Reykjavík - 19.04.1913, Page 4
66
REYKJAVIK
Reinh, Andersson
(horninu á Hótel Isiand;
selur: karlmannafatnad, drengja og
nng-liiig-afatiiaO fyrir lægra verð en allir aðrir.
Notid tækifærid!
Mestu birgðir af trésmíöa-vélum og trésmíða-
verkíæmm. af beztu tegundum sem fáanleg eru. — Verðlistar
sendir, ef um er beðið.
O. Th. Hom & Oo., Köbenliavn lí.
f Kjartan prófastur Einarsson.
Á rúmu missiri hafa 3 góðir starfs-
menn hinnar íslenzku þjóðkirkju fallið
frá. Allir voru þeif prófastar lengur
eða skemur, mikilsmetnir og mikils-
megandi, hver í sínu héraði.
Síra Kjartan heitinn í Holti var
þeirra þriggja lítið eitt yngstur. Hann
varð 58 ára 2. febr. þ. á. Prestsárin
hefðu orðið 33 í sumar, og lengstan
þann tíma var hann jafnframt prófastur.
Hann vígðist til Húsavíkur 1880, og
varð skömmu á eítir prófastur Suður-
i Þingeyinga, en prófastur Bangvellinga
l eítir síra Skúla Gislason látinn, frá
því 1890.
Rangárvallaprófastsdæmi hefir verið
kirkjuræknasta hérað landsins, að því
er um verður dæmt af ytri sýn, hafa
og valist þangað áhugasamir prestar.
Síra Kjartan prófastur var þar og hin
fegursta fyrirmynd í frábærri skyldu-
rækni. Hann var ekki hár í loftið og
barst eigi mikið á, en þó varð hann
mjög svo atkvæðamikill héraðshöfðingi.
Var hann eigi síður vinsæll í sóknum
sínum.
Síra Kjartan sat hið forna höfuðból
Holt af mikilli prýði, en átti við ýmsa
örðugleika að stríða. Mjög skömmu
eftir komu hans þangað fauk kirkjan
í ofviðri, og var þá færð að Ásólfs-
skála, og heflr síra Kjartan orðið að
leggja kirkjunni mikið fó frá sér. Eins
hefir hann reist á prestssetrinu mjög
svo stórt og reisulegt íbúðarhús, auð-
vitað með miklu láni. Þriðji örðug-
leikinn var að glíma við Holtsá, sem
vofir yfir hinu ágæta og afarvíða gras-
lendi, sem sláttuvélarnar nú hafa iagt
undir sig. Miklu erfiði og fé hefir
síra Kjartan heitinn þar varið til varnar,
og nú hafði hann í haust sem leið
fengið svo mikið fjárframlag að komið
var upp steingarði, sem treyst er til
frambúðar, þó að enn kunni að þurfa
við að auka.
Borinn var síra Kjartan undir Eyja-
fjöllum, þar sem hann nú ber beinin,
og ólst, hann upp hjá afa sínum,
prestaöldungnum síra Kjartani Jóns-
syni í Ytri-Skógum, fram að tvítugu.
Hann kvæntist ungur þar í bygð Guð-
björgu dóttur síra Sveinbjarnar Guð-
mundssonar í Holti, og sótti þangað
eftir tengdaföður sinn látinn. Seinni
kona hans var Kristín dóttir Svein-
bjarnar prests Hallgrímssonar, hins
þjóðkunna „Þjóðólfs“-ritst,jóra.
[Nýtt Kirkjublað].
Miðlun stórveldanna.
Stórveldin hafa sett Tyrkjum þessi
skilyrði fyrir að þau miðli málum
á Balkanskaganum: Að hætt verði
að berjast, að Krítey verði látin af
hendi við Grikkland, að stórveldin
ráðstafi eyjunum í Grikklandshafi,
Albanía verði sjálfstætt ríki, Tyrkja-
lönd önnur, sem liggi fyrir vestan
linu, er dregin sé frá Enos til Midia,
skuli látin af hendi við bandaþjóð-
irnar. Tyrkir greiði engan herkostnað.
Þessum skilmálum hafa Tyrkir
tjáð sig samþykka, en bandaþjóð-
irnar hafa ekki viljað fallast á þá
skilyrðislaust.
Sveinn Björnsson
yfirdómslögmaður.
er fluttur í Hafuaratrseti tiií.
Skrifstofutími 9—2 og 4—6.
Hittist yenjulega sjálfnr 11—12 og 4—5.
Verzlun
Jóns Hallgrímssonar
Austurstrœti 14
hefir griðarmikið úrval af tilbún-
um karlmannafatnaAi og
drengjafatnaöi. Fleiri hundruð
klæðnaðir komu með siðustu skip-
um. Einnig komu afarfalleg fata-
tau, regnkápur, nærfot og margt
fleira. Verð og gæði geta menn
sjálfir sannfærst um, ef þeir vilja
líta inn.
yilmennur trésmiðajunður
verður haldinn í Bárubúð (salnum
niðri) þann 19. apríl kl. 8V2 e. m.
Fundur þessi er framhaldsfundur
þess fundar, er haldinn var 6. apríl.
Tpésmiöir, komiö allir!
3 fjarveru minni
á ferð til útlanda um mánaðar-
tíma gegnir hr. yfirréttarmála-
flutningsmaður Kr. Linnet öllum
málfærslustörfum mínum.
Hann verður að hitta á skrif-
stofu minni kl, 11—2 og 4—6.
Reykjavik, 18. apríl 1913.
Eggert Claesien.
KFundur í Bárubúð uppi
1 sunnud. 20. apr. kl. 10 árd.
Stubbasirz
að eins 1,50 pdl.
í verzlun
3ins Qelgasonar
frá Hjalla
V Biðjið um vora skrautlegi mynda yerðskrá. rerð svo að ekki verður við jafnasl á: Saumavélum, urum, úrfestum, J t. ►
skrautgripum, hnifum, skeiðum,
skærum, kústum, burstum, vindl-
um, munntóbaki, neftóbakí, pípum,
tóbaki, sápu, kaffi, kaffikvörnum,
eldhúsgögnum, leðurvörum, o. s. frv.
♦ < Dansk LuxusogBrugsvareA/S Köbenhavn B. GI. Kongevej 2 U I á A r Q eru bezt kaup. n J n U O O eru ódýrust kaup.
Aðalatvinnu eða aukatekjur
getur hver sem vill gjört sér úr því,
að selja vörur eftir hinni stóru verð-
skrá með myndum. Vörurnar hafa í
mörg ár verið þektar að öllu góðu á
íslandi, en þær eru aðallega: Sauma-
vélar, stofu-vekjarar og vasaúr, úr-
keðjur, brjóstnálar, albúm, hljóðfæri,
rakhnífar, og vélar, sápa, ieðurvörur,
járnvörur, reiðhjól og hjólhlutar.
Hjólaverksmiðjan „Sport“,
Kaupmannahöfn B.,
Enghaveplads 14. [lOahb
ftiilnii GllNBOBk
Álnavörudeildin s
Úrval af hvítum Ljereftum, frá 0,18—0,45. Bomesi og
Pique, frá 0,88—0,75. Hvít og mislit Gardínutau, frá 0,20—
1,15. Hvít og mislit Flónel, frá 0,22—0,55. Tvisttau, frá 0,16
—0,42. Svuntutauin tvíbreiðu, frá 0,40—0,75.
Margar tegundir af inndœlum Silkiblússum, með ýmsu gœðaverði.
Margar teg. af Millipilsum, úr moreu og silki. Barnakjusur
og Barnahattar. Fleiri teg. af ágætasta Dömaklæði. Mislit
Dangola-klæði, Dragtatau, Kjóla- og Svuntutau, fjöltla-
rmir^ar teg-undir. Svlrta peysufataklæðið velkynta.
Silkisvuntuefni, með öllum regnbogans töfralitum. Frönsku
Sjölin fríðu, og svört og misl. Kasimirsjöl, frá kr. 9,00—21,00.
Með næstu ferðum koma Dönm- og Barna-
kápur.
Mikið úrval af Iðunnar-tauum, verðlaunuð á Iðn-
sýningunni. [
Þetta er bara fátt af þvi, sem ngkomið er í Álnavörudeildina.
Grlervörudeildin s
Pangað er nýkomið úrval af alls konar Glervöru og
Leirtaui og margvíslegum búsáhöldum, t. d. Bollapör, frá
0,12—1,65. Diskar, frá 0,08—0,35.
Könnur, frá 0,08—3,00.
Nýjar vörur teknar upp daglega, og von á mikilli viðbót.
Engin þörf á að leita um allan bæinn, því öllum sanngjörnum
kröfum fullnægir
Verzlunin EDINBORG.
Heilræði.
í samfleytt 30 ár hefi jeg þjáðst af kvala-
fullum magasjúkdómi, sem virtist ólæknandi.
Á þessum tíma hefi jeg leitað ekki færri en
6 lækna, og notað lengi meðul frá hverjum
þeirra um sig, en öll reyndust þau árang-
urslaus. Jeg fór þá að nota Waldemar
Petersens ágæta bitter, Kína-Lifs-Eliksírinn
og er jeg hafði eytt úr 2 flöskum, varð jeg
þegar var við nokkurn bata, og þegar jeg
hafði eytt úr 8 flöskum, var heilsa mín
orðin það góð, að jeg gat neytt algengrar
fæðu, án þess það sakaði. Og nú ber það
að eins örsjaldan við, að jeg finni til sjúk-
dómsins, og fái jeg mjer þá einn skammt
af bitternum, þá er lasleikinn horfinn þegar
næsta dag.
Jeg vil þess vegna ráðleggja öllum, er
þjást af samskonar sjúkdómi, að nota þennan
bitter, og munu þeir aldrei iðrast þess.
Veðramóti, Skagafirði, 20. marz 1911.
Björn Jónsson, hreppstjóri og d.brm.
Hvaða mótor er ódýrastur, bestur
og mest notaður?
Gideon-mótorinn.
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verslun.
Veralun Jóns Zoéga
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, windla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128. Bankastræti 14.
Hvar á að kaupa
öl og vín ?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Ritstj. og ábyrgðarm.: Björn Pálsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.
I