Verkamaðurinn - 01.10.1938, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
eftir að sjúklingurinn fer af hæl-
inu, er honum ætlað að vera virk-
ur þegn í þjóðfélaginu og alveg
sleppt af honum hendinni, er það
því alveg undir aðstæðum hans í
þjóðfélaginu komið, hvort honum
tekst að halda þeim bata, er hann
hefir fengið með langri hælisvist.
Meginþorri þess fólks, sem fyr-
ir veikinni verður, hefir átt við
harla erfið lífsskilyrði að búa, ill
húsakynni og annað það sem fá-
tæktinni er samfara. Það er því
ljóst, að þegar fólk, eftir að hafa
haft góðan aðbúnað í langan
tíma, hverfur aftur til fyrra líf-
ernis, í basl og flestum tilfellum
atvinnuleysi, sækir fljótlega í
sama horfið aftur. Þessu fólki
þarf að hjálpa til að fá atvinnu
við sitt.»hæfi eða veita því styrk
og hafa jafnframt eftirlit með að
allur aðbúnaður sé þannig að
heilsunni stafi ekki hætta af
honum. Hér eru það bæir og ríki,
sem eiga að ryðja brautina og
verða gerðar ákveðnar tillögur í
þá átt af framkvæmdanefnd
Sambands íslenzkra berklasjúkl-
inga.
Takmarkið er alger útrýming
berklaveikinnar á íslandi.
20. þ. m. hélt Jafnaðarmanna-
flokkurinn í Amsterdam og hin
frjálsu fagfélög afarfjölmennan
mótmælafund gegn uppgjafapóli-
tík Osloríkjanna í Genf og gegn
svikum Chamberlains við tjekk-
neska lýðveldið. Formaður Jafn-
aðarmannaflokksins, Vorrink,
sagði m. a. í ræðu er hann flutti:
„Osloríkin með Holland í broddi
fylkingar hafa verið rekin ves-
ældarlega á flótta“. — — —
„Chamberlaíns friður er ekki
okkar friður“.
Á þeim tveim mánuðum, sem
liðnir eru síðan uppreistarmenn
hófu gagnsókn við Ebro-fljótið
hafa fallið og særst um 50.000
manns úr liði þeirra á þessum
slóðum. Vígstöðvarnar eru nær
alveg þær sömu og fyrir 2 mánuð-
um.
Kartöflugeymsla.
Móttaka á kartöflum í kartöflugeymslu bæjarins hefst 3. okt.
n.k. og verður daglega tekið á móti kartöflum frá þeim, sem
geymslurúm hafa pantað, frá kl. 3 til 6,30 síðdegis.
Peir, sem geymslurúm hafa pantað, verða að leggja kart-
öflurnar inn til geymslu fyrir miðjan október, annars verður
plássið öðrum leigt.
Kartöflurnar aðeins mótteknar gegn greiðslu geymslugjalds-
ins sem er 2 og 3 krónur fyrir hvern kassa eftir stærð.
Þeir, sem kartöflur leggja inn til geymslu,^verða sjálfir að
koma þeim fyrir í geymslukössunum.
Akureyri, 28 seplember 1958.
Bæ|ar$ljörinn.
SKÓLATÖS K U R
og aðrar SKÓLAVÖRUR eru
nú komnar í verzlun mína.
Einnig allar SKÓLABÆKUR.
Pantanir utan ai landi afgreiddar um hæl gegn póstkröfu.
Bókaverzlun Gunnl. Tr. Jónssonar.
Hafnarstræti 110 Akureyri.
L Ö G T A K.
Samkvæmt úrskurði eítir kröfu umboðsmanns
Brunabótafélags íslands á Akureyri, verða
ógreidd brunabófagföld í bæn-
um, gjaldfallin 15. október 1937, tekin lögtaki að
liðnum 8 dögum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar 28. sept. 1938.
Sig. Eggerz.
Ábyrgðarmaður: Þóroddur Guðmundsson
Prentverk Odds Björnssonar.