Verkamaðurinn - 12.05.1945, Side 3
VERKAMAÐURINN
3
4 þýskir flugmenn
r
nauðlenda á Islandi
VERKAM AÐURINN.
Út&eiandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Ritstjóri: Jakob Ámason,
Skipagötu 3. — Stmi 466.
Blaðnefnd: Rósberg G. Snædal,
Eyjólfur Amason,
Ólafur Aðalsteinsson.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Lausasöluverð 30 aura eintakið.
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafélags
Akureyrar, Verklýðshúsinu.
Prentverk Odds Bjömssonar.
Ep Hitler kom-
inn til Islands?
Menn velta því fyrir sér hvort
Hitler muni vera dauður. Ýmsar
ósamhljóða fregnir hafa borist um
fráfall hans. Getgátur hafa komið
fram um, að þýskir vísindamenn
hafi gerbreytt útliti hans með lækn-
isaðgerðum. Einn draumamaður
okkar hefir að sögn tjáð kunningj-
um sínum að „foringinn" mundi
lenda einhversstaðar í Þingeyjar-
sýslum.
Ef litið er í dálka sumra blaða
hér á landi, m. a. ,,Dags“ og „ís-
lendings", lítur út fyrir að „foring-
inn“ hafi endurholgast hér á landi.
Draumur Húsavíkurmannsins er
vissulega ekki fjarri lagi, því „for-
inginn“ hefir um ma^gra ára skeið
átt sinn tvífara þar. Þingmaður
Suður-Þingeyinga hefir lagt sig all-
an fram til þess „að gert verði hér
á landi í lithim stíl“, það sem Hitl-
er gerði í Þýskalandi. Meðan Rauði
herinn var langt frá Berlín og skoð-
anabræður nazista hér á landi
höfðu einhverja von um, að „for-
sjónin" mundi bjarga „foringjan-
um“ á elleftu stundu, þá þótti áróð-
ur Jónasar óheppilegur og því var
hurðum skelt að hælum honum í
Tímanum og Degi, en mjúklega þó
í síðarnefndu blaði.
En nú er svo komið að Rauði
herinn stendur föstum. fótum í
Berlín, Prag, Vínarborg og jafnvel
stigið fæti sínum á danska grund.
Þessar staðreyndir virðast hafa far-
ið mjög í taugarnar á vissri mann-
tegund hér á landi. Bumbur eru
barðar eins og forðum í Berlín
„foringjans" og engin orð spöruð
til að útmála hina voðalegu rauðu
hættu.
Þetta kemur engum skygnum
manni á óvart. Margt hefir verið
mælt fjær sanni en það, að sérfræð-
ingar hafi gjörbreytt Hitler í því
skyni að gera hann torkennilegan.
Það var fyrirfram vitað að vinir
nazismans hér og annarsstaðar
mundu reka upp ramavein, þegar
fjöregg nazistaófreskjunnar yrði
brotið. Sannarlega hefir Hitler
dulbúist hér eftir bestu getu. Hann
hefir brugðið sér í hverskonar gerfi.
Áróðri Göbbels er því linnulaust
haldið áfram og hefir margfaldast
hér síðan Rauði.fáninn blakti yfir
Berlín. En engin gerfi munu stoða
til að snúa við hjóli tímans né
hindra það sem koma skal.
Hinn endurholgaði Hitler mun
hinsvegar einskis láta ófreistað ti
að rétta hlut sinn hér á íslandi.
Hann hygst að blekkja menn ti
fylgis við sig í hinum nýju dular-
klæðum. Hann mun hagnýta sér
Frá ameríska setuliðinu hefir
blaðinu borist eftirfarandi:
Fjórir þýskir flugmenn nauð-
lentu á norðurströnd íslands í síð-
ustu viku.
Þjóðverjarnir voru í flugvél af
gerðinni Junkers 88 og komu frá
stöðvum í Noregi. Voru þeir sendir
til veðurathugana á svæðinu ihilli
Jan Mayen og íslands, en vegna vél-
arbilunar neyddust þeir til að
lenda.
Þjóðverjarnir eru nú komnir til
Reykjavíkur og hafa hemaðaryfir-
völdin yfirheyrt þá.
Þrír flugmannanna eru Þjóðverj-
ar, en einn þeirra Austurríkismað-
ur. Þeir eru á aldrinum frá 23 til
29 ára. Einn þeirra var flugstjóri,
annar loftskeytamaður, þriðji veð-
urfræðingur og fjórði skytta. — í
þessum hóp var enginn háttsettur
foringi, þeir voru allir undirfor-
ingjar.
Þótt engum fanganna væri full-
kunnugt um gang og síðustu horfur
styrjaldarinnar var þeim ljóst, að
Þýskaland hafði um nokkra hríð
verið að tapa stríðinu.
Það var ósamræmi í svörum
þeirra varðandi sambúð þýska hers-
ins og norsku þjóðarinnar.
Einn sagði, að sambúðin hefði
öll tækifæri til blekkinga. Þegar
fregnir berast frá San Fransisco um
að samkomulag hafi ekki náðst í
Póllandsdeilunni, hvíslar hinn dul-
búni nazisti því að náunganum, að
þetta sé auðvitað alt kommúnistum
að kenna og gefur til kynna að deil-
unni hljóti að ljúka með þeim hætti
að Bretar og Bandaríkjamenn segi
Rússum stríð á hendur, því það er
heitasta ósk hans sjálfs. Þegar fregn-
ir berast frá Ítalíu um að skærulið-
ar hafi tekið Mussolini af lífi, þá
kvíslar andinn frá Berlín því að þér
að Bandamönnum hafi verið þetta
mjög á móti skapi. Þegar fregnir
berast um að meðlimir dönsku
frelsishreyfingarinnar hafi sam-
kvæmt leyfi dönsku stjórnarinnar
reynt að handtaka kvislinga og aðra
nána samstarfsmenn nazista í Dan-
mörku og neyðst til að skjóta þá,
þegar þeir hafa veitt vopnaða mót-
spyrnu, þá umhverfist hinn íslenzki
Hitler og telur það „hörmuleg tíð-
indi“ sem „blandi lævi sigurfögn-
uð“ íslendinga.
Það er andinn frá Berlín, sem er
a ferðinni, þegar verið er að reyna
að berja því inn í fólk, að Sósíal-
istaflokkurinn hafi heimtað að
Þýskalandi yrði sagt stríð á hendur.
Andinn frá Berlín, hinir ís-
lensku tvífarar Hitlers og Göbbels,
munu ekki'víla fyrir sér að birtast í
hverskonar dulargerfum og bregðá
sér í allra kvikinda líki til þess að
reyna að koma ár sinni sem best
fyrir borð. En asninn er ætíð auð-
þektur á eyrunum. Fjandskapurinn
í garð kommúnista mun gefa þér
til kynna hvar uppvakningurinn
frá Berlín er á ferðinni.
verið allgóð; annar sagði, að orðið
hefði að hafa tvöfaldan vörð um
flugvélar í herstöð þeirra til þess að
koma í veg fyrir að Norðmenn
eyðilegðu þær.
Við yfirheyrsluna gáfu fangarnir
eftirfarandi upplýsingar:
Þýskir hermenn í Noregi eru
flestir um þrítugt. Nokkrar fjalla-
hersveitir, sem komu til Noregs frá
Finnlandi, eru þar ennþá, en nokkr-
ar hafa verið fluttar til Danmerkur
á síðustu sex mánuðum. Einn
þeirra sagði, að sambúðin við
Norðmenn hefði verið sæmileg;
annar sagði, að itöðvar þeirra hefðu
verið svo afskektar, að þeir hefðu
haft lítið saman við Norðmenn að
sælda; en þriðji sagði, að mjög
sterkan vörð hefði þurft að hafa um
flugvélarnar til þess að hindra að
Norðmenn eyðilegðu þær. Enn-
fremur, að skemdarstarfsemi leyni-
samtaka norskra föðurlandsvina
væri mjög almenn í Suður-Noregi.
Matarbirgðir hafa stöðugt farið
minkandi, bæði hjá þýska hernum
og meðal norsku þjóðarinnar.
Fangarnir sögðu, að í bréfum frá
ættingjum þeirra í Þýskalandi hefði
verið minst á matarskort. Matar-
skamtur þýskra hermanna í Noregi
hefði undanfarið verið súpa, kinda-
kjöt og þurkaðar baunir.
Einn fanganna sagði, að hann
hefði sannfærst um að Þýskalanc
hefði tapað styrjöldinni, þegar
hann frétti að Hitler hefði látist í
stjórnarstöðvum sínum í Berlín.
„Foringinn" hefði lofað því, að
hvorki Berlín né Vín skyldu nokkru
sinni falla í hendur andstæðing-
anna, en þá varð augljóst, að það
loforð myndi ekki hægt að halda.
Það kom greinilega í ljós, að Þjóð-
verjar trúðu því, að Hitler hafi dáið
hetjudauða.
Einn fanganna hafði verið með
orustuflugvéladeild í Suður-Frakk-
landi, en nokkur hluti hennar var
fluttur til Noregs þegar innrásin
á meginlandið var gerð.
Allir fangarnir sögðu, að star
þeirra hefði verið veðurathuganir.
Þeim var falið að afla nákvæmra
skýrslna um vindhraða, skýjafar og
sjólag.
Einn fanganna sagði, að pólitísk
upplýsingastarfsemi hefði verið haf-
in innan þýska hersins seint í júh
sl. ár, en fram að þeim tíma hefði
verið lítt skeytt um stjórnmálaskoð-
aðnir þeirra.
Öllum föngunum kom saman
um þá skoðun, að vegna vaxandi
skorts á hergögnum og matvælum
myndi ekki hægt að halda stríðinu
lengi áfram.
Kaupakonur
vantar á heimili hér í Eyja
firði og lengra til.
Skrifstofa verklýðsfélaganna,
Strandg. 7.
Sjúkrahússmálið.
(Framhald af 1. síðu).
ið hefir viðunandi lausnar í fjölda-
mörg ár. Spítalanefnd hefir haldið
fjölmarga fundi undanfarin ár til
að ræða og undirbúa byggingu nýs
sjúkrahúss og allan þann tíma kem-
ur aldrei frá henni tillaga um að
hafa spítalann annarstaðar en þar,
sem bæjarstjórnin hefir nú sam-
rykt. Spítalanefndin hafði meira
að segja lagt blessun sína, eg held
alveg ágreiningslaust, yfir þá
ákvörðun, að byggja þá nýbygg-
ingu, sem þegar hefir verið bygð,
sunnan við gamla sjúkrahúsið. Og
í viðræðum manna á milli um þetta
mál, varð eg aldrei annars var, en
að það væri í raun'og veru búið að
ákveða með þeim útgreftri og ný-
byggingu, sem þegar hefir verið
reist sunnan við gamla sjúkrahúsið,
að byggja þar hinn fyrirhugaða spi-
tala.
Tillaga Stefáns Árnasonar á allra
síðustu stundu — um að byggja
spítalann ofar, alveg uppi á brekk-
unni, sunnan Eyrarlandstúns, virt-
ist mér eiga æði mikið skylt við
fyrri tilraunir Framsóknar til að
tefja fyrir eða bindra verklegar
framkvæmdir (sbr. m. a. hafnar-
mannvirkin, sem ,,Dagur“ reisti á
fjórurn dálkum á fremstu síðu í
fjórum tölublöðum). Enda er það
eitt helsta áhugamál Framsóknar-
manna að bregða fæti fyrir núver-
andi ríkisstjórn á sviði atvinnu-
mála hvar sem þeir geta.
Þróun þessa máls undanfarna tvo
mánuði bendir líka ótvírætt til
þess að Framsók narmenn leggja
enga áherslu á að byrjað yrði á spí-
talabyggingunni sem fyrst.
Nær tveir mánuðir eru nú liðnir
síðan bæjarstjórn kaus hina svo-
nefndu byggingarnefnd spítalans.
Ekki er vitað að nefndin hafi gert
neitt af því, sem henni bar að gera
samkvæmt samþykt bæjarstjórnar
6. mars sl. Hún hefir ekki komið
því í framkvæmd að fá fullgerðar
teikningarnar af byggingunni. Hún
hefir ekki látið byrja enn á út-
greftri lóðarinnar, þó bæjarstjórn
væri búin að fela henni það. Hún
hefir ekki enn boðið verkið út eða
ráðið sérstakan byggingameistara
til að hafa á hendi bygginguna fyrir
reikning.
Hún hefir yfirleitt ekkert gert af
því sem er hennar verkefni. Hins-
vegar hefir hún í þessa tæpa tvo
mánuði, síðan hún var kosin, róið
að því öllum árum, að spítalinn
yrði ekki reistur þar, sem bæjar-
stjórn var búin að samþykkja að
hann yrði, og húsameistari og land-
læknir hafa einnig ákveðið fyrir
sitt leyti.
Stefán Árnason og Jakob Frí-
mannsson telja sér ekki skylt að
taka til greina samþyktir bæjar-
stjórnar, ef þær eru ekki gerðar eft-
ir forskrift Framsóknar.
Nú skyldi einhver halda, að
Stefáni Árnasyni hefði verið ein-
hver alvara með að byggja spítal-
ann vestan gamla spítalans sunnan
Eyrarlandstúns, eins og hann lagði
til 5. mars. Því fer vitanlega fjarri.
Nú er hann kominn með tillögu
um að tyggja spítalann á svo-
nefndu Bogatúni, sem er vestan
(Framhald á 4. síðu).