Verkamaðurinn - 14.08.1943, Síða 1
RÚSSAR HEFJA NÝJA SIÓRSÓKN
MILLI VYAZMA 06 BRYANSK
BARIST 1 ÍITHVERFUM KHARKOV
ÁFENGISEITRUN VERÐUR 9 MANNS
AÐ BANA í VESTMANNAEYJUM
Margir aðrir veiktust alvarlega, en eru
nú allir taldir úr hættu
Fyrir þremur dögum síðan hóf
Rauði lierinn nýja stórsókn miðja
vegu milli Bryansk og Vyazma og
hefir tjrotist þar í gegnum varnar-
línu Þjóðverja á 50 km. langri víg-
línu og sótt fram um 20 km. og
tekið yfir hundrað bygð svæði sam-
kvæmt aukatilkynningu rússnesku
, stjórnarinnar í gærkvöldi.
Rauði herinn hefir undanfarna
daga sótt hratt fram á leiðinni frá
Orel til Bryansk og var samkvæmt
fregnum í morgun aðeins 6 km. frá
Samvinna breska og rúss-
neska verkalýðsins
Þriðji fundur hinnar sameiginlegu
nefndar, sem er skipuð fulltrúum frá
bretsku verklýðsfélögunum og verk-
lýðsfélagasambandi Sovétríkjanna
var haldinn í Moskva á tímabilinu
milli 23. júní til 22. júlí. Fulltrúar
bretsku verklýðsfélaganna voru með-
limir ensk-rússnesku verklýðsfélaga-
nefndarinnar, sem hafa verið í heim-
sókn í Sovétríkjunum, — Sir Walter
Citrine, Mr. A. C. Conley og Mr. H.
N. Harrison. Fulltrúar rússnesku
verklýðsfélaganna voru: M. M. Shv-
ernik, K ,J. Nikolayeva, M. P. Tara-
sov, E. M. Savkov og M. M. Falin
(ritari nefndarinnar).
Á þessum fundi sínum ræddi nefnd-
in eftirfarandi mál:
1. Skýrsla Sir Walters Citrine um
för hans til Bandaríkjanna í sam-
bandi við það verkefni, sem ensk-
rússneska verklýðsnefndin hafði falið
l
honum.
2. Skýrsla bretsku og rússnesku
fulltrúanna um starfsemi viðkomandi
verklýðssambanda á grundvelli þess
samnings sem þau gerðu með sér.
3. Upplýsingar um skipulag og
uppbyggingu verklýðsfélaga Sovét-
ríkjanna.
Nefndin ákvað að halda áfram til-
raunum sínum til þess að tryggja
samstarf milli nefndarinar og verk-
lýðsfélaganna í Bandaríkjunum.
Fundurinn ræddi um möguleikana
á því að útvíkka nefndina með því að
veita inngöngu í hana fulltrúum frá
verklýðsfélögum Norður- og Suður-
Ameríku og annarra þeirra ríkja sem
berjast við hlið ensk-rússneska-
ameríska bandalagsins fyrir frelsi af
kúgunarklafa nazistanna, m. a. Yugo-
slavía, Pólland, Frakkland, Tékkó-
slóvakía, Belgía, Holland, Noregur,
Grikkland og önnur lönd.
Nefndin ræddi einnig spursmálið
iim myndun nýrra vígstöðva í Evrópu.
borginni Karachev, sem er við járn-
brautina milli Orel og Bryansk.
Tók Rauði herinn í gær yfir 60
bygð svæði á leiðinni til Bryansk.
Rússar hafa nr. a. tekið járnbraut-
arbæ 95 km. suður af Bryansk.
Á Kharkov-vígstöðvunum virðist
ró mestur þunginn og hraðinn í
sókn Rauða hersins. Tóku Rúsar í
fyrradag járnbrautarbæinn Chu-
guev um 40 km. suðaustur af Khar-
kov og fregnir í gærmorgun
hermdu að Rauði herinn hefði
brotist inn í úthverfi Kharkov að
norðanverðu og voru harðir bar-
dagar háðir þar í gær og nótt. Hafa
Rússar sótt yfir 100 km. vestur
fyrir Kharkov og eiga skamt eftir
ófarið til Sumi og Poltava og hafa
járnbrautarlínur á valdi sínu frá
Kharkov nema eina línu sem liggur
suður til Krasnograd. Var bilið
milli herja Rússa suðvestan og suð-
austan við Kharkov aðeins um 50
km. í gær.
Æskulýðsfylkingin
á Akureyri efndi til fundar s. 1.
fimtudagskvöld í Verklýðsltúsinu.
Gestur Þorgrímsson, Reykjavík,
flutti fróðlegt erindi unr Marx og
kjarnann í kenningum marxism-
ans. Var góður rómur gerður að
máli hans.
Mikill áhugi var ríkjandi á fund-
inum fyrir því, að efla starfsemi
Æskulýðsfylkingarinnar hér í bæn-
um.
Sovétríkjunum ekki boöin
þátttaka í Montreal-ráÖ-
steínunni
,,Tass“, fréttastofa Ráðstjórnar-
ríkjanna tilkynti í gær að Sovét-
ríkjunum hefði ekki verið boðið
að senda fulltrúa á ráðstefnu í
Montreal í Canada.
, Á þessari ráðstefnu voru m. a.
Churchill og Roosevelt og ýmsir
aðrir háttsetfir stjórnmálamenn og
herfræðingar Bandamanna.
Daily Worker leystur úr
útflutningsbanni
IJtflutningsbannið, sem bretska
íhaldið setti á aðalblað Kommún-
istaflokksins, „Daily Worker“, hefir
nú vérjð afnumið. F.ru þetta góð
tíðindi fyrir alla þá, sem eru á ann-
ari skoðun í 'þessu efni, en dr.
Göbbels, Hriflu-Jónas og Jóhann
Frímann.
Nú í vikunni gerðust þeir hörmu-
legu atburðir í Vestmannaeyjum,
að 9 manns biðu bana af völdum
áfengiseitrunar.
Þeir, sem létust, voru:
Daníel Loftsson, verzlunarmað-
ur, Vestmannaeyjum, ókvæntur.
Guðmundur Guðmundss,, stýri.
maður, Vestmannaeyjum, ókvænt-
ur.
Þorlákur Sverrisson, kaupmaður,
Vestmannaeyjum, var kvæntur og
átti börn, meðal barna hans er séra
Óskar Þorláksson prestur á Siglu-
firði.
Árný Jónína Guðjónsd., Sand-
felli, Vestmarinaeyjum, var gift og
átti börn.
Jón Gestsson, verkamaður, Vest-
mannaeyjum, kvæntur og átti börn
Þórarinn Bernódusson, verka-
maður .Vestmannaeyjum, kvæntur
og átti börn.
Sveinjón Ingvarsson, húsvörður,
Hringbraut 146, Reykjavík.
Ingvi Sveinbjarnarson, ungur
maður frá Akureyri, sem var gest-
ur í Vestmannaeyjum.
Ólafur Davíðsson, skipstjóri,
Vestmannaeyjum. Kvæntur og átti
1 barn.
2 kr. kílóið!
Verðið á kartöflum hér í bænum
er nú komið upp í 2 kr. kílóið. Við-
skiftaráðið og vísitölusérfræðingar
Jress munu vafalaust samt finna ráð
til að lækka vísitöluna í stað þess
að hækka hana í samræmi við
hækkandi verð á lífsnauðsynjum.
Auk þeirra er létust munu um
20 hafa veikst meira eða minna af
völdum áfengiseitrunar en eru nú
taldir úr hættu.
Málið er enn í rannsókn. En þær
upplýsingar sem fyrir hendi eru
leiða ótvírætt í ljós að áfengiseitrun
þessá fólks mun stafa af því að það
hefir drukkið tréspíritus, en hann
hefir einmitt rekið í allstórum stil
í Vestmannaeyjum að undanförnu.
Atburður þessi hefir vakið skelf-
ingu um alt land. Eins og allir
vita, hafa hvað eftir annað verið
birtar aðvaranir í blöðum og út-
varpi til manna um að drekka ekki
tréspíritus, þar sem hann er afar
banvænn og mörg dauðaslys hlot-
ist af honum áður hér á landi.
Vonandi ætti þessi síðasti hörm-
ungaatburður að nægja til þess að
enginn láti sér detta í hug að neyta
sjórekins vínanda hér eftir eða
framkvæma þann glæp að hirða
hann í þeim tilgangi að selja öðr-
um til að drekka sig í hel.
Þjóðverjar flýja frá
7. ameríski herinn tók í gærmorg-
un borgina Randazzo á Sikiley eftir
mjög harða bardaga. Eftir þennan
sigur er talið að lítið muni verða
um varnir Þjóðverja á Sikiley, enda
eru Jreir byrjaðir að flytja lið sitt
þaðan yfir Messina sund og hraða
flutningunum nú mjög effir fall
Randazzo. Víglínan á Sikiley er nú
aðeins um 50 km. löng.
FótéönéuliSar úr Rau 8a hemum gera áhlaup.