Verkamaðurinn - 01.11.1941, Side 2
2
VERKAMAÐURINN
Við getum neytt Hitl-
er til að senda nokkrar
hersveitir vestur á
Tom Wintringham:
bóginn.
Bretska Ijónið hefir nú notið þægilegr-
ar hvíldar í rúma fjóra mánuði. At-
hafnaleysi Bretlands í styrjöldinni gegn
Þýskalandi Hitlers, síðan nazistarnir réð-
ust á Sovétríkin, vekur æ meiri undrun
og gremju meðal almennings í lýðræðis-
ríkjunum, m. a. er hretska stjórnin nú
gagnrýnd meira en nokkru sinni áður
í ensku blöðunum fyrir athafnaleysi
hersins. Hér fer á eftir ein af þessum
greinum, en hún birtist í byrjun þessa
mánaðar í blaðinu vDaily Mirror, en það
er eitt af helstu ihaldsblöðunum í Bret-
landi og hefir til skamms tíma verið
mjög fjandsamlegt Sovétríkjunum. Þetta
blað birtir nú stöðugt kröfur um að
bretski herinn verði látinn berjast gegn
Hitler í stað þess að sitja hjá.
Það eru nokkrar mjög skilnings-
daufar manneskjur í þessu landi,
Þær halda að styrjaldir verði
unnar með því að berjast.
Og þær segja það — jafnvel þó að
þær eigi það á hættu, að verða
kallaðir „náttúrlegir atvinnu-
krabbar“.
Þannig voru ummælin, sem hr.
Churchill notaði í nýafstaðinni
ræðu sinni, um þá, sem gagnrýna
stjórnina.
Og í þessari ræðu, dróg hann
fram aðra hlið málsins, með allri
sinni mælskusnild.
En það er til önnur.
Látið mig reyna að draga fram
þessa aðra hlið, ekki sem sönnun
gegn hr. Churchill, heldur sem
útlistun á þeirri staðreynd, að
næstum því öll bretska þjóðin, og
allur bretski herinn (að undan-
teknum nokkrum þreyttum iier-
foringjum) vill að her okkar hefji
sókn.
Á stríðstímum, þekkja stjórn-
irnar staðreyndirnar, leyndarmál-
in. Og fólkið, sem þær stjórna,
gerir það ekki. Þessvegna —segja
sumir — verða stjórnirnar að
móta stjórnaraðferðir sínar og
halda fast við þær, hvort sem þær
eru vinsælar eða ekki. Og þær
verða að hafna gagnrýni fáfræð-
inganna. Þetta eru gamalkunn
rök.
Það eru líka léleg rök. Menn-
irnir, sem stjórna Bretlandi hafa
í þjónustu sinni ráðunauta, sem
kunna skil á einstökum atvikum
— sæg af atriðum.
En þeir eru útilokaðir frá glögg-
um skilningi á styrjöldinni í heild,
sumpart vegna þekkingar sinnar
á einstökum atriðum.
Hér er ein alkunn og mikilvæg
staðreynd: nazistar hafa ekki gert
sprengjuárásir í stórum stíl á
Bretland síðan þeir réðust á Rúss-
land.
Hr. Churchill skýrir þessa stað-
reynd með slagorðinu: „Skortur
óvinarins er í loftinu“.
Bretska þjóðin lítur svo á, að
þessi vanmáttur sé tækifæri til
árásar, til athafna. Churchill lítur
ekki svo á. Hann heldur rök-
semdafærslu sinni áfram: „Það er
mjög alvarlegur skortur, en að
öðru leyti er frumkvæðið áfram
í höndúm hans (óvinarins). Við
höfum ekki afl til að taka það frá
honum. Hann hefir herdeildirnar,
hann hefir vopnin. ... “
Hér stangast skoðanir Churc-
hills við tilfinningar þjóðarinnar,
sem hann hefir forustu fyrir.
Hún finnur að við höfum mátt
til að taka frumkvæðið frá óvin-
inum.
Hver einasti maður veit, að við
höfum ekki fengið og getum ekki
fengið her, sem er jafn stór og
þýski herinn.
Það er ekki málið, sem um er
að ræða, spurningin er hvort her-
afli sá, sem við höfum núna, verði
best notaður með því að hafa
hann í varnarstöðu, aðgerðaleysi
eða til árásar. Og það er baráttu-
eðlishvöt bretsku þjóðarinnar,
sem segir: „Til árásar“.
Hver er herafli okkar? í fyrsta
lagi floti okkar. Hann hefir næst-
um því eingöngu verið notaður til
va'rnar. Hann vinnur ötullega að
því, að tryggja flutningana á mat-
vælabirgðum okkar, hráefnum og
hergögnum frá Ameríku og öðr-
um hlutum heimsins.
Skipum nazista og ítala er hald-
ið fast upp að ströndum þeirra.
Flotinn getur að litlu leyti háð
virkilegar sjóorustur. Samt getur
sjóher verið spjótkastið í árás.
Flotinn getur notað herinn sem
spjótsodd. Einsamall getur flotinn
litlu áorkað í sókn. í sambandi við
hinn „harðfenga og kvika“ her
okkar getur hann stungið í liða-
mótin á hertýgjum nazistanna.
Þá er það flugherinn. Hann hef-
ir raunverulega yfirráðin í loft-
inu, ekki aðeins í okkar eigin
lofti, heldur að nokkrum hluta yf-
ir Evrópu Hitlers. Hann er í sókn
gegn Þýskalandi „í heimahögum
þess“.
En þessar sprengjuárásir vinna
ekki og geta ekki unnið stríðið, þó
þær geti reynt á og ruglað óvini
okkar. Þær geta ekki unnið, af
því þær eru ekki í samvinnu við
annan herafla.
„Skortur óvinarins í loftinu" er
að þakka þeirri staðreynd, að
loftfloti hans er að berjast á aust-
urvígstöðvunum.
Hann er notaður sem hluti af
loft- og her„dýrahóp“. Og þessi
„dýrahópur“ er — við skulum
kannast við það — ennþá að
leggja undir sig lönd.
Að taka frumkvæðið frá óvinin-
um þýðir ekki að neyða allan her
hans og flugher til að hörfa
undan.
Það þýðir, að þvinga hann til
að senda liðsmenn frá megin-
hemum, þar sem hann er nú að
berjast, ekki af því að Hitler hefir
ákveðið að senda þá, heldur af
því, að við höfum ákveðið eitt-
hvað, sem þvingar hönd hans.
Hver venjulegur maður í Bret-
landi veit, að við höfum liðsafla,
sem er fær um að gera þetta.
Með því að sameina flota okkar
og flugher, litlum hluta af her
okkar, gætum við veitt nægilega
þung högg til þess að draga fjölda
þýskra flugsveita og nokkrar her-
deildir frá núverandi starfi þeirra
hjá Leningrad og í Ukrainu.
Verjendur herstjórnarinnar
halda því fram, að það myndi
vera gagnslaust að gera þetta, af
því að við gætum ekki eins og
nauðsynlegt væri, „fest í sessi
hvern unnin sigur“.
Svarið við þessari röksemd er
auðvelt. Rauði herinn mundi ann-
ast festingu sigursins einhvers-
staðar annarstaðar.
Gefum þeim góðan árangur og
gerum okkur rellu út af festing-
unni (hvílíkt orð!) þegar við höf-
um séð hversu langan tíma það
tekur okkur að ná þessum
árangri.
Aðrir segja: „Gott og vel, auð-
vitað verðum við að hjálpa Rúss-
landi, en....“ Þetta er ekki
spurningin um að hjálpa Rúss-
landi. Það er spurningin um,
hvort við eigum að hjálpa okkur
sjálfum.
Hr. Churchill ræddi um hugs-
anlegar herferðir nazista til
Egyptalands, til Gibraltar eða til
Bretlands. Hann var með getgát-
ur um, að þýski herinn hefði
styrk til að framkvæma allar þess-
ar herferðír, ef að hann tæki sér
varnarstöðu á rússnesku vígstöðv-
unum.
Ræðum þetta í hreinskilni. Ef
Þjóðverjar hverfa að því, að taka
sér varnarstöðu og Rússar hefðu
jafnframt hægt um sig, þá mundu
Þjóðverjar hafa afskaplegan her-
afla, sem þeir gætu sparað.
Og hvers vegna ætti Rauðí her-
inn að hefja árás í þessu tilfelli?
Hann kynni að vera ófær um
það, hann gæti haft hernaðarleg-
ar ástæður til að gera það ekki.
En hann mundi að líkindum ráð-
ast á Hitler til að lina þrýstinginn
á okkur — ef við, áður, hefðum
ráðist á Hitler og létt þrýstingn-
um af Rauða hernum.
Þetta er svo einföld staðhæfing,
að hversdagslegu fólki er þetta
augljóst, • jafnvel þó að sérfræð-
ingum sé það ekki.
„Eg mun klóra þér á bakinu, ef
þú klórar mér“. Eða öllu heldur:
„Eg mun klóra í bakið á Hitler,
þegar hann snýr því að mér, ef þú
vilt gjöra það sama, þegar hann
snýr sér við“.
Að lokum eitt atriði: Hr.
Cþurchill talaði um að stjórnin
fyrir „Verka-
íí
annmn.
Flokksfélagar og aðrir velunnar
„Verkamannsins!“ Sósíalistafélag
Akureyrar hefir ákveðið að hefja
fjársöfnun fyrir „Verkamanninn"
til þess að tryggja áframhaldandi
útgáfu blaðsins. Útgáfukostnaður
blaðsins hefir aukist stórum vegna
dýrtíðarinnar og er því óumflýj-
anlegt, að hefja sérstaka fjársöfn-
un til þess að standa straum af
hinum aukna útgáfukostnaði.
Hinsvegar hafa velunnarar blaðs-
ins haft stöðugri atvinnu undan-
farið, en um margra ára skeið.
Með tilliti til þess og ennfremur
með tilliti til þess að við lifum nú
á þeim tímum, sem úrslitabarátta
er háð um velferð mannkynsins í
framtíðinni, er þess að vænta, að
vinir blaðsins leggi, hver eftir
sinni getu, fram nokkurt fé til
styrktar blaðinu. Sigrar til að
tryggja mönnum betri og fegurri
framtíð verða ekki unnir án
fórna. Miljónir manna fórna nú
lífi sínu til að tryggja lokasigur-
inn yfir villimensku nazismans.
Vegna þessara miklu fórna hafa
ógnir og skelfingar styrjaldarinn-
ar færst fjær okkur íslendingum.
Þjóðir Sovétríkjanna og hinir
mörgu andstæðingar fasismans i
herteknu löndunum heyja nú fórn-
fúsa baráttu fyrir frelsi og lýð-
ræði, gegn nazisma og afturhaldi,
óréttlæti, ofbeldi og kúgun. Hér á
íslandi er líka háð barátta gegn
þeim sömu öflum og fóstrað hafa
fasismann. íslensk alþýða getur
ekki sigrast á þessum öflum nema
með því að leggja meira og minna
að sér. Enginn sigur kemur af
sjálfu sér, engin barátta verður
háð án vopna. Blöðin eru m. a.
vopn í þeirri harðvítugu baráttu,
sem nú er háð um víða veröld.
M. a. eru nú kosningar í aðsigi
hér til þings og bæjarstjórna.
„Verkamaðurinn“ heitir á ^lla
velunnara sína, en neinu sinni, að
bregða nú drengilega við.
Flokksfélagar, sem enn hafa
ekki tekið söfnunarlista, geta
fengið þá hjá ritstj. blaðsins.
Árangurinn af söfnuninni verð-
ur birtur í næstu tölublöðum.
væri ábyrg fyrir því, að stemma
stigu fyrir innrás, eða brjóta hana
á bak aftur, þegar hún kæmi,
hann sagðist ekki geta „mulið í
duft eða leyft að eyða hinum
hagvönu, þjálfuðu baráttueining-
um“ hers okkar.
Þessar einingar skortir eitt:
Ekki vopn — heldur orustu, og
von um orustu.
Gefum þeim þetta og þær munu
læra meira af því, heldur en af
þjálfun í tvö ár enn.