Verkamaðurinn - 02.09.1930, Síða 2
2
VERKAMAÐURINN
Til þess að bregða ofurlitiu Ijósi
yfir hvernig ástatt er um þessa
hluti sumstaðar þar, sem íhaldið
stendur föstustum fótum, skal hér
getið atviks, sem kom fyrir s. I. ár,
og Verkam. er vel kunnugt um. v
Ungur maður kemur til Verkam.
og biðst eftir að fá nokkur eintök
af blaðinu til að sýna nágrönnum
sínum, og fá þá til að lesa það og
kaupa. Sagðist honum svo frá, að
í kringum sig sæist ekkert annað
blað en íhaldsblöðin. Hann fékk
blaðið eins og hann óskaði eftir og
um næsta nýár á eftir var maðurinn
spurður um hvernig gengi að fá
karlana til að kaupa. — Ja, að
fá þá til að kaupa blaðið var nú
ekki um að ræða. Þeir þektu ekki
hvað það væri að kaupa blað. Peir
fengju ihaldsblöðin gefins eins og
þeir vildu, og sumir jafnvel, þó
þeir vildu ekki. Reyndar þætti þeim
margt »ansi gott< í Verkam. en
þeir þorðu ekki annað en fara í
felur með hann, því hvorki kaupm.
eða formennimir á bátunum máttu
vita um að þeir væru að lesa
>bolsablað<.
Svona er nú ástandið ennþá í
hinu borgaralega þjóðfélagi, þar sem
allir baða sig í geislum frelsisins,
eftir því sem borgarablððin segja
fólkinu.
------o------
Úr bœ og bygð.
Nýja-Bíó sýnir »Villiblóm« í kvöld og
»Næturskugga« annað kvöld.
Ráðskonuskifti verða í Kristnesi nú í
haust. Ungfrú Ása Jóhannesdóttir læt-
ur af þeim starfa, en við tekur frú Jó-
hanna Kondrup, sem undanfarið hefir
haft umsjón með verslunarmanna- og
Oddfellóva-húsinu hér í bæ.
Dómsmálaráðherra og fræðslumála-
stjóri komu til bæjarins fyrir helgina.
Meðal annars mun ráðherrann vera
kominn til að vígja síldarbræðsluverk-
smiðju ríkisins á Siglufirði, en sú at-
höfn á að fara fram á Föstudaginn
kemur.
Pann 15. Ágúst þ. á. var 5. þing
»Rauða verklýðs-alþjóðasambands-
ins« sett í Moskwa að viðstöddum
fulltrúum frá öllum löndum jarðar-
innar. Oetur þar að líta hina full-
komnu sameiningu verkalýðs án
tillits til þjóðflokka, litarháttar, trúar-
bragða eða annara skoðana.
Á þingi þessu mæta nú í fyrsta
sinn fulltrúar frá íslensku verklýðs-
hreyfingunni. Var vinstri arminum
boðið að senda þangað 3 fulltrúa
og sá Verklýðssamband Norðurlands
um kosningu þeirra i samráði við
róttækari verklýðsfélögin syðra.
Voru fulltrúarnir kosnir í þeim verk-
lýðsfélögum þar sem hægt var að
koma kosningu við, t. d. Verka-
mannafélagi Akureyrar, Verklýðsfé-
lagi Glerárþorps o. fl. Kosnir voru
þeir Jón Rafnsson, formaður Verka-
mannafélagsins »Drífandi« í Vest-
mannaeyjum, — er hann norðlenskum
verkalýð að góðu kunnur úr Krossa-
nesverkfallinu, — Aðalbjörn Péturs-
son og Tómas jónsson frá Reykjavík.
Sitja þeir nú þing þetta þar eystra.
— Verklýðssambandi Norðurlands
var einnig boðið á 4. þing »R. V.
A.c í Moskwa 1928 en gat þá ekki
sent fulltrúa.
»R. V. A.« telur nú um 17
miljónir verkalýðs fylgjandi sér og
er þvf sterkasta verklýðssamband
heimsins. Eru áhrif þess breidd út
um víða veröld. í Evrópu er það
sterkast í Ráðstjórnarríkjunum, Frakk-
landi og Tshekkoslovakiu, en mjög
áhrifaríkt í Pýzkalandi, Póllandi og
Englandi. Utan Evrópu er það
sterkast í Kína og Suður Ameríku.
Félög þau og verklýðssambönd, sem
eru í »R. V. A.«, eru víða ofsótt
og jafnvel bönnuð, þvi þau víkja
hvergi í stéttabaráttunni og svikja
ekki verklýðshreyfinguna, hvað sem
á dynur.
Hinsvegar hefir »Amsterdam-sam-
bandið«, sem sosialdemokratar er-
lendis ráða, sýnt sig að hinum
hörmulegustu svikum við verkalýð-
inn, eins og eftirminnilegast var í
enska allsherjar- og kola-verkfallinu.
Enda fer óánægja verkalýðsins með
»Amsterdam-sambandið« stöðugt
vaxandi og fækkar því meðlimum
sífelt. 1923 í árslok var tala með-
lima 15,316,127, en 1926 12,839,174.
Og jafnvel meðal stjórnendanna vex
þessi óánægja, svo menn eins og
t. d. Edo Fimmen, ritari þess, ger-
ast meðmæltir þeirri tillögu »R. V.
A.< að sameina bæði samböndin i
eitt allsherjarsamband verkalýðsins
á stéttagrundvelli, en það mega
hinir drotnandi sosialdemokratar
»Amsterdam-sambandsins ekki heyra
nefnt.
»Rauða verklýðs-alþjóðasamband-
inu (R. V. A.) vex mjög fiskur um
hrygg við hinn geysilega vðxf
sosialismans í Rússlandi og sigra
verkalýðsins þar i atvinnulífinu.
Jafnhliða harðnar baráttan út i auð-
valdslöndunum sakiraukins atvinnu-
leysis, launalækkunartilrauna auð-
valdsinsog versnandi kjara verkalýðs.
Hlutverkin, sem bíða þessa fimta
þings »R. V. A.« eru því geysileg,
Einmitt varnaðarráðstafanir verka-
lýðsins um allan heim gegnheims- ,
kreppunni ér mesta nauðsynjamálið,
sém verkalýðurinn nú þarf að ákveða
um. Einnig hér á landi mun ekki
veita af að verkalýðurinn standi
sameinaður, þegar árás atvinnurek-
enda á kaupgjald hans hefst.
Hinar almennu kröfur, sem »R.
V. A.« berst fyrir að verkalýðurinn
fylki sér um eru þessar:
1. Barátta gegn lengingu vinnu-
dagsins, fyrir 7 stunda vinnudegi
og 6 stunda vinnudegi í neðanjarðar-
námum, við heilsuspillandi vinnu
og fyrir unglinga yngri en 18 ára.
(Petta er alt saman komið í fram-
kvæmd i Rússlandi).
2. Barátta gegn öllum ráðstöfun-
um auðvaldsins, sem standa f sam-
bandi við gjðrnýtingu þess á fram-
leiðslutækjunum, með þvf að hækka