Reykjavík - 13.07.1912, Qupperneq 4
112
REYKJAVÍK
láns hjá bönkum sex sitt hvers stór-
veldanna. Bankarnir vilja ekki þoka
um hænufet frá skilmálum þeim, sem
þeir settu um eftirlit af hálfu Norður-
álfumanna. Við það situr enn. For-
seti lýðveldisins, Yuan Shih-Kai, á í
vök að verjast. Landssjóður tómur,
en uppreist og óspektir daglega um
alt land, bæði suður og norður.*Þegar
síðast fréttist var hafin uppreist kring
um Kanton, en í Kanton er mikil
Evrópubygð. Englendingar hafa sent
hersveitir þangað til þess að vera til
taks að verja hana, ef uppreistin skyldi
magnast. Enn er það. að T’ang Shao-
Yi, einhver merkasti maðurinn í ráðu-
neyti Yuans, hefir sagt af sór. Þykir
það ills viti.
Styrjöldin. ítalir hafa undanfarið
verið að taka eyjar Tyrkja í Grikk-
landshafi. Þeir hafa nú náð eitthvað
12 þeirra á sitt vald. Nýlega kusu
eyjaskeggjar þessir menn á fund, er
kom saman á eynni Patmos. Lét
fundurinn þá ósk í Ijós að eyjarnar
fengju að ganga í samband við Grikki,
en ef þess væri ekki kostur, þá að
Ítalía léti eyjarnar íá sjálfstjórn.
Nöfn og nýjungar.
50 ára afmceli. Séra Jakob Björns-
son að Saurbæ í Eyjafirði hafði þjónað
prestsembætti í 50 ár 29. f. m. Sá dagur
var og gullbrúðkaupsdagur hans og fæðing-
ardagur. Hann er nú 76 ára að aldri.
Þann dag héldu sóknarmenn hans honum
samsæti og færðu gjafir.
Söngskemtun hélt frú Johannc Sæ-
mundsen með aðstæð frú Yalborgu Einars-
son og P. Bernburg í Bárubúð á fimtu-
dagskvöldið var, og gekk ágóðinn til mann-
skaða samskotanna. Frúin er nýkomin
hingað til bæjarins, og hefir ekki látið heyra
til sín fyr. Hún hefir mikla rödd og vel
æfða, sérstaklega hefir frúin gott vald yfir
háu tónunum.
Til ítalu. Héðan fór snemma í vikunni
E/S Forsteck hlaðið fiski til Spánar og ítal-
íu. Með því tók sér far héðan herra Enrico
Gismondí, fiskikaupmaður frá (jenua. Hann
hafði með sór tvo íslenzka hesta, féll svo
vel við þá hér heima.
Fiskur og taða. Óþurkar hafa gengið
nú um stund hér sunnanlands svo hey og
fiskuT liggur alment undir skemdum.
Eftirlitsferð. Þórhallur biskup Bjarn-
arson fer á mánudaginn upp í Borgarnes og
þaðan landveg norður í land, eftirlitsferð
um Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur ofan-
verðar.
Jón alþm. Jónsson í Múla er til
lækninga í New-Castle á Englandi og líður
vel, þó kvað hann ekki geta komið hingað
fyr en í mitt þing í fyrsta lagi. Dr.
Rutherford heimsfrægur radiumfræðingur
stundar hann.
Trúlofuð. Vilborg Þorkeísdóttir, Þor-
bjamarstöðum í Hraunum og Magnús
Bjömsson stud. med. Sigríður Benónís-
dóttir og Vilh. Jakobsson stud. polyt.
Botnía kom frá útlöndum norðan og
vestan um land. Með henni var fjöldi far-
þega. Af þingmönnum: Séra Bjöm Þor-
láksson, Steingrímur sýslumaður og Pétur
á Gautlöndum, Guðlaugur Guðmundsson
bæjarfégeti, Stefán Stefánsson skólastjóri,
Guðjón Guðlaugsson og séra Sigurður Stef-
ánsson í Vigur og Valtýr Guðmundsson há-
skólakennari frá Kaupm.höfn, ennfremur
For Amat0r>Fotografer.
Vort nye Katalog 1912 er udkommet.
Mange Nyheder. - Billigste Priser. , ’
Stölten &. Simmonsen. Nytorv 3. Kobenhavn.
Kataloger ndleveres paa dette Blads Kontor eller tilsendes direkte fra os gratis.
Björn Kristjánsson bankastjóri úr eftirlits-
ferð til Akureyrar. Auk þessara: Einnur
prófessor Jónsson, kapt. Daniel Bruun,
Júlíus Havsteen, cand. jur., D. Thomsen
konsúll, Héðinn Valdimarsson, kand. phil.
Jón Jónasson, stud. jur. Stúdentamir Dan-
íel Halldórsson, Hjört.ur Þorsteinsson; Arni
Benediktsson og frú, allir þessir komu með
skipinu frá útlöndum. Frá Akureyri: Egg-
ert Laxdal kaupm., H. Schiöth fyrrum
bankagjaldkeri og frú, Sigurður Símonarson
sá er fylgdi Koch Grænlandsfara á Vatna-
jökul. Frá ísafirði: Guðm. fiannesson lög-
fræðingur. Með skipinu var og fjöldi enskra
og þýzkra ferðamanna.
Glímur. Ferðamönnunum af Victoria
Louvise voru sýndar glimur suður á í-
þróttavelli á þriðjudaginn, og hefði betur
verið ógjört látið. Glímumennirnir tókust á
með hangandi hendi og sleptu strax tökum
þegar bragð var lagt á. Slæmt líka að ekki
skyldi vera dómari við, því sumir glímdu á-
fram, þótt margfallnir væru. Utlendingarnir
voru í miklum vafa um hvaða fall reiknað-
ist bylta. Sumir þeirra héldu að axlir þyrftu
að nema við gólf.
Þýzka skemtiskipið kom hér eins og
til stóð á þriðjudagsnótt. Ferðamenn voru
í landi um daginn, gangandi, ríðandi og
keyrandi. Af skemtunum í landi hafði
mörgum þeirra einna mest þótt koma til
samsöngsins í Bárubúð. Kappreiðarnar á
íþróttavellinum fóru í hálfgjörðum eða öllu
heldur algjörðum handaskolum. Hestarnir
voru þó vist með betra móti, en það var
stjórnleysi og fyrirhyggjuleysi forstöðumann-
anna sem mest bagaði. Þeir höíðu ekki
sagt fyrir hvar menn skyldu standa, ruddist
því hver sem betur gat, að girðingunni og
sá þá enginn neitt, sem stóð að baki þeim
fremstu. Vonandi verður úr þessu bætt.
þegar næsta skip kemur.
Borgarsljóri er í ferðalagi um Borg-
arfjörð, hafði fengið fararleyfi um nokkra
daga hjá bæjarstjórninni á síðasta fundi.
Holrœsi. Þau er verið að leggja um
Austurbæinn, Hverfisgötu og Laugaveg.
Þetta er i þriðja sinn á þremur árum, sem
þessar götur eru sprettar sundur. Hag-
sýni það.
Eintal og visnakvöld. Annað kvöld
(Sunnudagskvöld) halda þau ungfrú V.
Christiansen og herra K. Groth skemtun í
Iðnó, syngja vísur og leika eintöl. Þau eru
á leið til Noregs. Næsta sumar fer herra
Groth til Ameríku og syngur hjá dönsku
félögunum þar. í haust í Október verður
hann í Stokkhólmi.
Höfnin. Reykjavík ætlar sér framvegis,
að flytja hafnarannál. Þýzka skemtiskipið
sem kom í vikunní er stærsta skip, sem til
landsins hefir komið. Liðlega 400 tonnum
stærra en það sem hefir verið stærst áður.
Var nálægt 17000 bruttó tonn.
Borgir. Saga Guðm. skálds Magnús-
sonar kemur út á dönsku í Agústmánuði hjá
Gyldendahl. Þýðandinn frú Margrethe
Löbner Jörgensen í Askow.
Kolamálið. Um það er kominn bækl-
ingur frá nefndinni. A öðrum stað i blað-
inu ritar ^tjórnmálaritstjóri þessa blaðs um
það mál.
Sterling fór frá Lerth 11. júlí.
Póstkort. Ferðamennirnir útlendu
sendú héðan tæp 4(/00 kort og yfir 200 bréf
á þriðjudaginn var. Það er minna en vant er.
' Vestri kom úr strankferð í vikunni.
Farþegar alþingismennirnir Mattísas Ólafs-
son og Halldór Steinsson. Ennfremur Ólaf-
ur G. Eyjólsson skólastjóri. Kreyns vindla-
kaupmaður, Groth og ungfrú Christiansen
leikarar. Vestri fer aftur þ. 16. og með
honum þá augnl. Andrés Fjeldsteð.
Þingmenn. Þeir komu 5 norðanþing-
mennimir með Ingólfi í gær: Stefán í
Fagraskógi. Ólafur Briem og Jósep skóla-
stjóri og Húnavatns þingmennirnir báðir,
Þórarinn Jónsson á Hjaltabakka og Tryggvi
Guðmundsson. Áður voru komnir séra
Magnús Andrésson og Jóhannes sýslumaður
Jóhannesson auk þeirra sem nefudir eru á
öðrum, stöðum í blaðinu. Þeirra sem nú
vantar er von á hverri stundu utan Jóns í
Múla. Séra Eggert Pálsson og Einar Jóns-
son komu í gærkvöldi.
Jón Forseti hættir þorskveiðum nú um
stund; fer norður eftir helgina til síldveiða.
Geir vígslublskup Sæmundsson
og frú hans og dóttir komu landveg að
norðan um miðja viku, af prestafundinum á
Hólum.
25 óra stúdentsafmæli eiga í ár
Guðmundur prófessor Hannesson, Guðmund-
ur Björnsson landlæknir, Geir vígslubiskup
Sæmundsson og sr. Ólafur bróðir hans,
Eggert Briem skrifstofustjóri o. fl. Árið
1887 útskrifuðust 20. Margir þeirra eru nú
hér í bænum og hafa í hyggju að minnast
þessa afmælis á einhvern hátt.
Járnbrautin austur. Herra Þórarinn
Kristjánsson cand. polyt. hefir í sumar ver-
ið að mæla járnbrautarleið anstur í sveitir.
Hann er nú kominn að Þingvöllum (46
kílómetra). Kostnaðarsamt telur hann muni
verða að leggja bana þessa leið.
Brúðkaup. í gær voru gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af Geir vigslu-
biskup Sæmundssyni, ungfrú Þórunn Jóns-
dóttir og Júlíus Havsteen cand. jur. Ungu
hjónin fara með Flóru í þessum mánuði til
Akureyrar og setjast þar að.
Islandsbanki. Aðalfundur hans var
haldinn 2. þ. m. Samþykt að greiða hlut-
höfum 6t/2°/o af hlutum þeirra. í fulltrúa-
ráðið var endurkosinn P. O. A. Andersen
Statsgjældsdirektör i Kaupmannahöfn. Júlíus
amtmaður Havstoen var kosinn aftur endur-
skoðari.
Pingmálaíundir.
Þingmenn hafa verið að halda fundi
með kjósendum sínum undanfarið. Hefir
þar lítt gerst sögulegt og heldur hafa
fundirnir verið illa sóttir.
Skaftafellssýsla. Þar höfðu verið
samþyktar tillögur um að samþykkja
stjórnarskrána óbreytta. Kolafrum-
varpinu hafnað.
Arnessýsla. Á fundunum þar sam-
þyktar tillögur um samkomulag í sam-
bandsmálinu.
Borgarfjarðarsýsla. Ráðherra hélt
fund á Akranesi síðastliðinn laugardag.
Lýsti afstöðu sinni til landsmála. Hann
kvaðst hafa litlar vonir um að stjórnar-
skrárfrumvarpið næði fram að ganga.
Á fundinum kom fram tillaga um
sambandsmálið, lík þeirri, er samþykt
var hér í Reykjavík í vor. Ráðherra
bað menn engar tillögur samþykkja og
varð það úr.
Dalasýsla. Alþingismaður Bjarni
Jónsson frá Vogi hélt 6 fundi með
kjósendum sínum og voru ályktanti
gerðar á þremur. Voru menn mót-
fallnir því, að stjórnarskrármálinu yrði
frestað og sömuleiðis því, að selja
nokkuð af verzlun landsins á leigu.
Um þetta voru allir sammála. Enn
vildu þeir láta gera tilraun um, að
landið tæki að sér verzlun með kol
og steinolíu.
Seyðisfjörður. Dr. Valtýr Guðmunds-
son hélt fund með kjósendum sínum
á leið til þings. Þar samþyktar til-
lögur um að fresta bæði sambands-
málinu og stjórnarskrármálinu. Kola-
málinu mótmælti fundurinn og, en vildi
láta afnema bannlögin.
Lýðskólinn
í Bergstaðastr. 3.
Þeir, sem vilja sækja um skólann, sendi
undirrituðum forstöðumanni umsóknir hið
fyrsta.
Vegna fráfalls Ásgríms skólastjóra Magn-
ússonar frænda míns, verður ekki samlagsbú
sett á fót við skólann. (Sbr. að öðru leyti
augl. um skólann í „Rvik“ og „Lögr.“).
í fjarveru minni, frá 24. þ. m. til jafn-
lengdar í Ágúst, veitir hr. prentsmiðjustjóri
Þorv. Þorvarðsson Laugaveg 79, umsóknum
móttöku og gefur nauðsynlegar upplýsingar
um skólann, þeim er óska.
Reykjavik, Bergstaðastræti 3, 12. júli 1912.
cRrynlaifur cToSíasson
Heilræði.
í samfleytt 30 ár hefi jeg þjáðst af kvala-
fullum magasjúkdómi, sem virtist ólæknandi.
Á þessum tíma hefi jeg leitað ekki færri en
6 lækna, og notað lengi meðul frá hverjum
þeirra um sig, en öll reyndust þau árang-
urslaus. Jeg fór þá að nota Waldemar
Petersens ágæta bitter, Kina-Lifs-Eliksírinn
°g er Jeg hafði eytt úr 2 flöskum, varð jeg
þegar var við nokkurn bata, og þfegar jeg
hafði eytt úr 8 flöskum, var heilsa min
orðin það góð, að jeg gat neytt aigengrar
fæðu, án þess það sakaði. Og nú ber það
að eins örsjaldan við, að jeg finni til sjúk-
dómsins, og fái jeg mjer þá einn skammt
af bitternum; þá er lasleikinn horfinn þegar
næsta dag.
Jeg Vil þess vegna ráðleggja öllum, er
þjást af samskonar sjúkdómi, að nota þennan
bitter, og munu þeir aldrei iðrast þess.
Yeðramóti, Skagafirði, 20. marz 1911.
Björn Jónsson, hreppstjóri og d.brm.
Agentur.
En i Kpbenhavn godt indarbejdet Agentur-
forretning pnsker at repræsentere et Is-
landsk Firma for Kpb og og Salg afVarer.
Billet mrk. 1690 modt. Nordisk Annonce
Bureau, Kpbenhavn.
Hvaða mótor er ódýrastur,
beztur og; mest notaður
**
Gídeon-mótorinn,
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verzlun.
Verzluu Jóns Zoega
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsfmi 128.___Bankastræti 14.
llvar a að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
, Prentsm. Gutenberg.
t