Verkamaðurinn - 08.10.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 8. október 1938.
| 47. tbl.
Verður aukin úfgerð
liéðan t'rá Akureyrt ?
Það, sem fyrst og fremst veldur
því mikla atvinnuleysi, sem er hér
á Akureyri, og verið hefir undan-
farin ár, er það hvernig sjávarút-
vegurinn, sem var stundaður héð-
an allmikið, er næstum því að
segja lagður niður.
Það er því augljóst, að þrátt fyr-
ir væntanlega aukningu iðnrekstr-
ar hér, eftir að raforka fæst frá
nýju rafveitunni, verður ekki, í
bili, ráðin veruleg bót á atvinnu-
leysinu hér, nema með endurreisn
sjávarútvegsins — og þá vitanlega
á grundvelli þeirrar tækni, sem
nú er fyrir hendi, en ekki með
veiðitækjum frá því um aldamót.
Deild Kommúnistaflokksins hér,
og hinum róttæku verklýðssam-
tökum bæjarins, hefir lengi verið
þetta ljóst, og hafa gert kröfuna
um aukna útgerð að höfuð-atriði,
í sambandi við atvinnuleysismálin.
í mörg ár hafa fulltrúar komm-
únista í bæjarstjórn Akureyrar
barist fyrir því að bæjarstjórnin
beytti sér fyrir framkvæmdum á
þessu sviði, en hafa fengið daufar
undirtektir. Veturinn 1936—’37
fengu þeir þó því til vegar komið,
að bæjarstjórn kaus „Útgerðar-
nefnd“, sem fengið var það verk-
efni að útvega bæjarstjórninni
sem nánastar upplýsingar um öll
skilyrði • til stórútgerðar héðan.
Var fulltrúi kommúnista, Tryggvi
Helgason, valinn formaður nefnd-
arinnar. Nefndin lagði síðar fyrir
bæjarstjórn mjög glöggt yfirlit yf-
ir rekstur allmargra togara —
ásamt öðrum upplýsingum — og
sýndu þessar upplýsingar, að
þrátt fyrir slæma afkomu togara-
flotans í heild, skáru nýjustu og
bestu skipin sig svo úr, að auðvelt
mundi að gera slík skip út héðan,
með sæmilegum hagnaði.
Þessu máli var þó ekki frekar
sint að sinni, meðal annars vegna
þess, að meirihluti nefndarmann-
anna sjálfra hafði lítinn áhuga
fyrir málinu.
S.l. vetur fengu kommúnistar í
bæjarstjórn nefndina kosna upp
Á fjölmennum fundi Verka-
mannafélags Siglufjarðar i fyrra-
kvöld fór fram kosning 4 full-
trúa á Alþýðusambandsþing.
Kosnir voru: Jón Jóhannsson,
formaður félagsins, Jón Jónsson,
Kristmar ólafsson og Steinn
Skarphéðinsson. Eru þeir allir
eindregið fylgjandi sameiningu
verkalýðsins. Hægri menn stiltu
ekki upp. Ennfremur var sam-
þykt einróma tillaga þess efnis að
félagið fæli fulltrúunum að beita
sér fyrir aðskilnaði verklýðsfél,-
samtakanna og Alþýðufl. og
stofnun óháðs landssambands fag-
að nýju, og var henni nú til við-
bótar falið að afla upplýsinga um
verð og greiðsluskilmála á nýjum
skipum, heppilegum til veiðiskap-
ar héðan. Varð Tryggvi Helgason
enn formaður nefndarinnar.
Það gekk enn erfiðlega að fá
nefndina til að skila nokkrum
samhljóða tillögum til fram-
kvæmda í þessu máli. En þó varð
þess nokkuð vart á s.l. vori —
bæði innan nefndarinnar og utan
— meðal peningamanna bæjarins,
að þeir höfðu nokkurn áhuga fyrir
að stofna hér til útgerðar, ef þeir
fengju eftirgjafir á gjöldum út-
gerðarinnar til bœjarfélagsins.
Bar þá útgerðarnefndin fram í
(Framh. á 2. síðu).
félaganna, þar sem fullkomið lýð-
ræði ríki og allir meðlimir jafn-
réltháir án tillits til skoðana
sinna á stjórnmálum eða öðrum
málurn, ennfremur var fulltrúun-
um falið að beita sér fyrir sam-
vinnu og sameiningu verklýðs-
flokkanna. Greiddu hægri menn
einnig þessari tillögu atkvæði.
108 manns gengu inn á fund-
inum. Hefir félagið ekki haldið
fundi um 3 mánaða skeið og
inntökubeiðnir þvi safnast fyrir.
Verklýðfélagið á Dalvik hélt
nýskeð fund og kaus fulltrúa á
(Framh. á 2. síðu).
Dómur eyíirskrar alpýðu
yíir klolninysstefuunni.