Reykjavík - 20.05.1911, Blaðsíða 1
1k kj a v t k.
Lausrardag: 30. Maí 1911
XII., 31
#
Odýrastar
í bæni im
eru án nokkurs efa hjá oss. Nýkomið feiknin öll, sérstak-
lega af Þvottasápum. Ennfremur §ápuduft. Zepra,
Amor, Itlákka ete. Þá má eigi gleyma að vjer seljum
Ódýrast í þessum bæ
allar ffllatvörur, Kaffi, Sykur, TóbaK etc.
Xerzlunin „Víking-ur44.
Carl Lárusson.
xii., ai
„RETKJAVÍK"
Árgangurinn kostar innanlands 3 kr.i erlendis
kr. 3,50 — 4 sh. — 1 doll. Borgist fyrir 1. júli.
Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50;
3. o? 4. bls. kr. 1,25. — Dtl. augl. 337»<7« hærra.—
Afsláttur að mun, ef mikid er auglýst.
Ritstj. og ábyrgðarm. Steíán Runólísson,
Pingholtsstr. 3. Talsimi i 8 8.
yfygreiðsla ,Reykjavíkar‘
er í
Skólastræti 3
(beint á móti verkfræðing Knud Zimsen).
Afgreiðsla blaðsins er opin kl. 9—12
árd. og kl. 1—6 síðd. — Talsimi 199.
Ritstjórl er til viðtals virka daga
kl. 12—1. — Þinglioltsstr. 3.
Lög afgreiíd af aljimgi.
í síðasta blaði var þess getið, að
45 lög hefðu verið afgreidd af alþingi,
og eru þau þessi:
1. Lög um sóttgœzluskírteini skipa.
(Stjórnarfrumvarp). Skylda skipa að
hafa með sjer sóttgæzluskírteini stað-
fest af dönskum verzlunarfulltrúa á
brottfararstað fellur niður.
2. L'óg um vita, sjómerki o. fl.
(Stj órnarf rum varp).
3. Lög um samþykktir um liey-
ásetning og lieyforðabúr (Þingm.frumv).
Sýslunefndir mega gera samþykktir
um heyforðabúr fyrir hvern hrepp
innansýslu, sem óskar þess. I sam-
þykkt má setja ákvæði um heyásetn-
ingareftirlit, um stofnun heyforðabúrs,
svo sem með því, að hreppsnefndin
semji við mann eða menn um að hafa
til ákveðinn forða af góðu heyi handa
þeim, sem heylausir kunna að verða,
eða tryggja á annan hátt það, að á-
kveðinn heyforði sje til í hreppnum
til hjálpar í heyþroti o. s. frv.
4. Lög um vitagjald (Stjórnarfrv.).
Öll skip með fullu þilfari eða gang-
vjel, sem taka höfn hjer á landi, greiði
25 aura af hverri smálest í vitagjald.
Gjaldið rennur í landssjóð, og greiðist
á fyrstu höfn, er skipið kemur á í
hverri ferð frá útlöndum. Skip, sem
að eins er í förum hjer við land, greiða
gjaldið, minnst 4 kr., einu sinni á ári.
Herskip undanþegin gjaldi.
5. Lög um breyting á lögum 16.
nóv. 1907 um laun sóknarpresta.
(Stjórnarfrumv. breytt). i. gr. laganna
orðist svo: Hver sóknarprestur fær að
byrjunarlaunum 1300 kr. á ári. Eftir
12 þjónustuár fær hann í laun 1500
kr. á ári, og eftir 22 þjónustuár fær
hann í laun 1700 kr. á ári. Öðlast
gildi 6. júní 1911.
6. Lög um breyting á lögum 16.
nóvbr. 1907 um stofnun lagasköla.
(Sjá þingmannafrumvarp nr. 32).
7. Lög um viðauka við lög 14. des.
187/ um ýmisleg atriði, er snerta
fiskiveiðar á opnum skipum o. s. frv.
(Sjá þingmannafrumv. nr. 38).
8. L'óg um sjerstakt varnarþmg í
víxilmálum. (Sjá þingmannafrumv.
nr. 17).
9. Lög um verzlunarióðina í Vest-
mannaeyjum. (Sjá þingmannafrumv.
nr. 39).
10. Lög um aukatekjur landssjóðs.
(Stjórnarfrumv.) Langur lagabálkur,
69 greinar, er breytir og nemur úr
gildi aukatekjulögin frá 1894.
11. Lög um afnám fóðurskyldu
svo nefndra Maríu- og Pjeturslamba.
(Sjá þingmannafrumv. nr. 15).
12. Lög um breyting á gildandi
ákvœðum um almennar auglýsingar og
dómsmálaauglýsingar, (þingm.frumv.).
Almennar auglýsingar og auglýsingar
um dómsmál, sem opið brjef 4. jan.
1861, lög 12. apríl 1878 og lög 28.
ág. 1903 ræða um, skal að eins skylt
að birta í blaði því, er fer með stjórn-
arvalda-auglýsingar hjer í landi að
lögum.
13. Lög um dánarskýrslur. (Stjórn-
arfrumv.). Prestur má ekki jarðsetja
lík neins manns, sem dáið hefir í
kauptúni sem er læknissetur, fyr en
hann hefir fengið dánarvottorð hans
frá lækni þeim, er stundaði hinn látna
Í banalegunni. Vottorðið skal læknir
láta í tje ókeypis, ritað á eyðublað,
er landlæknir lætur gera; skal þar til-
greina nafn hins látna, lögheimili, stöðu,
dánardægur, dánarár og dauðamein. Nú
deyr maður í kauptúni, sem er læknis-
setur, og er ekki auðið að ná í lækni
þann, er stundaði hinn látna, eða hafi
enginn læknir sjeð hann í banalegunni,
þá skal innan sólarhrings frá andlát-
inu sækja hjeraðslækni eða annan lög-
giltan lækni, búsettan í kauptúninu,
ef kostur er, til að skoða líkið og
semja dánarvottorð. Fyrir þá líkskoð-
un fær læknir 1 kr. Skal greiða þann
kostnað úr landssjóði. — Þá er prest-
ur jarðsetur lík manns, er dáið hefir
utan kauptúns, sem er læknissetur,
skal hann, auk venjulegra atriða (nafns,
aldurs, stöðu, dánardægurs og greftr-
unardags), rita í kirkjubókina dauða-
mein hins látna eftir þeim skýringum,
er hann getur beztar fengið. — Stjórn-
arráðið lætur prestum í tje eyðublöð
undir dánarskýrslu, og tilgreinir prest-
ur þar dauðameinið, og getur þess
stuttlega við hvað stuðst sje. Skal
semja skýrslur fyrir hvert prestakall
eða hluta úr prestakalli í hverju læknis-
hjeraði. Þessar skýrslur skal prestur
senda hjeraðslækni sínum, ásamt dán-
arvottorðum, ef nokkur eru, svo og
útdrátt úr manntalssskýrslu sóknar-
innar um manntal kauptúnsins. Hjer-
aðslæknir rannsakar skýrslurnar, er
til dauðameinsins kemur, og bætir úr
því, er hann finnur ábótavant; skal
hann því næst scmja eina dánarskýrslu
fyrir allt hjeraðið eftir fyrirmælum
landlæknis, og senda þá skýrslu til
hans ásamt öðrum dánarskýrslum, og
láta fylgja skýrslu prestanna.
14. Lög um framlenging friðunar-
tíma lireindýra. (Sjá þingmannafrum-
vörp nr. 54).
15. Lög um rjett kvenna til em-
bœttisnáms, námsstyrks og' embœtta.
(H. Hafstein). Konur eiga sama rjett
eins og karlar til að njóta kennslu og
ljúka fullnaðarprófi í öllum mennta-
stofnunum landsins. — Konur eiga
sama rjett eins og karlar til hlutdeild-
ar i styrktarfje því, sem veitt er áf
opinberum sjóðum námsmönnum við
æðri og óæðri mentastofnanir lands-
ins. Til allra embætta hafa konur
sama rjett og karlar, enda hafa þær
og í öllum greinum, er að embættis-
rekstri lúta, sörnu skyidur og karl-
menn. — Með lögum þessum fellur
úr gildi tilskipun 4. des. 1886 um
rjett kvenna til að ganga undir próf
hins lærða skóia í Reykjavík, presta-
skóians og læknaskólans, og til þess
að njóta kennsiu í þessum síðasttöldu
skólum.
16. Lög um breyting á 20. og 29.
gr. laga 8. okt. 1883 um bæjarstjórn
á Akureyri. (Sjá þingmannafrumv.
nr. 75).
17. Rafnarl'óg fyrir Reykjavíkur-
kaupstað. (Laga þessara hefir áður
verið getið hjer í blaðinu).
18. Lög um stýrimannaskólann i
Reykjavík. (Stjórnarfrumv. breytt).
Meiri kunnátta heimtuð af þeim, sem
taka próf, heldur en hingað til, líkast
því, sem heimtað er við stýrimanna-
próf á Norðurlöndum. Enginn getur
gengið undir próf, nema hann hafi
áður verið háseti á skipi að minnsta
kosti 12 mánuði eftir 15 ára aldur.
19. Lög um brúargerð á Jökulsá
á Sóllieimasandi. (Sjá þingmannafrv.
nr. 55).
20. Lög um viðauka við tilskipun
um fiskveiðar útlendinga við Island
12. febr. 1872, lög 27. sept. 1901 um
fiskveiðar ldidafjelaga í landlielgi við
ísland, og lög 31. júlí 1907 um
breyting á þeim lögum. (Þingmanna-
frumv.). Þegar útlend síldarveiðaskip
eru á landhelgissvæðinu, þá er þeim
skylt að hafa báta sína uppi á skip-
inu á venjulegum stað, og nætur inni
í skipinu, en þó ekki í bátunum. —
Brot gegn ákvæðum laga þessara varða
sektum frá 100—1000 kr., og má
leggja löghald á skip, afla og veiðar-
færi og selja að undangengnu fjár-
námi til lúkningar sektum og kostnaði.
VerzlMarstarf.
Lipur og áreiðanlegur piltur frá 14
til 18 ára að aldri, sem er góður í
reikningi og hefir góð meðmæli, get-
ur fengið atvinnu við búðarstörf hjer
í bænum frá 1. júní. Skrifleg eigin-
handar tilboð merkt: „Yerzlunarstarf“
sendist afgreiðslu „Rvíkur" í síðasta
lagi fyrir fimtudag næstkomandi.
21. Lög um skoðun á síld. (Þing-
mannafrumv.). Á svæðinu milli Horns
og Langaness skal skoðun fara fram
á allri nýveiddri síld, sem ætluð er
til útflutnings og veidd er í herpinót
eða reknet og söltuð er á landi eða
við land. Auk þess skal öllum á
þessu svæði gefast kostur á að fá
mat á saltaðri síld, hafi hún legið
hæfilega lengi í salti.----Brot á á-
kvæðum þessara laga varða 50—2000
kr. sekt, er rennur í landssjóð, nema
þyngri refsing liggi við samkvæmt
hinum almennu hegningarlögum. —
Lög þessi öðlast gildi 20. júlí 1911 og
gilda til ársloka 1913. (Frh.).
Jón Sigurðsson. Minnis-
merki hans er nú komið það langt
áleiðis, að gipsmynd Einars Jónssonar
fór af stað til Kaupmannahafnar með
Sterling í gær. Þar verður steypt
bronsmynd eftir henni, og er talið
iíklegt, að hún verði komin hingað
fyrir 2. ágúst, og verður hún þá af-
hjúpuð þann dag. Sagt er, að brons-
myndirnar verði hafðar tvær, og fer
þá önnur þeirra til Vestur-íslendinga.
Gipsmyndin var höfð til sýnis hjer
nokkra daga, áður en hún fór, og luku
allir upp einum munni um það, að
hún væri reglulegt listaverk. Hún er
um 41/* alin á hæð, eða sem næst
hálf önnur mannshæð. Síðan Einar
Jónsson lauk við gipsmyndina, hefir
hann verið að vinna að upphleyptri
mynd, sem á að verða framan á fót-
stallinum. — Mikið hefir verið ritað
! um það og rætt, hvar myndin ætti