Verkamaðurinn - 16.06.1936, Side 4
4
VERKAMAÐURINN
Jóhann Jósefsson, hinn þýski »kon-
súlU var látinn vinna að fyrir
landsins hönd. Vinnubrögð Ólafs
Thors og Kveldúlfsklíkunnar, sem
valdhafar þjóðarinnar hafa fengið
»fjöregg« íslensku þjóðarinnar i
greiparnar, og þeir svo kasta
hundruðum þúsunda af arði hinna
hraustu, íslensku sjómannastéttar
sem mútufé í gin ítölsku fasistanna.
Þetta er aðeins til að sýna vinnu-
brögð fámennrar auðmannakliku í
Reykjavík, sem hrifsar til sín auð-
æfi landsmanna og í krafti þeirra
beitir áhrifum sínum til að undirbúa
jarðveginn fyrir fasismann hér
heima.
Til varnar gegn fasisma, stríði og
hungri býst nú hinn íslenski verka-
lýður og heitir á alla friðarvini, í
nafni sjálfstæðis og frelsis þjóðar-
ínnar til samstarfs. Með sterkri
samfylkingu smábænda, verkalýðs
og millistétta ásamt öðrum friðar-
vinum, er hægt að knýja núverandi
valdhafa til að breyta um stefnu í
stjórnmálunum, til að hætta að
skríða fyrir ensku yfirdrottnunar-
stefnunni og öllu Ieynimakki við
fasistana, til að tryggja markað fyr-
ir framleiðslu þjóðarinnar, án þeirra
ókjara, sem nú ríkja í sambandi við
hinn þrönga markað fyrir íslenskar
afurðir, sem við nú búum við. Eina
leiðin til slíkrar úrlausnar er að
leita samninga við Sovétlýðveldin á
vináttu- og viðskiftagrundvelli. Ef
þeir samningar tækjust væri okkur
trygður markaður fyrir okkar afurð-
ir án þess við þyrftum að óttast að
við yrðum beitt neinum afarkostum,
eins og við má búast, ef að til stríðs
kemur og við þurfum að sækja alla
sölumöguleika og vörukaup til her-
veidanna. Sovétlýðveldin er það
eina ríki, sem virðir þjóðernislegan
rétt og frelsi smáþjóðanna og
mundi breyta samkvæmt því.
Sjóvetlingar
fást í
Pönlunarfélaginu.
Ábyrgðarm.: Þóroddur Guðmundsson.
Robert
Abraham
hélt piano-hljómleika í Sam-
komuhúsi bæjarins 11. þ. m.
Viðfangsefni voru tvær sónötur
eftir Beethoven (E-dur op. 109
og As-dur op. 110) og ein eftir
J. Haydn (F-dur). Á undan
hljómleikunum flutti hann stutt
erindi til skýringar.
Hr. R. Abraham er hámennt-
aður listamaður og snillingur að
leika á piano, og voru hljómleik-
ar þessir í einu lærdómsríkir og
hrífandi. Hann er i senn tilfinn-
inganæmur og myndugur píanó-
leikari, og flutningur hans er
með afbrigðum skýr og laus við
allt það, sem blékkir lítt þrosk-
aða áheyrendur og kemur þeim
til að álíta hljóðfæraleikarann
snjallari en hann er í raun og
veru. Hr. Abraham er einn
þeirra sönnu og göfugu túlkandi
listamanna, sem er meira annt
um listina sjálfa og réttan skiln-
ing á listaverkinu en að vekja
eftirtekt á sínum eigin yfirburð-
um. Slíkur alhliða-menntaður
tónlistamaður gæti unnið hér ó-
metanlegt og óútreiknanlegt gagn,
ef starfskraftar hans fengju notið
sín og menn kynnu að meta
hann réttilega.
Akureyri, 15. júní 1936.
Askell Snorrason.
Meinleg prenlvilla.
í fregnmiða peim, sem »Verkam.«
gaf út í gær hafði fallið niður á eftir
orðunum »á lökustn skipunum« í 18.
linu að neðan frá.
En setningin átti öll að hljóða
þannig:
»En það er ekki aðeins Erl. Friðj.,
sem er notaður til þess að reyna að
koma í veg fyrir það að sjómennirnir
á lökustu skipunum hafi jafngóð kjör
og sjómennirnir á betri skipunum, því
þeir áttu samkvæmt samningi hans að
hafa verstu kaupkjörin.«
Lelðréfflng. í greininni >Sjúkra-
tryggingar* í siðasta fbl. stóð að hið
opinbera greiddi hluta í sjóði sjúkra-
samlaganna en átti að vera % hluta og
meðlimir sjúkrasamlaganna 2ls.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
fÞessi grein er tekin upp úr tima-
ritinu »Veien frem«, en norska skáldið
góðfræga Nordahl Grieg er ritstjóri
þess. Hann hefir skrifað þessa smá-
grein, sem á brýnt erindi til allra
róttækra lesenda.)
Við vitum það öll: hvað Norð-
urlönd vilja. En öll verðum við
svo sáralítið vör við það í verk-
inu.
Dæmi: Eitt af Norðurlöndum,
Island, stendur utan refsiaðgerð-
anna við Italíu. Pað hefir neit-
að að taka þátt í baráttunni gegn
striði fasismans, jafnvel á þenn-
an milda hátt. Valið var ofur
einfalf: friðarstarf eða saltfisks-
sala!
Það liggja enn ekki fyrir tölur
um fjárhagslegan gróða fslands,
en eitt er víst: Um leið og Ítalía
tekur aftur upp eðlileg viðskifti
við umheiminn, fær ísland sín
laun. það mun hagnast vel á
því að skerast úr leik.
Nú koma upp i Noregi ákveðn-
ar raddir um það, að Noregur
eigi að sigla í kjölfarið. Hvers-
vegna eigum við að bera skað-
ann? Þetta varpar bara svolitl-
um glampa yfir myndina: Norð-
urlönd undir fána friðarins!
í Noregi höfum við sósialist-
iska stjórn. Meðlimir hennar
vita hvað verkfallsbrjótar eru.
Við skorum á stjórnina að gera
alt sem í hennar valdi stendur,
til að binda enda þetta siðlausa
og spilta ástand og krefjast þess,
að Norðurlönd framkvæmi refsi-
aðgerðirnar undanbragðalaust.
Því er ekki að neita: það er
lítil alvara í friðarstarfsemi Norð-
urlanda, í fórnfýsinni og fram-
kvæmdinni. En við hljótum
að krefjast lágmarks af heiðar-
leika í norrænni pólitík.
Húsgagnaáburður,
FÍX (Ræstiduft & Pvottaduft),
Brauðdropar.