Reykjavík - 02.12.1911, Blaðsíða 1
IRe^fcJ
XII., 53
Laugardag 3. Desember 1911
XII., 53
Hvernig voru kosningar sóttar?
Yfirlit.
Hjer birtist 1 töfluformi yttrlit yfir það, hvernig kosningarnar síðustu
og 1908 voru sóttar. Tölurnar eru teknar eftir áreiðanlegustu heimildum, sem
kostur er á, án þess þó að ábyrgst sje, að þær sjeu nákvæmlega rjettar :
1008 lOll 4 3 •* g a (3 -Ö 8 3 »rH 'Ö fcd) ^ r—r co :o :o nd •£» &, s
cS «2 ö ^5 £ ÉH o Greidd gild atkv. Af hverj- um 100 kj. hafa kosið Tala kjósenda Greidd gild atkv. Af hverj- um 100 kj. hafa kosið
1. Austur-Skaftafellssýsla . . 136 123 90,4 167 150 89,8 31
2. Vestur-Skaftafellssýsla . . 218 172 78,9 222 188 84,7 4
3. Rangárvallasýsla 544 429 78,8 560 437 78,2 16
4. Vestmanneyjasýsla 154 120 77,9 192 171 89,1 38
5. Árnessýsla 808 526 65,1 863 660 76,5 55
6. Gullbr.- og Kjósarsýsla. . 927 605 65,5 958 688 71,8 31
7. Reykjavík 1657 1008 60,8 2236 1678 75,1 579
8. Borgarfjarðarsýsla 355 279 78,6 385 318 82,6 30
9. Mýrasýsla 251 212 84,4 284 227 80,0 33
10. Snæfellsnessýsla 552 468 84,8 574 387 67,4 22
11. Dalasýsla 276 240 87,0 281 208 74,0 5
12. Barðastrandarsýsla 438 344 78,5 481 354 73,6 43
13. Vestur-ísafjarðarsýsla. . . 325 251 77,2 339 226 66,7 14
14. ísafjörður 306 237 77,5 366 291 79,5 60
15. Norður-ísafjarðarsýsla . . 564 332 58,9
16. Strandasvsla 213 186 87,3 230 196 85,2 17
17. Húnavatnssýsla 539 421 78,1 598 424 70,9 59
18. Skagafjarðarsýsla 568 395 69,6 592 411 69,4 24
19. Eyjafjarðarsýsla . 651 377 57,9 785 523 66,6 134
20. Akureyri 379 284 74,9 381 322 84,5 2
21. Suður-Þingeyjarsýsla . . . 511 390 76,3 563 453 80,4 52
22. Norður-Þingeyjarsýsla . . 186 165 88,7 216 181 83,8 30
23. Norður-Múlasýsla 406 347 85,5 453 353 77,9 47
24. Seyðisfjörður 166 113 68,1 185 134 72,4 19
25. Suður-Múiasýsla 603 465 77,3 669 547 81,8 66
Alls á landinu |11169 j 8157 [ 73,0 !13144 j 9859 | 75,0 || 1411
Kosningar 1908 eru hjer teknar upp eftir „Lögrjettu 1908 nr. 50,
nema hvað lagfærðar eru hjer þrjár smáviliur, er alls gera 11 kjósendur; stafa
villur þessar bæði af því, að þá hefir ekki verið kunn rjett atkvæðatala og af
sýnilegri misritun. í þessum kjördærnum skakkar þar: í nr. 2 eru talin 163
gild atkvæði í stað 172 (sbr. ísaf. 23/9. 1908 og Þjóðv. ls/io. 1908; en önnur
atkvæðatala frjottist þaðan fyrst [ísaf, 19/9. ’08 og Lögr. 16/9. ’08]). í nr. 9
eru talin 208 gild atkv. í stað 212 (sbr. Þjóðólf og ísaf.) og í nr. 25 eru talin
467 atkv. í stað 465 (sbr. Lögr. 16/9. ’08). í Norður-ísafjarðarsýslu fór þá
engin kosning fram, vegna þess að áð eins einn frambjóðandi var þar í kjöri.
I öðrum dálki eru talin gild atkvæði, er greidd voru við kosningarnar
1908, og í fimmta dálki gild atkvæði 1911. Rjett hefði þar ef til vill verið að
telja öll atkvæði, bæði gild og ógild, en á því er ekki kostur, vegna þess að
ógild atkvæði eru víðast hvar ekki kunn.
Ekki verður annað sagt, en að kosningarjetturinn hafi yfirleitt verið
vel notaður. Bezt hefir hluttakan enn verið í Austur-Skaftafellssýslu; þar kjósa
39,8°/o eða nær 9 af hverjum 10 kjósendum á kjörskrá. Þar næst eru Vest-
mannaeyjar 89,i°/o, Strandasýsla 85,2°/o, Akureyri 84,ri°/o og Norður-Þingeyjar-
sýsla 83,s af hundraði.
Neðst á blaði er Norður-ísafjarðarsýsla með 58,9 af hundraði, en ógild
urðu þar nær 5% af atkvæðum; þá Eyjafjarðarsýsla 66,6°/o og Snæfellsnessýsla
67,4°/0. í öllum þessum kjördæmum mun það hafa ráðið miklu um, hversu
slæleg hluttakan hefir verið, að úrslit kosninganna hefir verið talið sæmilega
víst fyrirfram, og kjósendur því ekki þótzt þurfa að ómaka sig á fund.
í Vestur-ísafjarðarsýslu eru heldur ekki nema 66,7% giid atkvæði, en
að því er frjetzt hefir, er þar margt ógildra seðla, en um fjölda þeirra eru ekki
áreiðanlegar frjettir, en yfir lo°/o hefir það verið, allt að l5°/o, svo er þess er
gætt, hefir hluttaka þar verið góð.
í Reykjavík hafa 75,1 af hverju hundraði kjósenda greitt gild atkvæði.
Kjósendatalan er hjer talin, þegar búið er að draga þá frá, sem stóðu á auka-
kjörskrá en ekki höfðu á kjördegi öðlast kosningarjettinn. Láta mun það nærri,
að eigi hafi mikið yfir 2000 kjósendur verið í bænum (hinir dánir, fluttir burtu
0. s. frv.), og hafa þá mætt til kosninga hjer rúmlega 86 af hundraði.
í nokkrum kjördæmum er nú talsvert verri hluttaka en 1908, ogmun
þar sumstaðar valda óánægja með þingmannaefnin.
Bdizt var við því, er kjördagurinn var fluttur, að kosningarnar yrðu
þá mikið betur sóttar, þar sem tíminn yrði hentugri og flestir komnir heim
úr sumarvinnu sinni; en sá munur heflr orðið harla lítill. Árið 1908 voru
gild atkvæði 73 af hverju hundraði kjósenda, en nú urðu þau 75 af hundraði.
Árni Eiríksson.
Jólabazarinn
er opnaður.
| Sezt að koma
i tíma!
JólaTörnr
allar,
Hvergi smekklegri
nje ódýrari.
Lítið inn i
Austurstræti 6.
Eftirtektarvert er það, hversu mjög kjósendum hefir fjölgað. 1908
voru kjósendur 11,169 fyrir utan Norður-ísafjarðarsýslu, og sjeu þeir áætlaðir
þar 531, er láta mun nærri, hafa þeir þá verið um 11,700 alls á iandinu.
Nú eru kjósendur alls 13,144.
10. september 1908 var mannfjöldi hjer á iandi, eftir því sem hr.
skrifstofustjóri Indriði Einarsson hefir komizt næst og skýrt mjer frá, um
82,250 manns, hafa því kjósendur verið þá um 14,i af hverju hundraði lands-
manna. En 28. október mun láta nærri, að tala landsmanna sje um 86,000
(var 85,189 er manntalið var tekið 1910) og verða kjósendur þá um 15,3 af
hverju hundraði. Mest er fjölgunin í Reykjavík, um 579, þá á Eyjafirði 134;
en minnst á Akureyri (2). Annars sjest fjölgun kjósenda í hverju einstöku
hjeraði í aftasta dálkinum.
Sje litið á tölu þjóðkjörinnd þingmanna, þá koma 387 kjósendur á
hvern þingmann. Eftir því ætti Reykjavík að hafa 6 þingmenn, og er þá litil-
fjörlegt tillit tekið til væntanlegrar fjölgunar. En Skaftafellssýslur báðar ættu
að vera eitt kjördæmi; þær hafa 389 kjósendur samtals. Og Seyðisfjörður og
Norður-Múlasýsla ættu ekki að hafa nema tvo þingmenn, í stað þriggja nú.
Annars þarf að athuga kjördæmaskipun landsins, og gera hana rjettlátari eftir
íbúatölu og kjósendafjölda hjeraðanna. Það er verk, sem þingið verður að gera
bráðlega, og\ liggur fyrir dyrum, ef tölu þingmannanna verður breytt.
fánaraálií
á síöasta þingi.
(Eftir Þjóðólfi.)
Þeir, sem vilja kynnast stjórnviti
„Sjálfstæðis“-leiðtogannatil hlítar, ættu
að lesa í Alþingistíðindunum umræð-
ur þær, sem fóru fram um fánamálið
á síðasta þingi. —
Svo sem kunnugt er, hafðist það
fram í millilandanefndinni, að Danir
viðurkenndu fánarjett vorn. Sam-
kvæmt frumvarpinu fengum vjer rjett
til þess að nota íslenzkan fána innan-
lands og þar að auki var oss trygður
rjettur til þess að taka upp íslenzkan
siglingafána eftir nokkur ár. Þar með
höfðu Danir til fulls látið af kreddum
sínum í því atriði sambandsmálsins,
sem þjóðernislegri hjegómadýrð þeirra
var sárast um. Og Islendingar höfðu
unnið þann óvænta og glæsilega sigur
að þurfa ekki framvegis að fara í felur
með sjálfstæði sitt frammi fyrir öðrum
þjóðum.
Ætla mætti, að þessi viðurkenning
Dana á fánarjetti vorum hefði átt að
geta fært íslendingum heim sanninn
um það, hver rjettarstaða landsins átti
að vera samkvæmt frumvarpinu. Því
P. Z.
að íslenzkum kjósendum ætti ekki að
vera ofætlun að vita það, að um víða
veröld táknar fáni að eins eitt og ekk-
ert annað: ríkisvald!
Samt sem áður tókst „Sjálfstæðis“-
foringjunum að snúa snældunum svo
1908, að þjóðin trúði því, að rjettar-
bót sú, sem þá var í boði, væri inn-
limun. Sá kynjaviðburður mun raun-
ar aldrei fyr hafa gerst í sögu þjóð-
anna, að innlimunarlög tryggðu hinni
innlimuðu þjóð sjálfstæðan þjóðfána.
En svo vel tókst „Sjálfstæðis“mönnum
að æra þjóðina með samvizkulausum
æsingum í kosningahríðinni 1908, að
hún um stund lagði trúnað á slík firn.
„Sjálfstæðis“menn geta því hrósað
þeim sigri, að Danebrog er ennþá þjóð-
fáni íslendinga! Að sá útlendi inn-
limunarfáni blaktir ennþá efst á stöng
yfir hverri einustu íslenzkri þjóðstofn-
un, yfir stjórnarráði og alþingishúsi,
yfir mentaskóla og háskóla, til háðung-
ar og storkunar við heilbrigða íslenzka
þjóðernistilfinning. Dannebrog táknar
rjettaistöðu landsins, eins og hún er,
— rjettarstaða landsins samkvæmt
frumvarpinu átti að táknast með sjálf-
stæðum íslenzkum þjóðfána. Þar get-
ur íslendingum verið sjón sögu ríkari,
hvað það var sem þeir völdu og hvað