Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.05.1947, Blaðsíða 3

Verkamaðurinn - 09.05.1947, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN 3 1 Sí Idarbræðslustöðin Dagverðareyri h.f. tilkynnir: Allir þeir verkamenn, sem hjá oss unnu síð- astliðið sumar, eru áminntir um að segja til, hvort þeir ætli sér að vinna hjá oss næsta sumar, og gera það eigi síðar en 15. maí n. k. F ramk væmdast jórinn. TILKYNNING frá Síldarverksmiðjum ríkisins t Ctgerðarmenn og utgerðarfélög, sem óska að leggja bræðslusíldarafla skipa sinna upp hjá Síldarverksmiðj- um ríkisins á komandi síldarvertíð, tilkynni það aðal- skrifstofu vorri á Siglufirði í símkseyti eigi síðar en 15. maí næstkomandi. Sé um að ræða skip, 'sem ekki hafa skipt áður við verksmiðjurnar, skal, auk nafns skipsins, tilgreina stærð þess og hvort það geti hafið síldveiði í byrjun síldarvertíðar. Samningsbundnir viðskiptamenn ganga fyrir öðrum um móttöku síldar. Síldarverksmiðjur ríkisins ................................. = « \ j Heimilisiðnaðarsýning Vegna þátttöku í Landbúnaðarsýningunni í Reykjavík í júnímánuði næstkomandi verður heimilisðinaðarsýning hald- in á Akureyri á vegum Heimilisiðnaðarfélags Norðurlands dagana 24., 25 .og 26. maí næstkomandi (hvítasunnu). — Upp- lýsingar gefur varaformaður félagsins, Ragnheiður O. Björns- son, 1 fjarveru formanns. Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands. ;, MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIII IIMMMMMMMMMMMMMMMMIIMHIIMIIIMMmillHHIMMIIIIUIMMM' Það verður að hefja stórfelldar framkvæmdir í hafnarmálum bæjarins Það mun nú ljóst vera öllum hugs- andi mönnum, að það andvaraleysi, sem ríkt hefur í öllum aðgerðum afturhaldsflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar, getur ekki gengið leng- ur. Hafnarmannvirki bæjarins hafa verið og eru í hinni argvítugustu , niðurníðslu, og hefur meirihluti bæjarstjórnar aldrei lagt hlustir við þeim tillögum, sem fram hafa kom- ið, um stórfélldar framkvæmdir á hafnargerð bæjarins, hvort heldur að þær hafa verið bornar fram af hálfu Sósíalistaflokksins, eða verka- lýðssamtökum bæjarins. Venjuleg- asta afsökunarsvarið hefur verið að peningar væru ófáanlegir til fram- kvæmdanna. En það virðist vera léttvæg afsökun fyrir þá menn, sem staðið hafa þversum gegn öllum verklegum framkvæmdum af hálfu bæjarfélagsins, og sem þá einnig hafa hindrað, að ráðist yrði í stækk- un hafnarbryggjunnar, að bera því við, að lán til þeirra framkvæmda hafi ekki fengist á liðnum árum, á sama tíma sem smábæir, t. d. Ólafs- fjörður, Sauðárkrókur, Húsavík, Akranes o. fl. bæir, hafa fengið stór lán til hafnarbóta hjá sér. Nei, það þarf ekki að bera slíkar afsakanir á borð fyrir Akureyringa, þær verða ekki teknar alvarlega. Það er fyrst nú, þegar vitað er að bankastofnan- ir landsins kippa að sér hendinni með lánveitingar, þá er farið á stúf- ana til þess eins, er virðist, að gera tilraun til að klóra yfir þau víta- verðu vinnubrögð, sem átt hafa sér stað í framkvæmdarstjórn hafnar- málanna, undir forustu Sjálfstæðis- manna og dyggum stuðningi Fram- sóknar. Það verður ekki af Fram- sóknarmönnum skafið, að þeir eiga að miklu leyti sök á því, ástandi, sem nú ríkir í hafnarmálum bæjar- ins, eins og reyndar í öllum fram- kvæmdarmálum bæjarins, hverju nafni sem nefnist. Sósíalistaflokk- urinn lagði á það megináherzlu fyr- ir síðustu bæjarstjómarkosningaT, að fenginn yrði duglegur, fram- kvæmdasamur maður til að gegna bæjarstjórastarfinu í stað núverandi bæjarstjóra, sem sýnt hafði í starfi sínu undanfarin ár, að vera hinn verkandi hemill á alla eðlilega fram- takssemi um verklegar framkvæmd- ir, og þó sérstaklega í hafnarmálum Eyfirzkir togbátar fara á jörurnar við Húnvetninga Fyrir nokkru gerðust þau tíð- indi, að ekki færri en 9 norðlenzkir togbátar voru staðnir að veiðum innan við landhelgislínuna, rétt við Vatnsnesfjörur. Höfðu bændur þar á nesinu séð til bátanna innan við og utan við landhelgislínuna nokkra daga og gert sýslumanni sínum aðvart, en hann mun hafa comið þeim skilaboðum til skip- anna, að þeim myndi ráðlegast að halda sig heldur dýpra, ef þau vildu ekki hafa verra af. En þegar það var tilgangslaust, sneri sýslumaður sér til landhelgisgæzlunnar, sem sendi regar á vettvang flugvél. Þegar flug vélin kom norður, voru bátarnir í óezta næði upp við Vatnsnes- jörur, og tóku skipverjar flug- mönnunum með miklurn innileik og hugðu þá vera mundu á ,,sport“- flugi eða í leit að lendingarstöðum. Urðu það því ekki lítil vonbrigði fyrir skipstjórana, er komumenn ifóru að láta dólgslega og minnast á einhverja landhelgislínu og laga- brot í sambandi við hana og buðu >eim að halda til hafnar, svo hægt væri að taka mál þeirra fyrir. Togbátar þeir, sem hér voru að verki, eru þessir: Njörður og Súlan frá Akureyri, Andey og Eldey frá Hrísey, Hannes Hafstein frá Dal- vík/Njáll frá Ólafsfirði og Gestur, Geir og Sigurðu frá Siglufirði. Hafa ráðamenn skipastóls þessa sýnt virðingu sína fyrir íslenzkri landhelgi og lögum og gefið erlend- um veiðiskipum fagurt fordæmi! Er þetta eflaust gert af vinarhug og virðingu fyrir ríkisstjórninni. bæjarins, enda bera þau þess glöggt vitni Torfunefsbryggjan, Innri liafnarbryggjan og bæjarbryggjum- ar á Tanganum. Framsóknarflokkurinn hafði geng- ið inn á það við Sósíalistaflokkinn og Alþýðuflokkinn, þegar bæjar- málefnasamningurinn var gerður, að vera með í því að reyna til hlítar að fá annan mann í stöðuna, en sveik það á síðustu stundu, er hann því sömu sökinni seldur, þó að flokksblað þeirra nú, ,,Dagur“, vilji ekki kannast við krógann, og vilji láta líta svo út, sem sökin sé aðeins hjá bæjarstjóranum einum, óvið- komandi Framsóknarfl. Nei, þessir tveir flokkar eru hér samsekir og hljóta því eðlilega hinn þunga dóm bæjarbúa fyrir hin svikulu störf sín. Sósíalistaflokkurinn hefur ávallt haWið því fram, að nauðsyn bæri til. þess að hefja hér stórframkvæmdir í hafnargerð, svo að Akureyri stæði ekki að baki öðrum stöðum \ þeim efnum. Hann hefur lagt ríka áherzlu á í bæjarstjórn um áfram- haldandi framkvæmdir sjóvamar- garðsins á Oddeyrartangi, svo að þar sköpuðust möguleikar til byggingar dráttarbrautar o. fl. Verður nú þegar að hefjast handa til framkvæfda í þessum efnum og þurfa verkamenn í bænum og reyndar allur almenningur að fylg - ast vel með þessum málum, og hrinda þeim í framkvæmd, hvað sem það kostar. Leiðrétting Eg hefi orðið var við allvíðtæk- an misskilning hjá bæjarbúum hvað viðkemur’atkvæðagreiðslu í Bífstjórafélagi Akureyrar um vinnustöðvun. Þessi misskilning- ur er aðallega tvenns konar: I fyrsta lagi, að deila þessi standi um hækkun á ökutaxta bifreiða. Og í öðru lagi, að hér sé um póli- tískt verkfall að ræða. Vegna þessa tel eg rétt, að taka fram eft- irfarandi: Hér er ekki um að iæða leigugjaW bifreiða, heWur kaup og kjör launþega í Bíl- stjórafélagi Akureyrar. Hér er eingöngu um faglegt mál að ræða, sem sést meðal annars á því, að kröfur þær, sem Bílstjóra- félagið gerði, voru settar fram áður en vitað var um þær tolla- hækkanir sem nú eru orðnar að löghm. Hafsteinn Halldórsson. Góður íbúðarbraggi til sölu. — Tæklfærisverð. — Upplýsingar hjá Jóni Ingimarssyni, Klapparstíg 3. Sírni 544. Auglýsing í „Verkamanninum er lesin á 4 —500 heimil'um í bænum. Auglýsing í Verkamanninum fer ekki fram hjá neinum, sem fær blaðið í hendur. Auglýsing í Verkamanninum nær til flestra neytendafjöl- skyWna í bænutm. Kaupmenn! Auglýsið vörur ykkar í Verkamanninum — og vörurnar seljastl

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.