Reykjavík - 12.08.1911, Qupperneq 4
136
REYKJAVlK
cTunóur i „%£ramu
í kvöld (langardag 12. á-
gúst) í (rOod-Templarahúsinu kl.
81/* e. m.
Lárus H. Bjarnason talar.
2 herbergi óskast til leigu frá 1. okt.
Upplýsingar í Gutenberg.
Lán það handa landssjóði, að upp-
hseð 500,000 kr.t sem síðasta alþingi sam-
þykkti að taka, tókst ráðherra loks að fá
hjá þrem bönkum f Kaupmannahöfn, Handels-
banken, Privatbanken og Landmandsbanken.
Landssjóður greiði 4'/» af hundraði í vexti,
en fær lánið útborgað án afdráttar.
Sambandsmálið. Á siðasta þingi var
meðal annars samþykkt í neðri deild þings-
ályktunartillaga um það, að skora á ráðh.,
„að gera sitt ítrasta til þess, að lög um
aamband Danmerkur og íslands, er samþ.
voru á alþingi 1909, verði sem allra bráð-
ast tekin til meðferðar á ríkisþingi I)ana“.
Ráðheri-a varð við áskorun þessari, og
talaði við forsætisráðherrann, Klaus Bernt-
sen, og reyndi að fá hann til að leggja
sambandslagafrumvarp þetta fyrir rikisþing-
ið. En engu vildi forsætisráðherrann lofa
í þá átt, fyr en hann hefði ráðgast um það
við helztu menn þingflokkanna. Og senni-
lega kemst mál þetta aldreí r/iikið lengra.
Standmynd Jóns Sigurðssonar,
sem. væntanleg var með „Vestu“ 7. þ. m.,
kom ekki. Steypunni ekki alveg lokið, er
„Vesta“ fór frá Kaupmannahöfn. En brjef
hafði komið um það, að hún yrði send með
„Sterling“, sem kemur hingað 14. þ. m. Að
líkindum verður myndin þá afhjúpuð um
næstu helgi.
Látinn er 28. f. m. að heimili sínu merk-
isbóndinn Gisli Guðmundsson í Bitru í
Hraungerðishreppí.
Þýzka skólaskipið „Vietoria Louise",
sem getið var um nýskeð hjer í blaðinu að
væntanlegt væri, kom hingað sunnudaginn
6. þ. m., og hefir verið hjer þessa viku. í
fyrrakvöld hjelt þýzki konsúllinn og hjer
búsettir Þjóðverjar foringjunum og foringja-
efnunum dansleik í „Iðnó“ og buðu ýmsum
bæjarmönnum á þá skemtun. Ljetu allir
vel yfir.
Skemmtiskip þýzkt, „Kronprinzessin
Cecilie", 8,700 smál., farþegar um 200, kom
hingað á miðvikudagsmorguninn og fór aft-
ur næstu nótt. Var ferðamönnunum skemmt
hjer i landi með samsöng o. fl. Um kvöldið
Klœðevsver €ðeling, Viborg, Danmark
sender portofrit 10 Alen sort, graat, inkblaa, inkgrön, inkbrun finulds Chevi-
ots Klæde til en flot Damekjole for kun 8 Kr. 85 0re, eller 5 Alen
bredt sort, inkblaa, graanistret renulds Stof til en soIí«l og smuk Herre-
dragt for kun 13 Kr. 85 0re. Ingen Risiko! Kan ombyttes eller tilbage-
tages. Uld köbes 65 0re pr. Pd. Strikkede Klude 25 0re pr. Pd.
Mestu birgðir af trj<‘smíða-vjeluin og
trjesmíða-verkfærum af beztu tegund sem fáan-
leg er. — Verðlistar sendir, ef um er beðið. i
C. Th. Rom & Co., Köbenhavn B.
bauð skipstjóri fjölda manna úr landi á dans-
leik um borð, og þótti það ágæt skemmtun.
Heiðursmerki. Tryggvi Gunnarsson,
fyrv. bankastjóri, hefir nýlega verið sæmdur
kommandörkrossi 1. stigs.
Sigurður sýslumaður Pórðarson í Am-
arholti er nýlega gerður að riddara af
Dbr., og
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, tónskáld í
Kaupmannahöfn, hefir fengið prófessors-
nafnbót.
Islendingasundið fer fram á morgun,
kl. 6 siðdegis, frá sundskálanum við Skerja-
fjörð.
Hafnargerðin. Góðar vonir gerir hafn-
arnefndin sjer um það, að nægilegt fje fá-
ist með aðgengilegum kjörum til hafnar-
gerðarinnar hjer. Þó er ekki fullsamið um
það enn þá. Ekki er búizt við, að hægt
verði að byrja á hafnargerðinni fyr en á
næsta vori. Þar þarf mikinn undirbúning.
Slys. I fyrradag nál. kl. 2 síðd. hvarf
maður einn hjeríbænum, Bjarni Asbjörns-
son, vinnumaður og pakkhúsmaður hjá Gunn-
ari kaupmanni Gunnarssyni, og er hann
kom ekki heim um kvöldið, var tekið að
leita hans. Eannst húfa hans um kvöldið í
fjörunni hjer austan til við bæinn, en lík
hans fannst í gærmorgun á floti nálægt
Bakkabúðarbryggjunui. Bjarni sál. var á
fimmtugsaldri, ættaður af Akranesi. Hann
hafði verið vinnumaður Gunnars i 19 ár, og
ætíð reynzt trúr og áreiðanlegur, reglusam-
ur og sístarfandi. Hann var fjörmaður,
glaðlyndur og ljettlyndur og hvers manns
hugljúfi, þeirra, er honum kynntust. Hafði
aldrei orðið vart við, að þunglyndi brygði
fyrir hjá honum, og þess vegna talið óhugs-
andi, að hjer geti verið um sjálfsmorð að
ræða. Talið sennilegast, að hann hafi farið
þangað inn eftir, til þess að gæta að fiski,
I sem húsbóndi hans átti geymdan þar við
sjóinn, en hafi svo reikað ofan á bryggjuna
og annað hvort orðið snögglega illt, eða
orðið fótaskortur og fallið i sjóinn. Bræð-
ur hans tveir hafa, að sögn, áður orðið
bráðkvaddir.
Létinn er 4. þ. m. hjer í bænum Gísli
Nikulásson, frá Norðurkoti i Vogum,” ó-
kvæntur maður, 53 ára að aldri.
Brunnið inni. „Þjóðviljinn11 flytur þá
fregn eftir Ameríkublöðunum, að íbúðarhús
Olafs Sigurðssonar í Winteri|uarters í Ame-
ríku hafi brunnið til kaldra kola 15. júni
síðastl., og hafi Olafur brunnið þar inni.
Ólafur sál. var ekkjumaður, 52 ára að aldri,
ættaður frá Búðarhólshjáleigu í Austur-
Landeyjum,
Kosninga-vísa
úr ónefmln kjördæmi 1911.
Heiður væri’ og héraðs-bót,
heldur að kjósa fulltrúann
innan-sýslu idiót
en utan-sýslu vitran mann.
Ó. M.
Mjólkurbrúsar,
Balar,
Fötur,
Pottar o. fl.
nýkomið til
BrítiJ frímerti
keypt:
Almenn (Chr. IX. og 2 kóngar),
1 eyrir pr. 100 st. 60 aura.
3 aur. — stykki 2 —
4 — ! — — 2 T-
5 — / •_ , i -v-
6 — — — 4
10 — — — l —
15 — — *: 7 i—
16 — — —• 12 r
20 — — — 5 —
25 — — — 15 ;
40 — — — 20 —
50 — — — 35 —
100 — — — 85
200 — — — 170 Þjónusta.
3 aurar pr. stykki 2 aura.
4 —■ — — 3 —
5 — — — 4 —
10 — — — 6 —
15 — — — 7 —
16 — — — 12 —:
20 — — 12 —
50 — — — 35 —
A. Gregersen.
Hittist á Hótel ísland daglega kl. 5—8.
Úrsmídastoían
Jr*int£holtsst.3, Rvíb.
Hvergi vandaöri úr.
Hvergi eins ódýr.
Fullkomin ábyrgð.
Stefán Runólfsson.
LiftryggiO yöur í
LífsábyrgðarQelaginu ,DAN‘.
Fjelagið er mjög útbreytt hjer á landi.
Umboðsm.: Pjetur Halldórsson bóksali, h
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Ritstj. og ábyrgðarm.: Stefán Runólfsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.
61
Slunginn hjeraðsfögeti.
1. kapítiili.
► /
Strokufanginn.
»Einn af föngunum hefir brotizt út úr hegningarhúsinu
í nótt. Jeg ætla bara að láta ykkur vita af því«.
Gestgjafinn í smáþorpi einu úti í sveitinni horfði mjög
alvörugefinn á nýju gestina, tvo unga málara, sem ætluðu
að verða þar um sumarið. Hann var gamalt og hjartveikur,
og þurfti þess vegna ekki mikið til þess að gera hann skelk-
aðan, en jafnvel þótt hann væri veitingamaður, þá hafði hann
það þó ætíð fyrir sið, að vara menn við, ef hann hjelt að
hætta væri-á ferðum.
Málararnir ljetu þetta samt ekki bíta á sig, og kváðust
hplda fast við ósk sína um það, að mega vera þar í sumar.
Og það varð úr.
Við borðið var haldið áfram að ræða um þetta mál.
»Hafa þeir ekki von um að ná í þrjótinn?« spurði Gray
málari.
»Ekki snefil af von . . . .«
»Hefir Campnell greifi verið látinn vita af þessu?« spurði
hinn málarinn, og leit á veitingamanninn.
»Campnell greifi — hver er það?«
»Leynilögreglumaðurinn! Þekkið þjer hann ekki?«
Gamli maðurinn brosti vorkunnlátur.
»Nú, þjer eigið við hann, privat-spæjarann, sem heldra
fólkið þarna inni í höfuðborginni notar . . . .« Gamli mað-
urinn hristi höfuðið. »Hann dugar ekki mikið í samanburði
við hjeraðsfógetann hjerna. hað er karl, skuluð þið vita, sem
er margfalt slungnari og duglegri, heldur en allir ykkar —
greifar!«
»Svo-o ?«
Málararnir lögðu báðir frá sjer gatflana, og hlustuðu
með athygli, því að nú tók gamli maðurinn að segja þeim
sögur af dugnaði og slægð hjeraðsfógetans. Og þeir urðu að
játa það, að ef allt hefði í raun og veru atvikazt eins og hann
sagði frá, þá var hjeraðsfógetinn ekki lamb að leika við.
Og það var gott til þess að vita, eins og nú stóð á, að
hann skyldi vera svona duglegur. Það gerði roenn miklu
öruggari. Málararnir voru því ókvíðnir með öllu, og næstu
daga bar ekkert til tíðinda.
Lí. lcapítixli.
ískyggilegt og óviðfeldið.
Málararnir, Gray og Lane, fóru snemma morguns út í
hagana, til þess að leita að fallegu landslagi, er þeir gætu
málað eftir.
Veðrið var ágætt, og þeir voru báðir í bezta skapi.