Suðurland - 29.08.1914, Page 2

Suðurland - 29.08.1914, Page 2
32 SUÐURLAND Saðurland kemur út einu sinni i viku, á laugardögum. Argangurinu kost- ar 3 krónur, erlendis 4 kr. Hitstj. Jón Jónatansson á Asgautsstöðum. Innheimtumaður Suðurlands er hér á Byrarbakka: Maríus Oiafsson, verzlunarmaður é við kaupfélagið „INGrÓ LFUH“ • á Háeyri. — í Reykjavík: Oiafur Gíslason versl- unarmaður í Liverpool. Auglýsingar sendist í prent- smiðju Suðurlands, og kosta: kr. 1,50 fyrir þuml. á fyrstu síðu, = en 1,25 á hinum. •fHMMMNtH CiríRur Cinarsson yflrdómslðgmaðar Laugaveg 18 A (uppi) Reykjavík. Talsíml 4BB. Fiytur mál fyrir undirrétti og yfirdómi. Annast kaup og sölu fasteigna. Yenju lega heima kl. 12—1 og 4—5 e. h. til að semja um kaup á Rorlákshöfn og kaupa hana, en ef ekki tækjust samningar um kaupin, skyldi landstj. heimilt að láta taka jörðina eignar- námi eða svo mikinn hluta hennar sem þörf þætti vera á vegna hafnar- gerðarinnar. Landið sem tekið yrði skyldi þá borga eigendum eftir mati. Nefndin taldi best fara á því að Þorlákshöfn væri eign landsins, mundi þá hag sjómanna best borgið. Engin hætta á að þeir yrðu látnir sæta af ar kostum í hafnargjöldum o. s. frv. og er það alveg rétt. Mál þetta vai því á þinginu komið í það horf, að ætla mátti að það næði fram að ganga, en ekki varð nú samt af því En það er Suðurl. hulinn leyndar- dómur hvað valdið hefir. En svo mikið er víst að skynsamleg rök, eða þekking á málinu hafa ekki ráðið úr- slitunum, enda verður svo oft. Væntanlega verður þó ekki löng biðin héðan af. fingið næsta ræður þessu máli væntanlega til heppilegra lykta. Strandferðirnar. Til athugunar. Þingið í sumar hafði strandferða- málið til meðferðar, — hver vera skyldi tilhögun strandferða þeirra er Eimskipafólaginu er ætlað að halda uppi. Samgöngumálaráðunauturinn hafði búið málið undir allrækilega. Gerði hann 3 uppástungur um tilhögun ferðanna. Og hefir þingið fallist á eina af uppástungum hans með litl- um breytingum. Samkvæmt henni eiga tvö nýbygð skip að fara þessar ferðir. Eíga skip- in að vera 400 smál. netto, gang- hraði 9 míiur á vöku með fullfermi Farrými 3 er rúmi 40 manns áfyrsta, 50 á öðru og um 100 á þriðja. Kælirúm að minnsta kösti 1200 teningsfet. Ferðum skipanna á að haga þann- ig að bæði sigla 12 hringferðir 24 ferðir alls umhverfis landið á 8 mán- uðum. Af þessum 12 hringferðum eru 7 langar — viðkoma á mörgum höfnum, ferðin tekur 20—23 daga — og 5 stuttar, sem s^anda yfir í 10— 11 daga. Skipin fara frá Reykjavík með 3ja daga millibili. — Þetta nýja strandferðafyrirkomulag sýnist miklu hentugra en það sem vorið hefir. En nú á stjórn og þing eftir að koma einhverju lagi á báta' föTÖir á flóum og fjörðum. Það er búist við að sparast muni fé til þeirra þegar þessar fyrirhuguðu strandferðir befjast, en halda þarf þeim þó uppi all víða. — I hinum nýju strandferðaáætlunum fa hafnirnar hér austanfjalls viðkomur sem svarar í annari hverri ferð. Þorlákshöfn. Hafnargerðin í Þorláksköfn átti tals- verðum byr að fagna í þinginu. Svo að þó ekki gengi málið fram í þetta sinn má gera sér vonir um framgang þess á næsta þingi í einhverri mynd. Nefndin sem kosin var í neðri deild í þetta mál, flutti frumvarp þes-i efn is að landstjórginni veittist heiimld Fyrir nokkru síðan var almenningi hér á landi veittur réttur til að velja sjálfir sína andlegu leiðtoga, prestana. Mun hafa verið litið svo á að rétt væri að söfnuðirnir fengju að ráða því sjálfir hverjum þeir helst vildu fela andlega velferð sína. Petta var rétt gert, en hefir að vísu oft verið illa notað og óskynsamlega, en oftar þó af viti. Og þessi regla er í sjálfu sér réttmæt og heilbrigð. En sé það heilbrigt og réttmætt að fólkið velji sjálft sína andlegu leiðtoga Hversvegna má það þá engu ráða um það hverjir settir eru til þess að vermda heilsu þess og líf? Varðar t. d. íbúa læknishéraðs ekkert um það hver skipaður er læknir í héraðinu? Er almenningur skyldugur til þessað treysta í blindni föðurlegri forsjá veitingarvaldsins? Fetta mættu menn gjarnan gera sér Ijóst. Og nefna má það, hvort ekki muni rétt að gera meira jafnrétti milli sálar og líkama, með því að veita almenningi sama rétt í vali lækna, sem hann hefir nú í því að velja sér prest. Umhugsunarvert er það að minsta kosti. ---------------- Að veita Ijósi yfir landið, Hversu bjart sem okkur virðist kringum okkur; þótt okkur sýnist bœði himin, jörð og haf í einu geisla- baði, þá eru þó altaf einhverstaðar umhverfis stærri og smærri blettir, þar sem sólin nær ekki til. Ekkert er eins dýrmætt né eins nauðsynlegt, eins og sólskinið, það er aflgjafi lífsins. Það er yndi lífsins — það er áhrifamesti læknirinn, sem að náttúran hefir veitt okkur. Allir hljóta að elska það; ef svo er ekki, hlýtur að valda því einhver andleg veiklun. Vér finnurn til Þess, þegar okkur líður ekki vol líkainlega, hversu mikil læknandi áhrif Ijósið og sólskinið get- ur á oss hafl. Þrautirnar mýkjast, andinn yngist, lundin verður lóttari. Rorkell máni fói sig deyjandi þeim á vald, er sólina hafði skapað — það þýðir hinni eilífu, óendanlegu ljósa- dýrð. Það er yndislegt að lifa í Ijósi sjálíur, en það dýrmætasta aí öllu dýrmætu er þó það að geta orðið Ijós á vegum annara, geta varpað þó ekki sé nema einstöku geislum inn i sál þeirra, sem í rökkrinu dvelja, örvænt- ingarfullir og máske sjá enga fram- tíðarvon. Kjör manna eru ákaflega misskift. Sumir eru bornir og barnfæddir við Ijós og lífsgleði, og framtiðin birtist þeim eins og hugljúfur töfrandi draum- ur; heimurinn sýnist rennisléttur leik völlur, aðeins fyrir þá. — En hins vegar eru einstaklingar, konur og menn, sem hafa alút upp í rökkri, við eymd og örbirgð — hafa farið á mis við sólskinið — og þessvegna tapað traustinu á lífinu, Þessir menn eru olbogabörn heimsins, oftast nær eins góðir og mikilhæfir menn í eðli sínu, eins og hinir, en njóta sín al- drei, vinna aldrei sín tilætluðu hlut- verk, vegna þess hve litlar tilraunir hafa verið gerðar til þess að örva þá upp, gera þá bjartsýna, veita meira af sólarljósi inn í sálarlif þeirra, og taka dýpri og innilegri hlutdeild í kjörum þeirra. Þessir menn, þessir hlekkjir í þroskakeðju kynslóðanna, hafa glatast sjálfum sér, glatast þjóð- fólaginu fyrir vanrækslu, fyrir kulda og kæruleysi meðborgaranna. Nærgætni við sjúklinga er óumflýj- anleg og sjálfsögð. En nærgætni og ástundun við olbogabörn þjóðfélagsins er ekki síður nauðsynleg. Enginn veit að hverju barninu mest gagn verður. Kræklóttur frjóangi getur eí til vill orðið hátt og laufþrungið tré, ef sólskinið nær að lauga hann. Harðréttisbarnið getur orðið þegar fram í sækir, öflug stoð undir þjóð- fólagsbyggingunni, svo framarlega, sem sólskininu er ekki bannað að skína á það. Sá er vansæll, þótt hann haldi sig sæian, sem aldrei hefir glatt aðra menn; aldrei varpað Ijósi inn í sál olbogabarnanna, sem í rökkrinu sit.ja fátæk og fáklædd með vonleysið í augunum. Verkefnin eru nóg fyrir hendi, hver- vetna er fólk, sem býr í rökkri, á við skort og áhyggjur að stríða, bæði efnalega og andlega. Þessu fólki þarf að liðsinna. Engin sæla á jarðríki er eins dýr- mæt og sú, að geta orðið öðrum að liði, geta stutt þann sem veikur er, leiðbeint þeim sem viltur er, og lýst upp í kringum þann sem er umkringd- ur af skuggum. Og skuggablettirnir eru alt of margir. Það þarf að veita sólskini inn í hreysi fátæklinganna, inn að hvílu hinna sjúku, inn á hvert einasta heimili. — Það þarf að veita Ijósi yfir landið! Ofanprentuð smágrein er tekin eftir blaðinu Lögbergi, og er ritstjórnar- grein. Suðurland prentar upp greiri- ina, ekki af því að í henni séu nein- ar nýjar kenningar boðaðar, heldur af því að hún reynir að greiða veg- inn fyrir þeim umbótahugsjónum sem einna öiðugast hafa átt með að kom- ast útí lífið. Þessi keuning um hluttekning í annara kjörum, er svo sem ekki ný. Fjöldi frægra rithöfunda hafa barist fyrir henni, hún hefir verið þeim hjartans mál. Ótölulegur grúi blað- rara og lýðskrumara hefir etið hana eftir, og haft hana á vörum sér til að ginna fjöldann. Þessi kenning hefir komist langt í orði en skamt á boiði. Svo skamt að mörgum finst það ekki annað en hræsnisglamur eit.t ef þeir heyra á hana minnfet. —• Hún er meinleg reynslan hún kast- ar kaldri vatnsgusu framan í postula þessarar kenningar, af miklum meiri hluta þeirra skolar hún gyllinguna, hina kælir hún flesta. — Stúdentar í Kristjaníu efndu til blysfarar mikillar heim til Björnstjerne Björnssons einu sinni seinasta árið sem hann lifði. Ræðu sína til stú- dentanna byrjaði Björnsson með því að sogja þeim að sér fyndist að þeirn hlyti öllum að vera kalt þessum blys- berum, og að svo mundi oftast fara að þeim yrði kalt sem bcra vildu Ijós yfir landið. — Þetta var sann- mæli, það hefir reynslan sýnt, en væntanlega verða þó altaf til með öllum þjóðum einhverjir menn sem ekki fleygja blysinu þó þeim verði kalt. Og þá hlýtur eitthvað að vinn- ast á smásaman. -------------- Vinnubrögð þingsins. Séra Sig. Stefánsson flytur venju- lega eina refsiræðu á hverju þingi, þar sem hann átelur sitt hvað er gerst hefir á þingi. Fær þingið á þennan hátt sinn eldhúsdag hjá Sig- urði, eins og stjórnin hjá þinginu. Eru þessar ádeiluræður Viguiklerks Oft allmergjaðar. Nú fyrir þinglokin hafðl Sig. St.ef. flutt eina slíka ræðu um vinnubrögð þingsins, er kafli úr henni prentaður í Lögióttu, vítir Sig. Stef. þar sérstak- lega drátt neðri deildar á málunum, og er sú aðfinnsla víst ekki um skör fram. Að þessu er orðin svo mikil brögð að ekki er viÖunandi lengur. Stærstu og merkustu þingmálin kom- ast ekki til efri deildar oft fyr en komið er að þingslitum, og verður deildin þá að gera eitt af tvennu — afgreiða þau í flýti ihugunarlítið, eins og hún tók við þeim, eða hefta fram- gang þeirra. Annars er þessi ræða Sig. Stef. urn vinnubrögðin góð, og þarft að taka þetta til alhugunar. Það er ekki um skör fram að hann vítir kæru- leysi þingmanna með þingtímann og það er talsvert satt í því að miklum tíma hefir þingið í sumar eytt að ó- þörfu. En réttara hefði verið af Sig. Stef. að flyt-ja áminningaræðu sína í þing- byrjun en í Þinglok. — Það verður eitthvað svo máttlaust þetta, að láta alt ráðast eins og verkast vill, bara fárast yfir því í vertíðarlokin og — byrja svo sama leikinn aftur næst, og enda með sama útgöngu sálmin- um. Tómur leikaraskapur alt saman. ---—o*<x>----- Stefnuskrár. Suðurland birti i síðasta blaði stefnuskránæðu ráðherra. A henni er reyndar ekki mikið að græða. Þar sóst ekki annáð en það sem maður vissi um áður, — góður vilji og eindregiun framfarahugur. — ^

x

Suðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.