Reykjavík - 20.09.1913, Síða 2
152
REYKJAVIK
'TTerzlun
Síuríu Sonssonar
er Jiutí af JSaugavegi 1
á JŒaugaveg 11.
Minningarljóð.
Ekkjufrú Sigríðnr Blöndal
f. v» 1836, d. “/• 1913.
lín ertu horfin, hrausta, góða sál
og hljóðnað er þitt jafna, glaða mál,
og hjartað varma hætt er nú að slá,
og höndin styrka sig ei bæra má.
Það er svo margs að minnast við þitt lát,
og margur, sem þér skuldar harma-grát;
þvi alla’ um þina löngu lífsins braut
var ljóst um þig og hlýtt — í gleði’ og þraut.
Hvar, sem þú varst, þú vildir gleðja drótt
og vinahóp þú fékst þér myndað skjótt.
Því ljós og ylur laðar hverja sál,
og léttir skapið glaðvært vinarmál.
Þú kunnir manna bezt að bera harm,
og brosið láta þerra votan hvarm, —
í lífsins stríði’ að láta bugast ei,
en lífsins mótstraum kljúfa djarft, sem fley.
Hve þínum vinum varstu elskuleg,
þess vel frá barndómsárum minnist ég.
Hve oft ég kom að stólnum þínum þá
og þú mér undur-mörgu sagðir frá!
Eú flogin er þín fleyga, hreina sál
til fegri heima, þar sem ekkert tál
á sanna gleði lifsins leggur bönd.
Þú leidd ert þar ai ástvinarins hönd.
En útí biminblámann horfum vér,
og horfum fast og lengi' á eftir þér —
og minninganna — leggjum — liljublað
á leiði þitt — frá klökkum hjartastað.
B. P. Gröndal.
Yilhjálmur Stefánsson.
Hann er nú lagður á stað í nýjan
rannsóknar-leiðangur. Heflr hann með
sér sérfræðinga í ýmsum greinum, og
hygst að rannsaka land eitt afarmikið,
sem hann telur vera þar norður frá,
milli 74—90 stigs norður breiddar.
Svo segir Vilhjálmur um hvítu
skrælingjana, er hann fann í fyrri
leiðangri sínum, að ekki telji hann
vísindalega sannað að þeir séu afkom-
endur íslendinga á Grænlandi, en að
tæplega geti þó verið um aðra hvíta
menn að ræða. En afkomendur hvítra
manna séu þeir áreiðanlega. Málið
væri að öllu leyti ólíkt norrænu, en
þó væri hugsaniegt að orðið „Argluk“,
sem þýðir úlfur, væri norræna orðið
„vargur", því að nafnorðsendingin á
máli skrælingjanna er „úk“ eða „lúk“.
Kannske Vilbjálmur eigi eftir að
rekast á fleiri hvíta skrælingja í hin-
um nýja leiðangri sínum. Þætti okkur
það ekki minst í varið, ef honum tæk-
ist að finna eitthvað um uppruna
þeirra. — Síðustu fregnir segja skip
það, er hann er á, hafa brotnað að
mun í ís. En „fall er fararheill“, og
ónýtir þetta vonandi ekki íör hans.
Af ófriðm.
Siðustn hrakjarir Júfgara.
Simskeyti frá Khöfn í gær :
Fullnadar-fridur milli Búlg-
ara og Tyrkja. Tyrkir halda
Adrianöpel og Kirk-Kilisse.
Það á ekki úr að aka fyrir aum-
ingja Búlgörum. „Haldi sá, er heflr",
segja Tyrkir. Því að fullhuginn tyrk-
neski, Enver Bey, settist jafnskjótt að
í Adríanópel er Búlgörum tók að ganga
miður, og rak þá úr borginni. Verður
sennilega hér við látið sitja, enda þótt
stórveldin hafl áður hugsað sér að
Búlgarar eignuðust Adríanópel frá
Tyrkjum.
Nöfn og nýjung'ar.
Kristján IX., steyptur úr eir og
mótaður af Einari Jónssyni, er kominn
til landsins og dvelur sem stendur í
Bryde’s pakkhúsi. Seinna er áformað
að hann standi á stjórnarráðsblettin-
um, hinumegin við Jón Sigurðsson,
svo ekki hallist á.
Jón ólafsson alþm. biður þess getið,
að hann sé framvegis látinn af allri
starfsemi við „Reykjavík*.
„Reykjavík" er orðin eign nokk-
urra fylgismanna Rannesar Hafstein
ráðherra. Hafa þeir keypt blaðið af
hlutafélaginu Gutenberg.
Prentarafélagið heflr tombólu fyrir
sjúkrasjóð sinn 11. og 12. n. m.
Árni Jónsson bókb, hefir sagt lausu
starfi sínu í „ Völundi“, og gefur sig
fyrst um sinn við öllum skrifstofu-
störfum heima hjá sér eða annarsstaðar.
Geir Zoega yfirkennari er settur
rektor við hinn almenna mentaskóla.
Hjálmar Guðmundsson (úrFlatey)
hefir sett upp verzlun í Austurstræti 10
(gamla húsi frú Herdísar Benedictsen).
Hann hefir keypt hús séra Guðmund-
ar frá Reykholti við Laufásveg.
„Hið ísl. steinolín hlatafélag“
hejtir félag, sem er í undirbúningi,
að skrásett verði hér.
„Svanhvít", hið ágæta kvæðasafn,
þýtt af Stgr. Thorsteinsson og Matth.
Jochumssyni, er komið út, Kostnaðar-
maðurinn er Jóh. kaupm. Jóhannesson.
Mun það eflaust fá góðar viðtökur.
„íslenzkt verzlunarblað" erdansk-
ur maður Thureson, farinn að gefa út
í Danmörk.
Waardahl, sem hér var lengi skip-
stjöri á Faxaflóabátnum ,,Reykjavík“,
er hér í bænum sem stendur. Hann
hefir timburverzlun í Borgarnesi, en
dvelur þar samt ekki.
Hrnllanp sitt héldu í vikunni,
Tryygvi Þórhallsson prestur að Hesti
og Anna Klemenzdóttir (landritara).
Gaf biskupinn þau saman í dómkirkj-
unni. En veizlan var á „Hótel Rvík“
og sátu hana mörg stórmenni. Mælt
er að nýgiftu hjónin hafi heimili sitt
á Hvanneyri í vetur.
Matthías Pórðarson fornmenja-
vörður var af Stúdentafélaginu hér
kosinn til farar á aldarafmæli norska
Stúdentafélagsins, í stað Benedikts
alþm. Sveinssonar, er ekki sá sér fært
að fara. Afmælið er 2. október, en
verður haldið hátíðlegt í nokkra daga.
Bifreið, nákvæmlega af sama tagi
og þá, er Yestur-íslendingarnir hafa
haldið uppi flutningum með í sumar,
hafa tveir bifvélamenn („mótoristar")
Sigurður Quðmundsson og Oddur Jóns-
son, keypt sér, og ætla að leigja hana
mönnum til flutninga.
Ettirköst frá Búda-Pest. Laufey
Valdimarsdóttir hefir svarað í „Ber-
lingske-Tidende8 árásum frá Bagger
út af framkomu sinni gagnvart Dön-
um á kvennafundinum. Vísar hún að
maklegleikum heim þeim ummælum
frá Bagger, að vér á íundinum hefð-
um komið fram fyrir hönd Danmerkur,
og leiðréttir afbakanir frá Bagger, sem
áttu að sýna, að ungfrú Laufey hefði
re/nt að bera Dönum söguna ver, en
þeir áttu skilið.
Hjónabandafækkun í Bandaríkjunum.
Eftir síðustu skýrslum hafa 17 millí-
ónir karla og kvenna í Bandaríkjunum
ekki gengið i hjónaband, og af hverj-
um 100 karlmönnum eru 39 ókvong-
aðir. Niðurstaða sú, sem komizt er
að í skýrslunni, er ekki glæsileg. Er
þessi fækkun hjónabanda talin bera
vott um, að sægur manna í Banda-
ríkjunuux hafi hvorki siðferðislegt þrek
til að taka sér konu, né hinar nauð-
synlegu siðferðislegu taugar. Enn er
sagt í skýrslunni: „jafnframt því að
heil hersing ókvongaðra manna eyðir
öllum tekjum sínum í þarfir sjálfra
sin eingöngu, og margir þeirra auk
þess leggjast 1 alls konar óreglu —
sem þeir meta ólíkt meir en venjulegt
sparnaðar hjónabandslíf, — lifir þar
önnur hersing, ekki minni, ungra
kvenna, S9m neyddar eru til að þrælka
fyrir daglegu viðurværi í verksmiðjum
og vörubúðum. Þetta er óláns-ásig-
komulag. Auk þess eru siðferðisbrot
og glæpir algengastir meðal þeirra, sem
ekki lifa í hjónabandi . . . .“
Það er óskemtilegt fyrir gamla
piparsveina að lesa þetta og annað
eins, og líklegt að þeir bæri ráð sitt
— eða staðfesti það að minsta kosti.
6 • o
=3 >
:© Æ (Z)
CÍh
o
6 ts W)
3 G
•>: «2
a B •
CUr! O X
H
to
X
H
Skiftingr EyjaQaröarsýslu.
Blaðið „Norðurland" segir þá mála-
leitun frá þingmálafundum Eyfirðinga
og Akureyrar, að skift yrði bæjarfógeta-
og sýslumanns-embættinu, hafa fengið
mjög daufar undirtektir hjá þingmönn-
um. Hafi ástæðan verið sú að þeir
álitu að ekki mætti fækka „feitu“
embættunum, til þess að sýslumenn
sætu ekki altaf kyrrir þar sem þeir
væru komnir, heldur hefðu von um
að hækka í tigninni. Ef þetta er rétt
þá ber það vott um alveg óvanalegan
föðurlegan umönnunarhug núverandi
þingmanna fyrir þessum embættis-
mönnum, sem að vísu sízt ber að lasta,
en sem þeir svo sjaldan verða aðnjót-
andi, að manni verður á að hugsa að
það sé alt, of fallegt til að það geti
verið satt!