Suðurland - 09.11.1912, Qupperneq 3
SUÐURLA'ND
87
viö uppfunding þá er hann hefir lengi
verið að fást við, að búa til raf-
magnsgeymi ódýrari og handhægri
en þá, er nú tíðkast. Þessi geymir
reynist hálfu ódýrari en þeir, sem nú
eru notaðir. Annars er fiéttin mjög
lausleg. En þetta atriði er mjög svo
eftirtektaveit, því notkun rafmagns í
sveitum hór á landl, frá fossunum
okkar mundi geta oiðið miklu meiri
— ef hún annars verður nokkur —
ef það tekst að leysa þessa þraut
vel og fá ódýrari og handhægari raf
magnsgeymi.
íslenzkir sagnaþættir.
Eftir
dbrm. Brynjúlf Jónsson fiá Minna Núpi.
III. þáttur.
Af
Þórunni Siguróardóttur.
—:o:—
Framh.
22. Helgi Helgason, bræðrungur Þór-
unnar, bjó á Lambastöðum í (tarði. Kona
hans-var Steinunn (tísladóttir, ættuð úr
Garðinum. Hún var „þétt í lund“ og þó
góð kona. Hclgi var aldavinur sóra Sig-
urðar B. Sívertsens á Utskálum : var ávalt
fylgdarmaður hans til útkirkna og annað
er hann fór. Og þegav messað var á Ut-
skálum, fengu þau Lambastaðahjún ávalt
kaffi eftir messu. Og margt fór þar vin-
samlegt í milli. Helgi fékst við dýra-
lækningar og hepnaðist oft vel. Yarliaus
leitað í þeim tilfellum er stórgripir veikt-
ust, bæði frá Utskálum og öðrum bæjum
þar nærlendis. Hanu var selaskytta. Og
eitt sinn skaut hann sel á þeim steð, er
prestur taldi að sér bæri landhlutur af.
Reikningseyðublöð
af mörgum stærðum
fást á
Prentsmiðju Suðurlands.
ooooooooooooo
Gat lrann þeBs við Helga. En það kom
Helga á óvart, og þótti það lýsa minni
vinsemd en hanu bjóst við, er prestur
færi fram á slikt við hann. Og borgaði
hann eigi laudhlutinn. l’að þótti presti
eigi vinsamlegt., og gerðist af þessu fæð
mikil milli þeirra. Nú var Helga eigi
leitað, þó stórgripir veiktust á Utskálum,
og nú komu þau Lambastaðahjón aldrei
inn í bæ á Útskálum eftir messu, I’annig
stóð um hríð. Þórunn vissi þetta og hafði
skapraun af. Og þar kom, að hún þóttist
eigi geta borið það lengur. Fór hún á
fund þeirra Útskálahjóna, og tjáði þeim,
hve illa það væri farið, ef fæð sú héldist.
Prestur svarar: ,,Eg er hinn sami og eg
var, bara ef þau Lambastaðahjón geta
lægt svo lundina, að koma inn hjá mér
eftir messu, eins og þau gerðu áður. Land-
hlutinn úr selnum ætlaði eg aldrei að 1
heimta, þó eg nefndi hann." Þóruim bað
leyfis að mega segja Helga þetta og var
það auðsætt. En kona prests sagðist
mest óttast það, að Steinunn á Lamba-
stöðum ætti bágt með að jafna sig. Þór-
unn kvaðst vilja royna. Fór hún að
Lambastöðum, fann Helga einslega og
tjáði honum, að hún þyldi ekki að vita
hann í óvild við séra Sigurð. „Eg er nú
hinn sami og eg var,“ segir Helgi, „ef
prestur væri eins og hann var.“ ,,Má eg
segja honum það?“ spyr hún. „Komdu
inn fyrst,“ segir hann, „og talaðu við kon-
una mína.“ Þau fóru inn bæði. Helgi
mælti við konu sína: „Það er skrítið er-
indið hennar Þórunnar frænku núna, hún
STOKKSEYRI HAEYRI.
**u***unn***ux***nM*u**uunn
yill gera okkur séra Sigurð að vinum aft-
ur.“ „Það held eg verði nú hægra að
segja en gera,“ sagði Steinunn. „Hvað
heldurðu að helst standi í veginum?“ spurði
Þórunn. „Prestur getur víst ekki lægt
lundina,11 segir Steinunn. „Það verðum
við að reyna,“ segir Þórunn. „Yiljið þið
gera það fyrir bænarstað minn, að koma
inn á Útskálum eftir messu á sunnudaginn
kemur, eins og vani ykkar var, og sjá
hvernig fer ?“ Helgi tók þessu vel, en
Steinunn var lengi treg til að lofa því.
Þó lét. liún tilleiðast um síðir. Og þá sagði
Þórunn þeim, að hún hefði talað við tit-
skálahjóuin, og að þau vildi bjartansfegin
endurnýja forna vináttu. En á landhlut-
Regnliattur, svartur, fauk nýlega
hér á götunni. Skilist í prentsmiðj-
una.
inn mundi aldrei verða minst framar. Er
það eigi að orðlengja, að næsta sunnudag
eftir messu fóru þau hjón inn í stofu á
Utskálum, eins og fyr var venja þeirra.
Var þeim tekið eins og ekki hefði í orðið.
Tókst nú aftur vinfengi milli séra Sigurð-
ar og Helga, jafngott og fyrri var, og
stóð það meðan þeir lifðu báðir.
(Framh.).
yetrarinaður óskast, heizt strax
á sveitaheimili, helst unglingsmaður
reglusamur. Upplýsingar í prentsmiðju
Suðurlands.
í haust var mér dregið mórautt
hrúilamb sem egáekki; það er með
minu rnarki: sneiðrifað framan hægra,
heí’ t ð vinstra. Hæli 7. nóv. 1912,
Oddur Þórðarson,
Svipa silfurbúin, merkt, fanSt
framailega á Breiðumýri. Eigandi
vitji í Prentsmiðjuna og borgi þessa
augiýsingu.
34 31
Látum okkur gá að hvernig málinu er varið. Eg veit að eg á Vön
á hárri sekt ef lögunum er fylgt, og þér gerið alt upptækt. En það
getið þér ekki gert án votta".
„Þá get eg fljótt fengið", svaraði sýslumaður.
„Ekki er það nú alveg víst“, svaraðí Láki. Héðan er meir en
míla tíl næstu bæja, meðan þér farið þangað til að sækja votfana
þá kveiki eg í öllum tækjum mínum hérna, og þegar þér komið
attur finnið þér ekkert nema öskuna, því það sem ekki brennur get
eg auðveldlega falið þar sem það aldrei finst,“.
„Þú vogar þér þó ekki að framkvæma hótanir þinar" svaraði
sýslumaður. Það yiði þér of dýrt, því þá skyldi eg líka kæra þig
fyrir brennuna".
„Sýslumaðurinn er ærið fljótfær í ályktunum sínum. Til hvers
er að ákæra þegar ekkert verður sannað, mitt nei er jafngott sem
yðar já. Enginn getur bonð vitni um að eg hafi bruggað brennivín,
og svo heimskur er eg ekki, að eg fari sjálfur að meðganga það.
Eg hlýt þvi að sleppa. Alt skal hverfa undireins og þér hreifið
yður héðan, og þér háfið ekkert upp úr krafsinu, ef þér ekki að-
hyllist uppástungur mínar. Eg þarf ekkert áð borga, en samt er
eg fús á að greiða sýslumanninum 50 dali fyrir ómakið, og það er
sannarlegt sæmdarboð".
Sýslumaður réð sér ekki fyrir reiði og gremju, hann sá, að
Láki hafði alveg rétt fyrir sér, og sá að hann gat ekkert frekar
gert að þessu sinni. Hann sætti sig því við að taka tilboði Láka
með því skilyrði að sektin yrði greidd nú þegar í beinhörðum pen-
ingum. „Á því eru örðugleikar", rnælti Láki, „hér hefi eg engan
eyrir á mér en heima hefi eg þessa peninga til, og eg skal afhenda
yður þá við kirkju næsta sunnudag".
„Dugar ekki, útí hönd verður það að groiðast nú þegar“, mælti
sýslumaður".
„En það er ómögulegt" mælti l.áki, nema herra sýslumaðurinn
vilji bíða hér og líta eftir brennivinsbrenslunni fyrir mig á meðan
eg hleyp heim eftir peningunum. Eg get verið fijótur".
Þetta varð loks að samkomulagi. Láki lagði af stað heim, en
sýslumaður settist að víngerðinni. Hann var ekki ánægður með
erindislokin, og sárnaði að geta ekki lagt löghald á þessa litlu verk-
smiðju Láka. Hann var lika bæði hungraður og þreyttur og bætti
Allur Söfnuðurinn rak Upp stór augu, störðu allir undrandi á
konu Láka, þar sem hún sat í sæti sínu rjóð og hraustleg. En
henni varð sjálfri eigi minst um þetta, tók hún brátt að ókyrrast í
sætinu, og leið ei á löngu áður hún stóð upp og þaut út úr kirkj-
unni, og heim, gaf hún manni sínum óhýrt auga um leið og hún
fór. —
Þegar Láki kom heim, tók hún á móti honum með því st.eypi-
llóði mælsku og orðgnóttar, að hann hafði aldrei slíkt heyit. En
hann hló með sjálfum sér, ánægður yfir því að konan hefði þó aftur
fengið málið. Þegar því fyrsta hrinan var hjá liðin var húsfreyjan
fálát og hálfergileg um hríð, en þó dróg fljótt t.il fullra sátta, og
eftir það bar þeim aldrei neitt á milli, en lifðu í hamingjusömu
hjónabandi í sátt og samlyndi.
Frá því fyrsta að brenniyínsgerð hófst hér í landi, hefir hún
orðið löggjöfunum að sífeldu þrætuefni. Á hverju ríkisþingi hafa
einhver lög verið um hana sett, og alt af gengið á sífeldum breyt-
ingum. Skoðun vor er, að hefði þessi iðn verið látin í friði, án
íhlutunar stjórnarvaldanna, hefði hún aldrei orðið svo almenn sem
raun varð á. Alt þetta eftirlit og öll þessi löggjöf, sem er sprottið af
tilhneigingu stjórnarvaldanna til að vera með nefrð niðrí hverjum
dalli, hefir aðeins orðið til þess að þessi iðn var rekin miklu al-
mennara en annars hefði orðið.
En hvernig sem þessu annars er varið, þá er það víst, að árið
1870 var almenningi með lögum bönnuð brennivínsgerð. Afleiðingin
varð sú, að iðn þessi var rekin í laumi, og það mjög alment, því
vínið var í háu verði, 2 dali kannan.
Láki var Smálendingur, hann vildi auðvitað græða peninga.
Hann fékk sér því brennivínsgeiðartæki og kom þeim fyrir langt
inn í skógarþykninu. Staðurinn var vel valinn, inni á milli tveggja
kletta, og mátti ætla að ófinnandi væri þeim, er eigi vissi um hann
áður.
Láki rak nú þessa iðn um langa hríð með góðum árangri.
Sýslumaðurinn hafði hann að vísu grunaðan, og hann leitaði og
snuðraði um alt Krókslnnd en varð einskis vísari. Þeir sem með
honum voru í leitinni fullyrtu að I.áki væri alt of slunginn til þess
að nokkur von bæri um að leitin van'i ■ ngur, og þeir neituðu að