Reykjavík - 14.01.1911, Síða 3
R E Y K J A V[l K
11
Ska ftíelliii «ainót (ÞorrablÓt)
vetður haldið laug-ardag'inn 21. þ. ni.. kl. S1/^ síðd. á „Hótel Reykjavík“
með skaftfelsku áti og öðiu gamni. — Þátttakendur verða að gefa sig fram
fyrir fimmtudagskvöld 19. þ. m. og kaupa aðgöngumiða hjá einhverjum
þessara: Heiga Hannessyni, úrsmið, Bankastræti 12; Jóni Stefánssyni, skó-
smið, Laugaveg 14; Yilhj. Jakobssyni, skósmið, Austurstræti 5; Lárusi Páls-
syni, lækni, Spítalastíg 6 ; Helga Helgasyni, skrifstofu Sláturhússins; Bjarna
Bjarnasyni, Grettisgötu 49.
A. Útlendar vörur :
1 ■R nl . . . 30,000 smál. á 75 a. 22,500
2. Salt 3. Kornogbrauð- 7,000 — - 75- 5,250
vara 2,300 — -1,50 - 3,450
4. Stcinolía . . . 1,500 — -1,50- 2,250
5. Cement .... 1,200 — -1,00 1,200
6. Timbur (stand.) 7. Kaffi, sykar og önnurnýlendu- 300 -2,00 600
yara 700 — -2,00 1,400
8. Vefnaðarvara 9. Járn og járn- 500 — -3,00 1,500
10. Vín, drykkjar- föng og allsk. 500 -1,00 5,00
tóbak 220 — -2,00 440
11. Glervara allsk. 12. Sápa, sóda og 200 •3,00 600
stivelsi . . • 13. Leður og skó- 200 -0,75 150
fatnaður- • • 80 — -2,00 160
14. Jarðepli- ■ • • 200 — -1,00 200
15. Smjörlíki . . . 100 — -1,00 100
16. K&ðiaroglínur 100 — -1,25 125
17. Búsgögn . . . 50 — -2,00 100
18. Pappír ogbækur 100 — -1,00 100
19. Smávara. . . . 60 — -3,00 180
20. Allar aðrar vörur 500 — -1,00 Alls: 500 41,300
B. Innlendar vörur:
1. Fiskiafurðirallsk. 3.000 smál. á 1,00 3,000
2. UH, smjör og kjöt 200 — - 1,00 200
3. Allar aðrar vörur ............ ð00
Aíkripöö
Bryggjngjald. Þetta gjald greiðist
að eins af þeim skipum, sem leggjast
við eða nota bryggju hafnarinnar, en
greiðist aftur á móti af öllum þeim
skipum, hvort heidur eru verzlunar-
eða fiskiskip, innlend eða útlend, utan-
bæjar eða innanbæjar. í gjaldaskránni
mundu skipin fiokkuð eftir stærð
þeirra, og gjaldið ákveðið fyrir sólar-
hring hvern. Ef gjaldið yrði ákveðið
5 aura fyrir hverja smálest yfir sólar-
hringinn, teljum vjer líklegt, eftir rkipa-
umferðinni þetta ár, að gjaldið mundi
verða 20 kr. hvern virkan dag eða c.
6000 kr. yfir árið.
Ennfremur mundi hafnarsjóður fá
nokkrar tekjur af bryggjunum og hús-
um þeim tillieyrandi fyrir leigu á vöru-
plássi og fyrir afhendingu vatns, og
áætlum vjer þær tekjur 3000 kr. Tekj-
urnar af þessum gjaldstofni yrðu þá
um 9000 kr.
Festaryjald. Eins og sjest af áætl-
un herra hafnarstjóra Gabríel Siniths
er ætlast til, að festar verði lagðar inn
í skjólgarðana, er skip geti bundið sig
við, ef þau kjósa það heldur en liggja
fyrir akkerum. Að sjálfsögðu ber að
taka endurgjald fyrir þetta, og þykir
því rjett að fá heimild til þess í lög-
unum. Rað má vera, að fiskiskip
bæjarins mundu vilja nota festar þessar
til að liggja við í vetrarlagi, en ef
ekki, og enda hvort sem er, verður
tekjugrein þessi lítilfjörleg, og áætlum
vjer hana ekki meira en 1000 krónur
á ári.
Eftir því sem hjer hefir verið sagt,
gerum við ráð fyrir, að tekjurnar af
höfninni og hafnarvirkjunum verði
þessar:
1. Lestargjald .... kr. 12,000
2. Vörugjald .... — 45,000
3. Bryggjugjöld og pláss-
leiga....................— 9,000
4. Festargjald .... — 1,000
Samtals kr. 67,000
[Frh.].
iivað er að írjetta?
Bæjarstjórnarkosning fór nýlega
fram á Akureyri. 4 fulltrúar voru kosnir,
og hlutu kosningu Otto Tulinius, kaupm.,
Kristín Eggertsdóttir, spítalaforstöðukona,
Björn Líndal, málaflutningsinaður, og Guð-
mundur Ólafsson, trjesmiður.
BTieg með aðvarast þeir
skipseigendur við Faxaílóa, sem
ætla að fá ábyrgð á skipum sinum
í „Þilskipaábyrgðarfjelaginu við Faxa-
flóa", að tilkynna stjórn fjelagsins
brjeflega, fyrir 20. þ., m., hverja
skipstjóra og stýrimenn þeir ætla að
ráða á skip sín þetta ár.
Stjóruin.
Heilsuheelið á Vítilsstöðum. Þar
eru nú 45 sjúklingar. — Oddfjelagar gáfu
því í jólagjöf 100 kr, í peningum, er verja
skyldi til skemmtunar sjúklingunum um há-
tiðina. Var þeim varið til jólatrjes og ann-
ars, er til fagnaðar mátti verða.
Sjálfsmorð. Hallur Guðmundsson, er
lengi bjó á Stóra-Fljóti í Biskupstungum,
fyrirfór sjer nú í vikunni á geðveikrahælinu
Kleppi — hengdi sig. — Virðist það benda
á fremur ljelegt eftirlit, að sjúklingar þar
skuli hvað eftir ami|ð fá tækifæri til að
fyrirfara sér. í Halli sál. varð ekki vart við
geðveiki fyr en síðastl. sumar.
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Fundur 5. jan.
1. Hafnarbyggingarmál kaupstaðarins. 1.
umræða. Fyrir bæjarstjórninni lá; Nefnd-
arálit frá hafnarnefndinni ásamt frumvarpi
til hafnarlaga Reykjavíkur, svo og álitsskjöl
hafnarverkfræðings Gabriel Smith frá Kristi-
aníu.
2. Byggingarnefndargerðir frá 3. þ. m.
lesnar og samþ.
Reykjavíkurfrjettir.
Um þjóðréttarstöðu íslands heldur
lagaskólakennari Einar Arnórsson alþýðu-
fyrirlestra næstu þrjá sunnudaga í Iðnaðar-
mannahúsinu.
Þingmálafundir þeir fyrir Reykjavíkur-
bæ, sem getið var um í 60. tölubl. Rvíkur
f. á., er nú sagt að eigi að verða seint í
þessum mánuði — eftir þann 20. Eru þing-
menn Reykjavíkur i óða-önn að undirbúa
þessa fundi — á sina visu — halda hvern
pukursfundinn á fætur öðrum með útvöld-
um og þar til brjeflega kvöddum ráðherra-
liðum eingöngu. Öðrum kjósendum bæjar-
ins kemur undirbúningur fundanna auðvit-
að ekkert við.
Skauta-kapphlaup verður þreytt hjerna
á Tjörninni á morgun, kl. I3/* síðdegis, ef
veður leyfir.
Veðrátta. Útsynningsrokinu og snjó-
komunni linnti loks á þriðjudagsnóttina, og
hefir haldist hægviðri síðan, og ágæt þýða
síðari hluta vikunnar. Útsynningur aftur í
dag.
Ingólfur komst loks af stað með póst-
flutninginn (norðan og vestan) á þriðjudags
morguninn, viku á eftir áætlun.
Skaftfettingar, sem eíga heima hjer í
bænum, ætla að halda samkomu 21. þ. m.,
eins og auglýst er á öðrum stað hjer í
blaðinu.
3. Niðurjöfnunarnefnd hafði gert tillögur
sínar út af ýmsum útsvarskærum. Bæjar-
stjórnin samþykkti: að færa útsvar Einars
Sigurðssonar, Framnesveg 47, niður í 8 kr.,
að lækka um 20 kr. aukaútsvar Aug. Júl.
Rögnvaldssonar, er andaðist 16. júní 1910,
að fella niður aukaútsvar Haraldar G. H.
Jónssonar, Grettisg. 64, að synja um niður-
| urfærslu á aukaútsvari Gísla Þorkelssonar
Laugaveg 62, að fella niður aukaútsvar
Jóns Kristjánssonar, Laugaveg 18 B, að
lækka aukaútsvar Guðmundar Semingsson-
ar, Grettisg. 50, niður i 8 kr. að láta auka-
útsvar Jóns Vigfússonar standa óbreytt og
að aukaútsvar Odds Björnssonar Óðinsgötu
3, skyldi óbreytt standa.
4. Ákveðið að taka ekki til greina auka-
útsvarskæru Guðm. Kr. Halldórssonar Berg-
staðastræti 16.
5. Kosnir til að semja alþingiskjörskrá á-
samt borgarstjóra: Halldór Jónsson og Jón
Jensson.
6. Frumvarp til reglugerðar um mjólkur-
sölu var samþpkkt með ýnasum breytingum.
7. Efnahagsreikningur 1908, ásamt tillög-
um nefndar. Svohljóðandi tillaga samþykt:
„Með þvi að tilhlýðilegt væri, að efuahags-
reikningur alls Reykjavíkurkaupstaðar hefði
meira inni að halda, en að eins efnahags-
reiknmg bæjarius eins, þá er málinu vísað
til fjárhagsnefndar til þess að gjöra tillögur
um fullkominn efnahagsreikning fyrir[1910“.
24
virðist það mjög sennilegt, að frúin yðar hafi kosið heldur
að grípa til einhverra örþrifaráða, en að þurfa að búa alla
æfi með drykkjurút. . . .«
»Herra Campnell---------!«
»Og mjer virðist það mjög svo grunsamt, að þjer haldið
fyrst hvarfi konu yðar leyndu í heila viku, og reynið svo að
svæfa samvizku yðar með áfengi«.
Majendie var hálf-hikandi.
»Herra greifi .... Ef jeg hefði vitað, að þjer mynduð
snúast svona við þessu .... þá hefði jeg aldrei farið að
senda eftir yður«.
»Þess vegna fer jeg líka strax«. Leynilögreglumaðurinn
stóð upp. »Jeg skal afhenda málið fyrsta lögregluþjóninum,
sem jeg hitti«.
»Nei, nei, góði herra Campnell, verið þjer hjerna kyrr!
Jeg segi yður alveg salt, að yður skjátlast. Ef það eru flösk-
urnar, sem eru yður þyrnir í augum, þá skal jeg undir eins
taka þær burt«.
.......Þegar leynilögreglumaðurinn nokkru síðar var
að fara ofan stigann, mætti hann gamla þjóninum, Neave,
sem var mjög íbygginn, og gaf honum bendingn um að tala
við sig.
»Fyrirgefið, herra greifi, en jeg get sagt yður nokkuð
mjög undarlegt, sem hefir komið fyrir hjer á heimilinu«.
»Jæja, og hvað er það?«
Þjónninn neri hendurnar vandræðalega.
»Hingað er kominn nýr þjónn, sem heitir Perkins. Hann
hefir ágæt meðmæli, jafnvel þótt hamingjan megi vita, hvar
hann hefir fengið þau, því að annan eins erki-letingja, og
það bæði hortugan, forvitinn og framhleypinn, hefi jcg aldrei
á æfi minni þekkt. Dag og nótt er hann að snuðra fram og
Horfna konan.
1. kapítuli.
Sjálfsmorð eða — ?
»Háttvírti herra greifi Campnell!
Ef það er nokkur snefill af mannlegum tilfinning-
um í yður, þá komið þjer strax! Aldreí hefir nokkur
maður verið í meiri vandræðum. Jeg veit hvorki upp
nje niður — ef til vill hefi jeg þegar verið valdur að
morði, Jeg grátbæni yður urn að koma tafarlaust!
Allra lotningarfyllst
yðar
Cyril Majendiea.
Leynilögreglumaðurinn liafði lesið brjefið, og var að
fara af stað. En í dyrunum mætti hann honum Frederik
Parker, þessum, sem fyrir rúmu ári hafði gifzt ungfrú Scraggs,
hinni amerísku miljónamæringsdóttur — hvers vegna hún
tók honum, má skollinn vita. Hann leit út fyrir að vera í
mjög æstu skapi.
»Heyrið þjer, Campnell greifi, jeg verð þegar í stað að
fá að tala við yður um mjög áríðandi málefnk.