetta enn stór-
kostlega til hins verra, því að þá eru
þinglesnar veðskuldir . . kr. 808 þús.
en geymslufjeð.... . — 425 —
Mismunur kr. 383 þús.
Og sama má segja um öll árin til
1890. Og þá voru þó þinglesnu skuld-
irnar sannverulegar, því að þá þekkt-
ust varla afborganir.
Ekki myndi þessi samanburður á
þinglesnum veðskuldum og geymslufje
þykja glæsilegur nú, því að árið 1889
var geymslufjeð fyllilega helmingi
minna, heldur en þinglesnar veðskuldir.
Á næsta 5 ára tímabili, 1890 til
1894, er geymslufjeð allt af minna,
heldur en þinglesnar veðskuldir, en
mismunurinn fer þó ætíð minkandi.
Og 1895 er geymslufjeð orðið 33 þús-
undum meira, heldur en þinglesnar
veðskuldir. Næstu 10 ár á eftir varð
geymslufjeð ætíð meira, þetta 50 til
300 þúsundum meira, heldur en þing-
lesnar veðskuldir. En 1906—1909
vaxa þinglesnu veðskuldirnar aftur lít-
ið eitt meira hlutfallslega, heldur en
geymslufjeð, og stafar það auðvitað af
hinum geysimiklu húsabyggingum og
öðrum stór-íyrirtækjum þau árin.
1910 er geymslufjeð vafalaust orðið
hlutfallslega eins mikið aftur, ef ekki
meira. Jeg vona að landshagsskýrsl-
urnar fyrir 1910 sýni það á sínum
tíma, að þinglesnar veðskuldir sjeu
ekki yfir 11,000,000 króna.
Geymslufjeð á árunum 1890 til 1900
er aðallega sparisjóðsfje, og svo fje á
hlaupareikmngi. Árið 1890 var inni-
eign á hlaupareikningi, eftir því sem
sjeð verður af bankareikningunum, 4
þúsund krónur, en 5 árum síðar er
það orðið 153 þúsundir og 1899 er
það 236 þúsundir.
Eftir það fara menn að kaupa verð-
brjef, veðdeildarbrjef. Auðvitað geng
jeg út frá því, að einstöku maður hafi
og áður keypt ýms verðbrjef, konung-
eg ríkisskuldabrjef o. s. frv., en jeg
hygg óhæt.t að fullyrða, að landsmenn
eigi eins mikið í þeim brjefum nú,
eins og þá, ef ekki meira, og valda
þau þá engri skekkju á þessum athuga-
semdum mínum. Nú hefir mjer áður
hjer í blaðinu talizt svo til, að lands-
menn eigi tvær miljónir króna í veð-
deildarbrjefum (bankavaxtabrjefum), og
að þeir hafi eignazt þær á 10 árum..
Það verða að meðaltali 200 þúsund
krónur á ári.
Þá hafði mjer einnig talizt svo til,
að_ landsmenn ættu eina miljón króna
í íslandsbanka-hlutabrjefum og öðrum
innlendum verðbrjefum (hlutabrjefum),
og að þeir hefðu eignazt þau á 5 síð-
astliðnum árum. Það eru að meðal-
tali aðrar 200 þúsund krónur á ári.
Það getur vel verið, og er enda lík-
legt, að þessi jöfnuður á árin sje ekki
nákvæmur. En það gerir í sjálfu sjer
enga skekkju, því að á þessum 10 ár-
um samtals hafa landsmenn eignazt 3
miljónir króna í verðbrjefum.
Geymslufjeð í lok ársins 1909 heft
jeg talið þannig:
Sparisjóðir og inn-
lánsfje..........kr. 6,370,000,00'
Verðbrjef.........— 3,000,000,00
Innstæða á hlaupa-
reikningi........— 1,798,000,00
Innlán gegn við-
tökuskírteini ... — 583,000,00
Samtals kr. 11,751,000,00
Jeg hefi í yfirlitinu hjer að framan
sett til fróðleiks og samanburðar virð-
ingarverð húseigna á landinu öll arin,
og sömuleiðis upphæðir efnahagsreikn-
inga bankanna með útbúum og veð-
deild eftir að það komst hvottveggja
á. Það sýnir hvað allt vex. Og það
er eftirtektavert, að upphæðir banka-
reikninganna, virðingarverð húsa, þing-
lesnar veðskuldir og geymslufje vaxa
svo jafnt, haldast svo nákvæmlega í
hendur, að þar er aldrei stórvægileg-
ur munur á. En sá munur, sem er,
bendir í þá átt, að því hœgara sem er
að fá lán, og því betri sem lánskjörin
eru, því meiri er gróðinn — sá gróði,
á jeg við, sem allur heimurinn hefir
viðurkennt að byggja mætti á, sem sje
geymslufjeð.
H
Austurstræti 17. Laugaveg 40.
Mesta, bezta og fjölbreyttasta úrval af
hreinlætisvðrum i bænum.
Fjórar tegundir grænwápa, hver ann-
ari ódýrari og betri.
• Fjórar teg’undir af hinum alþekta
Blegsóda.
11 li s íxi æður
munið eftir, að hvergi er betra að kaupa:
i
Kardemomnmðropa, Hatidssípur, Vanillo-lyftiduft, sem
Ilindberjadropa, llmvötn, alrei er hægt að hafa
Kirsuberjadropa, Fatabnrsta. nægar birgðir af.
Sítrónudropa, Hárbursta, Fiórians-Eggjaduft, aí
Vanilledropa. Gólfbursta. öllum viðurkent hið
Möndludropa, o. m. 11. bezta i bænum.
i
F Sápuhúsið. Sápubúðin.
Talsími 155. Talsími 131.