Reykjavík - 19.04.1913, Side 2
64
REYKJAVÍK
Biblíufyrirlestur
i Betel.
Sunnudag 20. Apríl kl. 7 síðd.
Efni: Hegning óguðiegra og afdrif peirra.
Eiga þeir að pínast og brenna æfinlega?
Hvernig er orðið »eilíflega« notað i bibliunni?
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
mér það heilög skylda mín, að vernda
það, og eg geri það að jafnaði“. Á
síðari árum virtist Morgan vaka með
samskonar föðurlegri umhyggju og
verndarhug yfir öllum fjármálum Banda-
ríkjanna. Menn hafa giskað á, að
eignir hans í hlutabréfum, samsteypu-
fólaga og járnbrautarfélaga, hafi numið
um 36,000,000,000 króna. Hvort sem
þessar tölur eru nákvæmar eða ekki,
þá er það víst, að Morgan réði svo
miklu um fjármál lands síns, að heita
mátti, að allar greinir þeirra lyti hon-
um á einn eður annan hátt, eins og
sjá mátti í afskiftum hans af fjár-
þrönginni miklu 1907. — Maður nokkur,
sem skrifað hefir æfisögu hans, segir
að fjársöfnun hafi ekki verið ríkust í
huga hans, heidur hitt, að sjá starfsmál
unnin eins og hann hélt að réttast væri
að vinna þau, og hann vildi fá öllu að
ráða. Hann var „Morgan alt í öllu“.
Það er sagt, að það hafi verið vandi
Morgans, þegar hann var að hrinda
einhverju fyrirtæki af stað, að skrifa
sig fyrir hlutum í því, og um leið að
skrifa nöfn nánustu vina sinna, og
upphæð þá, sem þeir legði fram. Og
þetta var orðið honum svo tamt, að
þegar komið var með samskota-lista
til hans, hafði hann oft skrifað nöfn
þessara sömu manna þar á, og upp-
hæð gjafarinnar, að þeim forspurðum.
En svo var hann fáskiftinn og einrænn,
að sagt er hann hafi ekki verið mál-
kunnugur nema 40 til 50 fjármála-
mönnum í allri New-York-borg.
Eins og að líkindum ræður, spunn-
ust margar þjóðsögur um hann þegar
í lifanda lífi. Margar skrítlur eru sagð-
ar um hann og fáar líka alveg sannar,
en allar iýsa þær þó því einkenni, sem
merkilegast var í fari hans, en það
var vald hans og stjórnsemi yfir öðr-
um mönnum, víðsýni í fjármálum,
skjótræði og ráðsnild, þagmælska og
kjarnyrðar setningar; þótti hann svo
stuttur í spuna á yngri árum, að hann
var kallaður „Morgan já eða nei“.
Ekki alls fyrir löngu var honum stefnt
fyrir ransóknarnefnd auðféiaga, og kom
það þá bezt í ljós, hve vald hans stóð
öruggum fótum og hve mikils um-
mæli hans voru metin. Það sem hann
sagði, hafði bæði mikil áhrif á ran-
sóknarmennina, og varð til þess, að
bæla niður þann óhug, sem slegið
hafði á alla alþýðu út af fjárhagsmál-
efnum Bandaríkjamanna, er þá virtust
á margan veg komin í óvænt efni.
Það er alkunnugt, að Morgan gaf
oft rausnarlega til almennra líknar-
starfa, en hitt geta menn naumast
gert sér í hugarlund hverjum feiknum
slíkar gjafir námu.
Hann keypti ógrynni dýrindis lista-
verka víðsvegar um Evrópu og flutti
vestur um haf, eins keypti hann sjald-
gæfar bækur og handrit; gaf miljónir
dala til sjúkrahúsa, skóla og vísinda-
iðkana, bæði í Bandaríkjunum, Frakk-
landi og Englandi, og studdi kirkju-
mál með mikium fjárframlögum.
Hann var og ör að fé við „gesti
og gangandi“, og lagði oft fé til smá-
vegis nytsemdarfyrirtækja, en krafðist
þess þá jafnan, að fénu væri varið af
forsjá. Hann hafði mikið yndi af sigl-
íngum og söfnun listaverka, en annars
voru skemtanir hans fáar og óbrotnar.
Mr. Morgan var tvíkvæntur. Fyrri
konu sína misti hann eftir stutta sam-
búð. Varð þeim ekki barna auðið.
En með seinni konu sinni átti hann
þrjár dætur og 1 son, sem nú tekur
við miklum hluta af auðæfum föður
síns.
Ffiniiprföt
handa drengjum. — Góð og ódýr.
Sturla Jónsson.
gara ég vxri kongur!
Já, væri ég nú bara kongur! — ekki
svona venjulegur „bundinn“ kongur,
þrælbundinn á höndum og fótum af
þingi og stjórnarskrá; nei, reglulegur
kongnr, — einvaldur kongur, „allvaldr“,
eins og forfeður vorir komust að orði,
— og mætti gera alt eftir mínu háa
höfði, og þyrfti ekki að vera „bundinn“
við ríkisrétt né staðhefðir, né svo-
kallaða heilbrigða skynsemi, né nokk-
urn skapaðan hlut annan.
Ja, þá væri gaman að lifa!
Þá skyldi ég fyrst og fremst af öllu
segja sambandinu við Dani slitið, og
ekki láta mér detta í hug að ásælast
ríki þeirra eða leggja það undir mig,
þó þeir ættu það að vísu aldrei nema
skilið fyrir meðferðina á okkur. Nei,
farið þið í friði, mínir dönsku bræður,
og fylgi ykkur heill og hamingja til
alls góðs. Ég ann hvorki yður né oss
svo ills, að vilja lifa lengur í hjónabandi
við ykkur, og þó að þér byðuö að gefa
oss Færeyinga að skilnaði, þá vildi ég
ekki einu sinni þiggja þá, skinnin þau
arna.
Ég skyldi lýsa yfir því, að ég vildi
lifa í friði við allar þjóðir. Og ef Fær-
eyingar ætluðu að fara með hernað á
hendur mér, til að neyða mig til að
taka þá að mér sem þegna mína, þá
yrði ég ekki uppnæmur þegar flotinn
þeirra kæmi, heldur byði foringjunum
öllum í einu heim til mín, traktéraði
þá á andarnefjulýsi og brenmvini frá
Brynka Bja — það væri fuligott handa
þeim! — og léti svo skipa þeim öllum
út um nóttina, þegar þeir væru fallnir
undir borðið, og býst ég þá við að það
yrði lítill vigahugur í brókum þeirra
næsta dag.
„Sendiherran“ mundi ég aftaka, en
setja borðalagða húfu á kollinn á Bjarna,
stinga stöng í endann á honum og íesta
hana upp á hallarbustina mína, og hafa
hann þar fyrir veðurvita.
Allar Bríettui gerði ég að ambáttum
og léti þær saxa tóbak í nefin á hirð-
mönnum mínum. — Alþingi mundi ég
einnig aftaka; það er úrelt stofnun, frá
þeim tíma þá er vér höfðum hvorki
ritsíma né talsíma, og engar teljandi
póstgöngur. Þá varð fólkið að kjósa
þessa sérstöku fulltrúa, og senda þá
suður í Reykjavík, til að segja til, hvað
það vildi — ef það vildi þá nokkuð,
og ef það vissi þá, hvað það vildi.
Éað gæti farið alt eins vel nú, að
senda út með póstinurn umburðarbréf
til sveitanna, og láta oddvitana fóna
atkvæðagreiðsluna hingað suður til
stjórnarinnar. Vildu menn endilega
hafa einhverjar umræður líka, þá mætti
hafa fonógrafa; og til þess að sleppa
við óþarfa mælgi, mætti lögbjóða, að
enginn mætti halda lengri ræðu en
30 orð í mesta lagi. Það getur verið
nóg af svo góðu.
Að því er trúna snertir, þá ætti hver
maður að hafa rétt til að verða sæll
með sínu sniði — þar á meðal bæði
mormónar og eldsdýrkendur. — En
enginn ætti að hafa rétt til að ganga
um og vera ósvífinn, til þess að frelsa
náungann með sínu sérstaka sniði.
Júðar og trúskiftingar, Hala-negrar,
Hottintottar og Rússar, Eldlendingar og
únítarar, og allir heiðingjar og guðs-
spekingar, sósíalistar, anarkistar og
aðventistar — bæði Östlunds og Ólsens —
og Jón Helgason og Haraldur — allir
ættu þeir að hafa sama rétt, til að frelsa
farsæla og sálusorga sjálfa sig og sína
skoðanabræður; en enginn skyldi frem-
ur hafa rétt til að ráðast á fólk með
sáluhjálpar-fortölumogtrúboðun, heldur
en til að vera mönnum nærgöngull á
annan hátt.
Jóni Ólafssyni gerði ég tvo kosti:
annaðhvort skyldi hann hætta öllum
málhreinsunar-firrum og tala og skrifa
sama málblending eins og annað
skikkanlegt fólk; að öðrum kosti léti
ég hengja hann.
En þótt ég hafi horn í síðu Jóns,
þá vildi ég þó ekki gera honum það
til háðungar að láta hengja Mongólann
við hliðina á honum.
Ég léti mér nægja að brennimerkja
Mongólann með sínum bókstaí á hvora
kinn og einum á nefið — upphafs-
bókstöfum úr nafni þeirra lifandi og
þess dána rithöfundar, sem hann hefir
hvinskað mest frá. — En á ennið léti
ég tattóvera :
— Bithvinsku-lús —
skriðlús á lifendum — nálús á
framliðnum.
Prófessorunum við háskólann skyldi
ég harðbanna að tala mesopotamísku í
pontunum. Heima hjá sér mættu þeir,
ef þeir vildu, parlera terminólógisku,
bæði hver við annan, en einkanlega
við sjálfa sig; því að ætla má að þeir
skilji að minsta kosti sjálfir það mál,
sem þeir hafa íundið upp. En þegar
þeir tala við annað fólk, kristið eða
ókristið, yrðu þeir skyldaðir til að tala
almennu mæltu máli. Upp frá því
yrði það aldrei skoðað sem vottur
lærdóms eða djúpsæi, að tala svart,
heldur yrði það skoðað sem skortur á
megni til að láta hugsun sína í ljósi.
Ekki mundi ég heldur viðurkenna
neina þjóðkirkju-trú í listum og bók-
mentum. Allir mættu rnála og móta
myndir eins og þeim bezt líkaði. Að
eins mundi ég skylda Einar Jónsson
til að höggva á sérhverja mynd sína
Jetur, sem skýrði frá, hvað myndin
ætti að tákna. Allir skyldu hafa leyfi
til að yrkja og skálda eins og þeir
vildu, t. d. allir Einararnir þrír, Bene-
diktsson, Hjörleifsson og Jochumsson.
Stefáni G. mundi ég gera að skyldu
að rita yfir kvæði sín skýringar, sem
væru að rninsta kosti ekki óskiljan-
legri en kvæðin sjálf. En ekki þyrði
ég að skipa Einari Ben. að skilja sjálfan
sig, því það gæti orðið verra en dauða-
dómur; hann gæti kannske orðið brjál-
aður af þeim heilabrotum og lent á
Klepp til Þórðar.
Öllu kvenfólki (nema Bríettunum)
skyldi ég gefa lausan taum. Þær
skyldu fá að verða pilsa-byskupar og
botnvörpu-skipstjórar, borgarstjórar og
leikfél. Reykjavikar.
Leibur í 4 þáttum
eftir G. Hostrup
Sunnudaginn 20. þ. m. ki. 8^/2 síðd.
í Iðnaðarmannahúsinu.
salernishreinsarar, bullukollur og bæjar-
stýrur. En til þess að þær atvinnu-
greinir, sem heldur eru fegurðarspill-
andi, skyldu ekki breyta þeim í algerð
viðundur og kvikindi, þá mundi ég
jafnframt setja á stofn kvenna-akademí
fyrir þokkaprýði og limafegurð undir
stjórn Imbu Brands, og veita styrk og
verðlaun þeim konum, sem sæktu þessi
akademí, og veita stórkostleg heiðurs-
laun öllum þeim þeirra, sem aí öðrum
bæru í kvenlegum yndisþokka; og þann
pilsa-byskupinn eða skútu-hásetann í
pilsi, sem bezt megnaði að varðveita
sína kvenlegu fegurð og unað, hvort
heldur í byskups-pilsinu eða sjó-pilsinu,
— þá ina sömu skyldi ég hefja upp
og setja við hlið mér í hásætið.
Og að því loknu skyldi ég segja af
mér konungdóminum, og lifa sem
valdalaus maður með þessari konu
minni og eignast með henni börn og
buru.
Því að satt að segja er það töluvert
vafningasamt að vera kongur, og alls
ekki hættulaust. Þegnarnir gætu fundið
upp á því að fara með mig eins og
farið var með hann Georg Grikkja-
konung hérna á dögunum.
[Stælt effir og stolið frá Gustaf Fröding].
Alnavara,
bæjarins stærsta og ódýrasta úrval.
Sturla Jónsson.
Svartfellingar og stórveldin.
Lítið hefir orðið úr ógnum stór-
veldanna við Montenegro, sem getið
hefir verið um áður. Herskip frá öll-
um stórveldunum, nema Rússlandi,
komu saman fyrir utan Antivari, og
hafði brezki aðmírállinn forustu fyrir
henni. Hann sendi stjórninni í Mon-
tenegro bréf á ensku og tjáði henni,
að flotadeildin væri þar komin, sakir
þess, að Svartfellingar hefðu eigi orðið
við óskum stórveldanna. Skoraði á
hana að fallast á þær óskir tafarlaust.
Stjórnin í Montenegro svaraði sam-
stundis, að henni þætti leitt, að flota-
deild þessi væri komin inn á land-
helgissvæði Montenegro, og að hún
álit.i þetta tiltæki brot á hlutleysi þeirra.
Sagði og, að hún mundi ekki breyta
neytt stefnu fyr en komin væri á frið-
ur milli þeirra og Tyrkja.
Fiotadeildin hafðist síðan ekkert
frekara að, og þykir mönnum stór-
veldin hafa farið hina mestu sneypuför.
OOOOOOOOOOOOOOO
0
0
0
V 0
Q alls konar er lang-ódýrastur í q
o Skóverzlun Jóns Stefánssonar o
0 Laugaveg 14. 0
0 Vatn sstígvél (hnéhá) ▼
▼ seljast á Kr. 16,75. 9
^ Allar viðgerðir fljótt og vel gerðar. q
000000000000000