Verkamaðurinn

Útgáva

Verkamaðurinn - 15.08.1936, Síða 2

Verkamaðurinn - 15.08.1936, Síða 2
2 VERKAMAÐURINN Laugardags og sunnudagskvöld kl. 9: Gull til Singapore. Aðalblutverkin leika: €Iark Gablc, Jean Haerlow, Wallaec Becry. Börn fá ekki aðgang. Sunnud. kl. 5. Aip.sýn. Niðursett verö. WEEK-ENÐ. Elliglöp eða hvað? Formaður Framsóknarflokks- ins befir undanfarið skrifað nokkr- ar greinar í blöð flokksins i til- efni af verkfalli bænda og verka- manna í kjördæmi hans. Verk- fall þetta var gert til að koma í veg fyrir rangsleitni og ofriki gagnvart viðurkendum samvinnu- manni í sveitinni. Þessi skrif J. J. eru með þeim hætti að fáir góðir Framsóknar- menn geta skilið þau eða skrif- að undir. í síðasta tbl. »Tímans« veitist hann sérstaklega að göml- um samherja, Sigurjóni á Laug- um, fyrir það að hann leiðrétti framúrskarandi hlutdræga frásögn J. J. um sámtök bændanna á móti ofríki því, sem þeir voru beittir. Er ekki golt að sjá hvort skrif J. J. eru sprottin af þröngsýni, sem færist yfir marga menn með aldrinum, eða að þessi kunni framíaramaður fylgist ekki leng- ur með hinum breyttu viðhorfum og atvinnuháttum í sveitum landsins. Þegar blásnauðir sjómenn í Rvík lögðu út í fyrsta verkfallið árið 1915, til þess að rétta hlut sinn gegn ofríki útgerðarmanna og braskara, vann J. J. af heilum huga með sjómönnum, sem urðu að beita samtökum til að koma fram málum sínum. J. J. hefir manna mest unnið að þvf, að skapa kaupfélög bænda og ýmiskonar samtök á móti kaupmannavaldi og braskaralýð íhaldsins. Alhliða barátta á móti aftur- haldsöflum landsins, en fyrir auknu lýðræði og framfaramálum bænda mun hafa verið æskuhug- sjón J. J. Er því eðlilegt að gamlir sam- herjar, sem eru trúir æskuhug- sjón sinni, geti ekki lengur fylgst með þegar J. J. ræðst á bændur fyrir það, að láta ekki ofríki,sem ihaldsmönnum einum er sam- boðið, viðgangast gagnvart einum kunnum samvinnufrömuði á æskustöðvum kaupfélagsskapar- ins í landinu. Á síðari tímum hafa atvinnu- hættir bænda breyst talsvert. Fá- tækir bændur og bændaalþýða hefir dálitlar tekjur af launavinnu við vegagerð o. fl. samfara bú- skapnum. Af þessum ástæðum hefir bæudaalþýðan í nokkrum sveitum landsins stofnað með sér hagsmunasamtök, sem er ætlað að koma fram áhugamál- um bændaalþýðu, hagsmuna- og menningarlegum, að sínu Ieyti eins og verkalýður bæjanna stofnar verklýðsfélög. Þessi breyttu viðhorf i sveit- unum, virðist J. J. ekki geta skilið til hlýtar, enda mundi hann að öðrum kosti ekki berj- ast af sllku kappi á móti nauð- synlegum nútima-samtökum bænda. Skrif J. J. eru þó enn alvar- legra umhugsunarefni fyrir frjáls- lynt bændafólk. Bæði í »Nýja dagblaðinu« og »Tímanum« hefir hann skrifað fjölmargar greinar, þar sem koma fram uppgjafatil- hneigingar gamals manns. Er skemst að minnast þess, að um- rædd blöð veitast á móti sam- vinnu- og lýðræðissinnum á Spáni, sem verða nú að verja lýðveldið gegn ofbeldi fhalds- og »Kveldúlfsliði< á Spáni. Þegar Jónas Þorbergsson gengur úr Framsókn, þá verðlaunar J. J. hann með hólgrein, og virðist þar halda fram sömu skoðun og Morgunblaðið, að Framsóknar- menn geti ekki verið hlutlausir! Þegar bændur gera samtök á mótí ofbeldi, kallar J. J. það ofbeldi að hætti Morgunblaðsins. í næsta blaði verður nánar vikið að þessari þróun J J. og þeirri hættu, sem alþýðu landsins stafar af því, að vinstri menn eins og J. J. taka upp háttu fhaldsmanna, samtimis því sem íhaldið hefir hafið sókn til þess að ná völd- um í landinu og eyðileggja lýð- réttindi og hagsmunasamtök verkamanna og bænda. Hamslaust ihald. Fyrir stuttu fékk Pöntunarfé- lagið í Rvik fyrstu vefnaðarvöru- sendinguna og opnaði um leið nýja söludeild fyrir þessar vörur. Verð þessara vara var svo lágt, að þær seldust mestallar upp á nokkrum dögum. Morgunbl., málgagn stórkaupm. og okrara, varð viti sínu fjær út af því, að Pöntunarfél. skyldi fá innflutningsleyfi, en eins og kunn- ugt er, munu nær 1500 fjölskyldur vera i félaginu og gramdist Mbl. að þetta alþýðufólk gat skapað sér hagkvæmari kjör, án allra milliliða. Morgunbl. hefir skrifað margar ofstækisfullar greinar um þetta og krefst að neytendasamtök al- mennings fái engin innflutnings- leyfi, en að heildsalarnir (milli- liðaokrararnir) fái þau. Samtimis þessum hamskiftum, sem afhjúpa hið sanna innræti íhaldsins, skrifar Mbl. um lýðræði og athafnafrelsi og sjálfstæði. Þannig eru starfshættir óðra fas- ista.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.