Verkamaðurinn - 28.06.1941, Side 1
XXIV. ÁRG. Laugárdaginn 28. júní 1941. 26. tbl.
Þýski herinn réðist yfir landamæri
Sovétríkjanna s.l. sunnudagsnött.
Þetta er síðasla stríð fasisi
— dauðastríð hans.
anns
Churchill lýsir því yfir, að Bretland muni berj-
ast með Sovétrikjunum uns Hitlerisminn sé
upprœttur.
Bandarikin loffa að veita Bretlandi og
Sovétrikjunum aðstoð til að sigrast á
Hitlerismanum.
Kl. 4 aðfaranótt s.l. sunnudags réðist þýski herinn á Sovétlýðveld-
in á allri landamæralínunni frá Svartahafi til Eystrasalts. Árás þessi
var gerð án nokkurrar stríðsyfirlýsingar eða úrslitakostá. Var sendi-
herra Sovétríkjanna í Berlín fyrst skýrt frá þessu hálfum öðrum
klukkutíma eftir að innrásin var hafin. Árásin hófst m. a. með loft-
áásum á rússneskar borgir og bæi svo sem Odessa, Kiew og Sebasto-
pol og fórust eða særðust um 200 manns í loftárásunum.
Molotoff, utanríkismálaráðherra Sovétríkjanna, flutti snemma á
sunnudagsmorguninn ávarp til íbúa Sovétríkjanna, og var því út-
varpað gegnum allar rússneskar útvarpsstöðvar. Molotoff sagði, að
griðasáttmáli sá, er Sovétríkin hefðu gert við Þýskaland hefði verið
haldinn að öllu leyti af hálfu Sovétríkjanna og sovétstjórnin í hví-
vetna verið trú margyfirlýstri friðarstefnu sinni. Þrátt fyrir þetta
hefði Hitler fyrirskipað þýska hernum að ráðast inn í Sovétríkin.
Væri engin dæmi í sögunni um slíka ofbeldisárás og að innrásin
leiddi í ljós mestu svik einnar þjóðar í garð annarar, sem um getur
í sögu þjóðanna. Rauði herinn hefði fengið fyrirskipun um að verja
landið og skoraði Molotoff á þjóðir Sovétríkjanna að veita Rauða
hernum, flotanum og flughernum alla hugsanlega aðstoð og standa
saman um það sem einn maður. Kvaðst Molotoff treysta því að
Rauða hernum myndi takast að verjast þessari fyrirlitlegu árás.
Það væri ekki í fyrsta skifti, sem íbúar Sovétríkjanna þyrftu að
verja föðurland sitt. Napoleon mikli reyndi að leggja Rússland und-
ir sig, en beið herfilegasta ósigur. Eins mun fara fyrir hinum hroka-
fulla Hitler, sagði Molotoff.
í þýska útvarpið var á sunnu-
áður. Þetta væri ofbeldi, framið í
margfalt stærri stíl en nokkru
sinni áður. Rússneskir verkamenn
og bændur, sem yndu glaðir við
sitt, í hinum 10 þúsund þorpum
Rússlands ættu nú land sitt að
verja. Hitler hefði ekki látið sér
nægja að kúga hverja þjóðiná al
fætur annari og beitir nú hinum
mikla herafla- sínum, sem vér í
heimsku vorri horfðum upp á, að
hann efldi ár frá ári án, þess að
hafast að, beitir nú þessum her-
afla gegn 200 miljónum manna :
Sovétríkjunum og yfir 1000 mil
jónum manna í Rússlandi, Ind-
landi og Kína vofir ógnun þýska
íakakrossins.
Á þessari stundu hefi eg yfir-
lýsingu að flytja fyrir hönd
bretsku stjórnarinnar, sagði
Churchill. Við höfum aðeins eitt
markmið, einn tilgang, að sigra
Hitler og nazismann. Vér munum
ekki leita samkomulags við hann.
Vér munum berjast og uppræta
öll áhrif hans á jörðinni. Hver
maður, hvert ríki, sem berst gegn
honum, á stuðning vorn vísan.
Hver maður, hver þjóð, sem geng-
ur í fylkingu með Hitler eru
fjandmenn vorir. Eg lýsi því yfir,
að eins og öllum, sem berjast
gegn Hitler, munum vér veita
Rússum alla sérfræðilega hjálp,
sem er í voru valdi að veita. Vér
munum halda áfram sókn vorri,
varpa sprengjum á Þýskaland dag
hvern og nótt hverja. Innrás
Hitlers í Rússland er aðeins for-
leikur að innrás í Bretland, eí
(Framhald á 4. síðu).
daginn lesin upp greinargerð frá
Hitler, þar sem hann gerði grein
fyrir árásinni á Sovétríkin. Styrj-
öld Rússa og Finna, innlimun
Austur-Póllands, Bessarabíu,
Norður-Bukovina og Eystrasalts-
landanna þriggja, alt hefði þetta
verið aðgerðir fjandsamlegar
Þýskalandi af hálfu Sovétríkj-
anna. Með þeim hefði Rússland
treyst hernaðarlega aðstöðu sína
á kostnað Þýskalands meðan
þýski herinn var önnum kafinn á
vesturvígstöðvunum. Sagðist Hitl-
er altaf hafa orðið að þegja og
það hefði verið þungar stundir.
Nú væri loksins svo komið, að
hann gæti rofið þögnina. Hlut-
verk þýska hersins vaeri nú að
bjarga siðmenningunni í heimin-
um. Það væri erfiðar stundir
framundan. Guð hjálpi okkur,
sagði Hitler.
Maisky, sendiherra Sovétríkj-
anna í London fór árdegis á
sunnudaginn á fund Anthon>
Edens og átti við hann klukku-
stundarviðræðu. Síðdegis á sunnu-
daginn flutti svo Churchill, for-
sætisráðherra Stóra-Bretlands, út
varpsræðu. Fer hér á eftir út-
dráttur úr henni.
Nú væri komið að fjórðu þátta-
skiftunum í þessari styrjöld, sagði
Churchill. Þjóðverjar hefðu
skyndilega ráðist á Rússland og
látið sprengjum rigna yfir rúss-
neskar borgir og bæi'. Þó hefðu
þeir haft blíðmælgi í frammi rét
MaríaMarkan
ráðin við Metropolitan.
í tilkynningu, sem utanríkis-
málaráðuneytinu barst nýlega frá
aðalræðismanninum í New-Yora
er skýrt frá því að ungfrú Marja
Markan hafi verið ráðin við
Metropolitan óperuna í New York
um eins til þriggja ára skeið. Var
María Markan ráðin eftir að hún
hafði sungið tvisvar sinnum til
reynslu og þreyttu þó þessa kepni
723 söngvarar síðastliðinn vetur.
Voru aðeins 3 nýir söngvarar
ráðnir við óperuna auk Maríu
Markan.
Operettan »Nitouctie«
Akureyringum er enn í fersku
minni sá merkisviðburður, þegar
reykvískir listamenn komu hing-
að og sýndu „Bláu kápuna“.
Nú mun vera ákveðio að Leik-
félag og Tónlistarfélag Reykjavík-
ur sendi hingað hóp álitlegra
listamanna og sýni hér óperettuna
„Nitouche“. Hefir þessi óperetta
verið sýnd undanfarið í Reykjavík
og hlotið einróma lof og aðdáun.
Leikstjóri er Haraldur Björnsson,
en hljómsveitarstjórinn er Viktor
Urbansson og eru þeir báðir gagn-
mentaðir hver á sínu sviði.
Leikendur í óperettunni eru m.
a. Sigrún Magnúsdóttir, Gunnþór-
unn Halldórsdóttir, Brynjólfur Jó-
hannesson, Alfreð Andrésson, Lár-
us Ingólfsson, Lárus Pálsson og
Kristján Kristjánsson söngvari og
svo leikstjórinn sjálfur.
Gert er ráð fyrir að listamenn-
irnir komi hingað í næstu viku.
Söngför »Oeys’s«.
Karlakórinn „Geysir“ kom heim
úr söngför sinni til Reykjavíkur
s.l. sunnudagskvöld. „Geysir“ hélt
4 samsöngva í Reykjavík og 1 í
Hafnarfirði, altaf fyrir troðfullu
húsi og ágætustu viðtökur eins og
sjá má m. a. af söngdómum í
Reykjavíkurblöðunum. Auk þess-
ara samsöngva söng „Geysir“ við
skólauppsögn Mentaskólans og í
útvarpið og ennfremur söng kór-
inn á Blönduósi og Hreðavatm
bæði á suðurleiðinni og heimleið-
inni.
ðliiatp Ira Moskva.
Til leiðbeiningar fyrir þá, sem
vegna eftirminnilegrarreynslu
frá Finnagaldurstímunum, eru
vantrúaðir á fréttaflutning is-
lenska útvarpsins, þá vill blaðið
benda þeim, sem skilja sænsku
eða ensku, á, að kl. 8 til
ca. 8.30 á hverjum morgni er
fréttum útvarpað frá Moskva á
ensku á ca. 19 m. bylgjulengd.
Heyrist venjulega ágætlega til
þessarar stöðvar hér. Kl. 7—8 á
kvöldin er útvarpað á norsku og
sænsku frá Moskva á ca. 40 m.
bylgjulengd.