Suðurland - 09.11.1912, Síða 1
SUÐURLAND
Alþýðublað og atvinnumála
III. árS.
Eyrarbakka 9. nóyember 1912.
LandsimastSðin á Eyrai-bakka er
opin frá kl. 8Va—2. og 3Va—8 á virkum
dögum. A heigum dögum frá kl. 10—12
f. bd. og 4—7 e. bd.
Einkasíminn er opiun á sama tíma.
Sparisjóður Árnessýslu er opinu
hvern virkan dag frá kl. 3—4 e. lid.
Lestrarfélag Eyrarbakka láuar út
bœkur á sunuudögum frá kl. 9—10. f. hd.
Sambandsmálið.
Undirtektir Dana.
Lausafregnir þær, er getið var í
síðasta hlaði, um að erflðlega þætti
horfa um samninga við Dani um
Sambandsmálið, eru alls ekki ótrú
legar, og þarf engurn að koma á óvart
þótt þær reynist sannar.
Andstæðingar Sambandsflokksins
hafa nú samt verið að reyna að telja
þjóðinni trú um að flokkurinn væri
að reka erindi Dana með tillögum
þeim, er hann fól ráðherra að beia
fram, að með þessum tillögum væri
verið að gefa Dönum færi á að ná
lengi þráðu marki, að fá samþykki
vort til þess að „innlima" ísland í
„hið safnaða danska ríki“. En Danir
skilja líklega tillögur þossar nokkuð
á annan hátt, því hefðu þeir fundið
það í þessum tiilögum, er samninga-
andstæðingar segja að í þeim felist,
hefðu þeir að sjálfsögðu tekið þeim
tveim höndum.
En það vita allir sem kunnir eru
þessum tillögum, að þessi ofangreindu
ummæli samningaandstæðinga eru
fjarri öllum sanni, og Sambandsflokkn-
um var það fyllilega ljóst þegar hann
samþykti þessar tillögur, að við því
mátti búast að þeim yrði erflðlega
tekið af Dana hálfu, að minsta kosti
fyrst í stað, og fyrir hann eru það
því að minsta kosti ekki óvæntar
íréttlr þótt svo reynist.
Annars höfum vér enn engar á
byggilegar fregnir um undirtektir
Dana, aðrar en þær sem kunnar eru
af dönskum blöðum, og þá helst skrifln
hans Knúts Berlin, en alt sem sá
maður segir um Sambandsmálið, er
svo gegnsýi t af hlutdrægni og illgirni,
að varla er ráð fyrir því gerandi að
Danir vilji gera tillögur hans að lög
máli, er þeim beri að fylgja í við-
skiftunum við oss. —
Það er jarlsstjórnarfyrii'komuiagið
sem Berlin heldur nú sem fastast
íram. Er honum nú „gamli sátt-
rnáli" svo ríkt í huga, að hann telur
víst að „jarl viljum vér hafa yfir oss“,
og hver veit nema hann sjálfan langi
til að setjast í sæti Gissurar. —
Líklogt ei' að ekki liði á löngu héð
an af áður en nánari fregnir berast
um undirtektir Dana um tillögur þær,
er ráðheria hafði fram að bera, svo
að unt vcrði að gera sér einhverja
hugmynd um horfurnar.
------------—-
Millilandaferðirnar.
Uppsögn Sameinaða félagsins.
Fremur mun liún koma á óvart
fréttin sú, er getið var í síðasta blaði
um að Sameinaða gufuskipafélagið
hefði sagt upp samningnum um milii-
landaferðirnar. Ástæðurnar eru létt-
vægar, en þær eru aukinn póstflutn
ingur og kolatollurinn.
Fyrri ástæðan er naumast fram-
bærileg, því kunnugt mun félaginu
hafa verið um það, er það gerði
samninginn, að póstflutningurinn fór
mjög vaxandi, og þessvegna getur
það ekki talist neitt ófyrirsjáanlegt,
þótt svo hafl reynst að þessi flutn
ingur hafl aukist. —
Athugavert er það annars í sam
bandi við þessa mjög svo auknu póst-
flutninga á vörum hingað, hve óhæfl
lega lágt gjald er sett á póstsending-
ar í verslunargjaldslögunum nýju. í*að
er þó vitanlega mikið bæði að vöxt-
um og verðmæti sern flutt er hingað
af vöruin með því móti. —
Hin ástæðan sem félagið ber fyrir
sig um kolatollinn, sýnist líka að
minsta kosti í fljótu bragði ólíkleg til
þess að geta losað félagið við samn-
inginn, hafl hann annars átt að vera
nokkuð bindandi fyrir félagið. En fé-
lagið er sýnilega að reyna að nota
þetta sem átyllur til þess að losna
við samninginn og geta þokað upp
farmgjöldum. Flestum mun nú hafa
fundist þau sæmilega há eins og nú
eru þau, og er illa farið ef þau þurfa
enn að hækka.
Mál þetta er mjög svo mikilsvert.
Yór hefðum þurft að fá ódýrari vöru-
flutninga með þessum railliferðaskip
um en verið hefir, og jafnframt reglu-
legri ferðir, en frá því sameinaða er
ekki að vænta breytinga í þessa átt.
En flutningsmagn héðan og hingað í
þessurn föstu millilandaferðum, er
orðið svo mikið, að ólíklegt er að
ekki vilji aðrir við því líta en Sam
einaða félagið, og íslenskri verslun
ætti ekki að þurfa að verða óhagur
að því að ferðir þessar yrðu i annara
höndum en Dana, og að ieiðin yrði
lögð meira fiam hjá Kaupmannahöfn.
En líklega vilja Danir ógjarnan greiða
ríkissjóðstillagið til póstflutninga öðr-
um en dönskum félögum.
llt er að vera svo uppá aðra kom
inn sem vór erum með þessar skipa
ferðir, að vór getum ennþá ekki ann
ast strandferðirnar sjálfir, hvað þá
meira.
Telja má víst, að ekki muni Sam-
einaða félagið bjóða nein kostaboð
um að taka að sér strandferðir hér,
eftir því sem hljóðið er í því nú út-
af millilandaferðunum.
Thorefélagið er nú líklega að mestu
leyti úr sögunni, að minsta kosti
mun varla þurfa að vænta samkepni
af þess hálfu hóðan af við Sameinaða
félagið. Eftir því sem sjá mátti á
„Börsen" nýlega, er óráðið um fram-
tíð þess félags, þykir þó líklegt að því
verði haldið uppi til reynslu. Hlut-
hafar hafa engu að tapa frekar, hluta-
féð alt tapað hvort sem er. Óliklega
er því tekið að sint verði því skilyrði
aiþingis, að skip Thorefélagsins, þau
er verða í förúm hingað, færu nokkrar
ferðir til éýskalands — Lúbeck. Yflr
höfuð virðast því horfurnar um milli-
landaferðirnar alt annað en glæsileg-
ar sem stendur. En miklu skiftir
hverra úrræða leitað verður.
-------o-o*o-----
Bændaskólinn á Hólum.
Skýrsla um skólann á Hólum, prent.-
uð í sumar, heflr Suðurlandi verið
send. Er þar skýrt frá kenslunni
á skólanum og starfsemi skólans vet
urna 1910 — 11 og 1911—12.
Bændaskólarnir báðir, á Hólum og
Hvanneyri, eru nú eins og kunnugt
er með nýju sniði samkvæmt bænda-
skólalögunum w/n 1905, skólarnir
gerðir að vetrarskólum með bóklegri
kenslu. Hafði þetta fyrirkomulag áð
ur verið upp tekið við Hólaskóla og
þótti brátt vel gefast. Með því færðist,
nýtt fjör og líf í skólann og aðsókn-
in margfaldaðist, og heflr siðan farið
vaxandi, er nú þar eins og á Hvann-
eyri komið nýtt og vandað skólahús.
Kennarar skólans eru: Skólastjóri
Sigurður Sigurðsson, 1. kennari alþm.
Jósef Björnsson, aðstoðarkennari Sig.
Sigurðsson.
Nemendur hafa á þessum vetrum,
er skýrslan nær yflr, verið 58, hafa
þeir allir verið þar úr Norðursýslun
um nema 1 — Mýrdælingur.
Próf hafa ekki verið haldin, er það
ekki skylda nemenda samkvæmt reglu-
gerð að ganga undir burtfararpróf, en
nú mun það þó í ráði að svo verði
gert.
Auk sjálfrar kenslunnar á skólanum
hafa verið haldnir þar bændafundir
og styttri námskeið. Bændanámskeið-
in hafa verið með sama sniði og hér
syðra, hafa þau verið mjög vel sótt,
1910—11 sóttu 30, en 1911 —12
komu 58.
Bændafundur var haldinn á skólan-
um veturinn 1911. Heimsóttu þá
bændur úr Lýtingsstaðahreppi skól-
ann 28 að tölu, og dvöldu þar í
tvo daga. Voru þá haldnir umræðu
fundir um áhugamál bænda og fyrir-
lestrar haldnir af kennurum skólans,
en 1912 varð þessum bændafundi
ekki við komið.
Þá hefir og vorið haldið unglinga-
námslceið veturirm 1911 frá 26. febr.
til 25. mars, til að veita unglingum
undirbúningsfræðslu í almennum fræði-
greinum, virðist það vera mjðg vcl
Nr. 22.
Gj&ldd&gi
„Suðurlands“
var 1. novemfier.
til fundið. Þetta námskeið sóttu 12
unglingar og komu 5 þeirra á skól-
ann haustið eftir.
Pá hefir sá siður verið upp tekinn
þar á Hólum, að nemendur og kenn-
arar hafa farið námsför að haustinu.
Segir svo um þær í skýrslunni:
„Tilgangurinn með ferðunum er að
„skoða jarðmyndun og önnur náttúru-
„einkenni á svæði því sem farið er
„um. En þó er áherslan mest lögð
„á það, að kynna sér í öllum grein-
„um búnað bænda þeirra sem heim-
„sóttir eru. Gerast Hólamenn þá
„ærið nærgöngulir í spurningum sín-
„um og frétta bændur og húsfreyjur
„margs um ástand búanna úti og inni.
„Er því jafnan vel tekið og svarað
„svo sem föng eru á. Hverjum far-
„armanni er fyrirfram ákveðið víst
„starf að inna af hendi í förinni.
„Nemendum er skift í þrjár deildir,
„athugar ein þeirra jarðrækt, önnur
„búpening, og sú þriðja hús og áhöld.
„Eiu kennarar formenn deilda en rit-
„færustu menn úr nemenda hóp eru
„aðalskrifarar deildauna."
Þessum ferðafróðleik er síðan safn-
að í bók er skólinn á. —
Þessar námsferðir undir handleiðslu
góðra kennara geta orðið nemendum
að miklum notum, og eru alveg ómiss-
andi þáttur í kenslunni. Með þeim
gefst kennurum svo vel kostur á að
æfa og skerpa eftirtekt og dómgreind
nemendanna, og þá hljóta þeir einnig
á ferðum þessum að sjá margt er til
fyrirmyndar má verða.
Gróðrastöð er undir ræktun á Hól-
um, stunda þeir Hólasveinar verk-
legt nám ýmist þar eða í gróðrarstöð-
inni á Akureyri.
Margskonar félagskap hafa þeir
Hólamenn: matarfélag, málfundafélag,
nlaðakaupafélag, bindindisfélag, glimu-
félag o. s. frv. Sjóði liafa þeir stofn-
að tvo er heita: „Móðurmálssjóður
Hólaskóla" og „Sjúkrasjóður Hóla-
skóla". Er sá fyrri nú að upphæð
200 kr , en hinn 323 kr.
Skólinn á Hólum er yflr höfuð í
mjög góðu lagi. Kenslukraftar eru
þar ágætir, húsakynnin góð og hent-
ug, og að bókasafni og kensluáhöld-
um er skólinn vel útbúinn. í’eirNorð
lendingar sýna það líka að þeir vita
hvers virði skóiinn er fyiir þá, að-
sóknin að skólanum er góð hingað
til, og er vonandi að eigi skorti hana
heldur framvegis, er aðstaða skólans
fer nú batnandi, eins og skólasljórinu