Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.11.1941, Qupperneq 4

Verkamaðurinn - 22.11.1941, Qupperneq 4
% 4 VERKAMAÐURINN SÓKN BRETA í LIBYU. (Framhald af 1. síðu). herafla, er þeir hafa nú yfir að ráða, til þess að flæma Þjóðverja og ítali úr Afríku, þá mundi hern- aðaraðstaða Bandamanna batna stórkostlega og Bretar m. a. fá sérstaklega góða aðstöðu til þess að gera innrás í ítalíu. Engu skal um það spáð, hvort þessi sókn er aðeins til þess að friða þá mörgu í Bretlandi, sem þafa krafist þess, að nýjar víg- stöðvar yrðu myndaðar gegn Þjóðverjum, eða hvort alvara er að baki hennar. Hvað sem því líður, þá mun óhætt að slá þvi föstu, að kröfurnar um nýjar vígstöðvar munu eiga drjúgan þátt í því, að þessi sókn var hafin og má því gera ráð fyrir, að bretsku þjóðinni takist einnig að knýja forystuna .til þess að halda sókninni áfram svikalaust, uns því marki er náð, að mylja þýska nazismann mélinu smærra. ÚTDRÁTTUfí SKULDABRÉFA. Hinn 15. nóv. s.l. framkvæmdi Notarius Publicus útdrátt á skuldabréfum Verklýðshússins á Akureyri. Þessi bréf voru dregin út: Úr I. flokki: Nr. 10, 21, 30 og 56. Úr II. flokki*. Nr. 19, 22, 27, 29, 32, 39, 53, 57, 88, 103, 122, 144, 169, 170, 194, 208, 228, 243, 245, 257, 262, 291, 302, 317, 339, 349, 361, 422, 427, 430, 433, 451, 471, 482, 498, 501, 513, 516, 552, 561, 572, 575, 596, 607, 616, 618, 633, 634, 640, 652, 669, 671, 700, 731, 733, 740, 829, 867, 895, 904, 916, 918, 933 og 935. Útdregin skuldabréf verða inn- leyst og áfallnir vextir af skulda- bréfum hússins greiddir laugar- daginn 21. des. næstk. kl. 5—7 e. h. á skrifstofu Sósíalistafélags Ak- ureyrar, Gránufélagsgötu 23. Akureyri 21. nóvember 1941. HÚSNEFNDIN. Alveg sér/ega talleg erisk voru tekin upp í dag. fataefni Úrva/ atar f/ölbreytt. B A L D VI N RVEL. N Ý VERZLTTN. Höfum opnað verzlun í Aöalstræti 2 (áður Lilliendahls-verzlun) Höfum þar á boðstólum allskonar vörur með sann- gjörnu verði, svo sem: Hre/nlæt/s- og vefnað- arvöru, tóbaks- og sæ/gætisvörur o m. m. f/. Komið og>reynið viðskiptin. Virðlngarfyl/st. Steinþór fensen, Garðar fóhannsson. Kaupnm hæsta verði: „Islendingur“ skrifar í gær: „Við þurfum á auknum sparnað- arvilja að halda, auknum þegn- skap og félagslegum þroska. Fyrir því verður þing og stjórn að taka í taumana, áður en líf hvers þegns í þjóðfélagi voru er orðið að dansi kringum gullkálfinn“. Það, sem átt er við með því, að þing og stjórn taki í taumana er það, að fleiri eða færri verka- menn, sem nú eru í vinnu hjá setuliðinu, verði sviftir þessari vinnu. Blaði „Sjálfstæðis“-flokks- ins finst það ekki ná nokkurri átt að hver þegn þjóðfélagsins hafi aðstöðu til að dansa kringum gullkálfinn, þ. e. að hafa nóg að bíta og brenna. íhaldsblaðið vill hafa heilan herskara af atvinnulausum mönn- um, svo hægra sé að kúga menn menn til að vinna fyrir lægra kaup og til að selja atvinnurek- endum pólitíska sannfæringu sína og'fylgi. „íslendingi11 og útgefend- um hans er ekkert illa við dans í kringum gullkálfinn, en það eru bara fáeinir útvaldir íhaldsmenn, sem eiga að hafa rétt og aðstöðu til þess. Það er ekki ætlast til þess að þeir eigi að sýna þegnskap og sparnaðarvilja. Þeir, sem eiga að sýna þegnskapinn, að dómi „ísl.“, eru verkamennirnir, sem undanfarin ár hafa verið meira og minna atvinnulausir. Nú, þeg- ar þeir loksins hafa fengið nóg að gera og geta framfleytt fjölskyld- um sínum á skikkanlegan hátt, þá þeimtar íhaldið og Framsókn, að gripið verði í taumana, ef að þess- ir verkamenn vilja ekki sýna þann þegnskap, að hætta að vinna hjá setuliðinu. — Samkvæmt tillögu Framsóknar á Alþingi, á að banna fjölda verkamanna og kvenna að vinna hjá setuliðinu, og ekki mun íhaldið láta sitt eftir liggja til að hrinda þessum fögru hugsjónum Framsóknar í framkvæmd. Auðvitað verður því ekki neit- að, að framleiðsla landsmanna er í nokkurri hættu vegna vinnu hjá setuliðinu. En meðan framleiðslan af nauðsynjavörum (matvælum) er svo mikil, að setuliðinu eru seldar þessar vörur í stórum stíl, þá virðist engin ástæða til að fara að banna verkamönnum að vinna hjá setuliðinu, vegna þess, að ekki sé hægt, sökum skorts á vinnu- afli, að framleiða nóg af matvæl- um handa þjóðinni sjálfri. Sé hörgull á einhverjum matvæla- tegundum í landinu, sem lands- menn framleiða, og hafa framleitt handa sér, verður vitanlega fyrst að byrja á því, að gera þær ráð- stafanir, að þessar matvælateg- undir séu ekki seldar setuliðinu. Annars er, út af fyrir sig, hörmulegt til þess að vita, að verkamenn skuli nú fyrst hafa nóg að gera í mörg ár, þegar manndrápsvélin malar sem mest. En þetta er ekki nema eðlileg og rökrétt afleiðing eða fylgja auð- valdsskipulagsins. Atvinnuleysi og styrjaldir eru óaðskiljanlegir förunautar auðvaldsskipulagsins. Eftir þessa styrjöld mun geigvæn- legt atvinnuleysi gera vart við sig í auðvaldsríkjunum. Það mun einnig gera vart við sig hér á ís- landi. Það verður ekki komið í veg fyrir það, með því að svifta verkamennina og verkakonurnar atvinnu hjá setuliðinu nú. Eina leiðin til þess að útrýma atvinnuleysinu er, að útrýma miljónamæringunum, en það verður ekki gert nema með því að svifta þá aðstöðunni til að dansa kringum gullkálfinn meðan alþýðan er kúguð til að sýna þann þegnskap og sparnaðarvilja, að búa við atvinnuleysi, fátækt og eymd. v Leikhúsið. Sherlock Holmes verður leikinn í kvöld og annað kvöld. Skíðaleista, herrasokka, sjóvelllinga, fingravelll- inga «{* fleiri prjónavörur. Ennfremur allskonar skinn. — Leitið lyrst tilboða bjá Vöruhúsi Akureyrar. í Opinn aðcins til Jóla. Notið tækifærið, kaupið Jólagjafirnar, þar sem úrvalið er mest. Virðingarfyllst. idiatdt r. PÖNTUNARFÉLAGIÐ. SÆNGURVER, stór og lítil, SVUNTUR, kvenna og barna, SKRIÐBUXUR. PÖNTUNARFÉLAGIÐ. Nýkomið: SKÁLAR, POTTAR, VASKAFÖT, NÁTTPOTTAR. Pöntunartéiagii). Leiðrétting. I klausunni um verðhækk- un á smjörlíki, á 3. síðu, hefir misprent- ast »skattfrjálsir og fá aðstoð«, en á að vera: »skattfrjálsir eða fá aðstoðc, il

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.