Verkamaðurinn - 05.03.1948, Page 4
VF.RKAMAÐURINN
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
HAMARINN
eftir sr. Jakob Jónsson frumsýndur sl. laugardag
Föstudaginn 5. marz 1948
Úr ýmsum áttum
Leikfélag Akureyrar hefur að
þessu sinni tekið til meðferðar nýtt
og stórbrotið, íslenzkt leikrit, Ham-
arinn, eftir sr. Jakob Jónsson, en sr.
]akob er nú í fremstu röð þeirra,
sem leggja fyrir sig leikritaskáld-
skap á íslandi.
„Hamarinn" fjallar fyrst og
fremst uni tvö vandamál, sem nú
eru mjög ofárlega á baugi meðal
þjóðarinnar, og eru þau hvort
tveggja félagslegs eðlis, þ. e. þjóðfé-
lagsmálin og drykkjuskapurinn.
Stéttarbaráttan og átökin um
völdin í þjóðfélaginu eru snar þátt-
ur í þessu leikriti og einnig hvaða
vopnum er beitt, eftir því hvaða
stétt á í hlut. Fulltrúi alþýðunnar,
verkalýðsins, er Dóri járnsmiður,
einarður og ósveigjanlegur, en þó
þeiðarleghr og sannur maður. And-
stæðan við hann er Þórður Snorra-
son, ærulaus fjárglæframaður, sem
einskis svífst til þess að afla sér auðs
og valda. Þessi maður er sannur
fulltrúi auðvaldsins, þeirra manna,
sem enga samvizku eiga aðra en fé
sitt. Annar fulltrúi auðvaldsins er
Þrándur konsúll, sem virðist liafa
náð undir sig heilu þorpiþóþannig,
sem kallað er á heiðarlegan há.tt.
Þessar tvær stéttir, andstæðurnar
í hinu borgaralega þjóðfélagi nú-
tímans, eru hér leiddar fram á svið-
ið og látnar heyja sín átök og endir-
inn er augljós, þó að ekki sé sagt
með berum orðurn, sigur alþýðunn-
ar, réttlætisins.
Inn í þessi átök eru fléttuð atvik,
sem allir hljóta að kannast við, má
sérstaklega nefna flugvallarmálið,
þc') að þarna sé það leitt fram á sér-
stakan hátt, getur þó ekki hjá því
farið, að flestum hafi dottið 5. októ-
ber í hug, er þeir horfðu á leikinn.
Eins og getið hefur verið er
drykkjuskaparvandamálið annar
veigamesti þátturinn í þessu leikriti
og er þar dregíð fram á skýran en
máske nokkuð öfgafullan hátt,
hvernig Bakkus konungur getur
gjöreyðilagt ágætustu menn og
hvernig ósvífnir glæpamenn nota
sér veikleika manna fyrir áfenginu.
Hér skal ekki frekar um leikritið
rætt, en eg tel íslenzkum leikbók-
menntum feng að því og Leikfélagi
Akureyrar sóma af því að hafa valið
það til sýningar.
Meðferð leikendanna er yfirleitt
góð. Leikstjórinn, Jón Norðfjörð,
leikur aðalhlutverkið, Odd Geir-
mundsson. Að vanda skilar Jón því
af sér með prýði og víða með ágæt-
um. Konu hans, Ingibjörgu, leikur
Björg Baldvinsdóttir, og leysir hún
einnig sitt hlutverk, sem ej þó mjög
erfitt víða, prýðilega af hendi. Dóra
járnusmið leikur Eggert Olafsson.
Það hlutverker með þeim, sem bezt
eru af hendi leyst í þessu leikriti, og
er þó hægt að segja, að lélegur leik-
ur sé vart til. Konsúlshjónin, Þránd
°g Gógó, leika þau Gunnlaugur H.
Sveinsson og Svafa Jónsdóttir.
Gunnlaugur er nýr maður á leik-
sviði hér á Akureyri og er tvímæla-
laust fengur af því að fá þann liðs-
auka. Um leik Svöfu Jónsdóttur
þarf ekki að fjölyrða, hún er fyrir
löngu orðin ein af vinsælustu og
beztu leikkonum þessa bæjar og
skeikar ekki að þessu sinni frekar
venju. Foreldra Odds, Geirmund
og Sveinbjörgu, leika Björn Sig-
mundsson og Sigurjóna Jakobsdótt-
ir. Þórð Snorrason leikur Hólmgeir
Pálmason og auk þess margir aðrir,
sem ástæða væri til að geta um. En
eins og áður er sagt, er meðferð leik-
endanna yfirleitt góð og víða með
ágætum að því er eg fæ séð.
Leikfélag Akureyrar á þökk skil-
ið fyrir þennan leik og væri vel ef
svo giftusamlega tækist oft til með
val leikrita til flutnings hér og í
þetta sinn. Þess er að vænta að bæj-
arbúar sæki þennan leik vel, því að
efni hans á erindi til allra.
Vöruverð fer síhækkandi í gósen-
landi auðvaldsins, Bandaríkjunum.
Sl. ár hækkaði verð á hveiti þar um
44% og verð á maís um 94%.
Aðeins 17% af íbúum Tyrklands,
aðallega í borgunum, eru læsir og
skrifandi. Tyrkneska tímaritið
„Millet“ telur að í 30 þúsund þorp-
um vanti alþýðuskóla. En á sania
tíma fara nærri því 5Ö% af útgjöld-
unum á fjárhagsáætlun ríkisins til
hers og lögreglu. Tyrkland er eitt
af þeim löndum, sem njóta góðs af
amerískri „hjálp“, en þessi hjálp er
fólgin í hergögnum og skotfærum,
en ekki í því að uppræta fáfræðina
í landinu.
Verð á bílum fer nú hækkandi er-
lendis Plymouth hefur t. d. hækkað
úr sænskum kr. 9.700.00 í 10.190.00,
Ford Anglia úr 3.825.00 í 4.300.00,
Citroén úr 7.900.00 í 8.8(50.00. Með-
al þeirra bíla, sem hafa hækkað í
verði eru: Chrysler, De Soto, Dod-
ge, Fiat, Hudson og Nash. Mótor-
lijól hafa einnig hækkað í verði.
í Tékkóslóvakíu fá mæðurnar
styrk frá ríkinu með hverju barni
sínu og nemur hann 270 kr. ísl. á
mánuði, nú hefur verið ákveðið -að
ófrískar konur skuli einnig fá þenn-
an styrk frá og með sjötta mánuði
meðgöngutímans.
Grískur milljónamæringur, að
nafni Apostoles Kuskulas, yfirgaf
þennan heim á nýstárlegan hátt, að
því er blað nokkurt í Lissabon
skýrði frá. Kuskulas, sem bjó í
Galveston í Texas, hvarf einn dag-
inn. Öll leit að honum reyndist
árangurslaus, unz lík hans fannst að
lokum í stórum peningaskáp, sem
hann hafði í íbúð sinni. Kuskula
hafði farið inn í skápinn til að telja
peninga sína, hafði hurðin þá skoll-
ið í lás og varð hann þannig grafinn
lifandi í peningum sínum.
Flokkur fólkdemokrata í Finn-
landi krefst þess að 10 stærstu út-
flutningsfyrirtæki landsins verði
þjóðnýtt.
Her kommúnista í Kína hefur nú
umkringt her .Chang Kaj Cheks í
Mukden, stærstu borg Mansjúríu.
Nú berast fréttir um að mörg
hundruð þúsund bændur í þeim
héruðum Kína, sem Chang Kaj
Chek hefur enn á valdi sínu, hafi
gert uppreisn að baki víglínunni.
Þessi uppreisn bændanna hittir nú
aumasta blettinn á Chang Kaj Cliek
— sem er skortur á hermönnum.
Setsjuan er eitt ríkasta og fólksflesta
fylkið í Kína. í 100 héruðum þar
hafa bændur gert uppreisn og í
tveim héruðum Hunan, Kveitsjou
og Sikang eru 300 þúsund bændur
undir vopnum. í Jynnan eru rúm-
lega 40 þúsund bændur undir vopn-
um og þeir hafa aðallega nýtízku,
amerísk vopn, sem þeir hafa tekið
herfangi hjá hersveitum Chang Kaj
Cheks.
Yfirvoldin í New-York liafa hvatt
blöðin til þess að birta sem minnst
af ljósmyndum og teikningum, sem
sýna kvenmannsfætur og aðra þess
háttar fegurð, sem dregtir að sér
sérstaka athygli hins kynsins.
í Minnesota er samkvæmt lögtim
bannað að hengja t)rækur kvenna
og karlmanna upp til þerris á
sömu þvottasnúrunni. Hins vegar
hengja Bandaríkjamenn negra þeg-
ar þá lystir, án þess að Truman og
vinir hans rumski.
Framleiðslan á brúnkolum á
hernámssvæði Sovétríkjanna í
Þýzkalandi, er nú orðin eins mikil
og hún var fyrir stríð, þrátt fyrir
áætlun Rússa um brottflutning á
vélum. Af gerfi-benzíni og diesel-
olíu er framleidd 1 milljón tonn, og
er því unnt að flytja nokkurn hluta
af því til vesturhernámssvæðanna.
Gerfi-gúmmí er framleitt í svo stór-
um stíl, að það meira en fullnægir
■þörfinni. Á hernámssvæði Sovét-
ríkjanna eru aðeins .90 þús. flutn-
ingavagnar (járnbrautarvagnar) á
móti 225 þús. á vestur-hernáms-
Aðalfundur Verkamanna-
félags Glæsibæjarhrepps
Aðalfundur Verkamannafélags
Glæsibæjarhrepps var haldinn
fyrra sunnudag.
I stjórn voru kosnir:
Form.: Árni Jónsson.
Ritari: Friðrik Kristjánsson.
Gjaldkeri: Gunnlaugur Einarss.
Meðstjórn.: Jónas Aðalsteinsson,
Sigurjón Jónsson.
svæðunum, en þrátt fyrir þetta hef-
ur flutningaþörfinni verið fúllnægt
um 75%, en aðeins um 50% á vest-
ur-hernámssvæðunum.
Síðastl. ár juku 7 stærstu bank-
arnir í Svíþjóð nettotekjur sínar um
30%, miðað við frá því árið 194(5,
en tekjur þeirra það ár voru meir
en þær höfðu nokkru sinni verið
áður.
Fyrir stríð voru 24% af öllum
iðnaðarvörum Þýzkalands fram-
leiddar í hernámssvæði Sovétríkj-
anna, en nú er þessi tala komin upp
í 32,6%.
★ SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ á
Akureyri heldur árshátíð sína að
! Hótel KEA næstk/ laugardagskvöld
kl. 7 e. h. Aðgöngumiðar seldir í
, verzl. London tvo síðustu dagana
1 fyrir mótið.
Guðjón Jónsson
áttræður 23. febrúar 194S.
Foreldrar Ipns voru hjónin Þór-
dís Hallgrímsdóttir Árnasonar frá
Skútum og Jón Jónsson bóndi í
Hringverskoti í Ólafsfirði. Er Guð-
jón því körriinn af merku bænda-
fólki í báðar ættir. Kona hans var
Margrét Árnadóttir Hallgrímsson-
ar frá Skútum, frændkona hans, var
hún uppalin hjá Sigríði og Katli,
sem lengi bjuggu í Miklagarði og
allir Eyfirðingar þekkja.
Guðjón hóf búskap í Kálfagerði í
Saurbæjarhreppi og bjó þar í 10 ár,
en fluttist svo að Eyvindarstöðum
og bjó þar síðan öll sín búskaparár,
unz hann fluttist með Katli syni sín
um að Eyvindarstöðum í Hrafna-
gilshreppi, en Ketill hóf þar búskap
laust eftir 1920. Þar hefur Guðjón
verið lengst af síðan.
Gestkvæmt var mjög á Finna-
stöðum á áttræðisafmæli Guðjóns,
munu þar alls hafa komið á annað
hundrað manns, og var það hóf í
alla staði hið myndarlegasta. Ketill
bóndi hafði nýlokið við að koma
upp rafstöð, svo að allt var ljósum
prýtt og gleðskapur hinn mesti.
í því liófi flutti Jóhannes Þórð-
arson á Espihóli Guðjóni eftirfar-
andi afmælisljóð:
Við sitjum hér við sumbl í kvöld,
með söng og orðagaman,
því gleðin hefur gripið völd
hjá gestum öllum saman.
Hér áttræður var einn í dag,
sem ungur sýnist vera.
Við skulum hrópa húrralag
og heillaósk fram bera.
Þig gæfan léði, Guðjón minn,
og gleðji vel og lengi.
Þú gengur röskur út og inn
og ert í bezta gengi.
Þú gerir mörgu góðu skil
og gleymir ekki að vinna.
Þú finnur leggja um þig yl,
frá ástum vina þinna.
Og lifðu bæði heill og hress
í hollra vina ranni.
Og hérna öll við óskum þess,
að örlög slíkt ei banni.
Á ókominn þinn æfistig
sé unaðsgeisli sendur.
Svo blessi drottinn þjóða þig
og þína afkomendur.