Reykjavík - 19.04.1913, Side 3
REYKJAVlK
65
LIFEBUOY SOAP
(LIFEBUOY SÁPAN)
fer víösvegar um til þess að bjarga Iífi manna og hefir hún tvöfalt afl
í sjer fólgið til þess. Hún bjargar lífi manna með hreinlæti og með
þvi að sótthreinsa um leið allt sem hún hreinsar. Bíöið ékki pangað
til heimilið er eyðilagt af sjúkdómum, en munið eptir því, að það er
betra að fyrirbyggja sjúkdómana en að lækna þá og að LIFEBUOY
SAPAN er meira en sápa eingöngu, en kostar
þó engu meira. Hún er jafngagnleg og góð
til andlits—og handþvotta og til að nota
hana sem baðsápu eins
og til venjulegrar not-
kunar á heitnilunum.
Nafnið LEVER á sapunni
er trygging fyrir hretnleik
hennar og kostum.
„lceland Finance
Corporation, L=“.
Vér göngum að því vísu, að lesend-
um vorum só forvitni á að fræðast
um þau félög, sem stofnuð eru meðal
erlendra manna, og snerta ísland að
einhverju leyti.
Eitt slíkra félaga er það, sem nefnt
er í fyrirsögn þessarar greinar, og heflr
oss borist prentuð skýrsla um fyrir-
ætlanir þess. Það er stofnað í Lund-
únum í vetur, og er Chr. B. Eyjólfsson
frá Reykjavík aðalmaður í stjórninni.
Markmið þess er að fá forkaupsrétt á
ýmsum fyrirtækjum og eignum, og
selja þau síðan opinberum félögum.
Eitt af helztu fjármálablöðum Eng-
lendinga „TJie Financial Timesu, minn-
ist á félag þetta, og virðist telja það
varhugavert og jafnvel glæfrakent í
sumum atriðum.
En til þess að íslendingar sjálfir
geti gert sér skoðanir um félag þetta,
ætlum vér að skýra frá nokkrum at-
riðum úr „Prospedus11 félagsins.
Er þá fyrst að geta þess, að það er
aðallega stofnað í þeim tilgangi, að
gera J. P. T. Bryde’s verzlun að ensku
fyrirtæki. En auk þess á það að njóta
góðs af 19 samningum, er Mr. Eyjólfs-
son hefir gert við ýmsa eignamenn a
íslandi, um það sem kalla mætti
„ungann úr“ uppsprettulindum allra
fjárhags- og viðskifta-framfara landsins.
Mikinn styrk telur „félagið" sér í
því að hafa Mr. Eyjólfsson í stjórn
sinni, sem sjá má af því sem hér fer
á eítir:
„Mr. Eyjólfsson, sem sá hina miklu
framtíðar-möguleika landsins, hefir
varið miklu fó og miklum tíma til að
undirbúa verzlunar-, flski- og landbún-
aðar-sveitir undir það að geta tekið
við útlendum höfuðstól, og þetta fólag
uppsker ávöxt verka hans og fjárfram-
laga til þessarar undirbúnings-starfsemi.
Með því að hann er sjálfur Islendingur
og þekkir skilyrði og þarfir þess, að
brezkt fé sé fram lagt, nýtur hann
einstaks trausts eignamanna á íslandi
og helztu valdhafa (Government Circles)
°g má sín mikils hjá þeim“.
J- P. T. Bryde’s verzlun, sem félagið
ætlar að ná eignarhaldi á, er helzta
verzlun á íslandi. Eftir því sem hr.
Bryde hefir skýrt frá, hefir hún stöð-
ugt grætt, frá þvi hún var stofnuð
fýrir 70 árum. Árið 1911 nam brutto-
ágóði (gross profit) £ 12,300 (== um
kr. 221,400)- Eignir verzlunarinnar
metur hr. Bryde á hér um bil £ 50,000
(= um kr. 900,000) þó að ekki sé tal-
inn „Goodwill“ (traust viðskiftavina).
Eélagið býst við að því áskotnist um
£ 20,000 við að koma í kring þessari
sölu, helmingurinn í peningum og
helmingurinn í hlutum hins nýja félags.
Húfnr — harðir Hattar nýtízkulag.
Stráhattar handa drengjum og telpum.
Prjónahúfur — Sumarhattar o. s. frv.
Sturla Jónsson.
Meðal samninga þeirra og forkaups-
rétta, sem Mr. Eyjólfsson ætlar að láta
félagið fá, eru :
1. Forkaupsréttur á tveim fisk-
verkunarplássum og botnvörpunga-
stöðvum, sem ráða muni yfir megninu
af útfluttum sallfiski, þegar þau eru
komin í félags-eign. Á þeirri sölu er
búist við að félagið græði £ 30,000.
2. Samningur um kaup á laxi úr
helztu veiði-á landsins. Áætlaður
hagur £ 2,000 á ári.
3. Samningur sem er í bígerð við
Sláturfélag á íslandi, um kaup á kinda-
skrokkum, og er tilætlast að svo só
um hnútana búið, að ráða megi að
lokum yfir kjötsölu íslands á Lundúna-
markáðinum.
4. Hálfur ágóði af sölu á kola-
námu, sem byrjað hefir verið að
vinna. (
5. Forkaupsréttur að 75 námum á
íslandi.
6. Forkaupsréttur að námu, sem
ópall hefir fundist í.
7. Forkaupsréttur að eign, þar sem
menn ætla að mikið finnist af postu-
líns-leir.
8. Forkaupsréttur að einhverjum
hæsta fossi íslands.
9. Mr. Eyjólfsson hefir gert samn-
ing við enska kaupmenn um kaup á
öllu smjöri, sem hann getur fengið frá
íslandi, og væntir félagið sér mikils
hagnaðar af því.
af öllum stærðum.
Ódýrastur.
Sturla Jónsson.
JFrönsk samtalsbók
eftir l’iil iPorlcelssoii, er nýkomin út. -
Fæst hjá öllnm bóksölum.
Kostar Kr. 8,00.
Mr. Eyjólfsson hefir ennfremur lofað
að veita félaginu forkaupsrótt á hverj-
um þeim samningi, sem hann kann
að gera framvegis á íslandi eða annar-
staðar um íslenzk fyrirtæki.
Félagið væntir mikils hagnaðar af
rjúpnasölu til Englands.
Félagið býst ekki við að þurfa á
miklu starfsfé að halda, því að höfuð-
stóll þess er að eins £ 5,000, og
hver hlutur £ 1.
Útgefin hlutabréf verða að eins
£ 3,000. Hinund er fyrst um sinn
haldið óseldum. Almenningi að eins
boðin til kaups Æ 1,650.
nýkomnir.
Sturla Jónsson.
Frá útlöndum.
Mrs. Pankhnrst dærad.
Nú er fallinn dómur í máli því er
hið opinbera lét höfða gegn Mrs. Pank-
hurst, fyrir að hafa hvatt menn til að
sprengja upp hús nálægt London, sem
kent er við Lloyd George. Mrs. Pank-
hurst var dæmd sek um verkið, og
hegningin ákveðin 3 ára hegningar-
vinna.
Enska stjórnin hefir lagt frumvarp
fyrir þingið um að sleppa megi glæpa-
mönnum úr varðhaldi um stund, ef
heilsu þeirra sé hætta búin, en að láta
megi þá aftur í fangelsi, er þeir þoli
það. Eru log þessi einkum sett gegn
kvenréttindakonum, er svelta sig í
fangelsinu.
Stjórnarskifti á Frakklandi.
Briand-ráðaneytið féll á kosninga-
lögunum, eins og getið hefir verið um
í símskeyti til blaðsins. Það var öld-
ungadeildin sem feldi það, og átti
Clemenceau gamli mestan þátt í því.
Briand-ráðaneytið var við völd eina
I 56 daga. Barthou heitir hinn nýi
forsætisráðherra.
Kína og Standard Oil.
Mælt er, að Standard Oil félagið hafi
boðið Kínastjórn, að lána henni 35
miljónir dollara í gulli, ef hún vilji
veita félaginu einkarétt til að vinna
olíu um alt Kinaveldi tiltekið árabil.
Óvingast með bandaþjóðunum.
Fyrir skömmu kom simskeyti
til blaðanna á þá leið, að
Búlgarar krefðust stórra landflæma,
sem Grikkir og Serbar hafa unnið
af Tyrkjum. Er það sérstaklega
tekið fram, að þeir yilji fá Saloniki.
Fyrri hluta Marzmánaðar voru
komnar talsverðar viðsjár með
Grikkjum og Búlgurum. Þeir höfðu
þá barist um borg eina, Nigrida, í
Makedóníu; höfðu Grikkir varið
borgina. Stóð bardaginn í 2 daga
og lauk svo, að Búlgarar urðu að
hverfa frá.
Skófatnaður
afar-góður og ódýr.
Aýkomid stórt úrval.
Sturla Jónsson.
Nöfn og nýjungar.
Samábyrgðin. Reikningar Samábyrgð-
arinnar liggja fram á skrifstofu fé-
lagsins i Landsbankanum. Innborguð ið-
gjöld af skipum nam 45,818 kr. síðastl. ár,
en af afla og veiðarfærum kr. 3,353. —
Skaðabætur greiddar á árinu voru kr. 21,972
en eftir óborgað kr. 8,800. 20% af ársarði
hefir skiftst milli eigenda hinna vátrygðu
skipa, og nam það kr. 1,447. Séreigna auki
skipseigenda nam kr. 4,587. Árið má teljast
fremur gott fyrir félagið. Eftirtektavert er
það, hve lítið útgerðarmenn skeyta um, að
tryggja afla og veiðarfæri.
Sporvagnar. Herra Indriði Iieinholt
sækir um til bæjarstjórnar, að fá að leggja
sporbrautir um bæinn, og fá einkaleyfi til
mannflutninga og vöruflutninga um bæinn
í 25 ár. Bæjarstjórnin hefir sett 5 manna
nefnd til að segja álit sitt um málið, en
lýsti sig þó hlynta því, að veita leyfið.
Aflabrögð. Bragi kom inn í vikunni
með 30 þús. fiskjar, og Skallagrímur með
um 60 tonn. Eitthvað af þilskipunum hefir
og komið inn, en flest með rýran afla. Mest
hafa fengið: Ragnheiður og Ester.
Slifsi
Slaufnr.
Bæjarins stærsta og ódýrasta úrval.
Sturla Jónsson.
Lavoiscr. herskipið frakkneska, sem
hingað kemur á hverju ári, er nú nýkomið.
Stúlkan frá Hvammi. Skrifað hefir
verið norður héðan úr bænum til þess, að
fá stúlkuna frá Hvammi, sem reimleikarnir
þóttu stafa af, til að koma hingað suður.
Bóndinn á Hrauni, leikrit Jóhanns
Sigurjónssonar, er nú verið að æfa við
konungl. leíkhúsið í Kaupmannahöfn, og á
að leika það í vor.
Nýjar verzlanir. C. Hemmert hefir
sett á stofn vefnaðarvöruverzlun þar, sem
áður var „dömu“-búð Thomsens. En Jón
Björnsson & Co. hafa byrjað samskonar
verzlun í búð Jóns Þórðarsonar við Banka-
stræti.
Kveðju-samsœti. Chr. Broberg skip-
stjóra á „Ceres“ hafa menn haldið kveðju-
samsæti bæði á ísafirði og í Reykjavík, er
hann lætur af skipstjórn. Haun hefir fengið
almenningslof fyrir framkomu sina hér við
land. Þykir hafa 'verið skjótur í förum,
bóngóðvr og ljúfur í viðkynningu við hvern
sem var að eiga.
Sumardagur fyrsti. Verði gott veður
þann dag, ætlar „Hljóðfæraflokkur Reykja-
víkur“, undir stjórn P. Bernburgs, að spila
á Austurvelli kl. 3 síðd.
Bending. Vér viljum benda mönn-
um á verzlun Ásg. G. Gunnlaugssonar
& Co. i Austurstræti 1, er auglýsa vör-
ur sínar í blaði voru.
Ilegnkápur
( W aterproof)
fyrir karla og konur. — Nýtízkusnið.
Vandaðar og ódýrar.
Stvtrla Jónsson.