Reykjavík - 01.04.1911, Page 1
1R ep k j a v t k.
XII., 14
Laugardag' 1. -A.pi*íl 1911
XII., 14
„REYKJAYlK"
^r8angurinn kostar innanlands 3 kr.; erlendis
kr. 3,50 — 4 sh. — 1 doll. Borgist fyrir 1. júli.
Augiýsingar innlendar; á 1. b*s* kr. 1,50;
3. Off 4. bls. kr. 1,35. — Útl. augl. 33'/»#/o hærra.—
Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst
Ritstj. og ábyrgðarm. Öteián R-u.n61fs8oiit
Pingholtsstr. 3. Talsími í 8 8.
jfffgreiisla ,Reykjavíkur‘
er í
ísílfólastræti 3
(beint á móti verkfræðing Knud Zimsen).
Afgreiðsla blaðsins er opin kl. 9—12
árd. og kl. 1—6 síðd. - Talsimi 199.
Ritstjóri er til viðtals virka daga
kl. 12—1. — Pinglioltsstr. 3.
A lþingi.
YII.
fingraannafrumYÖrp.
Enn hafa þessi frumvörp bætzt við
Þau, sem áður eru talin:
71. Frumv. til laga um viöauka
við tilskipun um fiskiveiðar útlendinga
við ísland 12. febr. 1872, Vóg 27. sept.
1901 um fiskiveiðar hlutafjelaga í
landhelgi við ísland, og lög 31. júlí
1907 um breyting á þeim lögum.
Flm. : Sig. Hjörleifsson. (Hittist út-
lent síldveiðaskip í landhelgi, þótt eigi
sje að veiðum, varðar það 200—2000
kr. sekt til landssjóðs, nema nætur
sjeu í búlka innanborðs þann tíma
allan, sem skipið er í landhelgi, og
nótabátar á skipi uppi á venjulegum
stað. Má leggja löghald á skip, afla
og veiðatfæri, og seija að undangengnu
fjárnámi til lúkningar sektum og
kostnaði).
72. Frumv. til laga um toll af
póstsendingum, sem koma til Íslands
fr'á úllöndum. Flm.: Bj. Kristjánss.,
Bjarni frá Yogi og Þorl. Jónsson.
(Auk burðargjalds skal greiða 10 aura
toll í landssjóð af hverjum böggli, sem
til landsins flytztj og vigtar aut að
5 pundum, og 20 aura toll af bögglum,
sem vigta frá 5-i0 pundj Deraa í
böggiunum sjeu prentuð blöð eða
bækur. Tollurinn greiðist í frímerkjum
við móttöku).
73. Frumv. til laga l(ni farmgjald
af aðfluttum vörum. Flm.: Bj Kiist-
jánsson, Bjarni frá Vogi og í>0rl. Jónss.
(1- gr. frumvarpsins hijóðar svo:
»Af vörum, sem fluttar eru til ís-
iands, skal greiða farmgjald í Jandssjóð
eftir vigt hverrar vörutegundar með
umbúðum eða teningsmáli, sem hjer
segir:
1. flokkur. Af gipsi, glerílátum,
giuggagleri, hverflsteinum og brýnum,
kókólit, kartöflum, leirvörum, lin-
^eikju, netakúium, sápu alls konar,
sapuspónum, sápulút, sóda, spegilgleri,
stalbiki og tiörn
s joru, — 10 aurar af hverjum
100 pd.
2.flokkur. Af ávaxtavínum, eplum
og öðrum aldinum, bað]yfjUm, eggjum,
ed.ki, fernisolíu, gosdrykkjum, húsa-
íarfa, hampgjörðj^m, kálmeti, legstein-
um, línoleumdúk, plöntufeiti, pappír
alls konar, ritföngum, vélaolíu og öðr-
um olíutegundum að undanskildri
steinolíu, sekkjum utan um ull, smjöri,
smjörlíki, svínafeiti, plöntufeiti, tólk,
veggjapappa alls konar, vaxdúk og þak-
pappa, — 25 aurar af hverjum 100 pd.
3. flokkur. Af akkerum, akkeris-
festum, ávaxtasafa, bitum úr járni,
blikki, bátum, sem koma til landsins
sem farmur, eldavjelum, gufukötluin,
gufuvjelum, flutningavögnum og vagn-
hlutum, herfum, málmum óunnum,
öðrum en járni, mótorum alls konar,
ofnum, peningaskápum, plógum, renni-
bekkjum, rakstursvjelum, smíðajárni
og sfáli í stöngum og plötum, sjó-
klæðum (olíufötum), sláttuvjelum og
þakjárni — 50 aurar af hverjum 100 pd.
4. flokkur. Af brauði alls konar,
blikkvörum, eldspýtum, hljóðfærum,
hampi, köðlum alls konar, járnvörum
(sem eigi eru taldar í 3. flokki), lömpum,
og lampapörtum, matvælum alls konar
og nýlenduvörum, sem eigi hvílir nú
sjerstakur tollur á, og eigi eru sjer-
staklega tilteknar í öðrum flokkum,
netum, osti, stofugögnum, skotfærum
og seglgarni, — 1 kr. af hverjum
100 pd.
5. flokkur. Af baðmuJlargarni, fatn-
aði alls konar (nema sjóklæðum), gólf-
mottum, glysvarningi alls konar, leðri
sútuðu, litunarefnum, skinnum sútuð-
um, stundaklukkum, skófatnaði alls
konar, tvinna, ullarbandi og vefnaðar-
vörum alls konar, — 2 kr. af hverjum
100 pd.
6. flokkur. Af trjegluggum, hurð-
um, húsalistum og alls konar trjáviði —
3 aurar af hverju teningsfeti.
7. flokkur. Af öllum öðrum vörum,
er eigi geta talizt með neinum flokki
hjer að framan, og eigi eru undan-
þegnar farmgjaldi samkvæmt 8. flokki,
greiðist 1 kr. af hverjum 100 pd.
Ef tilgreindar eru á farmskrá fleiri
vörutegundir en ein í sömu umbúð-
um skal reikna farmgjaldið eftir þeirri
vörutegundinni, sem á hvílir hæsta
farmgjaldið. Ef vörusending er minni
efi 100 pd., skal greiða gjaldið fyrir
hver 10 pd. ag rjettri tiltölu, brot úr
lO pundum reiknast sem full 10 pund.
8. flokkur. Af áburði tilbúnum,
bókum prentuðum, gólfplötum úr íeir
og steini, húðum ósútuðum, heyi, járni
óunnu í klumpum, kornvörum alls
konar, kalki, kokes, kolum, leir, salti,
sementi og líkum steinbindingsefnum,
steinolíu, saltkjöti íslenzku í tunnum,
skinnum ósútuðum, tunnum tómum,
tunnustöfum, tígulsteinum alls konar,
vörum sem keyptar eru og sendar í
nafni landssjóðs, og vörum sem sjer-
staklega er lagður tollur á, skal ekkert
farmgjald greiða".
Ætlast flutningsmenn til að lög þessi
öðJist gildi 1. jan. 1912.
Bjarni frá Vogi gerir ráð fyrir, að
farmgjald þetta nemi, auk innheimtu-
launa og annars kostnaðar 200,000 kr.
á ári).
74. . Frumv. til laga um sölu á
kirkjujörðinni Sigurðarstöðumjj Prest-
hólahreppi. Fim.: Ben. Sveinsson.
Leikfielag Reykjavíkur:
Annað kvöld, sunnndag 3. apríl kl. 8
Fagra malarakonan í Marly
ogr
Litli hermadu
Aðeins leikið þetta eina skiíti.
(Verð eftir mati dómkvaddra manna,
þó ekki lægra en 6,600 kr.).
75. Frumv. til laga um breyting
á Vógum 8. okt. 1883 um bœjarstjórn
á Aknreyri. Flm.: Sig. Hjörleifsson.
(í niðurjöfnunarnefnd verði 7 menn, og
endurskoðendur bæjarreikninga 2).
76. Frumv. til laga um sölic á
kirkjujörðinni Presthólum í Presthóla-
hreppi. Flm.: Ben. Sveinsson. (Heimild
til að selja síra Halldóri Bjarnarsyni á
Presthólum nefnda jörð, og skulu
dómskvaddir menn ákveða verðið).
Þing8ályktnnartillögur
þessar hafa enn verið lagðar fram í
viðbót við áður taldar:
í efri deild:
10. Þingsál.till. frá Sig. Hjörleifs-
syni og Stefáni Stefánssyni kennara
um að skora á stjórnina að rannsaka,
hvort ekki sje þörf á að aðgreina sýslu-
mannsembættið í Eyjafjarðarsýslu og
bæjarfógetaembættið á Akureyri í tvö
embætti, með því að þau sjeu nú orðin
svo umfangsmikil, að lítt kleift sje
einum manni að gegna þeim — og
leggja málið fyrir næsta þing.
I neðri deild:
18. Þingsál.till. frá Jóni Þorkels-
syni um að neðri deild skori á stjórn-
ina að skipa nefnd til þess að rann-
saka, að hve miklu leyti fje því, er
geflð heflr verið til guðsþakka hjer á
landi, sje varið samkvæmt sannarleg-
um tiJgangi, og að hve miklu leyti það
sje tryggilega varðveitt, og koma með
tillögur um þetta efni.
19. Þingsál.till. um hin svo nefndu
lög um hina stjórnarlegu stöðu íslands
í ríkinu frá 2. jan. 1871. Flm.: Jón
Þorkelsson, Ben. Sveinsson, Bjarni frá
Vogi og Jón á Hvanná. (Neðri deild
alþingis ályktar, að lýsa yflr því, að
svo nefnd lög um hina stjórnarlegu
stöðu íslands í rikinu frá 2. jan. 1871,
geti ekki viðurkennzt skuldbindandi
fyrir ísland).
Sönnunargögnin.
Jafnvel þótt þingræðisbrots-uppspun-
inn ætti að vera útrætt mál, með því
að allir vita, að ásökun sú í garð ráð-
herra Kr. Jónssonar og konungsins,
hefir aldrei haft við neitt að styðjast,
ekki einu sinni nokkra málamynda-
átyllu, þá halda þau hjónaleysin, Þjóð-
viljinn og ísafold, enn þá áfram þessum
tilhæfulausa áburði, sækja málið enn
af kappi miklu, og hamingjan ein veit,
hvað lengi þau geta haldið áfram að
tönnlast á þossu „þingræðisbroti", sem
þau svo kalla.
Skúli Thoroddsen fullyrðir í Þjóð-
viljanum, að hann hafl haft stuðning
19 þingmanna, og segist sanna það
það með skjali, er gengið hafi á milli
Björnsliða og Sparkverja.
Vjer getum ekki stillt oss um að til-
færa hjer skjal þetta, eins og það er
prentað í blaði Skúla sjálfs, Þjóð-
viljanum.
Það hljóðar svona:
„Til svars upp á meðtekið bréf 8.
þ. m. frá 6 alþingismönnum sjálfstæð-
isflokksins, þess efnis að spyrjast fyrir
um, hvort vjer, sem vorum ósamþykkir
vantraustsyfirlýsingu til ráðherra Björns
Jónssonar viljum styðja Skúla Thor-
oddsen til ráðherra fram að kosning-
um, gefum vjer hjer með þá yflrlýs-
ingu, að vjer munum eftir atvikum
fallast á, að hann verði ráðlierra1) og
ekki fella hann á þessu þingi.
Þessi yfirlýsing er þó af vorri hendi
bundin eftirfarandi skilyrðum, sem vjer
ætlumst til að veiði skriflega gefin og
undirskrifuð af Skúla Thoroddsen og
þeim mönnum er honum fylgja úr
hinum hluta Sjálfstæðisflokksins:
1. Að Skúli Thoroddsen og allir
flokksmenn hans skuldbindi sig til
að vinna af alefli að því, að stjórn-
arskrábreyting nái fram að ganga
á þessu þingi; en verði þess ekki
auðið, verði þingið þó leyst upp
og efnt til nýrra kosninga í sumar.
2. Að konungkjörnir þingmenn til
næstu 6 ára frá því kjörtíma nú-
verandi konungkjörinna þing-
manna er útrunninn, verði til-
nefndir af flokknum í heild sinni
eða af hvorum flokkshluta um sig
tiltölulega margir eftir atkvæða-
magni flokkshlutanna beggja.
Alþingi 11 marz 1911.
Sigurður Hjörleifsson. Kristinn
Daníelsson. Sigurðnr Gunnarsson.
Þorleifur Jónsson. Jens Pálsson.
Gunnar Ólafsson. Björn Kristjáns-
son. Björn Sigfússon. Jósep Bjórns-
son. Bjórn Jónsson (að fella hann
ekki á þessu þingi). Björn Þorláks-
son. Magnús Blöndáhl.
Vjer undirritaðir alþingismenn göng-
um að framanskrifuðum skilyrðum og
styðjum tilnefning Skúla Thoroddsen1).
Alþingi 11. marz 1911.
Skúli Thoroddsen. Sigurður Stef-
ánsson. Bjarni Jónsson frá Vogi. Jón
Þorkelsson. Jón Jónsson frá Hvanná.
Benedikt Sveinsson. Ari Jónsson“.
1) Leturbreytingin eitir Þjóðviljanum.