Verkamaðurinn - 13.01.1945, Síða 1
Skrif Þjóðviljans og Viðskifta-
ráðs, fyrir 8 mánuðum, um heild-
salasvindlið riljuð upp.
Hvað eftir annað höfðu þingmenn Sósíalistaflokksins gert fyrirspurn
í þinginu um hvað fjármálaráðherrann, Bjöm Ólafsson, hygðist að
gera viðvíkjandi innkaupaaðferðum heildsalanna. En ráðherrann svar-
aði engu. Og nú síðast í haust, þegar Áki Jakobsson í útvarpsræðu bar
fram ásakanir á hann, þverneitaði hann að nokkuð væri gruggugt í inn-
kaupaaðferðum stéttarbræðra sinna, heildsalanna.
Þjóðviljinn hafði og tekið mál þetta tiil meðferðar. Og það er viðeig-
andi nú að rifja upp það, sem þá fór á milli Þjóðviljans og Viðskiftaráðs.
Það er að vísu langt orðið síðan, — það var í maí 1944 — en það bregður
ljósi yfir starfsaðferðir Viðskiftaráðs undif yfirstjórn Bjöms Ólafssonar.
Og hve langur tirni gat liðið án þess gömlu yfirvöldin fengjust til að
gera nokkuð í málinu, sýnir líka að aldrei hefði verið gert neitt, ef Fram-
sóknarvaldinu hefði heppnast það áform sitt að láta Coca-cola-stjóm
sína sitja áfram.
4, maí sl. birtist í Þjóðviljanum eftirfarandi ritstjómargrein:
„Hvenær á að rannsaka innkaupaaðferðir heildsalanna
í New York?
Það er opinbert leyndarmál í Reykjavík, að stórsvindl er haft í frammi
í sambandi við ýms vöruinnkaup í Vesturheimi. Ýms firmu hér hafa
þar umboðsmenn eða sérstakalega tilbúin milliliðafélög, til þess að láta
þau selja sér vörurnar og vera þá búin að leggja ríflega á þær. Síðan
geta firmun hér heima sýna sína reikninga, fengið hina hlutfallslegu,
lögmætu álagningu ofan á þetta verð og sína litlu skatta af þeim til
gróða, sem þannig fæst. En stórgróðinn, sem fer til huldumannsins, er
skattlaus.
A þingi hafa þingmenn Sósíalistaflokksins borið fram fyrirspurnir til
viðskiftamálaráðherra um hvað ráðuneyti hans geri í þessu máli. — Ráð-
herrann hefir engu svarað slíkum fyrirspurnum.
Því stórorðari er hann hinsvegar, þegar hann deilir á dýrtíðina og til-
kynnir að stríðsgróðatímabilinu sé lokið.
En hvernig er því þá varið með aðferðir viðskiftaráðs til þess að halda
niðri dýrtíðinni, t. d. á innfluttu vörunum?
Innflytjendum leyfist að leggja ákveðna hlutfallstölu á verð innfluttu
varanna. Það þýðir: því dýrar, sem þeir kaupa nú, því meir mega þeir
leggja á! — Enda eru milliliðirnir úti, meðfram hafðir til þess að gera
vöruna dýrari, svo meiri álagning fáist hér.
Ríkisstjórnin hefir heimild til þess að láta Viðskiftaráð kaupa sjálft
inn vörur, ef þess sé sérstök þörf. Sú heimild er ekki notuð. Það álíst
ekki heppilegt að fara inn á einkasvið heildsalanna og S.Í.S. — Fólkið
er bara látið borga vöruna því dýrar — og viðskiftaráðherrann látinn
skammast út af dýrtíðinni.
Fyrirkomulag það, sem nú viðgengst á verslunarmálum íslendinga, er
það versta, sem um er að velja. Það var um þrent að velja: Hið fyrsta
Landsverslun, er hefði það hlutverk að kaupa vörur inn ódýrt handa
landsmönnum, annað: frjáls samkeppni, þar sem hver sem vill gæti
reynt að kaupa og selja sem ódýrast án allra hafta, — og þriðja: einokun
handa vissum mönnum og sérleyfi þeim til handa, til að okra á lands-
mönnum.
Þriðja leiðin var valin. Einokun heildsalanna og S.Í.S., sem koma
fram sem einn aðili, er það ófremdarástand, sem við nú búum við. Og af
því ástandi hefir leitt slík spilling í verslunarmálunum, að til skamm-
ar er.
Hvað á þetta ástand lengi að viðgangast?
Einokunarklíkan varðveitir spillingarforæðið af sérstakri kostgæfni.
Viðskiftaráðherrann gætir þess með slíkri ,,princip“-festu, að óþekt er
annars hjá þessari stjórn, að enginn fulltrúi verklýðshreyfingarinnar
fái að koma nærri Viðskiftaráði, — hinsvegar eigi heildsalarnir og S.Í.S.
þar sína fulltrúa.
Hvað er það, sem ráðherrann er að varðveita svona vel?
Hvað er það í starfsemi Viðskiftaráðs, sem hann er hræddur um að
breytist, ef verkalýðurinn ætti þar fulltrúa?
(Framhald á 2. síðu).
Bæjarstjórn synjar kröfu verkamanna'
félagsins um atvinnu fyrir 80-100 manns
Fyrir bæjarstjórnarfundi s. 1.
þriðjudag lá m. a. eftirfarandi er-
indi frá Verkamannafélagi Akur-
eyrarkaupstaðar:
„Fundur haldinn í Verkamann-
félagi Akureyrarkaupstaðar 17. des.
1944 samþykkir að skora á bæjar-
stjórn Akureyrarbæjar að hefja nú
þegar úr næstu áramótum atvinnu
bótvinnu fyrir 80—100 manns, sem
félagið telur atvinnulausa eða at-
vinnulitla samkvæmt skýrslu, er
félagið hefir látið gjöra í verka-
mannafélaginu. Vill fundurinn
benda á þessi verk, er hann telur
að megi vinna:
1. Grjótsprenging og mölun á
grjóti.
2. Haldið sé áfram að vinna við
hafnargarðinn á Oddeyri, það
sem hægt er að vinna verka-
mönnum, t. d. að bæta grjóti á
norðurgarðinn o. fl.
3. Grafa út lóðir þær, er bærinn
á við Hafnarstiæti norðan við
hús Hjalta Sigurðssonar.“
í tilefni af þessu erindi bar
Jakob Árnason fram eftirfarandi
tillögu:
„Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkir að láta hefja nú þegar at-
vinnubótavinnu fyrir 80—100
manns.“
Tillagan var felld, en erindi
verkamannafélagsins vísað til alls-
herjarnefndar.
í umræðunum um þessi mál lýsti
Sigfús Baldvinsson því yfir að eng-
in verkefni væri til að láta vinna.
Jakob Frímannsson lagði áherslu
á að verklýðssamtökin þyrftu að
hvetja meðlimi sína til að fara
burtu úr bænum og fá sér vinnu
einhvers staðar annars staðar en
hér. Svavar Guðmundsson lét í
(Framhald á 4. síðu).
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
sýnir ,,Brúðuheiinilið“
í Reykjavík.
Leikfélag Reykjavíkur hefir boð-
ið Leikfélagi Akureyrar til Reykja-
víkur til þess að sýna þar „Brúðu-
heimilið“, sem leikfélagið sýndi
hér í haust undir stjórn frú Gerd
Grieg.
Er þetta í fyrsta sinn sem Leik-
félag Akureyrar sendir leikflokk
til Reykjavíkur. Er gert ráð fyrir að
það verði um næstu mánaðarmót.
Nvstórsókn Rauðahersins?
Lokaáíökin í Budapest hafin.
Þjóðverjar segja nú frá því í út-
varpsfréttum sínum, að Rauði her-
inn hafi byrjað mikla sókn við Vi-
stulafljót norðaustur af borginni
Cracow í Suðvestur-Póllandi. Rúss-
ar minnast ekkert enn á þessa sókn
í fréttum sínum.
Glæsilegur sigui’ sósialista
í Ólafsfirði
6. þ. m. fór fram kosning 7
manna í bæjarstjórn Olafsfjarðar.
Þrír listar voru í kjöri og urðu úr-
slitin þessi:
A-listi (Framsókn) hlaut 76 atkv.
og 2 menn kjörna, B-listi (Sjálfstfl.)
139 atkv. og 3 menn kjörna og C-
listi (Sósíalistafl.) 111 atkv. og 2
menn kjörna.
Þeir sem kosningu hlutu voru:
Sigurst. Magnússon skólastj. (Sós.)
Sigursv. D. Kristinss. skrfstm. (Sós.)
Ásgr. Hartmannss. kaupm. (Sjálfst.)
Sig. Baldvinsson útgm. (Sjálfst.)
Þorst. Þorsteinsson útgm. (Sjálfst.)
Árni Valdimarsson útibússtj. (F.)
Björn Stefánsson kennari (F.)
Við síðustu hreppsnefndarkosn-
ingar 1942, fekk listi óháðra og sós-
íalista 98 atkv., listi Sjálfstæðism.
146 atkv. og Framsókn 80 atkv.
í Búdapest hefir Rauði herinn
meir en 4/5 hluta borgarinnar á
valdi sínu og hefir byrjað lokaárás-
ina á leifarnar af setuliði Þjóðverja
í borginni, og telja fréttaritarar að
átökunum í borginni verði senn
lokið. Þjóðverjar hófu fyrir nokkr-
um dögum gagnsókn fyrir vestan
Budapest í þeim tilgangi að koma
setuliðinu í borginni til hjálpar og
varð nokkuð ágengt fyrst, en Rauði
herinn hefir nú algjörlega stöðvað
gagnsóknina, sem hefir því farið út
um þúfur og orðið Þjóðverjum afar
dýrkeypt. Norðan við Dóná hafa
sovéthersveitir unnið á og eru
komnar að borginni Komarom,
sem er mjög mikilvæg samgöngu-
miðstöð og aðalbirgðastöð gagná-
rásarhers Þjóðverja vestan við Bu-
dapest.
Síðustu fréttir
Þjóðverjar skýra nú frá þvf, að
Rússar hafi byrjað mikla sókn á 3
stöðum, í Austur-Prússlandi með-
fram járnbrautinni til Insterburg,
og við Vistulafljót, 200 km. suður
af Varsjá, og loks milli Kosice og
Losonez í Tékkoslóvakíu. Játa
Þjóðverjar að Rússum hafi þegar
orðið nokkuð ágengt, en sóknin
við Vistulafljót hófst í gærmorgun.