Alþýðublaðið - 19.10.1963, Síða 8
v<iuiiiiiiiiiiiiiiuiitiiiiiimniiitiiiiiiMiiiiiiiiuiiiiiiiiiii>iiiiiiiii
Reykjavík, 18. okt. G
SAMKVÆMT upptýsinj
fræðings hjá Almenna
sprengingavinna við Enn
síðkastið. Aðallega er spi
smávegis hefur verið uni
megin frá.
Vonir standa til að s
fyrirtækis heitir Ingvi Sigurjóns-
son og gafst mér tækifæri til að
rabba við hann smástund um dag-
inn, en hann var þá staddur í Silf-
urtúni við Hafnarfjörð.
— Hvenær hófst þessi starfsemi,
Ingvi?
— Fyrir tæpu ári, má ég segja.
Ég held það hafi verið í febrúar
síðastliðnum. Við byrjuðum með
annan bíl í þessu, en þessi er nýr.
Nú er verið að byggja vagn, sem
tengdur verður víð þennan og mun
hann verði tekinn í notkun innin
skamms.
— Hvernig gengur starfsemin?
— Það er óhætt að segja að hún
gangi mjög vel. Fólk tekur þessu
að vísu nokkuð misjafnlega, en
yfirleitt held ég að það sé ánægt
með þjónustuna.
— Farið þið víða?
— Við skiptum deginum milli
hverfa. Fyrir hádegi förum við í
Silfurtún og erum þar frá kl. 9—
12. Síðan förum við í hverfið við
Vífilsstaðaveg og þar erum við frá
2 —3. í Ásgarði erum við frá 3 — 4
og í Hraunsholti frá 4—5.30. Frá
5.30—6, erum við svo í Hraunhól-
um, en það er hverfið andspænis
Vífilsstaðaafleggjaranum. í Reykja
dalshverfi erum við svo frá 6—8.
Við fermum bílinn tvisvar á dag,
fyrst á morgnana og síðan milli
12—2. Á sunnudögum erum við í
Hraunsholti frá 9—10 og í Silfur-
túni frá 10—12.
— Hefurðu starfað lengi við
þetta?
— Ég byrjaði með vagninn, en
hætti svo um tíma og fór að
keyra hjá strætisvögnunum. En í
ágústbyrjun byrjaði ég aftur hjá
Kaupfélaginu.
— Er talið að þessi starfsemi
borgi sig?
— Á því er enginn vafi. Vörurn-
ar eru þó seldar á sama verði og
í kaupfélaginu. Við höfum allar
matvörur á boðstólnum, sem þar
eru fáanlegar. M.a. seljum við fisk
meti hverskonar og kjötvörur af
öllum tegundum. Ennfremur selj-
um við mjólk, enda kaupa þessi
hverfi öll, mjólkina hjá okkur.
— Og að lokum, hvort kanntu
nú betui) við þetta starf, eða
strætisvagnaakstur?
— Þetta er hvort tvegeja þjón-
ustustörf og mjög svipuð.
Framh. á bls. 10
lokið seinnipartinn í i
verði fullbúinn til notku
far hefur verið stirt iu
kvæmdir nokkuð. Samk
inn að vera tilbúinn 1. d<
fyrir hátíðar og er því ó
hafi verið haldið.'=-Myn
4> jiiuMiiiniiiMniiMimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiii
Frí me
Margar tegundir frímerkja
eru til sölu á pósthúsum lands-
ins. Langflest íslenzk frímerki
eru póstfrímerki. Þau eru
kvittun póstafgreiðslu fyrir því,
að burðargjald bréfs send-
anda sé greitt.
Þau eru gjarnan með mynd-
um af landslagi (Gullfoss, Geys-
ir, Dynjandi, Hekla, eða þá úr
atvinnu eða dýralífi (sild, þorsk-
ur, lax, æðarfugl, fálki, blóm,
togari, dráttarvél o. fl.). Næst
má nefna minningarmerki gef-
ín út í tilefni merkisviðburða:
Okkur íslendingum fer stöðugt
fram, m.a. hvað hin ýmsu þjóð-
þrifamál varðar í þjónustum ýmiss
konar hafa framfarirnar orðið hvað
örastar. Ef við tökum til dæmis
viðskiptaþjónustuna, má segja að
þar hafi bylting á orðið hin siðari
ár. Nú er jafnvel svo komið að
verzlanir eru farnar að „rúlla"
fólki milli hæða, í þar gerðum
hreyfistigum.
Um daginn leit ég augum fyrsta
sinn á ævinni, kjörbúð á hjólum
Þessi sjón minnti mig á sokka-
bandsáílin uppi í Mosfellssveijt.
Þá var jafnvel viðleitni að koma
með varninginn til sveitunganna,
en þar var aðallega um fisk að
ræða. Maðurinn sem kom með fisk
inn til okkar í Mosfellssveitina á
þeim árum, var Mýrkjartan Rögn-
valdsson og var hann mikill auf-
úsugestur. Mýrkjartan seldi brauð
áuk fisksins og var brauðkassan-
um komið fyrir fremst á pallinum
á litla bílnum hans. Ófáar munu
þær vera vínarbrauðslengjurnar
sem hann gaf okkur. Þessar lengj-
ur voru hreinasta sælgæti, enda
biðum við þess dags sem Mýr-
kjartan var væntanlegur, með ó-
þreyju. Þegar hann svo loksins
kom, hópuðust börnin í kringum
hann, svo húsmæðrunum sem eetl-
uðu að verzla, veitt.st jafnvel erf-
itt að komast að. Svo skaut hann
Mýrkjartan að okkur lengju og
þá vorum við óðar þotin á einhvern
góðan stað, þar cem hægt var að
sleikja glassúr og háma í sig góð-
gætið.
Ja, þvílíkir dagar.
En það var nú ekki meiningin
að fara að rifja upp vínarbrauðs-
daga á sokkabandsárunum uppi í
Mosfellssveit, heldur skyldi þetta
spjall verða um hinn nýja kjör-
búðarvagn Kaupfélags Hafnfirð-
inga. Stjórnandi þessa sérstæða
Ingvi cg Fríða:
Fermum bílinn tvisvar á dag.
8 19. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ