Suðurland - 07.09.1912, Blaðsíða 2
50
SUÐURLAND
SVEITAMENN!
Munið eftir að líta inn í verzlun
Áma, Eiríkssonar, Áusturstræti 6.
SMT' Það margborgar sig '9Í
cftrúarórápa
Yið Yígslu Rangárbrúrinnar 31. ágúst 1912.
Lag: Norður við heimskaut, í svalköldum sævi.
Fagurt er ísland, en suðurland sveipa
sólstafi fegursta’ á landinu’ eg veit, —
gammvökrum jó er þar gaman að hleypa
góðviðrisdag yfir broshýra sveit.
Glampar á jöklanna gljáskyggða hjálma,
glitklæddar hlíðar við bláfjalla sveig.
Þó eru fljót þar, sem ferðarnar tálma,
fallþung og búa’ yfir ísköldum geig.
Rangá er fögur, — í fossum og giijum
flðlustreng vatnadís brosandi gnýr, —
kaldrifjuð feigðin í hringiðu-hyljum
hægfara, lymsk þó und glófleti býr. —
Býr sem hin fegursta kona’ yfir köldu,
kviklát og viðsjál og straumbreytin á,
sjá, hún er jörmunefld skorðuð við skjöldu,
skal ekki mannblót að eilífu fá.
Náttúran meinbægin máttugum iýtur
menningar krafti á framsóknartíð,
viljinn og áræðið brautirnar brýtur,
brattlendur klífur, þótt hægt fari’, um síð.
Hér stendur brúin sem voldugur varði
viljans, er fram til hins ónumda Jands
djarftækur leitar að auðsæld og arði,
óðöl sér helgar hins írjálsborna manns.
Svo skal um Rangárþing samhuga brúa
sveitirnar allar til gengis og hags,
hugum frá sérdrægni’ að samtökum snúa,
safnast um Ijósmerki komandi dags, —
tvístrandi þjóðhugar torfærum eyða,
tengja við landið hvers hluta þess gagn,
gera til sjálfstæðis brautina breiða,
brúka sitt vit til að skapa sér magn.
Nóg er að sinni af sjálfstæði’ í orði,
sóknin þarf öruggan bakhjarl að fá.
Sýnið mér efnalegt sjálfstæði’ á borði,
sigrandi ókvíðnir stöndunr vér þá!
Brú vor sé tákn þess að tengi oss alla
trúin á drenglyndi, menning og dáð, —
frelsið i dölunum dimmblárra fjalla
djarfhuga verndi nú harðfylgi’ og ráð!
Brúin sé vigð undir vorhugans merki,
víðsýni helguð og framsóknar þrá!
Vinni’ ekki jarðskjálfta-jötuninn sterki
járnvörðum boga né stöplunum á.
Verði hún móðurbrú veglegra brúa
víðsvegar síðar um Rangárþing alt,
verði’ hún oss hvöt til að vilja og trúa
vaknandi þjóðhug, er kallar oss snjalt!
Hvort mun ei Gunnar í hauginum fagur
hughreifur brosa og kveða við raust?
Vitsnilli Oddverja og atgerflbragur
örfa með niðjunum metnað og traust?
Rangæingsmerkið í heiðri skal hafa
hvar sem því lyft er í þjóðrækni’ og trú!
Berum það hátt, meðan heiðgeislar stafa
hollrúnum vonar á framtíðar brú.
Guðm. Guðmunilsson.
kaupin, er henni það vorkunnarlaust
eins og lögin eru nú, en þó væri
fyrri leiðin margfalt betri.
Menn hefir greint á uni það, hvort
nokkuð væri yfir höfuð unt að gera
útaf verðhækkun þessari, með því
ekki væri kunnugt um hvernig á
verðhækkuninni stæði, hún væri ef
til vill almenn um heim allan, og
væri þá ekkert hægt við að ráða.
Um þetta ætti nú að vera hægt að
fá vitneskju innan skamms, og er
ekki ólíklegt að svo reynist að hækk-
unin sé hvergi til nema hjá D. D. P. A.
eða hjá mömmu þess Standard Oil
& Co.
Það er að minsta kosti kunnugt,
að olíuverð í New-York fór stöðugt
lækkandi alian júlímánuð og enda
fram í ágúst. Síðustu fregnir segja
verðið seint í júlí rúmar 12 kr. fatið,
en flutningsgjald á fati frá New-York
tii Reykjavikur var um miðjan ágúst-
mánuð kr. 3,40. Sést nokkuð af
þessu hvernig verzlun D. D. P. A. er,
og ef ekkert er gert til að reyna að
losa landsmenn úr klóm þess, ja, þá
sannast það, að íslendingum má alt
bjóða.
Því má við bæta, að í slíkum efn-
um reynir allmjög á dug þjóðarinnar
til að varðveita sjálfstæði sitt. Því
líði hún það með auðmýkt og þolin-
mæði, að út.lent okurfélag sýni einum
aðalatvinnuveg hennar beint banatil-
ræði (af eintómri gróðafíkn) og taki
eigi ráð gegn slikum ófögnuði í tíma,
þá er allur sjálfstæðisgarpskapurinn
meir í orði en á borði.
------o-»o^<>--
Búnaðarmálafundur.
Á síðasta búnaðaiþingi var sam-
þykt tillaga um það, að æskilegt væri
að kennarar búnaðarskólanna, starfs-
menn sambandanna og ráðunautar
Búnaðarfélagsins gætu átt fundi með
sér stöku sinnum. Var félagsstjórn
faiið að gangast fyrir .að fyrsti fund-
urinn yrðí haldinn nú í sumar.
Stjórn Búnaðarféiagsins hafði nú
leitað fyrir sér um þetta og hafði
málið fengið góðar undirtektir; var
svo fundurinn auglýstur, og fyrirfram
ákveðið hvað koma skyldi þar til
umræðu, og verkum skift milli nokkra
þeirra er fundinn áttu að sækja, um
að innleiða umræður um málin.
Fundur þessi var settur af for-
manni Bfl. ísl. mánudaginn 26. ág.
kl. 10 árd. í húsi Búnaðarfélagsins.
fessir sóttu fundinn:
Alfred Christensen bóndi í Einars-
nesi í Mýrasýslu, Benedikt Blöndal
kennari á Eiðum, Björn Bjarnarson
hreppstj. í Grafarholti fyrir Búnaðar-
sambandKjalarnesþings, Eggert Briem
frá Viðey, Einar Ilelgason garðyrkju-
maður, Halldór Vilhjálmsson skólastj.
á Hvanneyri, Hans J. Grönfeldt skóla-
stjóri á Hvítárvöllum, Hermann Jóns-
son fyrv. skólastj. á Hólum, Jakob
Líndal ráðun. Ræktunarfél. Norðurl.,
Jón Hannesson frá Deildartungu fyrir
Búnaðarsamb. Borgfirðinga, Jón Jón-
atansson á Ásgautsstöðum fyrir Bún-
aðarsamb. Suðurl., Jósef Björnsson
kennari á tlólum, Metúsalem Stef-
ánsson skólastj. á Eiðum, Pál) Zóp-
hóníasson kennari á Hvanneyri, Sig.
Sigurðsson ráðunautur, Sig. Sigurðs-
son skólastj. á Hólum, Sig. Sigurðs
son kennari á Hóiuin, Sig. Stefáns-
son prestur í Vigur form. Búnaðar-
sambands Vestfjarða.
Fundarstjóri var kosinn Jósef Björns-
son, en skrifarar Einar Helgason og
Sig. Sigurðsson kennari á Hólum.
Auk þess var ráðinn skrifari til að
rita ágrip af umræðum og hlaut Pétur
Zóphóníasson þann stara.
Fundur þessi stóð yfir til föstu-
dagskvölds, og var tíminn notaður
vel. Stóðu fundir yfir flesta dagana
frá kí. 8 árd. til kl. 8—9 síðd. með
2—3 tíma frátöf til máltíða.
Á málaskrá þeirri, er samin var
fyrir fundinn, voru 10 mál, voru 8
af þeim rædd.
Fundurínn fór hið besta fram, um-
ræður fjörugar og tóku flestallir fund-
armenn þátt f þeim. Bar þar margt
á góma og mun það hafa verið sam-
huga álit fundarmanna, að fundurinn
hafi orðið þeim til talsverðra nota.
Síðari hluta dags á fimtudaginn
fóru fundarmenn 14 saman skemtj-
för til Viðeyjar á vélabát. Var litið
á búskaparframkvæmdir og jarðrækt-
ina þar í Viðey; var þó tíminn helst
til stuttur.
Eitt af því er nýstálegast þótti þar
að sjá, var graðhestur nokkur, er
þangað hefir keyptur verið, og af-
kvæmi hans 3, veturgömul. Er hest-
urinn föngulegasti og tryppin munu
vænni en venjulega gerist, einkum
eitt þeirra.
Þetta sama kvöld hafði stjórn
Búnaðarfélagsins boðið fundarmönn-
um til kveldverðar í Iðnó. Var þar
setið saman lengi kvelds og var þar
glatt á hjalla, ræðuhöld mikil, söng-
ur og rímnakveðskapur. Fóru allir
ánægðir heim með þakklæti til Bún-
aðarfélagsins fyrir kvöldið.
Dagskrár fundarins verða birtar í
næsta blaði, og verður þá um leið
getið þess er á fundinum gerðist.
Frá alþingi.
27 eru þau talsins lagafrumvörpin
frá þinginu er samþykt hafa verið,
eru 5 þeirra ótalin í upptalningu
þeirri er birt var í síðasta blaði. 3
þeirra eru svo smávægileg sem mest
má verða: lög um söiu á eggjum
eftii þyngd, lög um stækkun verzl-
unarlóðar á Flateyri og í Norðfirði.
fá eru tvenn lög er samþykt voru
rétt fyrir þingslit: lög um eftirlit með
skipum og bátum og öryggi þeirra,
og lög um einkasöluheimild lands-
stjórnarinnar á steinolíu.
Lögin um eftirlit með skipum og
bátum, eru samsteypa úr stjórnar-
frumvörpum þeim, er lögð voru fyrir
þingið um þetta efni og frumvarpi
um eftirlit með þilskipum og véla-
skipum, er flutt var í neðri deild og
samþykt þar. Eru lög þessi ein hin
merkustu frá þessu þingi, og ætti að
mega vænta verulegs árangurs af
þeim et þeim verður framfylgt svo
sem vera ber. Verða lög þessi birt
hór í blaðinu.
Steinolíufrumvarpið var samþykt í
neðri deild nokkrum minútum áður
en þingslitafundur var settur í sam-