Verkamaðurinn - 13.10.1945, Side 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 13. október 1945. 38. tbl.
leggur til að ísland sé aflient
Bandaríkjunum
Jslendingur^ tekup undir.
Þau tíðindi hafa gerst, að tvö
blöð, er telja sig málgögn Sjálfstæð-
isflokksins, leggja til að íslendingar
varpi hlutleysi sínu, og þá um leið
sjálfstæði sínu, fyrir borð og af-
hendi Bandaríkjunum landið, —
með því skilyrði, að þeir borgi
nokkrar miljónir fyrir.
Þetta bergmál Guðmundar ríka
hljómaði fyrst í heildsalablaðinu
„Vísi“, og síðan tók „lslendingur“
undir með „Vísir“ í gær.
Þessi afstaða lieildsalablaðsins
kom engum á óvart, því ,,Vísir“ hef-
ir um langt skeið rekið áróður fyrir
vaxandi ítök Bandaríkjanna hér á
landi. Mun lyktin af amerísku doll-
urunum hafa orðið þyngri á metun-
um hjá aðstandendum blaðsins, en
ástin á frelsi íslensku þjóðarinnar.
Ennfreipur mun hatrið til Sovét-
ríkjanna og sósíalismans hafa ráðið
nokkru um þessa furðulegu afstöðu
fyrnefndra blaða. Blindir óvinir
sósíalismans ala nú þá von í brjósti
og róa að því öllum árum, að
Bandaríkin taki að sér að feta í fót-
spor Hitlers-Þýskalands — og eru
svo grunnfærir að ímynda sér, eins
og Þjóðverjar, að öflug vopn, svo
sem atomsprengjur, muni koma
Rússum að óvörum og nægja til að
kveða hinn sigrandi sósíalisma nið
ur.
Á þessari barnalegu ímyndun
byggist m. a. ósk „Vísis“ og „íslend-
ings“ um að láta Bandaríkin hafa
fósturjörð Jóns Sigurðs'sonar for-
seta, eins og Laval og Quisling létu
lönd sín af hendi við Hitler og
gerðust þar með föðurlandssvikarar
og þjóðníðingar.
Norsku verklýðsflokk
arnir vinna glæsiíegan
sigur
Kommúnistar hafa fengið 11 þing-
sæti og Verkamannaflokkurinn 75
Síðastliðinn mánudag fóru fram
almennar þingkosningar í Noregi.
Fullnaðarúrslit eru ekki kunn
ennþá, en samkvæmt síðustu tölum,
sem birtar hafa verið, hafa verklvðs-
Rauði krossinn gengst fyrir
fjársöfnon tii Isfendinga er
vorn í Mið-Evrópu.
Rauði Kross íslands hefir haf-
ið fjársöfnun um land allt til
hjálpar bágstöddum íslending-
unt, sem dvalið hafa í ófriðar-
löndunum undanfarin ár og orð-
ið hafa fyrir þungum búsifjum
af völdum stríðsins. Þessi ákvörð-
un um fjársöfnun var tekin eftir
að sendimaður Rauða Krossins á
meginlandinu, Lúðvík Guð-
mundsson, skólastjóri, hafði
kynnt sér ástandið meðal fslend-
Haraldur Sigurðsson
píanóleikari
Tónlistarfélag Akureyrar fékk
þennan ágæta listamann til að
koma hingað og gefa bæjarbúum
kost á að njóta einbverrar hinnar
fegurstu og fullkomnustu tónlistar,
sem nokkurn tíma hefir heyrzt hér.
Hljómleikarnir voru í Nýja-Bíó
hinn 10. þ. m. Því miður var lista-
maðurinn svo timabundinn, að
hann þurfti að fara aftur næsta dag,
og því gátu Akureyringar ekki
fengið að hlýða á hann oftar.
Allt frá því er Haraldur Sigurðs-
son lét fyrst til sín heyra, hefir hann
verið viðurkenndur sem mikill
snillingur vegna afburðaleikni, stíl-
gáfu og óvenjulegrar fágunar, ná-
kvæmni og samvizkusemi í flutn-
ingi. Aftur á móti hafa sumir talið
hann óþarflega hlédrægan, og að
hann héldi nokkuð aftur af sínum
eigin tilfinningum.
En þess ber að gæta, að listin er
löng, og það sýnir einmitt virðingu |
listamannsins fyrir listinni sjálfri og
tónskáldum þeim, er hann túlkar,
að hann lætur sínar eigin tilfinn-
ingar ekki sitja í fyrirrúmi, en reyn-
ir að lifa sig inn í sálarlíf tónskáld-
anna og verka Jreirra. Enginn
píanóleikari er fær um að túlka til
lullnustu verk hinna miklu meist-
ara, fyrr en liann er búinn að ganga
í gegnum einhverja þá reynslu, sem
er hliðstæð eða sambærileg þeirri,
er tónskáldin höfðu orðið fyrir og
varð tilefni til tónverka þeirra.
Frá því er ég heyrði Harald Sig-
urðsson fyrst, hefir hann tekið mikl-
um breytingum. Tilfinningin hefir
dýpkað, ástríðumagnið aukizt, og
óhemju-viljakraftur gerir meir og
meir vart við sig. Nú er svo komið,
að sá eldur ástríðu og heitra til-
finninga, sem inni fyrir hefir búið
og alltaf hefir gert meir og meir
vart við sig, brýzt út í ljósum loga.
Framhald á 3.
inga þar og aðstoðað við að koma
sumum þeirra heim.
Margt af þessu fólki er blá-
snautt, bæði það sem heim er
komið og hitt, sem enn dvelur er-
lendis, og hjálp héðan að heiman
mundi geta komið því að miklu
liði og létt áhyggjum og hörm-
ungum af því um næstu framtíð.
Rauði Kross íslands hefir gefið
út ávarp til þjóðarinnar um
þetta mál og er fjársöfnujiin þeg-
ar hafin í Reykjavík og hefir
miðað vel áfram til þessa.
Rauði Kross Akureyrar hefir
ákveðið að beita sér fyrir söfnun
hér í bænum. Væntir deildin þess
að bæjarbúar bregðist vel við er
leitað er til þeirra til hjálpar bág-
stöddum löndum, ekki síður en
þegar knúð var dyra þeirra til
hjálpar frændþjóðunum á Norð-
urlöndum. Ekki mun þó að svo
stöddu verða gengið hús úr húsi,
(Framhald á 3. síðu).
flokkarnir unnið glæsilegan kosn-
ingasigur. Samkvæmt síðustu fregn-
um hafði Verkamannaflokkurinn
fengið 75 þingsæti, hafði 70 eftir
síðustu þingkosningar, Kommún-
istaflokkurinn 11, en hafði ekkert
þingsæti áður, Vinstri flokkurinn
21, áður 23, Hægri flokkurinn 27,
tapaði 1, Bændaflokkurinn 10, tap-
aði 8, Kristilegi þjóðflokkurinn 6,
vann 4.
Talningu atkvæða er ekki alstað-
ar lokið enn og fullnaðarúrslit eru
væntanleg næstu daga.
Kommúnistaflokkurinn % hefir
unnið langsamlega mest á. Hann
hafði engan þingmann eftir síðustu
kosningar fyrir stríðið, en hefir nú
fengið 11. Tala þingsætanna gefur
þó engan veginn rétta hugmynd um
hina raunverulegu fylgisaukningu
flokksins. Hann mun fá um 100
þús. atkv., en hefir þó aðeins 11
þingmenn á sama tíma og Verka-
mannaflokkurinn, sem hefir um
400 þús. atkvæði, hefir fengið 75
þingmenn.
Annað, sem er sérstaklega eft-
irtektarvert við kosningaúrslitin í
Noregi er fylgishrun Bændaflokks-
ins. Hann er hliðstæður íslenska
„Framsóknar“-flokknum og hefir
eins og „Framsókn" unnið sér það
til frægðar að berjast gegn komm-
únismanum eins og Hitler og Quisl-
ing. Bændaflokkurinn norski hafði
þessvegna Quisling í hávegum fyrir
hernámið og margir meðlimir hans
studd uÞjóðverja og Quisling, er
Noregur hafði verið hernuminn, og
því varð uppskera flokksins nú svo
studdu Þjóðverja og Quisling, er
rýr, þó að svörtustu sauðir hans
væru nú ekki hafðir í kjöri.
Kommúnistaflokkur Frakklands
vinnur glæsilegan sigur
Hann er nú stœrsti flokkur landsins
FJrslitin í héraðsstjórnarkosning-
unum í Frakklandi eru nú kunn,
en kosningar þessar fóru fram fyrir
rúmum hálfurn mánuði.
Hlaut Kommúnistaflokkurinn
flest atkvæði í þessum kosningum
eða 3,830.646 atkvæði, Sösíalista-
flokkurinn (jafnaðarmenn) fékk
3.730.049 atkv. og þriðji flokkur-
inn í röðinni var Radikaliflokkur-
inn. Fengu vinstri flokkarnir sam-
tals 9.464.314 atkv. utan stórborg-
anna, en hægri flokkarnir 4.387.962.