Reykjavík - 14.01.1911, Blaðsíða 4
12
REYKJAVÍ K
Heimastjórnarfélagið .Fra
opnar í dag
skrifstofu. í ^föalstrœti nr. &
(Breiðíjörðshúsi, á 2. gólfi, 1. sal)
til leidbeiningar Heimastjórnarmönnum og til annara
flofiksþarfa. Skrifstofan verður opin kl. 8—10 siðdegis
hvern virkan dag.
Reykjavík, 13. Janúar 1911.
*3?álagsstjérnin.
8. Fundargerðir veganefndar frá 3. þ. m.
voru til umræðu. Eftir tillögum hennar
var þessi samþykkt gerð :
„Að stofnuð verði bæjarverkfræðingssýslan
með 2700 kr. byrjunarlaunum, en bærinn
kosti skrifstofu hans. Borgun fyrir þetta
hvorttveggja fari ekki fram úr 3000 kr. fyrir
1911. Uppsögn af beggja samningsaðila
hálfu 6 mánaða frestur.
Að bæjarverkfræðingurinn hafi á hendi
byggingarfulltrúastarfið og slökkviliðsstjóra-
starfið, hið síðara frá þeim tírna, er bæjar-
stjórnin siðar tiltekur.
Að hann hafi á hendi öll störf fyrir bæj-
arstjórnina, sem útheimta verkfræðislega
þekkingu, og vinni að undirbúningi, um-
sjón og framkvæmd allra mannvirkja, sem
bæjarstjórnin lætur gera, að svo sniklu leyti
sem hans eigin starfskraftar leyfa. Án sam-
þykkis bæjarstjórnar má hann ekki hafa
nein önnur störf á hendi.
Að bæjarverkfræðiugssýslan verði veittfrá
1. apríl næstkomandi, og
Að borgarstjóra sje falið, að útvega bygg-
ingarfulltrúa til bráðabirgða þangað til, og
heimilað að greiða kostnað við verkfræð-
ingsstörf í bæjarins þarfir þangað til, ef nauð.
syn krefur.
9. Brunabótavirðingar samþykktar:
a. húseign Ól. Jónssonar eg Markúsar
Grnðmundssonar, Framnesveg 26, kr. 2928,00;
b. húseign Þórðar Þórðarsonar í Laugar-
nesi kr. 2316,00; c. húseign Guðriðar Jóns-
dóttur, Laugaveg 33, kr. 20,718,00.
10. Kosinn fyrir heilárigðisfulltrúa bæjar-
ins Árni Einarsson, fátækrafulltrúi.
11. Bæjarverkfræðingur kosinn Benedikt
Jónasson, verkfræðingur.
Undureamlegan árangur heflr það haft, að nota Waldemar
Petersens lieimsfræga Kfna-lífs-elixír. Yflrlýsingar frá læknnm, sem og þns-
nndir af viðnrkenningum og þakkarbrjefum frá öllum löndum, sanna að fullu
hina ágætu eiginlegleika elixírsins.
16 Ai-a þjAiiliijsar. Halldór Jónsson, Hlíðarhús við Reykjavfk,
skrifar: Eftir að hafa verið mjög lasinn á 16. ár og þjáðst af magakvcfl og lyst-
arleysi, hefi jeg fengið fullkomna heilsubót með því a'ð nota Waldemar Petersens
Kína-lífs-elixír.
I>ómnr lælniisiinis. Doktor T. Rodian, Kristjaníu, skrifar: Jeg
hefi notað Waldemar Petersens Kína-Iífs-elixir handa sjúklingum mínum, og orðið var
við læknandi áhrif í ýmsar áttir eftir notkunina. Jeg álít elixírinn ágætt meltingarlyf.
JNyrna.tseri:ng£ í 14 íir. Jóhnnna Sveinsdóttir, Simbakoti, Eyrar-
bakka, skrifar: Eftir að hafa þjáðst af nýrnatæringn í 14 ár, og þar af leiðandi
vatnssýki, hægðaleysi og höfuðverk, reyndi jeg Waldemar Petersens Kína-lífs-
elixír, og fann þegar, er jeg hafði eytt úr fám flöskum, töluverðan bata, Jeg hefi
nú notað elixírinn um nokkurn tíma, og jeg er þess fullviss, að með stöðugri
nautn elixírsins muni jeg fá fulla heilsubót.
Illkynjiid magaveiki. Steingrímur Jónatansson, Njálsstöðum,
Húnavatnssýslu, sknfar; Jeg hefi í tvö ár þjáðst mjög af illkynjaðri magavelki,
og leitað margra lækna árangurslaust, en með því að nota Waldemar Petersens
Kína-lífs-elixír, er jeg orðinn fullkomlega hraustur og heilbrigður.
Hinn eini ekta Kína-lífB-elixír kostar að eins 8
krónnr flatslxan, og fæst hvervetna á Islandi.
Varió yður á því, að taka við og borga elixírinn, fyr en þjer hafið
gengið úr skugga um það, að á flöskunum sje hið skrásetta vörnmerki, Kínverji
með glas f hendi, og sömuleiðis firmanafnið Valdemar Petersen, Frederikshavn,
Kobenhavn, og að á flöskustútnum sje merkið VSL‘ á grænu lakki; annars er elix-
frinn falsaður og ólöglegur.
_________________________________ 2
Forskriv selv l)eres Klædeyarer
direkte fra Fabrik. Stor Besparelse. Enhver kan faa tilsendt portofrit
mod Efterkrav 4 Mtr. 130 Ctm. brodt sort, blaa, brun, gron og graa
ægtefarvet finnlds Hlæde til en elegant, solid Kjole eller Spadserdragt
for kun 10 Kr. 2,50 pr. Mtr. Eller 3*/4 Mtr. 135 Ctm. bredt
sort, morkeblaa og graanistret moderne Stof til en solid og smuk
Herreklædning for kun 14* Kr. 50 0. Er Yarerne ikke efter
0nske tages de tilbage. [íh. b. lár
Aarhus Klædevæveri, Aarhus, Danmark.
Aöalfundur
„ Þilskipaábyrgðarfjelagsini
viö Faxaflóa44 verður haldinn á
,Hótel Reykjavík1 laug-ard. 4. febr.
næstkomandi kl. 6 e. h.
Ársreikningar verða lagðir fram. Laga-
breyting rædd. Elnn maður kosinn í
stjórn og tveir endurskoðunarmenn.
Tryggvi Gunnarsson.
© Fineste hygn. Gummivarer
•endes overalt mod Forudbetaling (ogsaa Frim.) elltu
Efterkrav yderst diskret (f. Eks. poste restante) 90 Ore,
- 2’ 3 °z 4 Pr; I>us Send I •/, Kr. i Frimærker,
og De faar tilsendt en 1‘rove aí hver Sort med l’ro
mekt over sid«te Nvhfder Sullivan. Kobenhavn IC
Hvar á að kaupa
öl og vín?|
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prflnt8miðjan Gutflnberg.
22
»Nú sem stendur hefi jeg engan tíma til þess; en jeg
skal koma svo fljótt sem jeg get«.
»Gott, þá bið jeg eftir yður«.
Parker var þegar kominn áleiðis ofan tröppurnar, þegar
hann allt í einu sneri við aftur.
»Jeg hefi dregið það lengi, að leita yðar, en það augna-
blik getur komið fyrir, er maður verður að verja sig. Vinir
mínir hjeldu, að jeg hefði kvongazt peninganna vegna«.
Hann barði sjer á brjóst. >,En þegar það er komið svo langt,
að hún fer að heiman um hábjartan daginn, klædd eins og
litilmótleg blómasölukona, talar við einhvern óþekktan ná-
unga í rifnum frakka, og lætur hann meira að segja leiða
sig eftir götunni, þá held jeg að flestum mundi vera nóg
boðið. — Verið þjer sælir, jeg bið yðar þá heima hjá mjer«.
* ^
* *
Þegar leynilögreglumaðurinn kom heim til Cyrils Maj-
endie, kom Majendie hlaupandi á móti honum fram að dyr-
unum og rjetti fram báðar hendurnar. Föt hans voru öll í
ólagi.
»Kæri herra Campnell, guði sje lof að þjer komuð. . . .
þjer eruð ágætismaður! Má jeg ekki bjóða yður eitthvað að
drekka ?«
»Nei, þakka yður fyrir«.
Majendie ætlaði að hella vini í glas handa sjálfum sjer,
en Campnell tók af honum ráðin.
»Gerið það fyrir mig, að drekka ekki, fyr en þjer hafið
sagt mjer alla málavöxtu«, mælti hann.
»Þjer hafið rjelt fyrir yður, jeg skal ekki drekkal Hafið
þjer nokkurn tíma heyrt nokkuð um konuna mína og mig?«
»Ekki nokkurt orð«.
23
»Konan mín er horfin!«
»Það er svo«.
»í síðastliðinni viku lentum við í rifrildi. Við rifumst
allt af, en í þetta skifti var það í verulega illu. Það er allt
saman henni að kenna — þessari ólukkans frú Parker, og
það hefi jeg sagt Nóru. Frú Parker getur aldrei fengið hana
til að eyða og sólunda nógu miklu. En hvar í þremlinum
á jeg að taka alla þá peninga ? Jeg hefi nú orðið að taka
5000 króna lán — og ef jeg get ekki borgað það aftur, þá
er jeg alveg frá. Jeg sagði henni það. Hún grjet og kvein-
aði, og íór svo út úr stofunni.
Morguninn eftir sá jeg hana ekki.
Þegar jeg kom heim um kvöldið, sögðu stúlkurnar, að
þær hefðu ekki sjeð frúna um daginn. Herbergisdyrnar henn-
ar voru lokaðar, og hún svaraði ekki, þégar jeg barði að
dyrum. Jeg sprengdi þá upp hurðina, en hún var ekki inni.
Svo í morgun fann jeg þetta í vösunum á gömlu buxunum
mínum«.
Majendie sýndi leynilögreglumanninum þrjá litla böggla,
sem hringar hennar og skrautgripir voru í.
Lögreglumaðurinn athugaði það vandlega. Allir skraut-
gripir hennar vafðir innan í gamlan umbúðapappir úr búðun-
um! Hjer og hvar á pappirnum voru einhverjir ógeðslegir
dökkrauðir blettir, sem voru ekki ólíkir blóðblettum.
Majendie skalf eins og hrísla, og spurði í hálfum hljóðum:
»Haldið þjer að hún hafi fyrirfarið sjer eða . . . .«
»Það veit jeg ekkert um«. Campnell greifa lá við að
brosa. »Fyrst um sinn geymi jeg þessa böggla«.
Majendie var kominn með hendina grunsamlega nærri
glasinu og ílöskunni, sem stóð fyrir framan þá á borðinu.
»Látið þjer þetta kyrrt!« mælti greifinn skipandi. »Mjer