Reykjavík - 20.07.1912, Qupperneq 4
llf)
REYKJAVIK
>•1
DE FQRENEDE
BRYQGERIER5
SKATTEFRI
Björn Jónssoq, Björn Kristjánsson, Björn
Þoriáksson, Jens Pálsson, Jón Jónatans-
son, Jósef Björnsson, Ólafur Briem,
Sigurður Sigurðsson, Skúli Thoroddsen,
Stefán Stefánsson 5. kon.kj., Valtýr
Guðmundsson, Þorleifur Jónsson.
Þrír þingm. greiddu ekki atkvæði:
Kristján Jónsson, Magnús Andrésson
og Sigurður Stefánsson. Enginn þess-
ara þriggja leiddi rök að því, hvers-
vegna hann greiddi eigi atkvæði. For-
seti bað þá heldur ekki rökstyðja það,
en úrskurðaði, að atkv. þeirra skyldi
telja með meiri hlutanum. Var því
kosningin -samþykt með 22 atkv. gegn
14. Ág. Flygenring var fjærverandi.
Reknir úr flokknum
I*rír reba sjö!
í gser voru reknir 7 þingmenn, að því er
mælt er, úr Sjálfstæðisflokknum: Björn Jóns-
son, Bj. Kristjánsson, Jens Pálsson, Björn
Þorláksson, Ói. Briem, Jósef Björnsson, Þorl.
Jónsson. Eftir eru þá: Benedikt, Bjarni og
Skúli.
Nöfn og nýjung’ar.
Þilskip farist ? Menn eru orðnir hrædd-
ir um þilskipið „Síldin“ frá fsafirði. A því
voru um 14 manns, flestir úr Dýrafirði.
Embættispróf í læknisfræði hefir Björg-
ólfur Ólafsson nýlega lokið í Kaupmanna-
höfn með II. eink. betri.
Sveinn Björnsson yfirdómslögmaður
er kominn úr þingmálafundarleiðangri um
Barðastrandarsýslu. Hann hélt átta fundi
og voru menn alstaðar mjög mótfallnir kola-
frumvarpinu. Þvi mælti að eins einn maður
bót. Á þrem fundum voru samþyktar til-
lögur um æskilegt samkomulag í sambands-
málinu milli flokkanna.
Rannsókn er nú hafin út af „Geirs“-
slysinu frá í vetur, segir bróðir ,,Ingólfur“
og þakkar sér. Er það ekki að ófyrirsynju.
Brúðkaup héldu þau á laugardaginn
var, Þórdís Todda Benediktsdóttir og Jón
prófessor Kristjánsson. Bæjarfógeti gaf sam-
an, en veizla á eftir i Iðnó. í veizlunni fluttu
þrjú' akáld brúðhjónunum kvæði: Jón Ólafs-
son, Þorsteinn Erlingsson Guðm. Guðmunds-
son. Nýgiftu hjónin fóru með Botníu til út-
landa á mánudaginn.
Starfsmenn við þingið eru allmargir
ráðnir nú þegar, og von fleiri eftir því sem
líður á þingið, mun ekki fjarri sanni, að
þeir verði orðnir jafnmargir og þjóðkjörnir
þingmenn um það leyti sem upp verður sagt.
Á skrifstofu alþingis eru þessir: H a 11 d ó r
yfirdómari Daníelsson, skrif-
stofustjóri, E. Hjör., E. Þorkelsson og G.
Magnússon. Skjalavörður: Marinó Hafstein.
Innanþingsskrifarar: Einar ^P. Jónsson og
Sig. Guðmundsson í efri deild, 4 í viðbót
verða teknir siðar. Páll E. Ólason og And-
rés Björnsson i neðri deild og 6 teknir síðar.
Dyraverðir, hverra tala er legíó.
Vikið frá embeetti um stundarsakir er
Gísla ísleifssyni sýslumanni Húnvetninga,
vegua vantandi reikningsskila. Björn lögfr.
Þórðarson fér norður í vikunni að taka við
sýslunni um stund.
Ferðamannastraumur mikill með
skipum þessa vikuna út og inn í bæinn.
Sterling k»m á mánudag. Earþegar:
Frú Á. Thomsen, Júlíus Stefánsson, Har-
aldur Sigurðsson píanóleikari, margir stúd-
entar og útlendir ferðamenn o. fl. o. fl. Einn
útlendu ferðamannanna var Thos. Wing þing-
maður í Grimsby á Englandi. Sama dag fór
B o t n i a til útlanda og með henni Gisli
læknir Brynjólfsson aftur til Kaupmanna-
hafnar, Jón próf. Kristjánsson og frú, Guðm.
Thórdarson bakari og frú aftur til Winni-
peg og nokkrir vesturfarar, Ólafur G. Eyj-
ólfsson skólastjóri, Kreyns kaupmaður o. fl.
Til Vestmanneyja Halldór Gunnlaugsson og
frú og nokkrir bæjarbúar til Vestmanneyja
sér til skemtunar. Kong Helge kom á
sunnudagsmorgun; með voru: Sig. Lýðsson
cand. jur. og Þorsteinn i Bakkabúð.
For Amator-Fotografer.
Vort nye Katalog 1912 er udkommet.
Mange Nyheder. - Billigste Priser.
SStoltfMi & Siimnonsen. Nytorv 3. Kobenhavn.
Kataloger ndleveres paa dette Jtlads Kontor eller tilsendes direkte fra os
Ekki fundarfært. Það lá við á flmtu-
daginn, að ekki yrði af fundi í bæjarstjórn-
inni. Varð að bíða i 3 stundarfjórðunga og
senda út að leita að bæjarfulltrúum.
10,000 kr. Á síðasta bæjarstjórnarfundi
kom fram tillaga um að strika út 10,000 kr.
af aukaútsvörum bæjarins fyrir síðastliðin
ár, mest þó frá 1910 og 1911. Var sagt, að
bæjarfógeti og gjaldkeri teldi þær ófáan-
legar. Bæjarfulltrúunum kom saman um,
að gera það ekki að svo stöddu, heldur
skipa nefnd í máKð. Þetta er um J/s af
árstekjum bæjarÍDS.
Flóra kom á þriðjudag og með henni Sv.
Björnsson yfirdómslögm., séra Einar Jóns-
son alþm., Þorvaldur læknir Jónsson á ísa-
firði og Guðm. Bergsson, Jóhann kaupm.
Jóhannesson, Sig. Baldvinsson o. fl. Hún
fór aftur norður um á fimtudaginn og með
henni þá: Matthías skáld Jochumsson og
Elín dóttir hans, Böðvar Jónsson, eftirlits-
litsmaður útbúsins á Akureyri, alfarinn þang-
að með fjölskyldu sina, Júlíus Havsteen,
settur bæjarfógeti á Akureyri og frú, Rögn-
valdur Ólafsson húsagerðarmeistari til Aust-
fjarða, frú Unnur Bnnediktsdóttir, Húsavík,
ungfrú Lára Bjarnadóttir, Siglufirði o. fi. o.
fl. Eins margt fólk og í skipið komst.
Is. Þegar Flora kom norðan um, hitti
hún fyrir ís út undan Reykjarfirði. Ekki kvað
þó mikið að honum.
Skemtiskip. Hingað er von á næstu
viku (þriðjudag) þýzku sknmtiskipi. Stendur
hér við i tvo daga.
Söngfélagið 17. júní ætlar skemtiferð
til kaupstaðanna úti um land í Ágústmán-
uði. Héðan fer það að öllum líkindum 7.
Agúst með þýzku skemtiskipi (Viktoria Lou-
ise), er þá verður hér statt, til Akureyrar.
Þaðan til ísafjarðar.
Gregersen heitir frímerkjakaupmaður,
sem hér dvelur um tíma. Hann auglýsir hér
í blaðinu, hvað hann gefi fyrir frímerki.
Flokkar í neðri dcild. Við nefndar-
kosningu í n. d. á fimtudaginn komu fram
3 listar, A, B og C. B og C listarnir fengu
3 atkv. hvor, en A listinn 16. Sá listi kom
að 5 mönnum í nefndina, en hinir sínum
hvor.
Orður og titlar. Klemens Jónsson
landritara hefir Þýzkalandskeisari gert að
riddara krónuorðunnar þýzku 2. fiokks, en
Danakonungur leyft honum að bera hana.
Ljóðalestur. Guðm. skáld Guðmunds-
son les upp nýjan kvæðaflokk eftir sig í
Bárubúð í kvöld kl. 9. Flokkurinn heitir
„Ljósaskifti" og er um kristnitökuna hér
á laudi. Keykjavíkurbúum er orðið nýnæmi
að heyra skáldið lesa Ijóðin sín og munu
eflaust fjölmenna kl. 9 í kvöld.
Frú Johanne Sæmundsen syngur
annað kvöld í Bárubúð.
€rlenð simskeyti.
Khöfn 19. júli 1912.
Tyrkjastjörn segir gf sér. Stórvezír
ófenginn enn.
ítalir gjörðu nýja árás inn Dar-
danellasund í nótt, en mistókst það.
Nýtt farhann um sundið í vændum.
€ggert Claessen,
yítrréttarmálaflatningsraaðar.
Pósthússtr. 17. Talsími 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Fnndur 4. júlf.
Fundargjörð bygginganefndar frá 29. júní
lesin.
Sömuleiðis fundargjörð fasteignanefndar.
Var þar tillaga um, að banna að setja veit-
ingatjöld í landi bæjarins og að taka skyldi
burtu tjald, sem sett hefði verið í óleyfi í
Elliðaárhólmann. Þessi tillaga var samþykt
með þeirri viðbót, að setja mætti tjöldin
niður með leyfi bæjarstjórnar.
Enn var samþykt frumv. til laga nm breyt-
ingu á hafnarlögunum; skyldi 6. gr. þeirra
2. liður orðast svo :
„í hafnarnefnd sitja 5 menn, borgarstjóri,
sem er formaður nefndarinnar, 2 bæjarfull-
trúar og 2 utan bæjarstjórnar, annar úr tölu
kaupmanna, en hinn úr tölu sjómanna. Geta
þeir ekki skorast undan endurkosningu fyr
en þeir hafa setið i nefndinni 6 ár samfleytt.
Reikningar brunabótasjóðs hafnarsjóðs og
bæjarsjóðs 1910 úrskurðaðir. Vatnsveitu-
reikningnum var aftur á móti vísað til
endurskoðenda og samþykt að láta prenta
útdrátt úr honum“.
Tilkyntur var landsyfirréttardómur í máli
er Ólafur kaupm. Árnason og bærinn liafa
átt í, um það, hvort Ó. Á. bæri að borga
hér útsvar, þegar lagt væri á hann líka á
Stokkseyri. Komst yfirdómurinn að þeirri
niðurstöðu, að Ólafi bæri að borga hér útsvar.
Veittar nokkrar undanþágur frá skyldu
hreinsun salerna.
Vatnsnefnd falið að setja vatnsþró þar
sem msetast Laugavegur og Hverfisgata.
Hafnarnefnd falið, að undirbúa til næsta
alþingis frumvarp til laga, um gjald af út-
lendum fiski, sem fluttur er burtu áður en
hann er verkaður.
Brunabótavirðingar samþyktar: Heyhlaða
Jóns Jóhannssonar, Laugaveg 69, 558,00.
Hús Guðm. Guðmundssonar, Grettisgötu 3,
2980,00. Hús Þór. B. Þorlákssonar, Laufás-
veg 45 B, 3577,00.
Borgarstjóra var veitt fararleyfi um nokkra
daga.
Á fundinn vantaði:
Jón Þorl., L. H. B., frú Katrin Magnúss.,
Halldór Jónsson, Sveinn Björnsson og Jón
Jensson.
jjrúkul |rimerki
keypt liæsta verði!
T. d. Chr. IX. sem stendur:
25 aur. 20
40 — 30
50 — 42
100 — 85
200 — 185
500 470
Helgi Helgason
hjá Zimsen.
Pönnur
góðar og ódýrar hjá
Jes Ximseu.
Sveinn Björnsson
yfirdómslögmaður.
er Hiittui* í Hafnarstræti títí.
Skrifstofntími 9—2 og 4—6.
Hittist venjnlega sjólfnr 11—12 og 4—5.
Sauðalijöt og s 1 á 1 -
ui* fæst í dag^ og
framvegis.
Pötur og- balar
mikið úrval hjá
•les Zimsen.
Brúkul jrímerki
keypt háu verði!
Sýnishoru af verðum.
Chr. IX. pr. stk.
3 au. 2 au.
4 — 2 V* —
5 — lVa —
6 — 4 —
10 — i1/* —
16 — 12 —
20 — 5 —
25 — 20 —
40 — 30 —
50 — 40 —
100 — 80 —
200 — 180 —
500 — 460 —
Útlend frímerki einnig keypt hæsta
verði.
A. Cirregersen.
Hótel ísland.
Hittist kl. 6—9 daglega.
Agentur.
En i Kpbenhavn godt indarbejdet Agentur-
forretning 0nsker at repræsentere et Is-
landsk Firma for Kpb og og Salg af Varer.
Billet mrk. 1690 modt. Nordisk Annonce
Bureau, K^benhavn.
Hvaða mótor er ódýrasíur.
beztur og mest notaður
*>
Gideon-mótorinn.
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verzlun.
'Werzlun Jóns Zoega
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128. liankastræti 14.
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentsm. Gutenberg