Reykjavík - 06.12.1913, Síða 4
198
REYKJAVÍK
cHœjargjöló.
Þess er alvarlega krafist, að allir þeir, svo lijú sem liús-
bændnr, sem eiga ógoldið bæjarsjóði aukaútsvör, lóöargjald,
vatnskatt, sótaragjald, holræsagjald, barnaskólagjald,
salernisgjald, erfdafestugjald, tíund, innlagingarkostn-
aö á vatni. eða hvert annað gjald sem er, sem greiðast á í bæj-
arsjóð, að greiða það tafarlaust, svo ekki þurfi að taka það lögtaki,
cRœjargJaléRerinn.
OTTOM0NSTED"
dan^fca smjörliki er besf
um fregun&irnar
„0 rn” „Tip -Top”„5 vak ” óba „Löuc”
Smjörliki& fce^f frd:
Offo jWönsted *Xf,
Kau,pmannahöfn 03 Áró^um
i öanmörku.
Botnía kom í morguo. Meðal far-
þega var H. Hafstein ráðherra.
Á. Verzlunarskólanum varð verk-
fall snemma í vikunni. Lögðu læri-
sveinar margir niður vinnuna og kváð-
ust ekki taka hana upp aftur, nema
skólastjóra-skifti yrðu. Tilkyntu þeir
þetta skólanefnd og skólastjóra — eftir
hverju þeir hefðu sér að hegða. Báru
þeir aðallega þær sakir á skólastjóra,
að hann veitti þeim of harðar átölur,
reykti í timunum og læsi þar stundum
blöð. Kom þetta flatt mjög upp á
alla, því að skólastjóri heflr ávalt gegnt
starfl sínu vel, og er talinn ágætur
kennari. Og engar umkvartanir áður
frá nemendunum.
Úiskurður skólanefndar féll í morgun
og er all-mörgum aí uppþot^mönnum
vísað burt úr skólanum, og fá þeir
heldur eigi að taka þar próf.
Með „Sterling“ komu D. Scheving
læknir, Kr. Torfason kaupmaður,
Pétur Óíafsson konsúlí, Sigurður
Maynússon læknir og Konráð Stef-
ánsson bóndi.
Thor Jensen útgerðarmaður varð
fimtugur á miðvikudaginn.
„Lénharður fógeti“ verður leikinn
um jólin. Lénharð leikur Árni Eiríks-
son.
„Þjóðreisn4* heitir nýtt stjórnmála-
félag hér í bænum. Eru í þvi heima-
stjórnarmenn undir forustu Jóns Ól-
afssonar og Lárúsar H. Bjarnason.
Það heldur fund í kvöld.
Heimskringla er farin úr eign
þeirra manna (aðallega B. L. Bald-
winssori) er áður áttu og hefir keypt
hana félag nokkurt. Séra B'ógnvaldur
Pétursson er einn hinna nýju eigenda
og mælt að hann verði ritstfóri blaðs-
ins.
Nýárs-kort íslenzkt, mjög laglegt,
heflr E. V. Sandholt búið til og gefið
út. Er það ávísun á hamingjubanka
íslands, sem útg. ábyrgist að verði
borguð á réttum tíma. Fæst hjá bóka-
verzlun Sigf. Eymundssonar.
Látin ei frú Ingihjörg Magnús-
dóttir, kona Guðjóns Guðlaugssonar
alþingismanns.
Þingmannsefni í Strandasýsiu
segja sumir að verði Magnús Péturs-
son læknir í Hólmavík.
Munið eftir jólamerkjunum!
Mestir jaröbótamenn.
Eftir jarðbótaskýrslum búnaðarfé-
laganna fyrir árið sem leið, 1912, eru
margir búendur með 100—200 dagsv.,
nokkrir með 1—400 dagsv., og með
400 dagsverk og þar yfir eru þessir:
1. Magn. Sigurðss. Grund Eyjaf. 1057
2. Magn. Þorlákss. Blikast. Kjós. 894
3. Alb. Eyvindss. Skipag. Rang. 834
4. Met. Stefánss. Eiðum S.-Múl. 832
5. Sig. Guðmundss. Selal. Rang. 807
6. Jón Jónsson Hafst.st. Skagaf. 801
7. M. Bl. Jónss. pr. Vallarn. S.-Múl. 755
8. Ól. Guðmundss. Sámsst. Mýras. 742
9. Sig. Jóhanness. Geit.st. S.-Þing. 727
10. Sveinn Jónsson Hóli Skagaf. 715
11. G. Þorv.ss. Litlu-Sandv. Árn. 713
12. Guðm. Ólafss. Lundum Mýras. 630
13. Guðj. Helgas. Laxnesi Kjós. 562
14. Jónas Illugas. Biöttuhl. Húnvs. 543
15. Þórð. Gunnarss. Höfða S.-Þing. 539
16. Þorst. Þorst.s. Berust. Rang. 515
17: Guðm.Þorbj.ars. Stóra-Hofi — 511
18. Bj. Bjarnas. Hörgsdal Y.-Sk. 511
19. Bj. Bjarnason Skáney Borgf. 504
20. Sveinn Árnason Felli Skagaf. 497
21. Ól. Stefánss. Kalmanst. Mýr. 488
22. Gísli Jónss. pr. Mosf. Árness. 484
23. Guðm. Stefánss. Litlal.k. Skagf. 476
24. J. P. Bóason Hlíðarenda S.-Múl. 466
25. Ben. Baidvinss. Garði S.-Þing. 462
26. G. Sigurðss. Brenniási S-.Þing. 451
27. S.sýslum.Ólafss.Kaldaðarn.Árn. 434
28. Bj. Runólfss. Holti Siðu V.-Sk. 426
29. G. Péturss. Holti Ásum Húnv. 418
30. Jón Guðmundss. Ósi Borgarf. 418
Þess skal getið, að hjá mörgum
þessum mönnum, eru það girðingar
sem mestu ráða og hleypa fram dags-
verkatölunni. [,Freyr‘.]
€ggert Claessen,
yfirréttarmálaflatningsmaðnr.
Póstliússtr. 17. Talsíml 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Vm.liin Jóns Zoéga
selur ódýraBt neftóbnk, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Tnlsími 128. Bnnkastrætl 14.
Hvaða mótor er ödýrastur, bestur
og mest notaður?
Gideon-mótorinn.
Einkasall
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: V e r s 1 u n.
Prentsmiðjan Gutenberg.
3
kominn um og yfir nírætt) svo ágætlega ritaðar að aðdáun
vekur.
Dr. Wallace var alla æfi maður, er einungis víldi byggja á
reynslunni og var í upphafi efnishyggjumaður og »agnostiker«.
Eins og »Times« kemst að orði var hann aefnishyggjumaður allur
saman og í huga hans var ekkert rúm handa trú á neina and-
lega tilveru eða nokkrar aðrar verkandi orsakir í alheiminum en
öíl og efni«. En árið 1865 kyntist hann spíritismanum af eigin
reynd, í húsi visindamanns, vinar síns. Mynduðu þau sambands-
hóp, W., vinur hans og kona og dóttir síðarnefnds og gerðust
mörg merkileg fyrirbrygði. Varð það til þess að W. gaf sig mikið
við rannsóknum þessum og varð bráðlega sannfærður um að
fyrirbrygðin stöfuðu af völdum framliðinna. Árið 1874 gaf hann
út hið ágæta rit sitt nMiracles and Modern Spíritualism«, þar sem
hann lýsir yfir þessari skoðun sinni og segir frá á hverju hann
byggi hana. Á þeim tímum þurfti »harðan haus« til að játa trú
sína á þessi »hindurvitni« enda hlaut hann mörg ámæli fyrir og
var skopast að honum fyrir. En hann gekk sína beinu braut og
um áhrif spíritismans á sjálfan sig kemst hann þannig að orði:
»Ég finn það sjálfur að ég hef orðið að mun betri manni og að
það á ég aðallega að þakka kenningum spíritismans, að við með
hverju verki og hverri hugsun byggjum oss skapgerð, sem afar
mikið er undir komið hvort okkur líði vel eða illa seinna.
En um trú sína segir hann:
»011 trú mín er bygð á þekkingu þeirri, er ég hef öðlast
með spiritismanum. Heimurinn er til framþróunar mannssálinni
og framtíð vor er komin undir þvi hvernig vér notum tæki-
færið nú«.
4
Spíritismann skoðaði hann sem grundvöll trúar þeirrar er
framtíðin mundi hafa. — »Það er á engu öðru að byggja«.
Með A. R. Wallace er farinn afburðamaður andans.
Maður sem fram á síðustu stund vann að því að gera bjartara
og hlýrra í heiminum.