Verkamaðurinn - 11.08.1945, Blaðsíða 1
vERKflmflÐURinn
XXVIII. árg. Laugardaginn 11. ágúst 1945 29. tbl.
JðPanir hala senl Bandamönn-
1 um uppgjalarlilboð
Vilja ganga að Potsdamskilmálunum með því skilyrði
þó að keisarinn fái að halda völdunum
Stjórnir Bandamanna em að ræða uppgjafartilboðið
Potsdamyfirlýsingin
I henni eru ákvæði um algera afvopnun Þýskalands,
austur-landamæri þess, skaðabótagreiðslur og um
1 mörg fleiri mál
í gær skýrði Tokio-útvarpið svo
frá, að Japanir væru fúsip til að
gefast upp og ganga að Potsdam-
skilmálunum, sagði útvarpið að
ástæðan fyrir þessu væri sú, að Jap-
apnir ætfu við mikla örðugleika að
stríða og að keisaranum væri ant
um heimsfrjðinn. Tilkynti útvarp-
ið að Sviss og Svíþjóð hefðu verið
beðin að koma uppgjafatilboðinu
til hlutaðeigandi aðila.
Skömmu seinna tilkynti útvarpið
í Moskva, að japanski utanríkisráð-
herj-ann í Tokio hefði gengjð á
fund rússneska sendiherrans og til-
kynt ltonum að Japanir vildu ganga
að Potsdamskilmálunum.
Síðar fréttist að Attlee liefði
haldið stjórnarfund skömmu eftir
að þessi fregn barst til London og
Truman forseti boðaði einnig ráð-
herra sína á fund.
Potsdamskilmálarnir vopu ltjrtir
26. júlí sl. og höfryrðu Japanir
þeim. Éru jDeir í 13 greinum. Sam-
kvæmt þeirn ætla Bandamenn að
hernema nokkrar stöðvar í Japan
meðan verið er að uppræta jap-
anska fasismann. Japanir eiga að-
eins að ráða yfir heimaeyjunum
fjórum og auk þess nokkrum smá-
eyjum. Allar hergagnaverksmiðjur
á að eyðileggja. Mynduð skal lýð-
ræðisstjórn og komið á lýðræðis-
skjpulagi. S^ríðsglæpamönnum
verður refsað harðlega. Samkvæmt
Potsdamskilmálunum eiga Japanir
aðeins að ráða yfir hér um bil sama
landsvæði og þeir áttu fyrir 50 ár-
um, eða áður en þeir hófu land-
vinningas'tríð sín.
Þegar fregnin barst til London
fór fólkið dansandi og svngjandi
um götur borgarinnar. Tvejr kín-
verskir hershöfðingjar, sem staddir
voru úti á götu, voru teknir og
bornir á gullstól langar leiðir. Ver-
ið var að leika ensk lög í Moskva-
útvarpið er fregnin barst þangað,
Síldaraflinn nær helmingi
minni en á sama tíma
í fyrra
Um síðustu helgi nam síldarafl-
inn á öllu landinu, 364.570 hekto-
litrum, og er það 322 þúsund hekto-
litrum rninna en á sama tíma í
fyrra. Eru horfur í þessum efnum
hinar ískyggilegustu, þó hinsvegar
enn geti máske rætst úr með síld-
veiðina.
en er þulurinn hafði lesið fréttirn-
ar var farið að lejka rússnesk sigur-
göngulög. Frá Washington og París
bárust einnig fregnir um mikil
fagnaðarlæti.
Samkvæmt fregnum í morgun eru
nú stjórnir Sovétríkjanna, Banda-
ríkjanna, Bretlands og Kína að
íhuga uppgjafatilboð Japana, en
viðkomandi stjórnum hafa nú bor-
ist formlega skilaboð frá stjórn Jap-
ans fyrir milligöngu Svíþjóðar og
Svjss. Fréttaritarar telja að Banda-
ríkjastjórn sé þegar búin að gera
uppkast að svari.
Fregn frá (þhungking hermir að
kínverska stjórnin telji, að ekki
komi til mála að ganga að uppgjafa-
tilboði Japana, eins og Jrað sé fram
sett, því kínverska stjórnin hafi jap-
anska keisarann efstan á lista yfir
stríðsglæpamenn.
Tokio-útvarpið hermir, að öll
japanska stjórnin hafi samþykt
uppgjafatilboðið, þ. á. m. yfirmenn
hersins.
Sovétríkin hafa sagt Japan
stríð á hendur
Sovétríkin lýstu yfir stríði á hend-
ur Japönum 8. þ. m. og gekk stríðs-
yfirlýsingin í gildi frá og með mið-
nætti á aðfaranótt 9. Jr. m.
Er Rauði herinn kominn á mörg-
um stöðum inn í Mandsjúríu og
hefir lengst sótt fram 160 km. úr
vestri.
Mænuveiki í Reykjavík
Mænuveiki hefir orðið vart í Reykja-
vík og fyrir austan fjall. Ein kona hefir
látist af völdum veikinnar. Sögur hafa
gengið hér, um að veikin væri komip til
Akureyrar, en læknar tjáðu blaðinu í
morgun, að þær sögur væru eigi á rökum
bygðar.
Mongólska lýðveldið hefir sagt Japan
stríð é hendur.
Hæstiréttur • Noregs hefir staðfest
dauðadóminn yfir kvislingnum Reidar
Hogland.
Ýms dönsk blöð
m. a. 111. Familie Journal vænt-
anleg innan skams. — Tökum
á móti áskrifendum.
BÓKABÚÐ AKUREYRAR.
Sími 495 og 466.
í sl. mánuði hófst ráðstefna þeirra
Stalins, Churchills og Trumans í
Potsdam. 2. þ. m. var sameiginleg
yfirlýsing um ráðstefnuna birt sam-
tímis í Berlín, Moskvu, London og
Washington. Verður hér getið meg-
inatriða yfirlýsingarinnar.
Þýska nazismanum og þýsku
hernaðarstefnunni verður miskun-
arlaust útrýmt og munu hernáms-
stjórnir Bandamanna í Þýskalandi
hafa nána samvinnu til að tryggja
Jrað að Þýskaland verði algjörlega
afvopnað. Gengið verði ríkt eftir
því að allir stríðsglæpamenn verði
afhentir Bandamönnum.
Bandamenn munu beita sér fyrir
því, að efla Jrýskt stjórnmálalíf á
lýðræðisgrundvelli, en engin al-
ríkisstjórn verður í Þýskalandi fyrst
um sinn. Frjálsum verkalýðsfélög-
um verður leyft að starfa. Ákvörð-
un verður tekin um framtíðarstjórn
Þýskalands, þegar stjórnmálalíf
landsins er komið á það stig, að
hægt verði að mynda innlenda lýð-
ræðisstjórn.
Öll framleiðsla hergagna, flugvéla
og skipa í Þýskalandi verður bönn-
uð og strangt eftirlit verður haft
með allri annari framleiðslu, iðn-
aði, vélaframleiðslu og námustarfi.
Skaðabótakröfur Sovétríkjanna á
hendur Þjóðverjum verða greiddar
raeo verðmætum frá hernámssvæði
þeirra í Þýskalandi og einnig með
eignum Þýskalands erlendis. Sovét-
ríkin munu láta Póllandi i té skaða-
bætur af hluta sínum. Vesturveldin
munu fá greiddar skaðabótakröfur
með verðmætum frá öðrum hlutum
Þýskalands, en þó munu Sovétríkin
Stórmerkilcg uppfinning
Sl. þriðjudag var gert heyrum kunnugt
í Washington og London, að bretskir og
bandarískir vísindamenn hefðu í sam-
einingu fundið upp nýja sprengjutegund,
sem er þúsund sinnum aflmeiri en sterk-
ustu sprengjur, sem áður þektust. Hin
mikla orka, sem fólgin er í þessari nýju
sprengjutegund, stafar frá atomklofningu.
Bandamenn hafa varpað 2 slíkum
sprengjum á Japan, annari á borgina
Hiroshima en hinni á Nagasaki. Ljós-
myndir sýna, að um 60% af fyrnefndri
borg var í rústum og um þriðjungur af
Nagasaki.
STEFÁN ÍSLANDI
er væntanlegur til bæjarins n. k.
laugardag og nntn syngja í Nýja-
Bíó mánud. 20. þ.nn.
fá 25% af þeim véluni og iðnaðar-
tækjum, sem þar verða tekin í
skaðabótagreiðslur. Mikinn hluta
þeirra munu þau endurgreiða með
matvælum, kolum og öðrum nauð-
synjum, sem þau geta af hendi látið.
. Alt Austur-Prússland verður tek-
ið af Þjóðverjum. Fá Sovétríkin
meginið af því, þ. á. m. borgina
Königsberg, en Pólverjar fá nokk-
uð. Þeir fá einnig borgina Danzig
og umhverfi. Austurlandamaíri
Þýskalands verða færð vestur að
Frankfurt am Oder og Stettin og fá
Pólverjar þannig mikil landsvæði,
hluta af Pommern og mestalla
Slesíu.
Bandaríkin og Bretland lýsa yfir
þvi, að þau hafi hætt að viður-
kenna pólsku stjórnina, sem sat í
(Farmhald é 4. síðu).
Sumargistihús í Vaglaskógi
Nú í sumar hefir verið unnið að
því að reisa veitinga- og gistihús í
Vaglaskógi. Er það hlutafélagið
„Brúarlundur", sem að bygging-
unni stendur, en það er stofnað af
nokkrum mönnum í Reykjavík og
á Akureyri.
Loftur Einarsson, Akureyri, hefir
leigt hótelið í sumar og rekur þar
greiðasölu. Hóf hann þá starfsemi
um mánaðamótin júní—júlí. Bauð
hann blaðamönnum á Akureyri til
kvöldverðar í Vaglaskógi hinn 13.
f. m. og sýndi þeim mannvirkin,
er gerð hafa verið vegna greiðasöl-
unnar.
Gistihúsið verður reist af tveim-
ur stórum hermannaskálum, er
standa samsíða með nokkura metra
metra millibili. í öðrum þeirra er
stór veitinga- og danssalur (ca. 200
m2) en í hinum verða gistiherbergi.
Norðurendar skálanna eru tengdir
saman með steinsteyptri byggingu
og eru í henni forstofa, fatageymsla
snyrtiherbergi og lítil skrifstofa.
Myndast þá húsagarður milli þess-
ara bygginga og er ætlurrin að hafa
þar útiveitingar þegar výl viðrar.
Við suðurenda veitingaskálans er
einnig steinbygging ogf er þar eld-
hús, geymsluherbergi, uppþvotta-
herbergi og annað tilheyrandi.
Það er ástæða til að fagna því,
að greiðasölustaður sé reistur í
Vaglaskógi, því það auðveldar
mjög fólki að dvelja í skóginum,
lengri eða skemmri tíma, og njóta
fegurðar og heilnæmis þess ágæta
staðar. í stað þess að þurfa að nesta
sig, t. d. til vikunnar, og baxa við
(Framhald á 4. síðu),