Verkamaðurinn - 30.12.1926, Side 3
VERKAMAÐURINN
3
Prjóna vélar.
Yfir 50 ára reynsla hefir sýnt og sannað að .Brittannia*
prjónavélarnar frá Dresdner Strickmaschinenfabrik eru öllum prjóna-
vélum sterkari og endingabetri. Síðustu gerðirnar eru með viðauka
og öllum nýtísku útbúnaði.
Flatprjónavélar með viðauka, 80 nálar á hlið, kosta kr. 425,00,
Flatprjónavélar með viðauka, 87 nálar á hlið, kosta kr. 460,00.
Hringprjónavélar, 84 nála, með öllu tilheyrandi kosta kr. 127,00
Allar stærðir og gerðir fáalnegar, nálar og aðrir varahlutir út-
vegaðir með mjög stuttum fyrirvara. Sendið pantanir yðar sem fyrst
til Sambandskaupfélaganna. I heildsölu hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga.
Það, sem Jólablaðið segir um Verkam.
og síðasta landskjör er vanalegur »ls-
lendingssannleikur«, auðsjáanlega ekki
skrifaður fyrir »hugsandi fólk«.
Eins og allir sjá, sem hafa lesið
Verkam., lýgur »lsl.« upp og hefir
endaskifti á öllu til að fá tækifæri til
að reka flórspaða sinn í Stórstúkuna,
eins og alt annað, sem þjóðinni er gagn
og sómi að. Álítur hann máske að hann
geri þetta fyrir húsbændur sína, og er
honum þá vorkunn.
F r é 11 i r.
(Eftir símtali við Rvík 28. Des.)
Útlendar: Ríkisþing Dana hefir sam-
þykt að innleysa seðla með ómótuðu
gulli.
Viðsjár með Bandaríkjunum og
Mexico.
Nýlega dæmdi franskur herréttur 4
Þjóðverja til dauða, en stjómin treyst-
ist ekki til að framkvæma dóminn og
breytti honum í fangelsishegningu.
Járnbrautarslys varð í Bandaríkjun-
um rétt íyrir Jólin. 30 menn fórust,
margir særðust.
Innlendar: Jakob Gunnlaugsson stór-
kaupmaður í Kaupmannahöfn dáinn.
Á aðfaranótt annars Jóladags féll
vatns- og aurskriða yfir bæinn Steina
undir Eyjafjöllum. Fólk bjargaðist
nauðulega og mestum hluta búpenings
varð einnig bjargað. Bærinn og túnið
grófst litlu síðar algerlega undir aur
og grjót, og er talinn úr sögunni. Skrið-
ur hlupu víðar undir Eyjafjöllum þessa
nótt og gerðu skaða á túnum og engj-
um.
Kíghósti í nokkrum húsum í Reykja-
vík, en vægur.
Ómuna veðurblíða um alt Suðurland
undanfarið.
Hafnfirðingar hafa efnt til veru-
legra atvinnubóta fyrir verkamenn.
Mest við grjótupptekt og flutning. Um
150 manns njóta nú atvinnubótavinnu í
Reykjavík.
Fjögur kolaskip komu til Reykjavíkur
upp úr Jólunum. Kolin komin ofan í
12 krónur skippundið. Togaramir tín-
ast á veiðar einn og einn.
M O L A R.
Jóhannes Jósefsson sýndi íslenska
glímu og fl. listir á einu stærsta ltik-
húsinu í París s. 1. sumar. 1 haust ferð-
aðist hann um Þýskaland með flokk
sinn og sýndi og var hvarvetna tekið
með hrifningu. Var hann fomaldar-
víkingur í augum fólksins og hafður í
hetjutölu. Jóhannes gerir meira en
sýna listir sínar þar sem hann fer um.
Hann leggur mikla stund á að kynna
lsland, forníslenskar bókmentir og ís-
lenska menningu, hvarvetna sem hann
fer. Hann er alstaðar Islendingur fyrst
og fremst, og í viðræðum við blaðamenn
allra landa — og þær eru margar — er
fslartd fyrst. Hann fylgist mjög vel
með í öllu, sem gerist hér heima, og
er alstaðar viðbúinn að leiðrétta mis-
sagnir um land og þjóð.
Sigurður Skagfeldt söngvari dvelur
nú við söngnám suður í Rostock í
Þýskalandi. Fór hann þangað að af-
loknu prófi við ópemna í Höfn s. 1. vor.
Skrifaði hann Verkam. nú fyrir jólin
og bað hann flytja öllum góðum kunn-
ingjum hér nyrðra bestu kveðju sína.
Lætur hann hið besta yfir sér, en
harmar það, hve seint hann fór í skóla
til Þjóðverja. Býst hann við — með
ástundunarsemi — að geta lokið nám-
inu á tiltölulega stuttum tíma.
Ungfrú Hermína Sigurgeirsdóttir
söngkennara hér sigldi í haust til Hafn-
ar og gekk undir próf við Kgl. Musik-
konservatorium og hefir hlotið þriggja
ára »frípláss« við skólann. Hlaut hún
einróma lof og atkvæði prófdómaranna
og var ein af sjö umsækjendum, er
hlaut aðgang, en þeir voru 47. Verkam.
er skrifað frá Höfn, að kennari hennar
við skólann hæli henni mjög. Er hún
fyrsti Islendingurinn, sem fær aðgang
að skólanum.
Vestanpóstur fer 5. Jan. n. k.
Einmuna góðviðri hefir verið undan-
farið. Jörð varð rauð á láglendi, og
vatnavextir í ám og lækjum sem á vor-
degi.
Fundur verður haldinn í Verka-
mannafélagi Akureyrar kl. 1 á Sunnu-
daginn. Fundurinn verður auglýstur á
götunum.
21. þ. m. andaðist ekkjan Kristín Jó-
elsdóttir, Aðalstræti 12. Hún var ekkja
Sumarliða heitins pósts Guðmundsson-
ar, sekstug að aldri. Atgerfis- og mynd-
arkona.
Ritstjóri og ábyrgðarmaðvu’:
Halldór Friðjónsson.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.