Reykjavík - 30.08.1913, Qupperneq 4
142
REYKJAVIK
Úr ýmsum áttum.
Menið góða.
Einn af miljónamæringunum í Vest-
urheimi kom til Lundúna ekki alls
fyrir löngu og varð fyrir því láni að
gipta dóttur sina einhverjum þarlands-
manni. Af ánægju yfir þessu fór hann
út í borgina til þess að kaupa handa
henni hálsmen furðu dýrt í brúðargjöf.
Kom hann til Mayers, sem þar er
frægur gimsteinasali og bað um perlu-
men, sem kostaði 3—4 miljónir kr.
Þó við lægi að liði yfir Mayer lét
hann samt á engu bera og hét men-
inu. Simaði svo til Salomons viðskipta-
vinar síns í Parísarborg um að útvega
nægar perlur því að sjálfur hafði hann
ekkert að ráði. Salomon fór auðvitað
strax á stúfana og var svo heppinn
að takast að smala nógu mörgum og
nógu dýrum perlum í Parísarborg. En
nú var eítir að senda þær til Mayers.
Þá datt honum i hug að senda þær
með póstinum og þótti snjallræði. Því
að eins og allir vita er lítil hætta á
að ekki komi böglar til skila, sem
maður sendir þannig. Hann setti því
perlurnar í öskju á venjulegan hátt
og lakkaði fyrir. Skilaði svo öskjunni
á pósthúsið og fór heim með póst-
kvittunina glaður og ánægður. Ekki
minna kátur var Mayer þegar askjan
með dýrgripunum var komin i hendur
hans, en gleði hans fór fljótt út um
þúfur, því að þegai hann var búinn
að opna öskjuna kom í ljós að í henni
voru nokkrir sykurmolar og ekkert
annað. Til þjófsins hefir ekkert spurst
og brúðkaupinu er frestað. En tveir
færustu eftirgrenslunarmennirnir á
Frakklandi hafa svarið þess dýran eið
að hafa uppi á þjófnum, svo ekki er
örvænt um að það kunni að takast.
Abdnl Azis,
er fyrir nokkru var soldán þeirra
Marokkó-búa, dvelur nú langvistum í
Englandi, og temur sig svo mjög að
siðum landsmanna, að hann lætur sér
nægja 5 konur, en átti áður 723.
Eyrarsunds-vikan.
Svo nefna Danir kappsiglingamót,
er þeir hafa árlega í Eyrarsundi, og
aðrar þjóðir einnig geta tekið þátt í.
76 seglbátar eða smáskip tóku þátt í
kappsiglingunni. Voru þeir flestir
danskir, en sumir norskir, sænskir,
þýzkir og rússneskir. Verðlaunum
mörgum var útbýtt. Konungur vor,
sem einnig er það sem Danir nefna
„Sætteskipper", tók þátt í einu skriðinu
og vann — auðvitað — glæsilegan
sigur.
Leikfimi.
Ekki færri en 100,000 leikfimis-
menn tóku þátt í fimleikasýningu, sem
var haldin í Leipzig nýlega. Stundum
voru 16—17,000 manns á íþróttavell-
inum samtímis.
Bóstnr í Kína.
Lýðveldið hefir ekki átt friði að
fagna upp á síðkastið. Suður-Kína og
Norður-Kína (en þar situr forsetinn
Yuan-Shih-kai) hafa átt í allmiklum
og blóðugum erjum, sem nú er þó
lokið, og hefir forsetanum tekizt að
bæla niður uppreisnina. En líklegt að
það sé rétt í bráð, og að mótstöðu-
menn hans — og þar má fremstan
telja Sun-Yat-sen — láti hann ekki
lengi njóta friðarins.
Helen Keller.
Hún er fædd í smáþorpi í Norður-
Ameríku á miðju sumri árið 1880.
Hálfs annars árs fékk hún heilabólgu
og enginn ætlaði henni líf. Lífinu
fékk hún samt að halda. En borga
varð hún það dýru verði, svo dýru, að
margur mundi ekki kjósa sér lífgjöf
ætti hann að gjalda það fyrir. Hún
misti bæði sjón og heyrn. Sjónlaus,
heyrnarlaus og mállaus — og alt lífið
fram undan. Er unt að gera sér í
hugarlund hvað í þessu felst ? Sífelt
myrkur, sífeld þögn ! Er ekki alt sem
gerir lífið gott og unaðslegt í ætt við
ljósið, alt sem tengir mann við mann,
sál við sál, bygt á að geta sagt öðr-
um hugsanir sínar og orðið aðnjót-
andi hugsana annara.
Frá öllu þessu virtist Helen litla
lokuð úti. Hún var ein, altaf ein.
Ein í svartasta myrkri og eilífri þögn.
Það er sagt að enginn maður þoli til
lengdar að vera byrgður í myrkri og
þögn. Sú refsing er brúkuð enn við
hermenn, og stórir sterkir menn koma
eftir vikutíma út máttlausari en börn
og stundum hálf-sturlaðir. En þá
barnið ?
Hún hefir nú sjálf ritað æfisögu sína.
Og það sem maður sízt skyldi halda,
— það andar móti manni lífsgleðin í
hverri línu. Hið bjargvana ástand
hennar hefir valdið því að allir þeir,
sem hún hefir kynst, hafa verið henni
góðir. Hún hefir lært að þekkja björtu
hliðar lífsins, þó hún ekki hafi séð þær.
Hún segir átakanlega frá því er hún,
sjö vetra barnið, smámsaman ósjálf-
rátt skynjaði hið ógurlega hlutskifti
sitt, og hve löngunin til að geta komið
hugsunum sínum — svo fáar og ó-
merkilegar sem þær voru — til annara,
til móður sinnar og föður, óx með
degi hverjum, og hvernig hún, er það
ávalt mistókst, varð óþolinmóð og úr-
vinda af sorg. „Mér fanst eins og ó-
sýnilegar hendur hóldu mér niðri, og
ég streittist af öllum lífsins kröftum
við að losa mig. Ég hamaðist á móti
— en undan farginu komst ég aldrei,
og vonlaus bardaginn lauk ávalt með
tárum. Og þessi bardagi og þessi
köst, urðu senn á hverjum degi og
oft á dag“.
En þegar neyðin er mest er hjálpin
næst. Til Helenar litlu kom nú kenn-
arinn hennar, ungfrú Sullivan, sem
seinna hefir orðið stórfræg fyrir að
takast svo ágætlega að kenna henni.
Það var tilfinningin, sem varð að bæta
úr vöntun hinna skilningarvitanna.
Með því að fá henni hlut, og ýta um
leið fingrunum mismunandi í lófa
hennar, tókst eftir langa mæðu að
kenna henni „staírofið“. Hún segir
frá hinum gleðiríka, merkilega degi,
þegar hún loks komst að því, að hver
hlutur á heiti, og að hún nú gat lært
það, og eignast nýjan heim, hugsana
heiminn. — „Það mun erfitt að hugsa
sér ánægðaraog glaðara barn en mig,
þegar ég á enda þess dags lá í litla
rúminu mínu, með hugann á öllu því,
sem fyrir mig hafði borið um daginn,
og í fyrsta skifti á æfinni hlakkaði til
morgundagsins".
Eins og gefur að skilja var mjög
örðugt að láta hana skilja hugmyndir
og þess konar, sem ekki var hægt að
þreifa á. En það tókst þó með tíma
og þolinmæði.
En þegar fyrstu örðugleikarnir voru
unnir og Helen fór að læra dálítið um
umheiminn kom í ljós hvílíkum af-
bragðs gáfum hún var gædd, og þreki,
sem engir erfiðieikar gátu bugað.
Helen talar nú eins og hver anuar.
Hún varð að læra það með því að
taka á vörum ungfrú Sullivan, er hún
talaði, og svo reyna áð gera eins. Að
henni skyldi t.akast það er stórmerki-
legt. Hún er nú smám saman búin
að fá meiri mentun en alment gerist.
Skilur og talar mörg mál, er góð í
stærðfræði og öðrum lærdómsgreinum,
hefir tekið góð próf og gengið á Red-
cliffe-háskólann í Ameríku. Hún var
nýlega ráðin kennari sonar Alfons
Spánarkonungs, sem eins og kunnugt
er, er mál- og heyrnarlaus.
Æfisaga hennar er glæsilegur vottur
þess, hver öfl mannsandinn á til að
bera og hvers sterkur vilji og góðir
hæfileikar fá áorkað.
jlíannanöjn.
Frumvarp til laga um mannanöfn
er lagt fyrir þingið. Bjarni frá Yogi
er þar í nefnd og hefir — sem oftar
— orðið í minni-hluta. Hefir hann
samið ágreiningsálit all-skáldlegt, og
gerir ýmsar breytingartillögur við
frumvarpið. Yill hann banna „að kon-
ur kalli sig syni tengdafeðra sinna og
því síður bræður manna sinna og sona“,
enda verður því varla neitað að per-
sónulegt frelsi er mikið í því landi,
þar sem slíkt er leyft, og hefðum vér
ekkert á móti því, þó vér værum aldrei
nafnkyntir frú Guðnýju Sigurðsson, er
Bjarni tekur fram um í áliti sínu, 'að
meirihlutinn vilji láta vera óbeygjan-
lega kynvillu. Aftur á móti þykir oss
það fullhart að Bjarni krefst 20 kr.
árlegs nefskatts af oss, svo vér fáum
að halda ættarnafni voru góðu og
heiðarlegu. En þó er bót í máli, að
þeir sem heita slíkum nöfnum sem
Petersen, Jensen, Sörensen o. s. frv.,
alls ekki geta fengið að halda nafninu,
hvað sem þeir vilja til vinna, heldur
skulu þeir „skýrðir um“ samstundis
og frv. með br.till. Bjarna er samþykt.
En það verður nú kanske ekki á
þessu þingi.
Nöfn og nýjung’ar.
Eggert Stefánsson söngmaður ayngur
í Bárubúð á morgun. Á söngskránni eru
bæði íslenzk lög og útlend.
Stúdentafundur var haldinn í gser-
kveldi til þess að kjósa mann til farar á
100 ára afmælishátíð stúaentafélagsins
norska, sem haldið verður fyrst í Október-
mánuði næstkomandi. Hefir Alþingi styrkt
félagið til fararinnar með 600 kr. B e n e-
dikt Sveinsson alþm. var kjörinn.
Jacob Hawsteen fer úr þjónustu hins
danska steinolíufélags 1- Október n. k.
Setur þá á stofn umboðsvcrzlun með alls-
konar vörur. Sérstaklega mun hann hafa í
hyggju að snúa sér að kolasölu (steinkola).
í „Gamla Bí6“ er Býnd í kvöld og
næstu kvöld mjög vel leikinn kvikmynda-
sjónleikur ítalskur, er heitir „Papa André“.
Það er sorgarleikur — en sem fer vel.
Auðugur maður missir af völdum óvinar
síns aleigu sína og er að auki saklaus
hneptur í fangelsi. En úr því rætist þó um
síðir. Þar eru brunar og bjarganir, tár og
timburmenn, kærleikur og kossar og yfir
höfuð alt, sem góða Bíó-mynd má prýða.
Guðm. læknir Guðmundsson í
Stykkishólmi er staddur í bænum um þess-
ar mundir.
Séra Sigurður Stefánsson liggur
enn á sjúkrahúsi. Hafði fengið nokkurn
afturkipp.
n f Biografteater
^ ^ Reykjavíkur
sýnir 30., 31. ágúst og 1. septbr.
Papa André.
Sjónleikur í 3 þáttum, leikinn af
listfimustu leikurum ítala.
Aðalhlutverkið (Papa André) leikið
af sorgleikasnillingnum mikla
Ernesto Zacconi.
Sig. Júl. Jóhannesson iæknir i Vest-
urheimi er kominn hingað í snögga kynn-
isför.
Jóhann Jóhannesson kaupmaður er
einnig ný-kominn að vestan. Bölvar hann
Ameríku í sand og ösku, en þykir himna-
ríki á jarðríki vera bærinn Kaupmannahöfn
í Danmörku.
Baldur Sveinsson. cand. phil., er
orðinu kennari við skólann á ísafirði.
Karl Einarsson sýslumaður er liér í
bænum, sem stendur.
A skemtireið austur um sveitir eru
þeir Eggert Claessen, Guðjón Sigurðsson
og Sigurður Briem.
Sildarveiði hefir verið lítil fyrir norðan
síðustu vikuna.
Eimskipafélagið. Safnað hlutafé er
nú orðið 313,000. En eru ókomnar skýrslur
frá um 50 manns, er safnað hafa.
Til Hafnfirðings. Þér hafið sent oss
til birtingar nokkra snotra niðkviðlinga um
ónafngreinda menn (sennilega einhverja
bæjarbræður yðar). Vér þökkum sending-
una, en erum hræddir um að menn hafi
ekki gaman af þeim, nema þeir viti hverjir
eiga skammirnar. Fólk er nú einu sinni
svona gert. Og ef það svo fær að vita um
hvern níðið er, þá langar það enn meir að
vita hver er höfundur þess, og vegna hvers
hann er að hella sér út yfir hina. Yfiur er
því bezt að skrifa oss alt þetta fyrst. Þá
er vel líklegt, að minsta kosti Ingimundur
(sem sjálfur aldrei svífist að sverta náung-
ann eftir föngum) mæli með því að kviðl-
ingarnir komi fyrir almennings sjónir.
Ingimundur biður þess getið, að það sé.
prentvilla þar sem í greininni „Happdrætti11
í síðasta blaði stendur um Dani, að þeir
hafi verið útvaldir „a f stjórninni11 til
að vera leiðtogar okkar á þjóðlífsbrautinni.
Svo djöfullegur í garð stjórnarinnar ætlaði
hann ekki að vera. Það átti að standa
„forsjóninn i“.
Sveinn Björnsson
yfirdóm8lögmaður.
er fluttur í Hafnarstræti iiti.
Skrlfstofntími 9—2 og 4—6.
Hlttist venjnlega sjálfur 11—12 og 4—5.
Vertlun Jóns Zoéga
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128. Bankastrœti 14.
Hvaða mótor er ódýrastur, bestur
og mest notaður?
Gideon-mótorinn.
/
Einkasall
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verslun.
Hvar á að kaupa
öl og vín ?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prenlsmiðjan Gutenberg.