Reykjavík - 18.03.1911, Síða 2
46
REYKJAVIK
Yitnaði til í skýrslu sinni (á 17. bls.)?
Jú, jú — og meir en svo!
Og þegar þingmenn vóru að heimta
auka-þing í sumar, er leið, þá æpti
„ísafold“ — ráðherrablaðið þá — há-
stöfum og barði sér á brjóst: Hvað
á allur þessi gauragangur að þýða?
Ekki nema fáir mánuðir til þings
(hún ætlaðist nú reyndar þá til að
Alþingi yrði dregið fram á sumar!) —
og þegar á þing kemur verða öll skjölin
lögð á borðið!
Þá fær þingið allar skýrslur og skil-
ríki — og getur dæmt sjálft!
Það var nú þá!
En nú er komið annað hljóð í
strokkinn!
Nú hefir þingið sett sína nefndina í
hvorri deild, til að rannsaka banka-
málið og gerðir ráðherra. Og hvað svo?
Nefndirnar eru skipaðar samkvæmt
22. gr. stjórnarskrárinnar.
Hvernig hljóðar sú grein ?
Hún er svo:
y>Hvor þingdeildin um sig getur
sett nefndir af þingmönnum, til þess,
meðan þingið stendur yfir, að rann-
saka málefni, sem eru áríðandi fgrir
almenning. Pingdeildin getur veitt
nefndum þessum rétt á að heimta
skýrslur, munnlegar og bréflegar,
bæfti af embættismönnum og ein-
stökum mönnum“.
Samkvæmt þessari grein eru rann-
sóknarnefndirnar í e. d. og n. d. kosnar,
og þingdeildirnar veittu hvor sinni nefnd
þennan rétt til að „heimta skýrslur,
munnlegar og bréflegar bœði af emb-
œttismönnum oy einstökum mönnum“.
Rannsóknarnefnd n. d. heflr fyrir ca.
tveim vikum beðið stjórnarráðið að
láta sér í té gerðabók bankarannsóknar-
nefndarinnar, og matsbókina, en fékk
þau svör, að hvorug þessi bók vœri i
vörzlum stjórnarráðsins. Jafnframt
spurðist stj.ráðið íyrir hjá Landsbank-
anum, en fékk það svar, að hvorug
bókin væri þar.
Hvorki stjórnarráðið né bankinn
vissi neitt um, hvar þessi skjöl væru
niður komin.
Við yfirheyrslu á Magnúsi Sigurðs-
syni, fyrv. rannsóknarmanni, fékk
nefnd efri deildar það upp úr honum,
að hann geymdi innsiglaðan böggul,
er Karl Einarsson sýslum. hefði afhent
sér, og hugði hann að í honum væri
bækurnar, er um var spurt.
Rannsóknarnefnd n. d. lítur svo á,
og það munu allir menn gera, nema
fyrv. ráðherra Björn Jónsson, að skjöl
þessi sé eign stjóruarráðsins, sem
skipaði neíndina. Matsbókin þessi mun
kosta landið beinlinis (í kostnaði banka-
rannsóknarnefndar og launum ólög-
mætra gæzlustjóra) um 9000 krónnr,
að ótöidu öllu því ódæma-fé, sem alt
farganið hefir kostað landið óbeinlinis.
og aldrei verður tölum talið.
Rannsóknarnefnd n. d. beiddist því
liðsinnis stjórnarráðsins til að fá þessi
skjöl fram lögð í nefndinni. Landritari
vildi gera og gerði sitt bezta til þess,
en Magnús Sigurðsson þvældi og tafði,
en hét þó loks að koma með böggulinn
upp í stjórnarráð og opna hann þar.
Kvaðst landritari þá mundu taka þau
skjöl úr honum, er væru landsins
eign.
En þá kom Björn Jónsson til sög-
unnar. Siðasta daginn, sem hann var
ráðherra, 13. þ. m., (Kr. Jónsson fékk
skipunarbréf sitt símleiðis þann 14.)
reit hann Magnúsi bréf og skipaði
honum að láta bæjarfógeta opna bögg-
ulinn og taka úr honum gíerðabókina,
en úrskurðaði jafnframt, að matsbókin
vceri prívat-eign þeirra Karls Einars-
sonar, Magnúsar Sigurðssonar og Ólafs
Eyjólfssonar, sem þeir þyrftu ekki að
láta af hendi.
Magnús neitar að láta matsbókina
af hendi, og er ekki ólíklegt að þeir
Ólafur hafi flýtt sér að brenna hana,
undir eins og hún var úrskurðuð
þeirra eign.
Auðvitað á Magnús, ef til vill, eftir-
köstin eftir. Því að þótt það hefði
verið kærustubréf til hans, sem nefndin
heimtaði, þá var hann skyldur að láta
það af hendi samkv. 22. gr. stjórnar-
skrárinnar, eða að minsta kosti
notarial-staðfest eftirrit, ef í bréfinu
var nokkur skýrsla um bankamálið.
Hvorki hann né Björn Jónsson eru
væntanlega búnir að bíta úr nálinni
með þrjózku sína og óhlýðni við þing-
nefndir Alþingis.
En matið I
Það má nú álíta sannað með fram-
komu ráðherra og bankarannsóknar-
nefndar hans, að annaðhvort hafi þetta
oft um rædda mat aldrei til verið,
eða þá að það hafi verið sá mark-
ieysu-samsetnlngur út í loftið, að
það þoli enga rannsókn — verið tóm
blekking, og alt, sem á því var bygt,
tómt ósanninda skrum og skjal.
Hvernig lízt mönnum á ?
Vjelritun
alls konar tek jeg að mjer, hvort heldur
heima hjá aijer eða á skrifstofum manna
(legg mjer sjálf til vjel). Fleiri samrit i
einu, ef óskað er.
Rannveig Porvarðsdóttir,
vjelritunar-kennari í Verslunarskóla íslands.
Þingholtsstræti 2$.
(Lagaskólahúsið).
A lþingi.
v.
Þingraannafrumvörp.
Enn hafa þessi frumvöip bætztvið:
52. Frumv. til laga um sjúkra-
samlög. Flutningsm.: St. Stefánsson
og Aug. Flygenring. (Sjúkrasamlög,
sem í eru 50 manns eða fleiri, og
uppfylla ýms ákveðin skilyrði, eiga
heimting á að vera lögskráð, og ber
þeim þá 2 kr. styrkur úr landssjóði á
ári fyrir hvern fjelaga).
53. Frumv. til laga um viðauka
og breyting á lögum um bygging,
ábúð og úttekt jarða 12. jan. 18H.
Frá landbúnaðarnefndinm. (Um heim-
ild leiguliga til að gera jarðabætur,
húsabætur o. fl. að nokkru leyti á
kostnað landsdrottins o. fl.).
54. Frumv. til laga um fram-
lenging friðunartima hreindýra.
Flm.: Steingr. Jónsson. (Friðunar-
tíminn lengdur til 1. jan. 1917).
55. Frumv. til laga um brúar-
gerð á Jökulsá á Sóllieimasandi.
Flm.:j, Gunnar Ólafsson. (Veija má
til brúarinnar allt að 78,000 kr. úr
landssjóði, og komi lögin í framkvæmd,
þegar fje er veitt til brúarinnar á
fjárlögunum).
56. Frumv. til laga um atvinnu
við vjelagœzlu á íslenzkum gufu-
skipum. Flm.: Aug. Flygenring.
(Almenn ákvæði til tryggingar því,
að eigi sje öðrum falin vjelastjóra-
störf á ísl. gufuskipum, en þeim, sem
hæfir eru til þess).
57. Frumv. lil laga um að fella
úr gildi lög 30. júlí 1909 um und-
anþágu frá lögum 8 júlí 1902 um
breyting á lögum 6. april 1908 um
bann gegn botnvörpuveiðum. Flm.:
Björn Kristjánsson.
58. Frumv. til taga um eftirlaun.
Flm.: Sig. Sigurðsson og Einar Jóns-
son. (Eftirlaun embættismanna, sem
fengið hafa lausn frá embætti sakir
aldurs- eða heilsulasleika séu 25 kr.
fyrir hvert ár, sem þeir hafa embætti
gegnt, þó aldrei meiri en 1000 kr. á
ári. — Nær ekki til þeirra, sem gegnt
hafa embætti 1 ár eða lengur þegar
lögin koma í gildi).
59. Frumv. til laga um kjör-
dœmaskipun. Flm.: J. Þork. og M.
Blöndahl. (í Reykjavík sjeu 5 þing-
menn; í Árness, Kjalarness og Húna-
vatnþingi 3 í hverju, í Norðurmúla,
Suðurmúla, Rangár,Hegraness og Vaðla-
þingi 2 1 hverju, en 1 í öðrum kjör-
dæmum öllum).
60. Frumv. til laga um löggilding
verzlunarstaðar á Kirkufellsvogivið
Grundarfjörð. Flm.: Sig. Gunnarsson.
61. Frumv. til laga um breyt-
ings á lögum 16. nov. 1907 um
skipun lœkishjeraða. Flm.: Sig. Gunn-
arsson. (Hnappadalssýsla og syðstihrepp-
ur Snæfellssýslu verði sjerstakt lækn-
ishérað með læknissetri 1 Miklaholts-
hreppi).
62. Frumv. til laga um breyt-
ing á almennum hegningarlögum
25. júni 1869. Flm.: Jón Ólafsson.
(Ýmsar nauðsynlegar og mikilsverðar
endurbætur á meiðyrðalöggjöflnni í
lika átt og þá, er flutningsmaðurinn
hefir bent á í ýmsum greinum sinum
í síðasta árg. þessa blaðs).
63. Frumv. til taga um bieyt-
ing á lögum 30. júlí 1909. Flm.:
Sk. Thoroddsen. (Hólshreppur sérstakt
læknishjerað).
64. Frumv. til laga um íslenzk-
an fána. Flm.: Ben. Sveinsson, Bjarni
frá Vogi, J. Þork., Sk. Thoroddsen og
Jón á Hvanná. (ísland skal hafa sjer-
stakan fána, og skal hann líta út eins
og Stúdentafjelags-flaggið, en þó „tví-
klofinn inn a& framan“ á „opinberum
stofnunum").
65. Frumv. lil laga um breyting
á lögum 9. júlí 1909 um slyrktar-
sjóð handa barnakennurum. Flm.:
Sig. Stefánsson.
f ing8ályktunartillögur hafa verið
lagðar fram siðan siðasta blað kom út:
í efri deild:
9. Þingsál.till. um að skora á
stjórnina að rannsaka eða láta rann-
saka gildandi lög um persónulegan og
fjárhagslegan myndugleika og leggja
fyrir næsta reglulegfc alþingi frumvaip
til laga um allt það efni. Flm.: Kr.
Jónsson, L. H. Bjarnason og Sig. Stef.
/ neðri deild:
17. þingsál.till. um að deildin lýsi
vantrausti á Kristjáni Jónssyni sem
ráðherra. Flm.: Skúli Thoroddsen,
Bjarni frá Vogi, Sig. Gunnarsson, Jón
Markús Þorsteinsson
Frakkastig 9 — Reykjavík
tekur aö sjer allskonar aðgerð á
---- Hljóöfœrum. --------
Þork., Jón á Hvanná, Þorl. á Hólum
og Ben. Sveinsson.
Fallin frumvörp.
1. Um eftirlaun handa Torfa
Bjarnasyni í Ólafsdal. (Ellistyrkur til
hans að líkindum tekinn upp á fjár-
lögin).
2. Um horfelli á skepnum (nr. 48).
3. Um búpeningsskoðun og heyá-
setning (nr. 10).
4. Um að landssjóður kaupi Skál-
holt (nr. 31).
5. Um stækkun verzlunarlóðar í
Gerðum (nr. 20).
6. Um gjaldskyldu utanþjóðkirkju-
manna (stjórnarfrumvarp).
7. Um færslu þingtímans (stjórnar-
frumvarp).
Lög frá alþingi.
1. Lög um sóttgæzluskýrteini skipa.
(Frá stjórninni): Skylda sú, sem hvílt
hefir á skipum, að hafa meðferðis sótt-
gæzluskýrteini, fellur burtu. Öðlast
þegar gildi.
Nýtt Mekkinga-moldTÍðri
„sjálfstæðis“(!)-höfðingjanna.
Nýjar lýð-æsinga-hamfarir i vændum.
öllum er'u víst enn í fersku minni
hamfarir „ísafoldar“ og hennar liða
fyrir síðustu kosningar, öllum minnis-
stætt, hvílíkum kynstrum af ösku og
sandi henni þá tókst að þyrla upp og
í augu meiri hluta þjóðarinnar, hví-
líkum staðlausum ósanninda-þvættingi,
hártogunum og útúrsnúningi hún þá
beitti í röksemda stað í máli því, er
þá var til umræðu.
En flestir munu nú vera farnir að
sjá það, í hverju skyni sá blekkinga-
leikur var háður, flestum nú full-ljóst,
að það var valdagræðgin ein, sena
stjórnaði öllum þeim ósköpum.
Og blekkingaleikur sá tókst í það
skiftið svo vel, að tilganginum varð
náð. Völdin lentu hjá þeim, sem fyrir
þeim barðist.
Hjer skal ekkert út í það farið,
hvernig sá maður fór með völdin.
Það er öllum kunnugt. Og nú hafa
Þau aftur verið af honum tekin.
En penninn er enn í sömu höndum.
Og það er stutt til næstu kosninga.
„ísafold“ er því þegar byrjuð að
þyrla upp sama blekkinga-moldviðrinu,
eins og sumarið 1908.
Enn þá er það ekki nema byrjun.
En það er áreiðanlega von á meiru
úr sömu átt.
Og tilgangurinn leynir sjer ekki.
Vonin ekki al-dauð.
Og nú er það ekki eingöngu sam-
bandsmálið, sem notað er til æsinga
á sama drengilega hátt og áður.
Nú ætla þeir, „sjálfstæðis“(!)-höfð-
ingjarnir, að reyna að berja einnig því
inn í alþýðu manna, að bæði konungur
og Kristján Jónsson hafi brotið móti
þingræðinu, er Kristján Jónsson var
gerður að ráðherra, að þeir hafi
»gert tilraun til að drepa þingrœði
hinnar islenzku þjóðarn, eins og ísaf.
kemst svo dánumannlega að orði.