Verkamaðurinn - 30.12.1926, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
Peninga/r fundrár á götunni. Vitjist til
Sveinbjamar Angantýrssonar, Ytra-
Melhúsi.
Hjartans þakkir
til allra þeirra mörgu, fjær og nær, sem
á margvíslegan hátt hafa sýnt okkur þá
stóru samúð og hluttekningu í orði og
verki,, er við, á gamals aldri, urðum
fyrir þeirri sáru sorg, er Guð burtkall-
aði úr þessum heimi okkar elskulegu
dóttur og systur, Ingibjörgu Jóhannes-
sínu Eyfjörð, sem fórst með skipinu
»Balholm« á leið til Reykjavíkur. Eink-
um og sjerstklega þökkum við þeim
mörgu, sem hafa glatt okkur með gjöf-
um, og minningargjöfum um okkar
kæru dóttur og systur. Blessuð sje
minning hennar!
Jesús Kristur segir: Það, sem þér
gjörið einum af mínum minstu bræðr-
um, það gjörið þér mér, — og: Það,
sem þér sáið, það munuð þér uppskera.
Alla þá hluttekningu, er okkur hefir
verið auðsýnd, biðjum við almáttugan
Guð að launa af ríkdómi sinnar náðar.
Þess óskum og biðjum við af hrærðu
hjarta.
Guðrún Símonardóttir. Loftur Jónsson.
Guðbjörg Loftsdóttir. Jón Ól. Loftsson.
Úr bæ og bygð.
25. þessa mánaðar andaðist hér á
Oddeyri Oddgeir Jónsson, Stefánssonar
smiðs, 27 ára gamall. Sérstaklega vand-
aður og vel látinn maður. Hann var
undirforingi í Hjálpræðishernum. — Á
Jóladagsmorgun andaðist í Norðurgötu
6b Gísli Þorláksson verkamaður, stjúp-
faðir Steingr. sál. Hansen. Hann var á
sextugsaldri.
Sölubúð Kaupfélags Verkamanna
verður lokuð frá 1.—10. Jan., vegna
vörurannsóknar.
Tréskurðarnámskeið
heldur U. M. F. A. Janúar og Febr. mánuð n. k.
Kennari Geir G. Pormar. — Peir sem ætla að sækja námskeiðið, geff
sig fram við undirritaða, fyrir 3. Janúar, er gefa allar nánari upplýsingar.
Akureyri 27. Des. 1926.
Tryggvi [ónatansson Guðjón Bernharðsson Guðm. fónsson
múrari. gullsmiður. Eyrarlandi.
Verslunin Braffahlíð
selur nú fyrir nýárið margar tegundir af
Flugeldum (Fyrværkeri).
Bæjarstjórnar-
kosning.
Fimtudaginn 20. Janúar n. k. fer fram kosning
til 6 ára á fjórum bæjarfulltrúum til bæjarstjórnar
Akureyrarkaupstaðar. Kosningin verður háð í
Samkomuhúsi bæjarins, Hafnarstræti 57, og hefst
kl. 12 á hádegi.
Framboðslistum sé skilað til formanns kjörstjórnar,
eigi síðar en hálfum mánuði fyrir kosningu.
Ðæjarstjórinn á Akureyri 29. Deseraber 1926.
Jón Sveinsson.
TILBGÐ
Messað verður um Nýárið, sem hér
segir.
Gamalárskvöld: Akureyri kl. 6 e. h.
Nýársdag: Akureyri kl. 10 f. h.,
Lögmannshlíð kl. 1 e. h.
2. Janúar: Möðruvöllum.
óskast í sorphreinsun í Akureyrarkaupstað fyrir árið 1927.
Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 8. Janúar n. k., sem
og gefur allar nánari upplýsingar um starfið.
Bæjarstjórinn á Akureyri 29. Desember 1926.
Jón Sveinsson.