Reykjavík - 16.12.1911, Síða 1
1R cv k í av t fc.
XIX., 56
Laug’ardag' 16. Desember 1911
m
'S'Xe)
I
©
1' MAXDARINUR, kassar með 25 slk. 1,35.
\ Konfect RÚSÍNUR, HNETUR.
1
(ajfö
í
<SL
pv
Verzlunin „EDINBORG“. _
Nú fyrir J Ó L l N œtlu menn ekki að vanrækja TE
ad líta inn i Edinborg, því þar getur hver og einn J6
fengið allar þœr vörur, er þörf er á. En sjer- Jj[
staklega viljum vjer að þessu sinni vekja athygli á 8
Jóla-ávöxtunum. I
Par d meðal : Wagner EPLI, Baldwins EPLI, S
¥
I
Hvergi annað eins dvaxta-úrval i bænum.
Pd mega menn ekki gleyma að kaupa
Jóla-Hveitið á 12 aura.
sem er selt alla Jólu-vikuna í
VerzL EDINBORG.
&
■JSÍ
m
„I ríkisráðinn“.
i.
Allir muna það, hversu núverandi
stjórnarskrá vor varð til. Alþingi
hafði samþykt frumvarp til stjórnar-
skrárbreytingar, þess efnis aðallega, að
vér skyldum hafa sérstakan íslands-
ráðherra, sem mætti á alþingi, en
væri búsettur í Höfn. Þetta var frum-
varp dr. Valtýs Guðmundssonar, sem
þeir Björn Jónsson og Skúli Thorodd-
sen studdu mjög fast ásamt flokki
þeirra — ég man nú ekki, hvaða nafn
flokkurinn bar það árið. •— Heima-
stjórnarflokkurinn var ekki ánægður
með þetta frumvarp; vildi hafa stjórn
landsins (ráðherrann) í landinu sjálfu,
en ekki í Kaupmannahöfn. Því sendu
heimastjórnarmenn Hannes Hafstein á
fund konungs og stjórnar til að reyna
að fá því framgengt, að ráðherra ís-
lands væri búsettur á íslandi. Þessu
hét stjórnin. Vorið eftir lagði kon-
ungur frumvarp fyrir þing þessa efnis,
en tjáði þinginu jafnframt, að hann
væri fús til að samþykkja Yaltýs-
frumvarpið frá fyrra þingi, ef þingið
óskaði þess heldur; en ef þingið kysi
heldur frumvarp það, er stjórnin nú
legði fyrir, þá mætti enga efnisbreyt-
ingu á því gera. En Alberti, sem þá
var íslandsráðgjafl, hafði Jaumað inn í
frumyarpið tveim orðum, sem enginn
átti von á og öllum komu á óvart. í
2- gr. standa ákvæði um, að ráðherr-
ann skuli hafa aðsetur í Reykjavík, en
fara svo oft, sem nauðsyn er á til
Kaupmannahafnar til að bera upp fyrir
konungi í ríkisráðinu lög og mikils-
varðandi stjórnarráðstafanir. — Dað
voru þessi orð „í ríkisráðinu*, sem
Alberti hafði smeygt inn. Þingmenn
voru hér í vanda staddir. Allir, svo
að segja, nema Björn Jónsson og Skúli
Thoroddsen (og Valtýr?) vildu auðvitað
hafa stjórnina búsetta innanlands.
Þeir Skúli og Björn höfðu látið í ijós
í blöðum sínum veturinn áður, að
æskilegast væri, að stjórnin væri bú-
sett í Raupmannahöfn. En þjóðin
reis einhuga á móti því, svo að eng-
inn þorði að halda Hafnarbúsetunni
fram, er á þing kom. Enginn þing-
maður vildi verða til að taka upp
Valtýs-frumvarpið og bera það fram
á þingi í þetta sinn.
Hins vegar var öllum illa við inn-
skots-orð Albertis, og þau hefðu án
efa verið numin burt í einu hljóði, ef
þingið hefði ekki óttast, að með þvi
yrði spilt framgangi málsins og inni
miklu stjórnaráót, um innlenda stjórn
í Iandinu sjálfu.
Alt til þessa höfðu engin lagaákvæði
um það verið, hvar eða hvernig ís-
landsmál væri borin upp fyrir konungi.
En málin höfðu alla tíð verið borin
upp fyrir konnngi í ríkisráðinu. Engin
sennileg ástæða var heldur til á móti
því, að svo væri gert. En enginn ís-
lendingur hafði hingað til verið ráð-
herra, og fáir þektu til þess, hvað
fram fer í ríkisráðinu. Margir voru
svo fákænir, að þeir hugsuðu, að frum-
vörp og önnur mál væru rædd þar
eins og á þingi, og síðan gengið ti
atkvæða um þau. Menn trúðu ekki
frásögn þeirra sem rétt vissu og rétt
sögðu frá.
í ríkisráðinu fara engar umræður
fram og engin atkvæðagreiðsla. Alt
slíkt er um garð gengið áður (í ráð-
gjafaráðinu); en í ríkisráðinu tekur
enginn til máls um neitt málefni,
nema sá ráðherra, sem það mál ber
upp fyrir konungi, og konungur lætur
í Ijósi samþykki sitt á tillögum ráð-
herrans með orði eða bendingu.
Konungur mun sjaldan undirskrifa
mál í ríkisráðinu, heldur eru honum
send skjölin til undirskriftar á eftir,
og lætur hann senda þau aftur ráð-
herra, þeim er í hlut á, eftir að hann
hefir undirskrifað. Hitt er auðvitað,
að konungur hefir kynt sér hvert mál
áður en það er borið upp fyrir hon-
um í ríkisráðinu, og hann og ráðherra,
sá sem í hlut á, hafa þannig komið
sér saman um alt fyrir fram. Upp-
burðurinn í ríkisráði er þannig ekki
annað en form eitt.
Hannes Hafstein markaði frá önd-
verðu sérstöðu íslands-ráðherra meðal
annars með því, að mæta eigi í ráð-
gjafaráði, en ræða málin að eins við
konung. Þá er um mál var að ræða,
sem snertu bæði löndin (t. d. síma-
málið o. fl.), ræddi hann auðvitað við
forsætisráðherra ríkisins eða þann ráð-
herra, er sérstaklega átti hlut að máli,
og bar síðan málið upp fyrir konungi
í ríkisráðinu.
Eins og á þessu sést, sem hór hefir
sagt vérið, hefir það ekki in allra
minstu áhrif á málefnin sjálf, hvort
þau eru borin upp í ríkisráðinu eða
á einhverjum öðrum stað.
En hvað hefir þá komið mönnum
til að vera að amast við þessum orð-
um „í ríkisráðinu" í stjórnarskránni?
Ég veit auðvitað ekki inn í huga
skilnaðarmanna og annara þjóðremb-
ings-skúma (chauvinista). En ég þekki
mínar eigin ástæður, sem vóru þess
valdandi, að frumvarp það sem við
Jón í Múla bárum fram, fór fram á
að nema þessi orð í burtu. Ég lít
svo á, að öll löggjöf um ríkisráðið sé
sameiginlegt mál, og að meðan engin
lög eru til um samband íslands og
Danmerkur, samþykt af báðum þjóð-
unum, þá beri alþingi ekki ákvæðis-
vald um þetta mál; slíkt ákvæði eigi
ekki réttilega heima í stjórnarskrá um
sérmál íslands. Konungi einum beri
réttur til að ráða því á meðan svona
stendur, hvar og á hvern hátt íslands-
mál yrðu borin upp fyrir honum.
Mér hefir aldrei eitt augnablik komið
til hugar, að á uppburði íslandsmála
1 ríkisráðinu yrði nokkur breyting
gerð í framkvæmdinni, þó að orð þessi
væri numin burt úr stjórnarskránni.
Þau yrði borin þar upp eftir sem áður,
og á sama hátt sem áður, og með
sama rétti sem áður, alt þar til er ný
lög um samband íslands og Danmerkur
verða samþykt af löggjafarvöldum
beggja landanna.
II.
Samkvæmt því sem hér er sagt,
hlýtur það að vera auðskilið, öllum
þeim- sem vilja skilja, að í mínum
augum var það alls ekkert aðalatriði
í stjórnarskrárfrumvarpi síðasta þings,
að nema þessi orð burtu. Hefði mér
eða öðrum, sem eins líta á þetta mál,
komið til hugar, að þetta yrði sá
ásteytingarsteinn, sem raun hefir á
orðið, meðal danskra stjórnmálamanna,
og að reynt yrði af Dana hálfu að
nota það til þess að leggja þvingandi
aðhald á konung vorn til þess að fá
hann til að synja stjórnarskrárfrum-
XII., 56
Hjer með tilkynnist við-
skiftavinum verksm. ,Sanitas‘
að frá 16. þ. m. selur verk-
smiðjan gosdrykki að eins
í heildsölu, minnst 100 flöskur,
en gosdrykkir verksmiðj-
unnar fást í smásölu hjá
neðanskráðum og kosta:
SlTRÓN og LfMONADE;
1—10 fl. 15 au. hver, 10—25
fl. 12 au., 25—50 fl. 11 au.,
50—100 fl. 10 au. hver.
SÓDAVATN og APPOLLINARIS:
1—10 fl. 10 au., 10—25 fl.
9 au., 25—50 fl. 8 au., 50—
100 fl. 7 au. hver.
Gunnar Porbjörnsson,
Th. Thorsteinsson, G. Olsen,
H. Zoega, Lúðv. Hafliðason,
Jón Árnason, B. S. Þórarinss.,
SiggeirTorfas., B. H. Bjarnas.,
G. Gunnarss., Ó. Ámundason,
Jón Helgas., Jón frá Vaðnesi,
Á. Einarss., Kristín Björnsd.,
J. P. T Brydes-verzlun,
Sveinn M, Hjartarson,
Hjálmtýr Sigurðsson o. fl.
,Sanitas‘ gerilsneyddu
gosdrykkir eru viðurkenndir
fyrir gæði og heilnæmi.
u/i2—Tl. F. h. »Sanitas«.
6ísli Guðmunðsson.
varpi síðasta þings um staðfestiug
sína, þá hefði ég hvorki farið fram á
að nema þessi orð burtu, né heldur
greitt atkvæði mitt slíkri tillögu, þótt
hún hefði komið fram. Og sama hygg
ég mundi verið hafa um alla vini
sambandslagafrumvarpsins.
Það hefir ekki lint látum í dönsk-
um blöðum síðan þingi sleit í vetur,
út af úrfellingu þessara orða úr stjórnar-
skrárfrumvarpinu. Og þar hefir dr. Knud
Berlin gengið fremstur í fylkingu að
hamast út af þessu. Það er nú ekki
annað en vænta mátti af honum; en
ef menn þektu að eins stöðu mannsins
og lærdóm, vissu hvað vel hann er
að sér í máli voru, en vissu ekki, hve
óráðvandur hann er 1 frásögu um alt,
er ísland snertir, í blaða-greinum sín-
um, þá hefðu menn átt að geta vænt
þess, að hann hefði skýrt löndum
sínum rétt frá málavöxtum.
En það heffr hann ekki gert; og
hann virðist vera uppsprettulind altof
margra danskra blaða um alla frásögn
frá alþingi í þessu máli. En frásögn
danskra blaða, margra hverra, um þetta