Verkamaðurinn - 04.08.1945, Page 1
XXVIII. árg. Laugardagmn 4. ágúst 1945 28. tbl.
Frekleg og svívirðileg valdamisbeiting í þágu Framsóknarafturhaldsins
Stjórn S.Í.S. tekur sér dómaravald
Reynir að svelta Kaupfélag Siglfirðinga til hlýðni
Gervistjórn sú, sem bandalag Framsóknarmanna, Alþýðu-
flokksmanna og Sjálfstæðismanna setti á laggirnar og kallar
stjórn Kaupfélags Siglfirðinga, hefir krafist að verða sett til
valda í félaginu með fógetaúrskurði.
Gunnar Pálsson fulltrúi hefir verið skipaður setudómari
í málið, en Ólafur Jóhannesson lögfræðingur SÍS sækir það
fyrir hönd gervistjórnarinnar. Ragnar Ólafsson lögfræðing-
ur er verjandi félagsstjórnarinnar. Dómur mun ganga í
málinu innan skamms.
Kn stjórn SÍS hefi rekki séð sér fært að bíða eftir þessum
dómi. Þann 18. júlí ritar hún kaupfélaginu bréf og tilkynn-
ir hátíðlega, að félagið fái engar vörur frá SÍS meðan núver-
andi stjórn fari þar með völd. Ástæðuna telur hún þá að
stjórnin sé ekki lögleg, og að hún njóti ekki stuðnings meiri-
hluta fulltrúanna og annað ekki gáfulegra fleipur færir hún
fram máli sínu til stuðnings. Fer hér á eftir bréf SÍS.:
Kaupfélag Siglfirðinga,
Siglufirði.
Þar sem vér teljum hina starfandi
stjórn yðar ólöglega stjórn og hún
hefir algerlega hafnað öllum sam-
komulagstillögum, sem vér höfum
gert, og hún hefir ekki stuðning,
nema lítils hluta aðalfundarfull-
trúa, leyfum vér oss að tilkynna yð-
yr, að á meðan sú stjórn annast
stjórnarstörf yðar, sjáum vér oss
ekki fært að eiga við yður nokkur
viðskifti.
Jafnframt viljum vér taka fram,
að vér álítum hrottvikningar þær á
aðaUundarfulltrúum, sem stjórn
jtess hefir gert, með öllu ólögmætar
og óverjandi og teljum að með
þeim, svo og með tilefnislausum
bröttvikningum annara félags-
manna, hafi brotið í bag við grund-
vallarreglur samvinnustefnunnar.
Ennfremur álítum vér hina fyrir-
varalausu brottvikningu fram-
kvæmdastjóra yðar ástæðulausa og
hættulega fyrir traust félagsins, eins
og á stóð.
Með vinsemd og virðingu.
S. Kristinsson.
Stjórn SÍS tekur dómsvald.
Það sem fyrst vekur athygli í
sambandi við þetta mál, er að
stjórn SÍS liefir tekið sér dómsvald,
þar sem binum opinberu dómsté^-
unr einum ber. Þessi stjórn leyfir
sér, dagana sem málið er sótt og
varið fyrir hinum löglega dómara,
að segja skilyrðislaust hvor aðil-
anna hafi réttinn sín megin, og
ekki nóg með það, hún gerir nóg
með það, hún gerir beina tilraun til
að eyðileggja eitt af sambandsfélög-
unum, með því að setja það í við-
skiftabann, af því að það eru ekki
Framsóknarmenn, með aðstoð sér
samboðinna manna, úr Alþýðu-
flokknum og Sjálfstæðisflokknum,
sem fara með völd í félaginu.
Skefjalausri ósvífni og pólitíska
misbeitingu þess valds, sem stjórn
SÍS hefir er ekki hægt að hugsa sér.
*
Ætlar SÍS að stela
innflutningsleyfum?
Eins og kunnugt er annast ^ÍS
innflutning fyrir sambandsfélögin
og fær í sínar hendur þá innflutn-
ingskvota, sem hinum einstöku fé-
lögum bera. Neitun þess við að láta
Kaupfélag Siglfirðinga fá vörur
virðist því þýða, að það ætli sér að
stela þeim innflutningsleyfum, sem
það hefir fengið vegna Kaupfélags
Siglfirðinga og afhenda þau hæfi-
lega þægum Framsóknarkaupfélög-
um.
Að sjálfsögðu verður þetta mál,
útaf fýrir sig, athuga#»hjá viðskifta-
ráði. Auðvitað krefst Kaupfélag
Siglfirðinga þess að fá sinn inn-
flutningskvóta í eigin hendur úr
höndum SÍS, og ekki er ósennilegt
að fleiri kaupfélög geri sömu kröf-
ur, eftir að sýnt er að ósvífni og
rangsleitni SÍS-stjórnarinnar er tak-
markalaus, þegar hún. telur sig
þurfa að hlaupa undir bagga með
hinum deyjandi afturhaldsöfhtm
Framsóknar og Co.
SKRÁ
yfir gjaldendur í Akureyrarkaup-
stað til Lífeyrissjóðs fslands, fyrir
árið 1945, liggur frammi til sýnis
í skrifstofu bæjarfógetans á Ak-
ureyri dagana 2. til 15. ágúst.
Kærum út af skránni sé skilað til
skattstofunnar innan sarna tírna.
Akureyri, 2. ágúst, 1945.
Skattstjóri.
TILKYNNING
Samkvæmt samningi á milli
Verkakvennafél. „Fining" og At-
vinnurekendafélags Akureyrar hafa
félagsbundnar konur forgangsrétt
til Vinnu. Þær konur, sem ætla að
salta síld eða vinna aðra útivinnu,
þurfa því, til að tryggja sér réttindi,
að vera í stéttarfélagi og geta sýnt
félagsskírteini á vinnustaðnum. —
Þær, sem eru ekki nú í félagjnu,
geta látið innrita sig og fengið
bráðabirgðaskírteini á skrifstofu
verklýðsfélaganna, Strandgötu 7,
sem er opin alla daga frá kl. 4—Gþá,
nema á laugardögum kl. 3—5.
Stjórn Verkakvennafél. „Eining“.
Undanfarna daga hafa kosninga-
úrslitin í Bretlandi, sem kunngerð
voru 26. f. m., verið eitt helsta dag-
skrármál um allan heim. Hrakfarir
þær sem íhaldsflokkurinn bretski
hlaut við þessar kosningar munu
lengi í njinnum hafðar og hve al-
þýðan bretska sýndi glögglega and-
úð sína á pólitík hans og fylkti sér
einhuga um stefnu þá er Verka-
mannaflokkurinn boðaði í utanrík-
is- og innanríkismálum Englands.
Verkamannaflokkurinn hlaut um
fjögur hundruð þingsæti og er það
rúml. 200 þingsætum fleira en
flokkurinn hafði áður. íhaldsflokk-
urinn fékk helmingi færri þing-
menn kjörna, eða um 200 og tapaði
þannig hátt á annað hundrað þing-
sætum- frá síðustu kosningum.
Frjálslyndiflokkurinn fór einnig
miklar hrakfarir.
Verkamannaflokkurinn hefir nú
hreinan meirihluta á þingi og um
Þrjú ný strand-
ferðaskip
Ríkisstjórnin hefir í undirbún-
ingi að fá smíðuð þrjú ný skip til
strandferða. Á eitt þeirra að vera
af svipaðri stærð og gerð og Esja,
eða 250—300 lesta, og er það eink-
um ætlað. að annast vöruflutninga
til minni hafnanna.
ORÐSENDING
Þeir meðlimir Sjómananfélags
Akureyrar, sem enn hafa eigi greitt
ársgjöld sín til félagsins fyrir yfir-
standandi ár, eru hér með vinsam-
lega beðnir að gera það sem fyrst.
Aðalsteinn Einarsson, gjaldkeri.
„Vinnan4
er tímarit verkamanna. 7.-8.
tbl nýkomið. — Kaupið „Vinn-
una“! — Lesið „Vinnuna"! —
Afgreiðslan er á
Skrifstofu verklýðsfélaganna.
160 þingmönnum fleira en hinir
flokkarnir allir samanlagt.
Strax og sýnilegt var hve hrun
íhadlsflokksins var gífurlegt, ók
Cchurchill til konungs og bar fram
lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Konungur fól Attlee, formanni
Verkamannafl., að mynda stjórn, og
hefir hann skipað í ráðherrasætin.
Hann er sjálfur forsætisráðhexra og
landvarnarráðherra; Ernst Bevin,
utanríkisráðherra; Hugh Dalton,
fjármálaráðherra; Herbert Morri-
son, varaforsftisráðherra.
Bretski Kommúnistaflokkurinn
studdi Verkamannafl. af alefli í
kosningunum. Hann bauð hvergi
fram, þar sem hætta var á að það
gæti valdið tapi Verkamfl. Sérstaka
athygli vakti það, að Kommúnista-
flokkurinn vann eitt þingsæti í
London. Hann hefir nú 2 þing-
menn, Paratin og Callacher, sem
áður var þingfulltrúi kommúnista.
Það tilkynnist hér með,
að herra Guðjón Bemharðsson hefur látið af umboðsstörfum
fyrir oss, en herra Þórður Sveinsson, kaupmaður, Verzlunin
Liverpool, Akureyri, tekið við af honum og biðjum vér háttvirta
viðskiptavini vora að snúa sér til hans. —
Vér viljum jafnframt vekja athygli á vorum ágætu líftrygg-
ingum og þá sérstaklega bamatryggingum.
Reykjavík, 1. jtili 1945.
Líftryggingafélagið A n d v a k a
« I IIIMlllllMIMIMMIMMIl tlMMMIIIMMIIIIMMIMMI tlMIIMIIMIIMMIIIIIMIIIMIMM'IIMIIIIIiMiMIMIMIMMMIIIIMlMMMMMIMtMMIMMMM,
Kosniiigarnar í Bretlandi
Verkamannaflokkurinn bætti við sig yfir 200 þingsætum.
Hlaut hreinan meirihluta í neðri málstofunni. Ihaldsflokk-
urinn hlaut hinar rnestu hrakfarir. Clement Attle orðinn
forsætisráðherra.