Verkamaðurinn - 16.04.1938, Page 2
2
VERKAMAÐURINN
NÝJA-BÍÓ
Annan i páskum kl. 5 og
kl. 9 — 2 sýningar.
Tal- og hljómtnynd í 10 þátt-
um. — Aðalhlutverkið leikur
undrabarnið heimfræga
Shftrley Temple
ásamt John Boles,
Karen Mortey
og Bill Bobinson.
Þriðjudagskvöid kl 9:
í bjðrtu báli.
Sannsðgulegar myndir frá
striðinu á Spáni.
Útgerðarmál Akureyrar
(Framh. af 1. síðu).
og þá hvernig hún skyidi starf-
rækt. Síðan hefir nefndin aflað
sér nokknrra upplýsinga um verð
og greiðsluskilmála á skipum,
bæði togurum og miuni skipum.
Eosta nýir togarar í Englandi,
500 smál. stórir, um 700 þús. kr.,
en 7 til 10 ára gamlir um 150 til
200 þús. kr. Þá er á boðstólum
nýtt vélskip i Hollandi rúmar
100 smál. með 225 h.a. dieselvél
fyrir um 70 þús. kr. og er það
útbúið fyrir botnvörpuveiðar (en
mundi henta hér vel til síldveiða
og línuveiða).
Um tillögur til bæjarstjórnar —
um framkvæmdir — komst nefnd-
in ekki að neinni sameiginlegri
niðurstöðu, og var því vonlitið
um frekari árangur fyrst um
sinn.
Fulltrúar verklýðsflokkanna
fengn því málið tekið upp á bæj-
arstjórnarfundi s.l. þriðjudag, utan
dagskrár. Var eftir nokkrar um-
ræður samþykt eftirfarandi tillaga
með 9 samhljóða atkv.
• Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkir að kjósa 5 manna nefnd
til að vinna að því, að aukin
verði útgerð héðan frá Akureyri;
og athugi hún þá möguleikana
fyrir þvi, að nú þegar verði keypt
a. m. k. eitt nýtt vélskip, sem
hæft væri til útgerðar héðan
sumar og vetur.
Að öðru leyti skal nefndin sér-
staklega vinna að því:
1. Að leita nú þegar undirtekta
bæjarmanna um þátttöku i stofn-
un hlutafélags til skipakaupa og
útgerðar.
2. Að leita eftir opinberum
styrk til umgetinna skipakaupa.
Sé þá sérstaklega leitað til Fiski-
málanefndar.
3. Að leita eftir föstu láni, t. d.
úr Fiskiveiðasjóði fyrir svo sem
hálfu kaupverði skips. Ennfremur
að Ieita eftir nauðsynlegu rekst-
ursfé.
Jafntramt felur bæjarstjórn
fjárhagsnefnd að rannsaka mögu-
leika fyrir hlutdeild bæjarsjóðs í
ofannefndri hlutafélagsstofnun, t.
d. með hlutafjárframlagi eða öðr-
um stuðningi«.
1 nefndina voru kosnir þeir
Jóhann Frfmann skólastj., Tryggvi
Helgason, sjómaður, Jón Hinriks-
son, vélstjóri, Svavar Guðmunds-
son, banksatj. og Axel Kristjáns-
son, kaupmaður.
Með þessari ákvörðun hefir
rnikili meiri hluti hinnar nýkjörnu
bæjarstjórnar tekið undir það, að
ekki verði lengur hjá því komist,
að gera verði alvarlega tilraun til
að vinna hinn gamla grundvaliar-
atvinnuveg bæjarbúa — sjávarút-
veginn — upp úr þeirri niður-
niðslu sem hann er kominn í*
Og að þetta verður ekki gert svo
nm muni öðruvísi en með al-
mennum félagssamtökum með
þátttöku og forgöngu bæjartélags-
ins. Er þetta ekki að ófyrirsynju,
þar sem nú um alllangt ára bil
hefir naumast sést skip renna í
Akureyrarhöfn með afla. Akureyr-
arflotinn, sem er að miklu leyti
frá 19. öldinni, hefir að vísu gengið
í 2'/2 mánuð yfir síldveiðitímann,
en með mikið lakari árangri en
veiðifloti annara bæja og þorpa,
sem betur er úr garði gerðnr.
Mörg skipin eru mönnuð, mann
fyrir mann úr öllum áttum —
nema héðan frá Akureyri. Afli
skipanna flestra, hefir heldur —
umfram ait — ekki mátt leggjast
upp á Akureyri. Aftur er skipa-
floti allra hinna bæjanna og fiski-
þorpanna gerðurútö til 10 mán-
uði og alstaðar helst til að manna
skipin heimamönnum og að skila
aflanum i heimahöfn, að svo
miklu leyti, sem mögulegt er. 1
þessu er Akureyrarútgerðin ein
undantekning. I^ess skal þó geta,
að hér eru til útgerðarmeon, sem
brjóta þessa reglu.
A þessu ári fækkar hérna a.
m. k. um 8 skip. Eru nokkur
þeirra seld burt en öðrum lagt
upp. Er í mörgum þessara skipa
lítil eftirsjá, að öðru Jeyti en því,
að um 30 sjómenn héðan úr
bænum, sem verið hafa á þeim
undanfarin sumur, eru nú skip-
rúmslausir fyrir næstu vertið.
Er þess því að vænta að hin
kjörna nefnd, af nýju bæjarstjórn-
inni, komi nú fljótt og vel til
starfa, og að bæjarstjórn og bæj-
armenn alliient leggi hönd að því
að í stað hinna átta gömlu skipa
sem fara, komi nú, þegar liðin
eru rétt 20 ár síðan nýtt skip
kom í eign Akureyrar, o. m. k.
eitt nýlt Skip á þessu ári, sem veitt
gæti 18 sjómönnum bæjarinssæmi-
legt skiprúm í 8-9 mánuði árlega.
Ætti útgerð eins fullkomins véla-
skips að færa 30 heimilum bæj-
armanna atvinnu. Og er þess þá
von að fleiri komi í kjölfar þess,
og að Akureyrarhöfn komist
aftur í röð skipahafna, þar sem
fiskiskip koma inn með afla sinn,
og fara út til veiða, f stað þess
að vera höfn bundinna skipa.
Það er áreiðanlega tími til þess
kominn, að við Akureyringar leys-
um þennan gamla atvinnuveg
okkar úr fjötrum, því án hans
megnm við ekki vera.
lðnskólanum
verður slitið laugardaginn 23. apríl kl.
8,3o f Iðnskólahús'nu. Að þv{ loknu verður
kaffidrykkja og dans að Hótel Akureyri.
Aðgöngumiðar verða seldir {Iðnskólanum
fimmtudaginn 21. aprjl frá kl. 5,10—7,30.
Eldri nemendum skólans er heimil þátt-
taka